Morgunblaðið - 11.10.1983, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1983
13
Vanskil útgerðaraðila við Fiskveiðasjóð:
Þetta er iðnaðarvandamál
en ekki sjávarútvegsvandamál
— segir Kristján Ragnarsson og bendir á að nær
öll skipin sem í hlut eiga eru smíöuö innanlands
„ÞAÐ SEM er einkennandi fyrir þennan lista er það, að hann tekur nær
eingöngu til skipa, sem smíðuð eru hér innanlands,“ sagði Kristján
Ragnarsson formaður LÍÚ, er blaðamaður Morgunblaðsins óskaði álits
hans á hinum miklu vanskilum fjölmargra fiskiskipa við Fiskveiðasjóð,
en samtals nema vanskil 20 skipa um 400 milljónum króna.
„Lánskjör og lánsupphæðir og
dýrleiki þessara skipa hefur
valdið því að þessi vanskil hafa
orðið," sagði Kristján Ragnars-
son ennfremur. „LÍÚ benti á
þetta strax þegar þessi skip voru
smiðuð, og varaði við að menn
tækju þau lán sem í boði voru, og
allt hefur þvi komið fram sem á
var bent og við var varað á sín-
um tíma. — Það er hins vegar
athyglisvert að núverandi for-
sætisráðherra og fyrri sjávar-
útvegsráðherra hafa margsinnis
vakið athygli á þvi að þessi inn-
lenda skipasmiði væri fremur
vandamál iðnaðarins en sjávar-
útvegsins. Eigi að siður hefur
ekkert verið gert i þessu efni og
vandamálið hefur orðið þeirra,
sem skipin hafa keypt. Það, að
um er að ræða 400 milljóna
króna vanskil á tuttugu skipum í
Fiskveiðasjóði, hefur náttúru-
lega valdið þvi að sjóðurinn hef-
ur orðið óhæfari til að sinna
hlutverki sinu til lána vegna
eðlilegra skipakaupa. Innflutt
skip myndu ekki vera á nema
hálfvirði á við islensksmiðuð
skip. Hitt aðalhlutverk sjóðsins
er að sinna endurbótum og end-
urnýjunum á þeim flota, sem við
eigum fyrir.
Það hefur alltaf verið ljóst, að
það hlaut að koma að skuldadög-
um. Það er einnig ljóst að þetta
mál verður ekki leyst með frek-
ari lánveitingum, því það hjálp-
ar þessum mönnum ekki, og i
mörgum tilvikum eru skipin ekki
vátryggð fyrir þeim skuldum,
sem á þeim hvíla. Vandamálið
verður heldur ekki leyst á kostn-
að sjávarútvegsins i heild. Til
þess er engin aðstaða eins og að-
stæður eru i dag og mjög óeðli-
legt að aðrir útvegsmenn leggi fé
af mörkum til þess að mæta
þessum vanda. Hér er þvi um
það að ræða, hvort skipin verða
seld og nýir kaupendur fást að
þeim, eða hvort hið opinbera
bregst við vandanum með ein-
hverjum hætti á þeim grundvelli
sem margyfirlýstur er: Að þetta
sé vandamál iðnaðarins vegna
innlendra skipasmíða. Það á eft-
ir að koma í ljós, og svarið veit
ég ekki,“ sagði Kristján Ragn-
arsson að lokum.
Dr. Jónas Kristjánsson
Eldvígslan
— Fyrsta skáldsaga dr.
Jónasar Kristjánssonar
„ELDVÍGSLAN" nefnist ný, sögu-
leg skáldsaga eftir dr. Jónas Krist-
jánsson, sem væntanleg er frá Bóka-
klúbbi Arnar og Orlygs innan
skamms. Þetta er fyrsta skáldsaga
höfundar, en hann er löngu kunnur
fyrir störf sín að bókmenntum, er
starfandi forstöðumaður Stofnunar
Árna Magnússonar og kunnur fræði-
maður, og eftir hann liggja einnig
þýðingar á fjölmörgum verkum
heimsbókmenntanna, jafnt Ijóðum
sem lau.su máli.
„Því er ekki að neita, að þetta
verk hefur verið aillengi í smíð-
um,“ sagði dr. Jónas í stuttu sam-
tali við blaðamann Morgunblaðs-
ins í gær. „Ég fékk hugmyndina að
þessu verki árið 1978, er ég var að
lesa sögulega skáldsögu enska.
Víkingar voru þá mjög á döfinni,
og hefur það átt þátt i að kveikja
hugmyndina, en sagan er byggð á
sannsögulegum kjarna frá níundu
öld, og aðalsöguhetjur sögunnar
eru Ragnar loðbrók og synir hans,
einkum ívar hinn beinlausi, Ragn-
arsson. Sögusviðið er Danmörk í
fyrstu, en víkingarnir fóru viða, og
komið er við í Frakklandi, Eng-
landi, Svíþjóð og víðar."
— Og hvað með framhaldið, eru
ný skáldverk þegar á leiðinni?
„Það fer nú ef til vill dálítið eft-
ir þeim viðtökum, sem þetta fær!
Verði þessu ekki alltof illa tekið,
þá er ég með einar tvær hugmynd-
ir, sem gaman væri að koma frá
sér, þó all nokkuð frábrugðnar
þessari bók. En hvað úr verður,
verður að koma í ljós, hvort mér
endist líf og heilsa og tími, en
skáldsagnagerð vil ég ekki gera að
mínu aðalstarfi, svo mikið er víst,“
sagði dr. Jónas Kristjánsson að
lokum.
VZterkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Nánari upplýsingar fást hjá söluskrifstofum Flugleiða, rt t f^*f C|OIP
umboðsmönnum og ferðaskrifstofum. m L%J vFLClLflM\
Gengi 30/9 '83 Gott fólkhjá traustu félagi
Verð frá kr. 27.509.-
Innifalið: Flug, gisting 13 nætur í Kalifomíu, 1 nótt í
New York. Gisting pr. méuin miðað við tvo í herbergi.
íslenskur flugvallarskattur ekki innifalinn.
Athugið: Verð fyrir 4—5 manna Chevette bflaleigubíl í
hálfan mánuð er kr. 6.376.-, sem deflist á farþegana í
bflnum. Kaskótrygging er ekki innifalin.
„California, here I come"
Verð frá kr. 31.698.-
Innifalið: Flug: Keflavík—New York—San Juan, gisting
7 nætur í San Juan og 7 nætur á St. Thomas, og
flutningur tfl og frá hóteh. Gisting pr. mann miðað við
tvo í herbergi.
Ekki innifahð: Flug til St. Thomas, sem kostar um $45,
fram og til baka pr. mann. íslenskur flugvallarskattur
ekki innifalinn.
'Wíexfc0'
Frægasta baðströnd Bandaríkjanna er Daytona Beach
á Flórída. Flugleiðaferð tfl Daytona opnar leið að
stórkostlegustu orlofsstöðunum þama fyrir vestan.
Ferðalangurinn hefur úr ótæmandi möguleikum að
velja: Disney World, Epcot Center, Circus World, Sea
World, Kennedy Space Center, að ógleymdum heitum
sjónum og faUegri ströndinni.
Mexíkó er hrífandi ferðamannaland: Þægilegt
hitabeltisloftslag, blómskrúð, ævafom menning
aztekanna, frábær veitingahús og þjónusta tryggja
ógleymanlega ferð. Helsti dvalarstaðurinn er Acapulco,
draumastaður sóldýrkenda. Sælkemm skal bent á að
nautasteikin kostaði innan við 75 krónur íslenskar, eftir
því sem við fréttum síðast.
Verð frá kr. 26.851.-
Innifedið: Flug, gisting tvær vikur, akstur til og frá
hóteh. íslenskur fararstjóri tekur á móti fólkinu, og
kemur síðan tvisvar í viku í heimsókn. Fólki er gefið
upp símanúmer fararstjóra. Gisting pr. mann miðað við
tvo í herbergi.
íslenskur flugvallarskattur ekki innifalinn.
Verð frá kr. 30.701.-
Innifalið: Flug, gisting: 1 nótt í New York á útleið, 3
nætur í Mexico City, 1 nótt í Taxco og 10 nætur í
Acapulco. Akstur milli fyrmefndra borga. Gisting pr.
mann miðað við tvo í herbergi.
íslenskur flugvallarskattur ekki innifalinn.
Kynnist amenska draumnum að eigin raun á ferð um
Kaliforníu. Flogið er alla þriðjudaga til San
Francisco, eða Los Angeles, um New York, og heim aftur
á þriðjudegi eftir eina, tvær eða frleiri vikur. Við mælum
með f erð í bflaleigubfl frá San Francisco tfl Los Angeles:
Ævintýraferð um sólríkaKyrrahafsströndina.
Njótið lifsins á sykurhvítum ströndum karabísku
eyjanna. Flogið er með Flugleiðum tfl New York og það
tfl Puerto Rico. Eftir vikudvöl þar er stefnan sett á
Jómfrúreyjar, nánar tiltekið St. Thomas. Eyjar
Karabíska hafsins bjóða upp á sælutíð undir sólhlif,
með daiquiri við calypso-takt