Morgunblaðið - 11.10.1983, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1983
Málshöföun gegn hundaeig-
endum sem sætt hafa dómi
„EMBÆTTI ríkissaksóknara mun
höfða mál á hendur þeim hunda-
eigendum, sem hafa verið dæmdir
fyrir hundahald eða sætt dómsátt.
Mál þeirra verða meðhöndluð á
sama hátt og þeirra sem í fyrsta
sinn eru ákærðir fyrir hundahald,
þó enn sem komið er hafi engin
ákæra verið gefin út,“ sagði Pétur
Guðgeirsson, fulltrúi ríkissaksókn-
ara, í samtali við Mbl.
Embætti ríkissaksóknara hef-
ur farið þess á leit við embætti
lögreglustjórans í Reykjavík, að
mál sem hafa risið vegna kæru
um hundahald í höfuðborginni,
— að þau mál, sem dómsátt hef-
ur gengið í eða dómur fallið í,
skuli send embættinu. Svo sem
kunnugt er hefur ekkert verið
aðhafst eftir að dómur hefur
gengið í máli hundaeigenda. Þeir
hafa greitt sínar sektir en haldið
hundum sínum.
Davíð Oddsson, borgarstjóri, um afgreiðslutíma verslana:
Annaðhvort er að rýmka
reglugerðina eða afnema
Löng bremsuför voru eftir bílana en allt kom fyrir ekki. Fimm bílar rákust
saman á Miklubrautinni í gær. Morgunbiaító/Jóiíus.
Það sprakk og fimm
bílar lentu í árekstri
VANFÆR kona var flutt á fæð-
ingardeildina til rannsóknar eftir að
fimra bifreiðir lentu í árekstri á
Miklubraut í gærdag. Hún kvartaði
undan eymslum í kviðarholi.
Mikið eignatjón varð í árekstr-
inum. Tildrög voru þau að öku-
maður stöðvaði Saab-bifreið á leið
vestur Miklubraut, vegna þess að
hjólbarði sprakk á bifreiðinni.
Ökumaður japanskrar fólksbif-
reiðar uggði ekki að sér og lenti
aftan á Saab-bifreiðinni og kom
síðan hver bifreiðin á fætur ann-
arri.
Löng hemlaför voru á götunni
og er ljóst að ökumenn hafa ekið
of greitt. Draga þufti fjórar bif-
reiðanna með kranabíl af slysstað.
Neyðarbifreið var kvödd á staðinn
og gerðu læknar að sárum fólks á
slysstað og var enginn fluttur í
slysadeild.
„Kaupmannasamtökin og Verslun-
armannafélag Reykjavfkur verða að
koma sér niður á hver sé afstaða
þeirra til breytinga á regiugerð um
opnunartíma verslana, áður en málið
kemur til kasta borgarstjórnar,"
sagði Davíð Oddsson, borgarstjóri,
aðspurður um hver yrðu næstu skref-
in í því máli, en eins og fram kemur í
sunnudagsblaði Morgunblaðsins,
lokaði lögreglan þremur verslunum í
Reykjavík eftir hádegi á laugardag
sökum þess að um brot á reglugerð
um opnunartíma verslana var að
ræða, en verslanirnar höfðu ætlað að
hafa opið til kl. 16.
Hagkaup var ein þessara versl-
ana og fóru forráðamenn hennar
að eindregnum tilmælum lögregl-
unnar og lokuðu versluninni „í
trausti þess að borgaryfirvöld taki
málið tafarlaust upp og leiðrétti nú
þegar það mikla misræmi sem ríkir
í þessum efnum milli höfuðborgar-
innar og nágrannasveitarfélag-
anna", eins og það var orðað. Hag-
kaup íokaði kl. 18 í gær, sem er í
samræmi við reglugerðina, en ætl-
unin hafði verið að hafa opið til kl.
19 eða lengur virka daga nema
laugardaga og um það verið samið
við starfsfólkið.
Boðað hefur verið til fundar með
Verslunarmannafélagi Reykjavík-
ur og Kaupmannasamtökunum
klukkan 10 í fyrramálið, þar sem
afgreiðslutími verslana í Reykjavík
verður til umræðu.
„Ég get ekki séð að nema tvennt
komi til greina, annaðhvort að
rýmka núverandi reglugerð eða
nema hana algerlega úr gildi,"
sagði Davíð Oddsson ennfremur.
Fjárlagafrumvarpið fyrir 1984:
Lækkun skatttekna og
niðurskurður útgjalda
Dræm
síldveiði
SÍLDVEIÐI er enn dræm, sam-
kvsmt upplýsingum eftirlitsmanns
sjávarútvegsráðuneytisins, Ástráðs
Ingvarssonar. Um klukkan 17.00 í
gær böfðu þrfr hringnótarbátar til-
kynnt um afla alls um 130 til 140
lestir frá því á sunnudagskvöld. Þá
höfðu nokkrir reknetabátar fengið
smávegis afla.
Skírnir AK fékk 70 til 80 lestir
fyrir austan á sunnudagskvöldið
og hélt með aflann áleiðis til
Akraness. Er reiknað með að
hann landi þar í dag. Aðfaranótt
mánudagsins fengu Harpa RE
og Hákon ÞH 30 lestir hvort skip
í ísafjarðardjúpi. Síldin í djúp-
inu stendur djúpt og sprengdi
einn bátur nótina þar er hann
reyndi kast. Reknetabátar aust-
anlands hafa fengið smávegis
afla síðustu daga, en ekki telj-
andi, samkvæmt upplýsingum
Ástráðs Ingvarssonar.
Skattþrepum breytt með sérstökum lögum
Frumvarp að fjárlögum komandi
árs verður lagt fram á Alþingi í dag.
Engin skattvísitala er tilgreind í
frumvarpinu. Til stendur, sam-
kvæmt heimildum Mbl., að flytja
sérstakt frumvarp um skattvísitölu
og breytta skattstiga (breytt skatt-
þrep), en breyting skattstiga er talin
nauðsynleg til að ná fram þeim
markmiðum ríkisstjórnarinnar, að
skattar hækki ekki sem hlutfail af
launum milli áranna 1983 og 1984.
Niðurstöðutölur frumvarpsins
eru nálægt 17,4 milljörðum króna.
Frumvarpið gerir ráð fyrir tekju-
afgangi hjá ríkissjóði. Gert er ráð
fyrir að laun hækki ekki almennt
um meira en 4 til 6%. Launaliðir
frumvarpsins eru hækkaðir um
Teknir veif-
andi hnífum
í miðbænum
TVEIR liðlega tvítugir piltar voru
handteknir í gær og látnir sofa úr sér
vímuna eftir að hafa látið dólgslega
með hnífa í miðbænum.
Þeir voru ofurölvi og létu illum
látum í Austurstræti og Hafnar-
stræti — veifuðu hnífum sínum svo
vegfarendum stóð ekki á sama. Svo
fór að lögreglan skarst í leikinn og
handtók þá.
6% miðað við desember 1983 og
önnur rekstrarútgjöld um 4%
miðað við sama tíma.
Skattalækkanir sem þegar hafa
komið til framkvæmda (lækkun
tekjuskatts, niðurfelling álags á
ferðamannagjaldeyri, lækkun
tolla og auknar heimildir til lækk-
unar söluskatts) munu rýra tekjur
ríkissjóðs um 650—700 m.kr. á
næsta ári.
Innheimtur söluskattur og að-
flutningsgjöld eru áætluð 1800
m.kr. lægri 1984 en þau urðu í
raun á sl. ári, 1982, (þ.e. á föstu
verðlagi fjárlagafrumvarps).
Heildarlækkun skatttekna rík-
issjóðs 1984 frá liðnu ári, 1982,
mun áætluð nálægt 2.500 m.kr.
Frumvarpið sýnir jákvæðan
rekstrarjöfnuð, þ.e. tekjur ríkis-
sjóðs 1984 eru áætlaðar hærri en
gjöldin, en áætluð ríkisútgjöld
lækka mikið að raungildi. Frum-
varpið felur í sér fyrirmæli um:
• 2,5% sparnað í launakostnaði,
skv. sérstökum tillögum þar um.
• 5% sparnað á öðrum rekstrar-
útgjöldum.
• Verulega lækkun á framlögum
til fjárfestingalánasjóða.
• Sértekjur stofnana eru hækkað
nokkuð.
• Framlög til verklegra fram-
kvæmda lækka að raungildi.
• Niðurgreiðslur búvöru eru
áætlaðar um 1000 m.kr. en hefðu
átt að hækka í 1300 m.kr. miðað
við raungildi fyrri niðurgreiðslna.
• Gert er ráð fyrir sérstakri
lækkun ýmissa liða, þ.á m. til heil-
brigðis- og tryggingamála.
Alvarlegt um-
ferðarslys á
Akureyri í gær
SEXTÁN ára piltur slasaðist alvarlega
á Akureyri í gær, er hann varð fyrir
fólksbifreið þar sem hann var á gangi á
Hlíðarbraut í Glerárþorpi.
Slysið varð um klukkan 16 síðdeg-
is í gær, og var hinn slasaði þegar
fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri, þar sem hann liggur nú,
mikið slasaður að sögn lögreglunnar
á Akureyri.
Belgíska knattspyrnusambandið ger-
ir fyrirspurnir um tryggingar Arnórs
BELGÍSKA knattspyrnusambandið
hefur sent Knattspyrnusambandi
íslands skeyti og spurst fyrir um
hvernig tryggingu Arnór Guðjohn-
sen hafði í landsleiknum gegn ír-
landi á dögunum. Eins og skýrt hef-
ur verið frá þá meiddist Árnór í
leiknum, tognaði illa í lærvöðva og
hefur ekki getað æft eða leikið síð-
an. Allt útlit er fyrir að Arnór leiki
ekki knattspyrnu næstu tvær vikur.
Þetta verður til þess að hann tapar
bónusgreiðslum með liði sínu og fé-
lag hans sem greiðir honum laun
getur ekki notað krafta hans.
Knattpsyrnusamband íslands
hefur tryggt alla leikmenn sína
hjá Reykvískri endurtryggingu
hf., en trygging sú mun ekki ná
til skammtímameiðsla á leik-
mönnum. Að sögn Bjarna Bjarna-
sonar hjá fyrirtækinu þá eru
landsliðsmenn íslands { knatt-
spyrnu tryggðir á sama hátt og
enska og þýska knattspyrnusam-
bandið tryggir sína leikmenn. En
inní þeirri tryggingu er eingöngu
bætur ef leikmenn slasast það illa
að þeir geti ekki leikið knatt-
spyrnu framar eða hljóta dauðs-
fall í keppni.
Það er því ekki loku fyrir það
skotið að KSÍ þurfi hugsanlega að
greiða Arnóri eða félagi hans ein-
hverjar bætur, ef tryggingafélag-
ið gerir það ekki. Enn hefur engin
krafa komið frá Arnóri eða félagi
hans og óvíst er hvort hún kemur.
En þó er ljóst að Arnór verður
fyrir verulegum tekjumissi af
þessum sökum.
Pétur Ormslev meiddist illa í
landsleik á sínum tíma gegn Ir-
landi og gat ekki leikið knatt-
spyrnu um langt skeið og varð
fyrir verulegu tekjutapi. Pétur
fékk engar bætur, þar sem hann
var ekki tryggður fyrir skamm-
tímameiðslum.
Ellert Schram, formaður KSÍ,
vildi ekkert tjá sig um mál þetta í
gær. Sagði aðeins að stjórn KSÍ
væri að athuga það, mjög gaum-
gæfilega. „Við munum skoða
þessi trygginarmál alveg niður í
kjölinn," sagði Ellert.