Morgunblaðið - 11.10.1983, Qupperneq 3
1
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1983
3
Morgunblaðið/Ól. K.M.
Ráðherrar við þingsetningu í gær. Á efri myndinni eru: Matthfas Á. Mathiesen, viðskiptaráðherra, Jón Ilelgason,
dóms-, kirkjumála- og landbúnaðarráðherra, Matthías Bjarnason, heilbrigðis-, tryggingamála- og samgönguráð-
herra, Geir Hallgrímsson, utanrfkisráðherra, og Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra. Á neðri myndinni eru
Albert Guðmundsson, fjármálaráðherra, Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra, Halldór Ásgrímsson, sjávar-
útvegsráðherra, Sverrir Herraannsson, iðnaðarráðherra, og Alexander Stefánsson, félagsmálaráðherra.
Alþingi sett í gær
Alþingi íslendinga, 106. löggjaf-
arþing, var sett með formlegum
hætti í gær. Að lokinni guðsþjón-
ustu í dómkirkjunni, þar sem sr.
Árni Pálsson predikaði, gengu
þingmenn til þinghúss.
Forseti íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, setti þingið og ávarp-
aði þingheim. Aldursforseti
þingsins, Ólafur Jóhannesson,
minntist látinna þingmanna,
Vilmundar Gylfasonar, Gunnars
Thoroddsen, Eðvarðs Sigurðs-
sonar og Sigurðar Thoroddsen.
Kjörbréf þingmann vóru skoðuð
og samþykkt. Nýir þingmenn
undirrituðu drengskaparheit að
stjórnarskránni. Kjöri forseta
og varaforseta, sem og skipan
efri deildar, var frestað tii dags-
ins í dag.
Á bls. 30 og 31 eru fréttir frá
alþingi, á miðophu er birt þing-
setningarræða forseta íslands,
en minningarorð Ólafs Jóhann-
essonar og predikun sr. Árna
Pálssonar birtast í Morgunblað-
inu á morgun.
Dr. Páls minnst
í Dómkirkjunni
Dr. Páll Isólfsson, tónskáld, fædd-
ist 12. október 1893. Hann hefði því
orðið níræður á raorgun, hefði hann
lifað, en Páll lést 23. nóvember 1974.
Annaö kvöld verður Páls ísólfssonar
minnst í Dómkirkjunni, á svonefndu
kirkjukvöldi.
Meðal efnis á dagskrá kirkjukvölds-
ins verður tónlist dr. Páls. Mar-
teinn H. Friðriksson, dómorganisti
leikur verk hans, Chaconne, barna-
kór Kársness- og Þingholtsskóla
syngur Maríuversið úr Gullna hlið-
inu og leikur Sigurður Isólfsson,
bróðir dr. Páls, undir með kórnum.
Fleira verður á dagskrá í Dóm-
kirkjunni annað kvöld. Sr. Þórir
Stephensen rekur æviferil dr. Páls,
sr. Hjalti Guðmundsson segir frá
samstarfi sínu við hann sem organ-
ista og söngstjóra, en sr. Hjalti
söng lengi með Dómkirkjukórnum
undir stjórn dr. Páls ísólfssonar.
Forráðamenn Dómkirkjunnar og
aðrir sem standa að kirkjukvöldi í
Dómkirkjunni annað kvöld, vilja
með þessum hætti heiðra minningu
hins ástsæla dómorganista og
tónskálds, um leið og þeir vilja tjá
Dr. Páll ísólfsson
þakklæti sitt fyrir líf hans og list.
Kirkjukvöldið verður sem fyrr segir
í Dómkirkjunni annað kvöld og
hefst dagskráin kl. 20.30.
Sjálfstæðisflokkurinn:
Miðstjórnarfund-
ur í Valhöll í dag
MIÐSTJÓRN Sjálfstæðisflokksins
kemur saman til fundar I Valhöll
klukkan 16 f dag. Tuttugu og níu
manns eiga sæti í miðstjórn flokksins,
hvaðanæva af landinu.
Kjartan Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins,
sagði í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins í gærkveldi, að á
dagskrá fundarins í dag væru tvö
mál; reikningar Sjálfstæðisflokks-
ins fyrir árið 1982 og undirbúningur
landsfundar.
Kjartan sagði undirbúningi
landsfundar miða vel áfram, og í
gær voru ýmis gögn vegna fundar-
ins send út, álitsgerðir starfshópa
um ýmis mál og fleira. Landsfund-
ur Sjálfstæðisflokksins verður
haldinn í byrjun næsta mánaðar, og
eiga milli 1000 og 1100 manns rétt
til fundarsetu, að sögn Kjartans
Gunnarssonar.
OLÍUÁMAGANN
Sólarolfan þín gæti verið orðin svolftið gömul því
það hefur svo Iftið þurft að nota hana f sumar. Nú
skaltu endilega endurnýja birgðirnar og ganga f
Kanarfklúbb Samvinnuferða/Landsýnar, Flug-
leiða, Úrvals og Útsýnar.
Við fljúgum til Las Palmas á Gran Canaría
f beinu leiguflugi á þriggja vikna fresti
frá og með 14. desember og vikulega frá
2. nóvember í áætlunarflugi um
London þar sem hægt er að
hafa viðdvöl í bakaleiðinni.
Við bjóðum úrval frábærra gististaða: hótelíbúðir
með 1 eða 2 svefnherbergjum, hótelherbergi og smáhýsi
með 1 eða 2 svefnherbergjum.
Við bjóðum dvöl í: 1,2, 3,4, 6,9 eða jafnvel
24 vikur!
Við bjóðum hagstætt verð: Prá 19.460.- kr.
í eina viku og frá 22.155.- kr. í þrjár vikur,
miðaðvið 2 í hótelíbúð. 21 vika á
Broncémar miðað við 2 í íbúð
kostar aðeins 78.000.- kr.
Þú kemur heim 9. maí!