Morgunblaðið - 11.10.1983, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1983
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 250 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 20 kr. eintakið.
Þingmenn
ingmenn settust til starfa
í gær og nú hefst helsta
kröfuhríðin á þá þegar tekið er
til við að ganga frá fjárlögum.
Spjótin standa á þá úr öllum
áttum. Embættismennirnir
halda uppi sókn fyrir stofnan-
ir sínar, sveitarstjórnir berj-
ast fyrir sínum hlut og ein-
stakiingar sem standa fyrir
þjóðþrifamálum telja eðlilegt
að fá fjárstuðning hins opin-
bera. Þingmenn sitja svo á
löngum fundum vegna þessara
krafna og bregðast við þeim á
kostnað almennings, skatt-
greiðenda, sé þeim ekki hafn-
að.
Oftar en ekki er því haldið
fram að stjórnmálamenn séu
sjaldan sjálfum sér sam-
kvæmir þegar þeir tala annars
vegar um nauðsyn aðhalds í
ríkisrekstri en leitast hins
vegar við að afla sér vinsælda
á kostnað annarra í krafti
ríkishítarinnar. Þessi áfellis-
dómur er ekki að öllu leyti
sanngjarn því að yfirleitt
finna stjórnmálamennirnir
ekki eyðsluna upp hjá sjálfum
sér heldur láta þeir undan
kröfum sem eru síbreytilegar.
Því til staðfestingar má nefna
mýmörg dæmi. Eitt skal tekið:
Fyrir réttu ári var nýrri sin-
fóníuhljómsveit hleypt af
stokkunum í Reykjavík. Þetta
gerðu einstaklingar af miklum
stórhug og létu þess getið í
leiðinni, að þeir ætluðu sko
ekki að íþyngja skattgreiðend-
um með starfsemi sinni, enda
hefði ríkið nóg á sinni könnu
og meira en það. Skömmu fyr-
ir stjórnarskipti í vor fékk
þessi hljómsveit þó styrk úr
ríkissjóði og nú gerist það að
frammámenn hennar ganga
fram fyrir alþjóð og segja: Það
er skilyrði fyrir því að við
höldum áfram að ríkið styrki
okkur!
Fyrirsjáanlegt er að í ár
verður mikill og alvarlegur
halli á rekstri ríkissjóðs.
Þennan halla má einkum
rekja til þess að innflutningur
hefur dregist saman og þar
með tolltekjur ríkissjóðs. Eng-
ar líkur eru á því að á næsta
ári vænkist hagur almennings
svo að ríkissjóði verði borgið
með auknum tekjum af inn-
fiutningi. Það er yfirlýst
stefna að hækka ekki skatta
og raunar boðaði flokkur fjár-
málaráðherra það fyrir kosn-
ingar í vor að skattana ætti að
lækka. Ljóst er að við þessar
aðstæður er hreint ábyrgðar-
leysi hjá þingmönnum að
standa ekki fastir fyrir í
kröfuhríðinni og láta ekki
haggast þótt hart sé að þeim
sótt og málefnin séu merk og
góð.
í kröfuhríð
Með framgöngu þingmanna
við afgreiðslu fjárlagafrum-
varpsins verður fylgst af
óvenju mikilli athygli á þessu
hausti. Almenningur hefur
axlað þungar byrðar í orrust-
unni við verðbólguna, en það
stríð vinnst ekki nema ríkis-
sjóður geri hið sama, og í því
efni hafa þingmenn úrslita-
vald. Til að stemma stigu við
verðbólgunni þarf efnahagsað-
gerðir, en þessar aðgerðir eru
marklausar nema þeim sé
fylgt fram af pólitískum
þrótti. Það kemur fljótlega
fram í þingstörfum hvort
hann er fyrir hendi.
Villimenn
og stríðsótti
Astofnfundi Friðarsam-
taka listamanna í síðustu
viku komst Þorkell Sigur-
björnsson, formaður samtak-
anna, meðal annars svo að
orði:
„Ég ætla ekki nokkrum heil-
vita mönnum svo illt, að þeir
vilji vísvitandi sprengja okkur
öll í loft upp — eða drepa
okkur með sýklum. En brjál-
æðingar komast líka í valda-
stóla. Við þekkjum þá Hitler
og Stalín frá nýliðinni sögu
stórþjóða, og við könnumst við
vasaútgáfurnar af þeim um
víða veröld. Villimenn allra
tíma hafa átt það til að ganga
berserksgang. En þeir hafa
aldrei verið hættulegri en nú á
dögum með sífellt öflugri
vopn. Ég hræðist ekki rétt-
kjörna fulltrúa siðaðra þjóða
þessa heims. Ég hræðist
valdræningjana, taugaveikl-
uðu og ábyrgðarlausu undir-
tyllurnar, sem aldar eru upp
til ógagnrýninnar hlýðni og
heraga. Ég hræðist leyniskytt-
urnar...“
Morgunblaðið tekur undir
mat Þorkels Sigurbjörnsson-
ar, að það eru einræðissegg-
irnir, kúgarar hinna lokuðu
þjóðfélaga, sem eru hættulegir
heimsfriðnum en ekki rétt-
kjörnir stjórnendur lýðræðis-
ríkjanna. Og er það ekki ein-
mitt dæmigert fyrir þá menn
sem stjórna í krafti eigin
valdabrölts og með velþóknun
þeirrar hernaðarvélar sem er
grimmust á okkar tímum,
ráðamenn í Sovétríkjunum, að
þeir láta undirtyllur sínar
vinna að því dag og nótt að
telja umheiminum trú um að
þeir séu mestu friðarsinnar
veraldar(l).
Frá mótmælastöðunni við Alþingishúsið í gær.
34 þúsund undirrituðu;
um afnám bráðabirgðal;
Fom'gismenn heildarsamtaka launa-
fólks afhentu í gær við Alþingishúsið á
fyrsta degi þingsins, forsætiráðherra,
Steingrími Hermannssyni, og aldurs-
forseta þingsins, Ólafi Jóhannessyni, en
þá var ekki lokið kosningu forseta sam-
einaðs þings, undirskriftir 34 þúsund
félagsmanna undii áskorun þess efnis
að bráðabirgðalögin frá því í vor verði
numin úr gildi og þar sem mótmælt er
afnámi samningsréttar og þeirri kjara-
skerðingu sem orðið hefur vegna þeirra.
Bréfið sem afhent var við þetta
tækifæri er svohljóðandi: „Við undir-
rituð, heildarsamtök launafólks, af-
hendum hér með svofellda áskorun
til ríkisstjórnar og Alþingis: „Við
undirrituð mótmælum eindregið af-
námi samningsréttarins og þeirri
miklu kjaraskerðingu sem launafólk
hefur orðið fyrir. Við skorum á ríkis-
stjórn og Alþingi að fella úr gildi án
tafar öll ákvæði bráðabirgðalaga frá
27. maí 1983, sem afnema eða skerða
samningsrétt samtaka launafólks.
Síðastliðnar tvær vikur hafa sam-
tökunum borist 34 þúsund undir-
skriftir undir þessa áskorun og fylgja
þær hér með. Undirskriftirnar eru
aðeins til í einu eintaki, sem við
óskum að Alþingi varðveiti. Ókomnir
undirskriftalistar verða afhentir síð-
ar.“
Undir þetta rita Asmundur Stef-
ánsson fyrir hönd Alþýðusambands
íslands, Kristján Thorlacius fyrir
Bandalag starfsmanna ríkis og bæja,
Ásthildur Erlingsdóttir fyrir launa-
Eina verðuga svarið er
að fá samningsréttinn aftur
— segir Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ
„Ég held ég hljóti að vera ánægður.
Við höfum fengið 34 þúsund undirskrift-
ir á tveimur vikum og það eru góðar
undirtektir undir kröfu okkar um samn-
ingsrétt og góð þáttaka í mótmælastöð-
unni í dag áréttaði það enn frekar.
Við hljótum að treysta því að ríkis-
stjórn og Alþingi taki tillit til þessara
eindregnu viðhorfa og gefi okkur
samningsréttinn aftur," sagði As-
mundur Stefánsson, forseti ASÍ, í
samtali við Morgunblaðið um undir-
tektirnar við undirskriftasöfnuninni
og þáttöku í þögulli mótmælastöðu
verkalýðssamtakanna við Alþingis-
húsið í gær.
„Góðar undirtektir í undirskrifta-
söfnuninni og sá fjöldi sem mætti á
Austurvelli talar sínu máli og ég fyrir
mitt leyti er þess fullviss, að Alþingi
a.m.k. hlýtur að taka til þess tillit og
bregðast við því þannig að við fáum
okkar samningsrétt aftur. Það er eina
svarið sem verðugt er,“ sagði Ás-
mundur ennfremur.
Fólk leggur áherslu á að end-
urheimta þessi mannréttindi
- segir Kristján Thorlacius formaður BSRB
„ÉG ER ánægður með þessar undirtekt-
ir, ég tel þetta mikla þáttöku," sagði
Kristján Thorlacius, formaður BSRB,
aðspurður um hvort hann væri ánægður
með undirtektir við undirskriftasöfnun
verkalýðsfélaganna.
„Það hefur verið leitað til manna á
tveimur vikum og ef miðað er við tölu
félagsmanna í þessum fjórum fjöl-
mennu samtökum, þá er þetta rétt
innan við 50% þáttaka, en það verður
að taka tillit til þess, að það er eflaust
einnig í þessari tölu eitthvað af eftir-
launafólki og öðrum en félagsbundnu
fólki. Með þessari þáttöku hefur fólk
lagt áherslu á kröfur samtakanna um
að fellt verði úr giidi bann við samn-
ingum og að samningsrétturinn verði
endurheimtur,“ sagði Kristján.
„Ég vil ekki trúa öðru en að alþing-
ismenn í okkar lýðræðislandi taki til-
lit til kjósenda sinna, sem leggja
áherslu á mikilvægi málsins á þennan
hátt, en það verður auðvitað að koma
í ljós. Fjölmennið í þessari mótmæla-
stöðu sýnir einnig að fólk leggur
mikia áherslu á að endurheimta þessi
mannréttindi," sagði Kristján Thorla-
cius ennfremur.
Frá afhendingu undirskriftalistanna í gær.
son, varaformaður BSRB, Kristján Thorlac
varaforseti ASÍ, Ásthildur Erlingsdóttir, fi
skólamanna, Guðmundur Þ. Jónsson, foi
Guðrún Ásdís Ólafsdóttir, Sambandi íslens
formaður Verslunarmannafélags Reykjavi
Alþýðusambands fslands.
Dreg ekki frá 1;
stéttarfélögin ó;
— segir Albert Guðmun
herra vegna mótmælasti
„ÉG MUN ekki draga frá launum
opinberra starfsmanna sem fóru frá
vinnu í dag, nema stéttarfélögin óski
sérstaklega eftir því,“ sagði Albert
Guðmundsson fjármálaráðherra í við-
tali við blm. Mbl. í gær.
Albert sagði þetta í tilefni af mót-