Morgunblaðið - 11.10.1983, Qupperneq 38
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1983
í staðinn fyrii tylst og grisju
Tork á
vinnustað
Tork þurrkurnar eru
sérstaklega íramleiddar
fyrir atvinnulíiið, hvort
sem um er að rœða
olíuþurrkur, þurrkur fyrir
elektrónisk tœki, þurrkur
fyrir eldhús og mötu-
neyti, verkstœðisþurrkur
eða afrafmagnaðar
þurrkur fyrir tölvur, ljós-
nœma hluti og ljós-
myndatœki.
Hafðu samband við
söludeild okkar og fáðu
upplýsingar um Tork
þurrkur, sem hœfa
þínum vinnustað.
'=?« asoco hf
Vesturgötu 2, P.O.
Box 826. 101 Reykjavík
simi 26733
Pflagrímaflugi Flugleiða lýkur f dag:
Liðlega 70.000 píla-
grímar fluttir í
tveimur áföngum
PÍLAGRÍMAFLUGI Flugleiöa fyrir
Aisírmenn lýkur í dag, aö sögn Sae-
mundar Guðvinssonar, fréttafulltrúa
Flugleiöa, sem sagði flugið hafa
gengið mjög vel, en heimflutningur
pílagrímanna frá Saudi Arabíu hófst
22. september sl.
„1 þessum seinni hluta flugsins
voru fluttir um 35.000 pílagrímar
frá Jeddah í Saudi Arabíu og hafa
því verið fluttir liðlega 70.000 píla-
grímar að þessu sinni, en flutn-
ingar þeirra frá Alsír hófust 20.
ágúst síðastliðinn," sagði Sæ-
mundur.
í pílagrímafluginu voru notaðar
fjórar þotur, ein Boeing 747, sem
leigð var af SAS-flugfélaginu, og
þrjár þotur af gerðinni DC-8, en
ein þeirra var leigð af SAS. Alls
störfuðu 270-280 manns við verk-
efnið. Pílagrímasamningur Flug-
leiða við Alsírmenn er sá stærsti í
sögunni, en hann hljóðar upp á
liðlega 9 milljónir dollara, sem
svarar til liðlega 252 milljóna
króna.
Þegar pílagrímafluginu lýkur í
kvöld mun DC-8 þota Flugleiða
TF-FLB koma hingað til lands,
þar sem framkvæmd verður á
henni svokölluð C-skoðun, sem
tekur um 4.000 vinnustundir. Slík
skoðun hefur aðeins einu sinni
farið fram hér á landi.
SAAB 900 nú boðinn tvennra dyra
SAAB-umboðið Töggur hélt bflasýningu um helgina, þar sem 1984 árgerðirn-
ar voru kynntar. Helztu breytingar hjá SAAB að þessu sinni eru þær, að nú
er SAAB 900 boðinn tvennra dyra, en til þessa hefur hann verið boðinn
þrennra, fernra og fimm dyra. Að öðru leyti er um minni breytingar að ræða,
en hins vegar mun SAAB kynna síðar í vetur SAAB 900 Turbo, knúinn nýrri
vél, sem er töluvert kraftraeiri, en sú sem nú er a boðstólum.
Morminblaðið/KÖE.
Nýr „lítill" Volvo
VOLVO-umboðið Veltir hélt um helgina sýningu á 1984 árgerðunum frá Volvo
í Svíþjóð og Hollandi. Helztu breytingar frá fyrra ári eru þær, að Volvo 760 er
nú boðinn í Turbo-útfærslu hér á landi, auk þess sem bfllinn er boðinn
„Turbó-dísel“. Hinn hefðbundni Volvo 240 er lítt breyttur frá fyrra ári. Aðal-
nýjungin frá Volvo að þessu sinni er breyttur bfll af gerðinni Volvo 360, eða nýr
„IftUT* Volvo. Hann hefur til þessa aöeins verið framleiddur í „Hatchback-
útfærslu", þe. þrennra eða fimm dyra. Nú er hann hins vegar boðinn í
„Sedan-útfærslu", þe. fernra dyra. Bflnum var reynsluekið á dögunum og
verður nánar fjallað um hann í bflaþætti blaösins.
Morgunblaðið/KÖE.
Nýtt líf í Vestmannaeyjum:
Helmingur bæjarbúa
búinn að sjá myndina
Vestmannaeyjum, 10. október.
NÚ UM HELGINA höfðu um 2600
manns séð kvikmyndina Nýtt líf,
eða rúmlega helmingur bæjarbúa.
Myndin var frumsýnd hér í Sam-
komuhúsinu 29. september sl. og var
það í fyrsta skipti sem ný íslensk
kvikmynd er frumsýnd utan höfuð-
borgarinnar.
Myndin Nýtt líf er að mestu tek-
in hér í Eyjum, og fjölmargir
Eyjabúar fara með hlutverk í
myndinni. Myndin hefur fengið
góða dóma hjá bæjarbúum sem
gamanmynd, en deildar meiningar
eru um hversu raunsönn sú mynd
er, sem dregin er upp af vertíðar-
Iffinn
Mjög hefur dregið úr aðsókn að
kvikmyndasýningum hér á undan-
förnum árum við tilkomu mynd-
bandavæðingarinnar. Fram til
1980 voru kvikmyndahússgestir
um og yfir 50 þúsund á ári, en í
fyrra var sú tala komin niður í 32
þúsund manns, sem er um 37%
samdráttur. Eru kvikmyndasýn-
ingar nú að jafnaði 3 kvöld i viku.
Talið er að myndbandaeign sé
hér mjög almenn, og ekki annað
að sjá en að mikið sé um viðskipti
hjá þeim fjórum myndbandaleig-
um sem hér eru starfandi.
- hkj.
Við kappkostum að hafa ávallt til afgreiðslu flestar dekkja-
stærðir fyrir lyftara, stærri tæki og vélar. Bjóðum dekk frá
Þýskalandi, Taiwan, Frakklandi og Ameríku. Sérpöntum með
stuttum fyrirvara „massív“ dekk. Sölusíminn er 91-28411 frá
8.30-18.00.
18x7-8
500-8
600-9
650-10
23x9-10
750-10
700-12
27x10 12
16/70x20
14 PR 700x15 12 PR
8PR 750x15 12 PR
I0PR 825x15 12PR
10 PR 600—'15 8PR
16 PR 10.5x18 8PR
12 PR 12.0-18 12 PR
12 PR 10.5x20 10PR
12 PR 12.5x20 10 PR
10 PR 14.5x20 10 PR
HRINGIÐI
I
!91-28411!
I og tajið við Hilmar,
'hann veit allt um dekkin
I
A* /4usturbakki hf.
" 1 BORGARTUNI20
Þjóðskjala-
safni gefin
nafnaskrá
Þjóðskjalasafni íslands hefur borist
gjöf frá séra Birni Magnússyni fyrr-
verandi prófessor. Færði hann safninu
vélritaða nafnaskrá f 3 bindura, sem
hann gerði yflr Manntal á íslandi
1801, sem Ættfræðifélagið gaf út á sín-
um tíma.
„Ættfræðifélagið hafði í huga að
gefa út slíka skrá, sem viðauka við
manntalið 1801, en horfið var frá
þeirri hugmynd, sakir kostnaðar,
eða öllu heldur sölutregðu," segir í
frétt,sem Morgunblaðinu hefur bor-
ist frá Þjóðskjalasafninu. Þar segir
ennfremur: „Nafnaskrá séra Björns
er í stafrófsröð og er við hvern
mann tilgreindur aldur og um dvöl
mannsins sýsla, sókn, heimili og
amt og á hvaða blaðsíðu hann er
nefndur í hverju bindi hinnar prent-
uðu útgáfu." í sömu frétt segir
ennfremur að allir sem þekki til
samningar nafnaskráa, viti, að verk
sem þetta er tímafrekt og krefst
mikillar þolinmæði.
Leiðrétting
í FRÉTT Morgunblaösins síðastliðinn
sunnudag um lok hvalvertíðar var
ekki haft fyllilega rétt eftir Kristjáni
Loftssyni, forstjóra Hvals hf. Biöst
blaðið velvirðingar á því.
f fréttinni er haft eftir honum að
búrhvalur hafi horfið af miðunum
ásamt langreyði, steypireyði og
hnúfubak. Hið rétta er að búrhval-
urinn var á hefðbundnum slóðum
sínum við landið í allt sumar. Hefði
því mátt veiða hann í sama mæli og
undanfarin ár, væri ekki búið að
friða hann, að sögn Kristjáns
Loftssonar.