Morgunblaðið - 11.10.1983, Page 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
232. tbl. 70. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1983
Frönsku þoturnar auka
spennu við Persaflóa
Bandaríkin hóta íhlutun loki íranir Hormuz-sundi
París, 10. október. AP.
FRANSKA ríkisstjórnin hefur
reyndar ekkert látið frá sér fara, en
talið er næsta víst, að hinar fimm
Super Etenard-orustuþotur, sem
lögðu ómerktar af stað frá frönskum
flugvelli fyrir fáum dögum, séu nú
komnar til fraks, enda höfðu frakar
gengið frá kaupsamningi um kaup á
fimm slíkum vélum og höfðu áður
keypt allmikið magn af Exocet-
flugskeytum.
Víða á Vesturlöndum hafa
menn lýst áhyggjum sínum vegna
þessa, enda hafa íranir hvað eftir
annað hótað því að loka Hormuz-
sundi fái frakar þoturnar, en um
Hormuz fer mest af þeirri olíu
sem Vesturlönd kaupa frá þessum
slóðum. Hafa jafnvel verið leiddar
að því getur, að stæðu franir við
hótun sína gæti útkoman orðið
meiriháttar ófriður á þessum slóð-
um, mun meiri en stríð frans og
íraks og með þátttöku ýmissa
annarra ríkja.
Nú reynir á hótanir frana. Talið
er að írakar hafi í huga að ráðast
með Exocet-skeytum að helsta
olíuvinnslusvæði frana við
Kharg-eyju, eða á oliuflutninga-
skip þeirra er þau sigla með olíuna
um Hormuz-sund. Er það mál sér-
fræðinga að liðsandi fraka sé
bágborinn eftir hið þriggja ára
gamla stríð landanna. Sjóðir eru
tómir, en íranir þéna vel á olíu-
viðskiptum. „Frakkar ættu að vita
mæta vel, svo og aðrar þjóðir sem
treysta á olfuna okkar, að við
munum ekki senda einn einasta
dropa ef einhver vopn koma til
sem stefna í voða olíuframleiðslu
okkar," sagði Ali Sayed Khamen-
ei, forseti Iran, í gær.
Það eru skiptar skoðanir á því
hvort íranir láti verða af hótunum
sínum. Fyrir fáum árum hefði
ísrael:
Nýja stjórnin
hefst handa
Tel Aviv, 10. október. AP.
STJÓRN Yitzhaks Shamirs hlaut
traustsyfirlýsingu hjá ísraelska
þinginu í gær, 60 þingmenn
greiddu stjórninni atkvæði sín, en
53 voru á móti, sjö voru fjarver-
andi.
Stjórn Shamirs á stuðning 64
þingmanna hinna 120 sem sæti
eiga og hóf hún þegar störf.
Breytingarnar á stjórnarliðinu i
fsrael eru engar frá fráfarandi
stjórn, utan hvað Menachem
Begin er ekki til staðar. Ráðherr-
arnir að öðru leyti hinir sömu, og
Shamir fer sjálfur með embætti
forsætis- og utanríkisráðherra.
Shamir sagði í ræðu á þinginu,
að stjórnarfarið yrði í flestum
megindrögum óbreytt frá þvi
sem áður var, utan hvað enn
harðar yrði tekið á efnahagsmál-
unum, en efnahagur landsins er
afar bágur um þessar mundir,
þriggja stafa verðbólga og í gær
var sett bann á viðskipti með er-
lendan gjaldeyri í israelskum
bönkum.
varla nokkur maður verið í vafa.
En nú er öldin önnur, til dæmis
var haft eftir Claude Cheysson,
utanríkisráðherra Frakklands, i
gær, að íranir myndu varla gera
hlut sem þennan, það væri ekkert
annað en „sjálfstortíming".
Þá má geta þess, að margir sér-
fræðingar á Vesturlöndum telja
að aðgerðir frana myndu ekki
endilega valda því öngþveiti sem
talið var í fyrstu. Um Hormuz-
sund fara daglega allt að 9 millj-
ónir tunna af olíu, en talið er að
helminginn af því magni mætti
flytja með öðrum leiðum en um
Hormuz. Þeir benda einnig á að
Vesturlönd eigi umframbirgðir af
oliu sem geta enst í 93 daga, auk
þess sem önnur olíuframleiðslu-
ríki, svo sem Mexíkó og Venezúela,
eiga mikið magn af umframolíu
sem þau vildu gjarnan losa sig við.
En hvað gerist veit enginn og
minna má á, að Bandaríkin hafa
tilkynnt að þau muni ekki hika við
að stofna til þeirra aðgerða sem til
þarf til að halda Hormuz-sundi
opnu.
Chun Doo-Hwan, forseti Suður-Kóreu, ræðir við U San Yu, forseta Burma, skömmu eftir sprengjutilræðið á
sunnudaginn.
Sprengja sprakk í Rangoon:
Fjórir kóreskir
ráðherrar fórust
Kangoon, Burma, 10. október. AP.
ÖFLUG SPRENGJA sprakk í Martyrs Musoleum í
Rangoon í Burma á sunnudaginn, er forseti Suður-
Kóreu, Chun Doo-Hwan, og fylgilið hans var þar statt í
boði yfirvalda í Burma. 19 manns létu lífið í sprenging-
unni, þar á meðal fjórir ráðherrar úr stjórn Suður-
Kóreu. 48 manns særðust, en Doo-Hwan slapp naum-
lega, en nokkrum mínútum eftir að sprengjan sprakk
átti hann að leggja blómsveig á minnisvarða á staðnum.
Var hann ókominn er sprengjan sprakk.
Ráðherrarnir sem létust voru Suh Suk-Juun, að-
stoðarforsætisráðherra, Lee Bum-Suk, utanríkis-
ráðherra, Kim Dong-Whie, iðnaðarráðherra, og
orkumálaráðherran Su Sang-Chul. Var hópurinn að
hefja 18 daga heimsókn til 6 landa, en henni var
samstundis aflýst. Þjóðarsorg var í Suður-Kóreu í
gær og forsetinn stórorður í garð Norður-Kóreu-
manna, sem hann ásakaði að hafa staðið að tilræð-
inu.
„Þeir eru mestu skepnur jarðarinnar,“ sagði Doo-
Whan. f Norður-Kóreu var skýrt frá atburðinum
með hæðnislegum hætti, en víðast hvar var tilræðið
vítt, og Páll páfi annar sendi forsetanum persónu-
legar samúðarkveðjur. í Austur-Evrópu var hins
vegar einungis greint frá atburðinum, en ekki lagður
á hann dómur. Enginn hefur gengist við tilræðinu,
en böndin bárust að Norður-Kóreumönnum.
Sjá nánar frétt á blaðsíðu 19.
Dularfullur dauðdagi 4
mánaða tvíbura í Wales
EINEGGJA tvíburar, Gabrielle og Samantha, fjögurra mánaða gamlar, létust meó
voveiflegum hætti um helgina. Þær voru hvor í sínu barnarúminu, hvor í sínu
herberginu, en eigi að síður létust þær á að þvf er virðist sama augnablikinu.
Læknar í velska bænum Rhyl,
sögðust f gær ekki geta úrskurðað
banameinið, en grunur lék á því að
um nokkuð algengan köfnunarsjúk-
dóm væri að ræða, sjúkdóm sem
leggst fyrst og fremst á hvítvoðunga.
Um 2000 ungabörn látast úr sjúk-
dómnum í Bretlandi ár hvert.
Þetta er eitthvert undarlegasta
mál sem ég hef lent f,“ sagði læknir
að nafni Wayett, sem framkvæmdi
fyrstu rannsóknina á börnunum.
Hann sagði jafnframt, að móðir
barnanna hefði frá upphafi haft þau
hvort í sínu herberginu til þess að
þau heldu ekki vöku hvort fyrir öðru.
John Emery, prófessor við háskól-
ann í Sheffield, sem rannsakað hefur
ýtarlega umræddan barnasjúkdóm,
sagði lækna gera sér grein fyrir þvf
að tvíburum væri sérstaklega hætt
við sjúkdómnum, hins vegar væru
engin svör til við því hvers vegna.
„Alltaf ef annar tvíbura andast
eða sýkist, er hinn fluttur á sjúkra-
hús svo fljótt sem auðið er, og ótrú-
lega oft veikist hann einnig innan
sólarhrings," sagði Emery.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Frú Barbara McClintock, 81 árs
gamall nóbelsverðlaunahafi fyrir
rannsóknir í læknavísindum.
Símamynd AP.
Rúmlega
áttræður
nóbelsverð-
launahafi
Stokkbólmi, 10. október. AP.
FRÚ BARBARA McClintock, 81 árs
gömul vísindakona, fékk í gær nóbels-
verðlaunin fyrir rannsóknir f þágu
læknavísindanna. Er hún þriðja konan
sem hlýtur verðlaunin og sú fyrsta sem
það gerir án þess að vera f samvinnu
við aðra vísindamenn.
Verðlaunin hlaut frú McClintock
fyrir rannsóknir sem hún vann að
fyrir 30 árum síðan og voru niður-
stöðurnar svo stórkostlegar, að
henni trúði ekki nokkur maður.
Rannsóknir og niðurstöður frú
McClintock beindust að hreyfanleg-
um erfðaeiginleikum í kornjurtum.
Niðurstöðurnar fékk frú McClintock
áður en að uppbygging DNA var
kunn og þær breyttu einnig geysi-
lega vitneskju manna um starfsemi
vírusa. Miðað við aðstæður til rann-
sókna fyrir 30 árum, þykir starf frú
McClintock með ólikindum, eins og
kom fram í texta frá verðlauna-
nefndinni.
Sem fyrr segir, er frú McClintock
þriðja konan sem hlýtur nóbelsverð-
laun fyrir rannsóknir í læknavisind-
um og sú fyrsta sem það gerir á eigin
spýtur. Aðeins tvær konur aðrar
hafa fengið slík verðlaun áður, báðar
fyrir eðlisfræði. Það voru Marie
Curie hin franska árið 1911 og Dor-
othy Crowfoot Hodkin frá Bretlandi
árið 1964.
Argentínumenn:
Ætluðu að
sprengja
á Gíbraltar
Madrid, lO.október. AP.
SPÆNSKA utanríkisráðuneytið stað-
festi í gær, að lögregluyfirvöld í land-
inu hefðu haft spurnir af vfkingasveit
úr argentínska hernum, sem komið
hafði til landsins meðan á Falklands-
eyjastríði Argentínu og Bretlands
stóð. Ætluðu argentlnsku hermenn-
irnir að laumast til Glbraltar og
sprengja þar I loft upp eldsneytis-
birgðir Breta.
Það var breska blaðið Sunday
Times sem greindi frá þessu á
sunnudaginn og kom staðfesting
spænska ráðuneytisins strax 1
kjölfarið. Ekki kom fram hvort að
hermönnunum hafði verið fyrir-
skipað að vinna spellvirki á Gfbr-
altar eða hvort þeir voru þarna á
ferðinni að eigin frumkvæði.
Spænska lögreglan handtók þá og
sendi úr landi.