Morgunblaðið - 05.10.1983, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1983
53
■H M '
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
,lk utítttí^
Hallgrímskirkjutum:
Sjálfsagt að athuga
með útvegun á sjónpípu
fyrir hjólastólafólk
Hermann Þorsteinsson,
formaður sóknarnefndar
Hallgrímskirkju skrifar:
„Ég þakka Gesti Sturlu-
syni fyrir athyglisverða
ábendingu í Velvakanda 27.
september sl. Sjálfsagt er að
athuga með útvegun á sjón-
pípu í turninn, sem hann
nefnir, en vera kann að við
þyrftum eitthvað nánari
upplýsingar, svo að gott
væri að fá upphringingu í
síma 15942 einhvern daginn
til skrafs og ráðagerða um
málið.
Já, auðvelt er fyrir hjóla-
stólafólk að komast inn í
Hallgrímskirkju og við höf-
um hugsað okkur auðvelda
leið fyrir sama fólk allt upp
að altari í hinum stóra
kirkjusal framtíðarinnar.
Bestu kveðjur."
ÚTSALA
Karlmannaföt kr. 650,-, 1.795,- og 1.995,-
Úlpur, minni stærðir, kr. 495,-
Terelynebuxur kr. 250,-
Gallabuxur, minni stæröir, kr. 350,-
Frakkar kr. 650,-, bolir kr. 50.-
Peysur, lítil númer, kr. 150,-
Andrés, Skólavörðustíg 22a.
Að dæma sjálfan sig
til lífstíðaránauðar
Ronald Kristjánsson skrifar:
„Velvakandi.
Nú sígur hauströkkrið og veður
fara kólnandi. Jurtaríkið leggst í
dvala. Þá vill það henda margan
manninn að leggja á flótta, flýja
skammdegið og leita á náðir
blekkingarinnar, þeirrar er kölluð
hefur verið „mesta mein aldarinn-
ar“, ofdrykkjunnar.
En vissulega þarf ekki skamm-
degi til; Bakkus gerir ekki grein-
armun á árstíðum; þá eru fórnar-
lömb hans bara enn veikari en ella
fyrir skjalli hans, a.m.k. sum hver.
Ekki ætla ég að dæma um, hvort
nefndur flótti Bakkusarbarna er
sjúkdómur eða aumingjaskapur,
enda hjálpaði sá dómur minn eða
anarra í engu flóttamanninum,
sem búinn er að missa stjórn á lífi
sínu. Hitt ætti að vera lýðum ljóst,
að vandamál þetta er svo mikið að
umfangi, að það varðar ekki að-
eins einstaklinga og fjölskyldur
þeirra, heldur allt þjóðfélagið og
framþróun þess. Það kemur okkur
öllum við.
Fjarri sé mér að vera að for-
dæma áfengið. Hitt er staðreynd,
að margir á meðal okkar geta
aldrei lært að fara með það og
þeim er ráðlegast að láta það vera.
Mikilvægt er að beina þeim frá
áfenginu, en ekki áfenginu frá
þeim. Slíkt væri skerðing á per-
sónufrelsi.
Sá sem misfer með áfengi, er á
hinn bóginn að skerða persónu-
Þessir hringdu . . .
Er búiö aö
selja gömlu
Akraborgina?
Jóhannes Pétursson hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — Mig
langar til að forvitnast um það,
hvort búið sé að selja gömlu Akra-
borgina. Ef ekki: Hvernig standa
þau mál nú?
frelsi sitt sjálfur, af fúsum og
frjálsum vilja. Hann er að leggja
hömlur á andlegt og líkamlegt at-
gervi sitt, rugla jafnvægi sálar og
líkama og stórminnka hæfni sína
til þátttöku í daglegri önn. Hann
verður smátt og smátt óvirkur
fjölskyldumeðlimur og þjóðfélags-
þegn. Meira að segja stafar af
honum slysahætta, bæði fyrir
sjálfan hann og aðra.
Það er annars einkennileg þró-
un í lýðfrjálsu landi, að þar skuli
menn leiðast út í að rækta með sér
slíka sjálfseyðingarhvöt og ófrelsi,
á sama tíma og aðrir berjast von-
lausri baráttu við einræði og kúg-
un. Já, þá streitast menn við það,
mitt • í öllu frelsinu, að dæma
sjálfa sig til lífstíðaránauðar og
útlegðar.
Það er vert að hafa það ævin-
lega hugfast, að framtíð okkar er
dagurinn í dag. Við verðum að efla
með okkur kjark til að vera ábyrg
og vísa á bug öllum neikvæðum
hugsunum. Til þess þurfum við
sjálfsaga og grandvara."
GÆTUM TUNGUNNAR
Einhver sagði: Myndin hengur á veggnum.
Rétt væri: Myndin hangir á veggnum.
HEILRÆÐI
Börnin í umferðinni eru börnin okkar. Þar sem þau eru á eða
við akbrautir, er nauðsynlegt að sýna sérstaka aðgát. Öll
viljum við vernda börnin fyrir hættum í umferðinni. Það
gerum við best með því að sýna gott fordæmi.
Veljið
það besta
Veljið
IFORMICA
BRAND
„Formica“, fyrsta efni sinnar tegundar og alltaf síöan
fremst um gæöi, útlit og endingu. Hvort sem um er
aö ræða eldhúsinnréttinguna, baöherbergiö, sól-
bekkina eöa annarsstaöar þar sem reynir á hina
níösterku húö „Formica“.
Og svo þarf ekki annað en rakan klút til aö halda öllu
hreinu. Fjölbreytt úrval af litum og mynstrum.
Lítiö inn eöa hringiö.
G. ÞORSTEINSSON 8 JOHNSON H.F.
Ármúla 1 Simi 85533
ALLTAFA FIMMTUDOGUM
BROSTU!
MYNDASÖGURNAR
*
Vikuskammtur afskellihlátri