Morgunblaðið - 11.10.1983, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1983
James Watt, innanríkisráðherra Bandaríkjanna, leggur fram afsögn:
„Þaö er kominn tími
til að ég segi af mér“
Rannsókn-
arnefndin
sagði öll
af sér
Washington, 10. október. AP.
Innanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, James Watt, sagði af sér
í gær eftir að styrr hafði staðið um
hann í nokkrar vikur. Hann mun
þó verða áfram í embætti þar til
Reagan forseti útnefnir eftirmann
hans.
Watt tilkynnti ákvörðun sína á
beitarlandi við búgarð skammt
frá Santa Barbara í Kaliforníu,
þar sem hann hefur að undan-
förnu dvalist sér til hvíldar og
hressingar. „Það er kominn tími
til að ég segi af mér,“ sagði hann
við fréttamenn.
Reagan samþykkti afsögn
Watt, en með semingi þó. Sagði
hann hafa staðið sig frábærlega
sem einn ráðherra stjórnar sinn-
ar. Watt tilkynnti Reagan
ákvörðun sína í síma og afhenti
formlegt afsagnarbréf sitt
skömmu síðar.
Watt hefur alla tíð verið um-
deildur í embætti, en með um-
mælum hans um ráðgjafanefnd
innan innanríkisráðuneytisins
þótti steininn taka úr. Sagði
hann nefndina skipaða „svert-
ingja, tveimur gyðingum og
krypplingi".
Ummæli þessi urðu til þess, að
nokkrir þingmenn Repúblikana
kröfðust tafarlausrar afsagnar
hans. Urðu mótmæli þingmann-
anna til þess að leiðtogi minni-
hluta öldungadeildarinnar, Rob-
ert C. Byrd, sem er Demókrati,
lagði fram tillögu þar sem af-
sagnar Watt var krafist.
Þótt Watt væri yfirmaður
allra landareigna ríkisins, þar
með talið þjóðgarðanna, sem
innanríkisráðherra varð hann
fljótt efstur á lista óvina
umhverfisverndarsinna, þótt í
sumum tilvikum hafi mátt líta á
hann sem besta bandamann
þeirra. Á meðan hann var í emb-
ætti, hálft þriðja ár, fjölgaði ört í
samtökum umhverfisverndar-
sinna og umræða um umhverfis-
verndarmál náði hámarki í
fjölmiðlum.
James Watt, innanríkisráðherra
Bandaríkjanna.
Manila. Filippee;juni, 10. október. AP.
MEÐLIMIR rannsóknarnefndar-
innar, sem skipuð var til að rann-
saka hvernig dauða stjórnarand-
stöðuleiðtogans Benigno Aquino bar
að höndum, sögðu af sér í dag allir
sem einn.
Þá var Cesar Virata, forsætis-
ráðherra landsins, harkalega
gagnrýndur í dag í fjölmiðlum,
sem stutt hafa stjórn landsins.
Þótti fréttaflutningurinn gefa
skýrt til kynna, að stjórn Marcos-
ar forseta á í sívaxandi erfiðleik-
um.
Nefndin, sem var skipuð fimm
mönnum, hætti störfum í dag eftir
að formanni hennar hafði verið
vikið frá og hlutleysi hennar dreg-
ið í efa. Nefndin átti í dag m.a. að
yfirheyra herforingjann, sem hef-
ur verið að rannsaka morðið á
Aquino þann 21. ágúst sl.
Marcos forseti lýsti því yfir
fyrir viku, að hann óskaði eftir því
að nefndin lyki störfum innan
tveggja vikna. Hafði hún þá ekki
komið saman frá því 12. septem-
ber.
í bréfi, sem rannsóknarnefndin
lagði fram, sagði m.a., að með því
að segja af sér opnaðist leið fyrir
nýja rannsóknarnefnd, sem vænt-
anlega nyti meira trausts almenn-
ings.
Hófdrykkja minnkar lík-
ur á myndun gallsteina
Ijindúnum 1(1 oktÁKor AP ^ ^
Lundúnum, 10. október. AP.
HALF flaska víns dag hvern gæti hjálpað til viö að koma í veg fyrir
myndun gallsteina. Óhófleg drykkja gæti hins vegar leitt til hins gagn-
stæóa. Þetta eru niðurstöður breskra vísindamanna, sem unnið hafa að
því að kanna hver er ástæða þess að gallsteinar myndast Birtust niður-
stöður þessar í tímaritinu The Lancet, opinberu málgagni bresku lækna-
samtakanna.
Það er hópur lækna í Bristol,
sem kemst að þessari niður-
stöðu. Segir í skýrslu þeirra, að
áfengi minnki gallframleiðslu og
í ljósi þess sé rétt að álykta, að
hófleg víndrykkja minnki Iík-
urnar á myndun gallsteina.
Fyrri kannanir á tengslum á
milli áfengisneyslu og líkams-
starfseminnar höfðu ennfremur
leitt í ljós, að hófleg neysla
áfengis gæti minnkað líkurnar á
hjartasjúkdómum.
Gallsteinar, sem í raun eru
ekki annað en samansafnað kól-
esteról í gallblöðrunni, geta
hindrað streymi galls frá lifrinni
og haft truflandi áhrif á melt-
ingarstarfsemina. Getur kveðið
svo rammt að þessum áhrifum
að þau orsaki gulu.
Við tilraun sína fengu lækn-
arnir 12 manna hóp til liðs við
sig. Var þar um að ræða fólk,
sem alla jafna neytir lítils
áfengis. Drakk umræddur hópur
hálfa flösku hvítvíns dag hvern í
sex vikur. Nemur þetta magn 39
grömmum umreiknað I hreinan
vínanda.
Á meðan drykkjutímabilinu
stóð hækkaði hlutfall HDL-kól-
esteróls um 16,8 af hundraði en
kólesteról í galli dróst hins vegar
saman um 17,5%. Að drykkju-
tímabilinu loknu varð hlutfallið
aftur það sama og það hafði ver-
ið.
Segir Parkinson
af sér embætti?
London, 10. október. AP.
VANGAVELTUR um að Cecil Parkinson, hægri hönd Thatcher forsætisráð-
herra, segði af sér vegna uppljóstrana um ástarsamband við einkaritara sinn,
fengu byr undir báða vængi í dag.
Mál þetta hefur valdið gremju
meðal æðstu manna íhaldsflokks-
ins, sem undirbúa nú ársþing
flokksins, sem hefst á morgun,
þriðjudag.
Lundúnablöðin skýrðu frá
óánægju leiðandi flokksmanna
vegna þessa máls á forsíðu í dag,
og fyrirsögn í Times hljóðaði svo:
„Möguleikar Parkinsons að halda
velli hverfandi."
Að sögn Times, sem styður
stjórn Thatcher, hafa félagar
Parkinsons verið mjög gagnrýnir
og hvatt hann til að draga sig í
Ralph Rich-
ardson látinn
Lundúnum, 10. október. AP.
Sir Ralph Richardsson, hinn
kunni breski leikari, lést í gær.
Hann var í hópi þekktari leikara
Vesturlanda og lék í ótal leikrit-
um. Hann var áttræður og lækn-
ar á King Edward-sjúkrahúsinu í
Lundúnum sögðu hann hafa liðið
út af án þjáninga.
hlé. Segir blaðið að möguleikar
Parkinsons á að halda ráðherra-
stól sínum í viðskipta- og iðnaðar-
ráðuneytinu séu hverfandi.
Daily Mirror, sem styður Verka-
mannaflokkinn, segir þingmenn
íhaldsflokksins almennt þeirrar
skoðunar að Parkinson ætti að
segja af sér til þess að ástamál
hans grúfi ekki sem skuggi yfir
flokksþinginu.
Kjör Neil Kinnocks sem leiðtoga
Verkamannaflokksins hefur aukið
á vinsældir flokksins meðal kjós-
enda, því samkvæmt skoðana-
könnunum er bilið milli Verka-
mannaflokksins og íhaldsflokks-
ins nú nær hverfandi, eða 3%. I
kosningunum 9. júní sl. hlaut
Verkamannaflokkurinn fylgi
27,6% kjósenda, en fengi 39% nú
samkvæmt könnunum. íhalds-
flokkurinn fengi nú 42% en fékk
42,4% í kosningunum.
Samkvæmt skýrslu brezka
Vopn frá ísrael
til Nicaragua
New York, 10. október. AP. *
ÍSRAELAR hafa sent uppreisnarmönnum í Nicaragua vopn scm þeir hafa
tekið herfangi af Palestínuskæruliðum, að sögn tímaritsins Time.
Ungfrú Sarah Keays, verðandi
barnsmóðir Cecils Parkinsons.
Slmamynd AP.
íhaldsflokksins hefur nýfasistum
tekist að hreiðra um sig í flokkn-
um, einkum í röðum ungra íhalds-
manna, ráðamönnum flokksins til
mikillar armæðu. Ákveðið hefur
verið að herða allar reglur um val
frambjóðenda flokksins við þing-
kosningar í framhaldi af því að
fyrrverandi félagi f flokki nýfas-
ista, Þjóðernisfylkingunni, var í
framboði fyrir flokkinn í síðustu
kosningum.
Time segir ísraela hafa sent
vopnin hópi uppreisnarmanna,
sem lúta stjórn Eden Pastora,
fyrrum ráðherra í stjórn sandin-
ista.
Time segir einnig að bandaríska
leyniþjónustan CIA hafi að líkind-
um stutt uppreisnarmenn Pastora
með fjármuna- og vopna-
sendingum um E1 Salvador. Past-
ora segist ekki hafa hlotið beina
aðstoð frá CIA.
Skýrt var frá átökum á nokkr-
um stöðum í Nicaragua um helg-
ina, en sögur fóru ekki af mann-
falli eða öðru tjóni.
Frá E1 Salvador berast fregnir
um að vinstrisinnaðir skæruliðar
séu með mikinn liðsafnað á Chich-
onotepec-eldfjallinu og hafi í und-
irbúningi áhlaup á borgina San
Vicente við rætur fjallsins, þar
sem landstjórnin hefur látið vinna
mikið endurreisnarstarf.
Samkomulag um 600
manna eftirlitssveit
Beirét, 10. oktáber. AP.
RÍKISSTJÓRN Amin Gemayels,
forseta Líbanon, skýröi frá því í
morgun, að samkomulag hefði náðst
við stjórnarandstæðinga um að fara
Bandarískir diplómatar
bendlaðir við Samstöðu
Varsjá, 10. október. AP.
POLSKA sjónvarpið sagði í dag að bandarískir diplómatar í Póllandi væru
starfsmenn bandarísku leyniþjónustunnar(CIA), og lét að því liggja að þeir
hefðu átt samvinnu við einn helsta ráðgjafa Samstöðu, Zbigniew Romasz-
ewski.
í 20 mínútna útsendingu voru
sýndar myndir af um tug sendi-
ráðsmanna og einnig af Romasz-
ewski, sem sakaður var um sam-
starf við CIA. Sagði sjónvarpið að
dreifirit Samstöðu, sem gefin
hefðu verið út á laun og i trássi við
lög um ritskoðun, hefðu verið
prentuð á bandarískan pappír.
Vestrænn diplómat sagði til-
gang sjónvarpsins með útsending-
unni að hræða pólskan almenning
frá því að blanda geði við banda-
ríska sendiráðsmenn, sem nú
væru í Póllandi.
Einnig er talið að útsendingunni
hafi verið ætlað að undirbúa jarð-
veginn vegna réttarhalda yfir
Romaszewski og þremur öðrum
Samstöðuleiðtogum, Jacek Kuron,
Adam Michnik og Henryk Wujec.
Nokkur hundruð Pólverjar söfn-
uðust saman fyrir utan kirkju í
Gdansk eftir messu á sunnudag og
hrópuðu nafn Walesa hástöfum.
Walesa sótti messuna, en sýndi sig
ekki þrátt fyrir hvatningarhrópin,
heldur hélt kyrru fyrir í kirkju-
byggingunum, þar sem hann þáði
hádegisverðarboð Lech Kaczmar-
ek biskups i Gdansk.
Fjölmiðlar í Austur-Þýskalandi
skýrðu frá því á laugardag að
Lech Walesa Samstöðuleiðtoga
hefðu verið veitt friðarverðlaun
Nóbels. f sömu andrá var verð-
launaveitingunni og verðlaunun-
um sem slíkum fundið flest til for-
áttu, og verðlaunin sögð „and-
pólsk“.
þess á leit við ítölsk og grísk stjórn-
völd að þau legðu til 600 manna eft-
irlitssveit til þess að sjá til þess að
vopnahléinu í landi verði framfylgt.
Sagði jafnframt, að beiðni þessi
yrði lögð fram um leið og nefnd
fjögurra manna, sem hefur til
þessa haft eftirlit með vopna-
hléinu, kæmi sér saman um
starfssvið eftirlitssveitarinnar og
staðsetningu hennar. Nefndin,
sem skipuð er mönnum úr hinum
stríðandi fylkingum landsins, átti
að funda síðdegis í dag.
Fréttir af þessum samkomulagi
innan nefndarinnar fylgdu í kjöl-
far umfangsmikilla viðræðna
Robert MacFarlane, sérlegs sendi-
fulltrúa Bandaríkjamanna í Mið-
austurlöndum, við Abdul-Halim
Khaddam, utanríkisráðherra
Sýrlendinga, og Gemayel, forseta
Libanon, í gær.
Tveir bandarískir sjóliðar hlutu
skotsár um helgina, þar sem þeir
voru við gæslustörf i Beirút. Kom
til átaka skammt frá bækistöð
Bandaríkjamannanna við alþjóða-
flugvöllinn í borginni með fyrr-
greindum afleiðingum. Meiðsli
þeirra voru ekki talin alvarleg.