Morgunblaðið - 11.10.1983, Side 48
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1983
Fjör á Craven Cottage
— átta mörk í stórskemmtilegum leik Fulham og Chelsea
SHEFFIELD Wednesday og
Manchester City, tvö af frægustu
félögum á Englandi, unnu bæði á
heimavelli á laugardaginn og
héldu þar meö sigurgöngu sinni
áfram á leiöínni aö 1. deildarsæti
á ný. Wednesday sigraöi Leeds
3:1 meö mörkum Gary Sheltons,
John Pearsons og Chris Morris,
en sigurmark Man. City gegn
botnliöínu Swansea var í meira
lagi skrautlegt. Varamaöurinn
Duncan Davidson skaut í stöng,
þaöan hrökk boltinn í bakiö á
Rimmer í markinu og skoppaöi í
netiö. Markið kom á síöustu mín-
útu leiksins.
Þar sem ekkert var leikiö í 1.
deild um helglna vegna Evrópu-
leiks Englendinga og Ungverja í
Búdapest á morgun, beindist at-
hygli manna aöallega aö 2. deild-
inni, og leikurinn sem vakti mesta
athygli þar var viöureign Vestur-
Lundúnaliöanna Fulham og
Chelsea. Áhorfendur þar fengu aö
sjá átta mörk og stórskemmtilegan
leik. Gordon Davíes skoraöi
þrennu fyrir Derby, en varö engu
aö síöur aö sætta sig viö tap. Ekki
algengt aö slíkt gerist.
Kerry Dixon kom Chelsea yfir á
10. mín. en síðan komu tvö mörk
frá Davies á fimm mín. kafla. Joey
Jones jafnaöi fyrir Chelsea í þann
mund er flautaö var til leikhlés og á
fyrstu fimmtán mín. í seinni háifleik
skoruðu Pat Nevin og Colin Lee
fyrir Chelsea. Staöan oröin 2:4.
Davies minnkaöi muninn meö sínu
þriöja marki en þaö var Dixon sem
skoraöi síöasta mark Chelsea fjór-
um mín. fyrir leikslok. Hans fjórt-
ánda mark á keppnistímabilinu.
Áhorfendur voru 24.787.
Markaskorara Wednesday er
getiö í upphafi en mark Leeds
geröi Frank Gray úr víti. Áhorfend-
ur voru 26.814. Þetta var fimmti
sigur Sheffield-liösins í röö.
Derek Parlane skoraöi fyrra
mark Man. City gegn Swansea en
Bob Latchford jafnaöi fyrir hálfleik.
Swansea lék stífan varnarleik í
seinni hálfleiknum og Manchest-
er-liöiö sótti án afláts. i lokin náöi
City aö tryggja sér sigur eins og
greint var frá í upphafi: skot Dun-
can Davidsons hafnaöi í stöng
Swansea-marksins, skaust þaöan í
bak Jimmy Rimmers markvaröar
og skoppaði svo í netiö. Áhorfend-
ur: 23.571.
Á suöurströndinni léku Brighton
og Portsmouth og sigruöu gestirn-
ir öllum á óvart. Brlghton haföi
ekki tapaö í síöustu sex leikjum.
Eina mark leiksins geröi Nicky
Morgan á 23. mín. er hann henti
sér fram og skallaöi í netiö. Sex
leikmenn voru bókaöir í leiknum,
sem einkenndist af nokkurri hörku.
i leikslok munaöi minnstu aö
Jimmy Case tækist aö jafna metin
fyrir Brighton. Þessi fyrrum Liv-
erpool-bombari skaut þá hörku-
skoti af 35 metra færi, en Alan
Knight, markvöröur Portsmouth,
varöi á undraveröan hátt. Áhorf-
endur: 17.582.
Grimsby tryggöi sér markalaust
jafntefli í Huddersfield meö frá-
bærum varnarleik. Heimaliðið sótti
mun meira en tókst ekki aö sýna
jafn góöan leik og f síöustu viku er
liöiö vann Watford í Mjólkurbik-
arnum. Áhorfendur: 8.897. Kevin
Keegan skoraði tvö glæsileg
skallamörk fyrir Newcastle í 2:1
sigrinum á Charlton. Míkiö rigndi í
Newcastle meöan leikurinn fór
fram, og geröi þaö leikmönnum
erfitt fyrir. Charlton haföi 1:0 yfir í
hálfleik og allt stefndi í fyrsta sigur
liösins í Newcastle í 30 ár, er Keeg-
an tók til sinna ráöa. Mörkin geröi
hann á 72. og 81. mín. Bakvöröur-
inn Paul Curtis skoraöi fyrir Charl-
ton. Áhorfendur voru 2.247.
Shrewsbury hefur komiö mikiö á
óvart í vetur og nú sigraði liöiö
Oldham 2:0 meö mörkum Robin-
sons og Maclarens í seinni hálfleik.
Áhorfendur: 4.087. Cardiff sigraöi
Carlisle 2:0. Carlisie sótti mun
meira í fyrri hálfleiknum en tvö
mörk á skömmum tíma rétt fyrlr
hlé geröu vonir þeirra aö engu.
Gordon Owen og Nigel Vaughan
skoruöu og síöan lagöist heimaliö-
iö í vörn í seinni hálfleik. Áhorfend-
ur voru 4.596.
Tony Currie kom Middles-
brough yfir gegn Blackburn en
Glenn Keeley og Simon Garner
tryggöu gestunum sanngjarnan
sigur. Áhorfendur voru 7.062.
Vince Hilarie kom Crystal Palace
yfir á 13. mín. gegn Cambridge og
David Giles bætti öðru marki vlö.
Robbie Cooke minnkaöi muninn
en Tony Evans gulltryggöi sigur-
inn. Áhorfendur: 4.323.
Glæsimörk Rossi og Platini
— flestir spá Juventus sigri í deildinni
PLATINI og Rossi skoruðu mörk
Juventus er liöiö sigraöi Inter Mil-
ano um helgina 2—1. Mark það
sem Juventus fékk á sig er þaö
fyrsta á keppnistímabilinu. Juv-
entus þykir nú leika betur en
nokkru sinni fyrr og flestir spá
liðinu mikilli velgengni á keppn-
istímabilinu. Mörk þau sem Plat-
ini og Rossi geröu voru gullfalleg
og þóttu þau undirstrika snílli
þeirra í íþróttinni.
italíumeistararnir Roma unnu
Genoa 1—0, í höröum leik. Samp-
doria án Trevor Francis geröi jafn-
Paolo Rossi
Fjórir dæmdir í
þriggja leikja bann
Knattspyrnusamband Evrópu,
UEFA, sektaði nokkur félög um
helgina, og nokkrir knattspyrnu-
menn voru dæmdir í leikbann.
FC Larissa og Fenerbachne frá
Istanbul voru hvort um sig sektuö
um 3.000 svissneska franka (um
39.000 ísl. kr.), Sligo Rovers frá
irlandi var sektaö um 1.000 franka
(um 13.300 ísl. kr.) og Drogheda
United, einnig frá irlandi var gert
aö greiða 500 franka (tæpar 7.000
ísl. kr.) Allar voru þessar sektir
vegna brota á reglum um auglýs-
ingar á keppnisbúningum í Evr-
ópukeppni.
Þessir leikmenn voru dæmdir í
þriggja leikja bann í Evrópuleikj-
um: Edo Ophof, Ajax, Christo Sot-
irov, Lokomotov Plovdiv og Evag-
elos Vlachos, AEK Aþenu, en Finn-
inn Ikka Maekelae var dæmdur í
þriggja leikja bann frá landsliöinu.
Hans Brunner (Grasshoppers,
Zurich) og Michel van der Korput
(Feyeenoord) voru dæmdir í
tveggja leikja bann í Evrópu-
keppni.
Eins leiks bann fengu þessir
leikmenn: Oscar Múller, Nantes,
Arisa Erdogan, Fenerbahce Ist-
anbul, Milos Beznoska, Sparta
Prag, Dragan Bosnjak, Dinamo
Zagreb, Alfredo Murca, Búlgaríu,
Zoran Milosevlc, Radnlcki Nis, Ga-
etano Refalo, Hamrun Spartans,
Karl-Heinz Forster, VfB Stuttgart
og Josip Cop, Hajduk Split.
tefli, 1 — 1, viö nýliöana Lazio frá
Róm. Roberto Falcao var kjörinn
leikmaöur helgarinnar en hann
þótti spila meistaralega vel á miöj-
unni meö liöi sínu. Zico, sem er
enn markahæstur á Italíu, meö sex
mörk, tókst ekki aö skora aö
þessu sinni. Hans var óhemju vel
gætt af sterkum varnarmönnum,
og er Zico nú mjög hræddur um aö
meiöast þar sem svo hart er sótt
að honum í leikjum, aö þaö er
meira en góöu hófi gegnir.
Danski hlauparinn
Lauenborg setf nýtt
heimsmet í maraþonhlaupi
í sínum aldursflokki
KEPPNIR í maraþonhlaupum eru
mjög vinsælar um þessar mundir
og fara víöa fram. Um síöustu
helgí var keppt í Aþenu og var
hlaupin sama leið og til forna
þegar fyrsta maraþonhlaupiö fór
fram. Martin MC Varthy frá Bret-
landi sigraöi á 2 klst., 25 mín., 34
sek. Paul Eales varö annar á
2:27,29 klst.
Grete Waitz frá Noregi hætti
keppni eftir 25 km en hún var þá
í forystu af kvenfólkinu. 1300
keppendur frá 2$ þjóöum tóku
þátt í hlaupi þessu.
í Melbourne, Ástralíu, var líka
keppt i maraþonhlaupi um heigina.
Þar kepptu alls 8.000 hlauparar.
Ikangaa frá Tansaníu sigraði á
góöum tíma, 2:13,50 klst. Hann á
samt best 2:09,30 klst.
Daninn Jorn Lauenborg setti á
dögunum nýtt heimsmet í mara-
þonhlaupi 39 ára. Hann fékk sér-
lega góöan tíma, 2:12,58 klst. í
hlaupi sem fram fór í Drammen.
Hann bætti sinn fyrri árangur um
44 sek. Meö þessum árangri hefur
Lauenborg tryggt sér rétt til þátt-
töku á Ol-leikunum í Los Angeles í
Bandaríkjunum á næsta sumri. En
maraþonhlauparar um allan heim
undirbúa sig nú af kappi fyrir leik-
ana eins og aörir íþróttamenn og
konur. Tími Jorn Lauenborg þykir
vera einstaklega góður fyrlr mann
á hans aldri.
• Danski hlauparinn, Jorn Lau-
enborg, satti heimsmet í flokki 39
ára í maraþonhlaupi, hljóp vega-
lengdina á 2:12,58 klst.
Knatt-
spyrnu
úrslit
2. DEILD
Brighton — Portsmouth 0—1
Cambridge — C. Palace 1—3
Cardiff — Carlisle 2—0
Derby — Barnsley 0—2
Fulham — Chelsea 3—5
Huddersfield — Grimsby 0—0
Man. City — Swansea 2—1
Middlesb. — Blackburn 1—2
Newcastle — Charlton 2—1
Sheff. Wed. — Leeds 3—1
Shrewsbury — Oldham 2—0
Spánn
ÚRSLIT Mkja é Spáni um tiöuatu
IMgi urftu þumi:
R«al Sociödsd — Malaqa Q 3
Valancia — Eapanol 4—0
Caédz — Batia 0—0
Salamanca — Valladolid 2—2
Barcokma — Gijon 4—0
Atlotico M. — Murcia 1—1
Sovilla — Bilbao 1—1
Oaaauna — Mallorca 4—0
Stadan f 1. daild
AtMico dt Madrfd 6 4 2 0 13—5 10
Barcufona 6 4 11 14—4 9
Vatancfa 6 4 11 13—6 9
Malagn 6 4 11 14—6 9
Murcia 6 2 4 0 6—5 8
Savilla 6 3 12 12—6 7
Zaragoza 6 2 2 2 10—7 6
Botia of Sevilla 6 2 2 2 7—6 6
Raai Madria 6 3 0 3 14—13 6
Valladolid 6 2 2 2 13—14 6
Athletic de Bilbao 5 2 12 11—14 5
Salamanca 6 0 5 1 9—12 5
Eap. of Barcelona 6 2 0 4 6—14 4
Gijon 6 12 3 5—14 4
Cadiz 5 113 9—12 3
Oaaa. o( Pamplona S 1 1 4 5—6 3
Real Sociedad 6 114 6—12 3
Mallorca 6 0 3 3 5—15 3
Ítalía
Úrslit Mkja á ftalfu:
Avellino — Torino 0—0
Catania — Pisa 2—0
Fiorentina — Udinese 0—0
Inter. — Napoli 1—0
Juventua — Milan 2—1
Roma — Genoa 1—0
Sampdoria — Lazio 1—1
Verona — Aacoli 3—1
Staftan f 1. daild:
Juventua 54101219
Roma 5401948
Fiorentina 5311947
Verona 5 3 1 1 12 8 7
Torino 5230317
Udineee 5 2 2 1 10 4 6
Avelliono 5212775
Lazio 5 122664
Catania 5 1 22564
Sampdoria 5122674
Milan 5 2 0 3 8 12 4
Aacoli 5 2 0 3 7 13 4
Inter 5113263
Nepoli 5113383
Genoa 5032173
Piaa 5023172
Frakkland
Únlit Mkja f Frakkiandi um afðuatu
tMgi og stafta afatu lifta f 1. delld:
Brast — Bordsaux 0-0
Parfa S.Q. — Sochaux 3—1
Nantsa — Rouan 3—0
Monaco — Nimaa 5—1
Auxarrs — Rannaa 1—0
Lena — Nancy 3—1
Laval — TouIoum 1—0
Toulon — Strmbourg 1—3
Metz — Baatia 1—0
Saint Etfanna — Lilla 2—1
Stafta:
Bordeaux 21
Monaco 19
Auxerre 18
Paria S.G. 18
Nantm 16
Strasbourg 15
Laval 14
Rouen 13
Lsns 13
Toulouae 12