Morgunblaðið - 11.10.1983, Side 40

Morgunblaðið - 11.10.1983, Side 40
Bítlaæðið #■ á iflfíjíiwMafoiifo ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1983 Verður þorskaflinn 100.000 lestum minni en í fyrra? Tölvupappír Ími formprent Hverfisgotu 78. simar 25960 - 25566 Þýðir um 1.250 milljóna króna tekjutap útgerðar og sjómanna — segir Kristján Ragnarsson „ÞAÐ SEM AF ER árinu er þorskafli togara 19.400 lestum minni en á sama tíma í fyrra, sera er aö núverandi verömæti um 250 milljónir króna. Miðað viö sama tíma hefur þorskafli báta minnkað um 49.000 lestir eða um 600 milljónir króna að verðmæti. Samdráttur aflaverðmæta upp úr sjó nemur því um 850 milljónum króna,“ sagði Kristján Ragnarsson, formaður og frara- kvæmdastjóri LÍÚ, er Morgunblaðið bar undir hann bráðabirgðatölur Fiski- félags íslands um afla landsmanna. „Þorskafli togara minnkaði um 9.000 lestir f ágúst miðað við sama mánuð í fyrra og 5.000 í september. Nú er þorskafli nánast enginn, því sýnist mér að þorskaflinn á árinu stefni í um 280.000 til 290.000 lestir. Heildarsamdráttur frá síðasta ári gæti því orðið um 100.000 lestir, en þá var aflinn 382.000 lestir og 460.000 lestir árið þar áður. Sam- drátturinn í þorskaflanum milli þessa árs og síðasta gæti því numið um 1.250 milljóna króna tekjutapi Með fíkni- efni í iðrum sér fyrir l/2 milljón TVEIR menn á þrítugsaldri voru teknir fastir við komuna til Kefla- víkur frá Luxemborg á laugardag vegna gruns um tilraun til fíkni- efnasmygls. Crunur fíkniefna- deildar lögreglunnar reyndist á rökum reistur — þeir voru látnir laxera sem kallað er og settir á kopp og skiluðu niður um 160 grömmum af amfetamíni og kóka- íni. Þeir voru úrskurðaðir í viku gæzluvarðhald, annar á sunnudag og hinn um hádegisbilið í gær. Fíkniefnin voru í kúlulaga gúmmípakkningum. Annar hafði gleypt fjórar slíkar kúlur, hinn tvær auk þess sem hann hafði kókaín í iðrum sér. Verð- mæti þessara fíkniefna mun vera um hálf milljón króna. Það sem af er árinu hefur fíkniefnadeild lögreglunnar lagt hald á tæplega 400 grömm af amfetamíni eða hvíta duftinu svokaliaða. Þar af voru liðlega 100 grömm tekin í vor með sama hætti og nú. Þetta er mikil aukning á tiltölulega skömmum tíma. Fyrir aðeins þremur árum lagði lögreglan hald á innan við 10 grömm af amfetamíni á einu ári. fyrir útgerð og sjómenn," sagði Kristján. Kristján sagði ennfremur, að þessi þróun sýndi það fyllilega, að ekki yrði um svipaðan afla seinni- hluta ársins að ræða, eins og gert hefði verið ráð fyrir í spám Þjóð- hagsstofnunar. Nú væri staðan orð- in þannig, að ekki væri lengur lánað fyrir olíu og stefndi í uppboð á fiski- skipum. Jón Sigurðsson, forstjóri Þjóð- hagsstofnunar, sagðist ekki tilbúinn til að tjá sig um hvaða áhrif þetta gæti haft á afkomuspár stofnunar- innar. Enn væri ekki búið að kanna þessar tölur fyllilega, en það yrði gert á næstu dögum. „Þorskaflinn er nú orðinn tæplega 252.000 lestir og það var gert ráð fyrir því í vor, að svipaður afli yrði það sem eftir væri ársins og sama tíma í fyrra. Til þess að 320.000 lest- ir náist þurfa að nást tæplega 70.000 lestir til viðbótar. í september varð aflinn tæpar 12.000 lestir, þannig að við megum þakka fyrir að ná 300.000 lestum. Annar afli er aftur á móti meiri nú. Því er erfitt að segja um hvaða áhrif þetta hefur á heildar- dæmið, en allt bendir þó til verri afkomu þessara skipa en gert var ráð fyrir á síðasta vori. Þetta hefur því allt farið fremur á verri veg,“ sagði Halldór Ásgrímsson, sjávar- útvegsráðherra. Samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskifélagsins er heildarafli lands- manna fyrstu 9 mánuðina um 64.000 lestum minni en á sama tíma í fyrra. Þorskaflinn er tæplega 70.000 lestum minni, en af öðrum botnfiski hefur nú aflazt um 11.000 lestum meira. Samdráttur þorskafla bát- anna nemur tæpum 50.000 lestum og togara 19.500 lestum. Sé litið á sept- ember mánuð þessa árs og síðasta kemur í Ijós að þorskafli togara er nær helmingi minni nú eða 5.866 á móti 10.556 lestum í fyrra. Þorskafli báta er nú um 1.700 lestum minni. Heildarafli togara er hins vegar nánast sá sami en heildarafli báta um 4.000 lestum meiri nú. Heildar- aflinn í september nú er um 4.000 lestum meiri en í fyrra, þorskaflinn 6.500 lestum minni en.annar botn- fiskafli 7.500 lestum meiri. Ráðherramakar í kaffisamsæti SÚ HEFÐ hefur skapast, að forsætisráðherrafrú býður mökum ráðherra til kaffidrykkju á Alþingi þingsetn- ingardaginn. Það var til tfðinda nú, að karlmaður sat þetta boð — Þór Vilhjálmsson, forseti Hæstaréttar, eiginmaður Ragnhildar Helgadóttur, menntamálaráð- herra. Á myndinni, sem RAX tók í kaffistofu Alþingis í gær, eru frá vinstri: Gréta Kristjánsdóttir, kona Sverris Hermannssonar; Sigrún Þorgilsdóttir, kona Matthías- ar Á. Mathiesen; Kristín Ingimundardóttir, kona Matthíasar Bjarnasonar; Sigurjóna Sigurðardóttir (fal- in á bak við Kristínu), kona Halldórs Ásgrímssonar; Þór Vilhjálmsson; Edda Guðmundsdóttir, kona Steingríms Hermannssonar; Brynhildur Jóhannsdóttir, kona Alberts Guðmundssonar; Erna Finnsdóttir, kona Geirs Hallgrímssonar og Björg Finnbogadóttir, kona Alexanders Stefánssonar. Á myndina vantar Guörúnu Þorkelsdóttur, konu Jóns Helgasonar. SIS, Esso og hreppurinn sýna áhuga á aðild að frystihúsinu á Patreksfirði: Skuldir hússins nema um 190 milljónum kr. SKULDIR Hraðfrystihúss Patreks- fjarðar hf. nema um 190 milljónum króna, að því er stjórnarformaður fyrir- tækisins upplýsti á fjölmennum borgarafundi á Patreksfirði í gær- kvöld. Samband íslenskra samvinnufé- laga og Olíufélagið hf. hafa látíð í Ijós áhuga á að eignast hlutabréf í Hrað- frystihúsi Patreksfjarðar hf. fyrir allt að átta milljónir króna, fjórar milljónir frá hvorum aðila. Hreppsfélagið hefur Um 160 lestir af karfa eyðilögðust í söluferð UM 160 lestir af karfa eyðilögöust í söluferð skipsins Guðrúnar Þorkels- dóttur frá Eskifirði í lok síðasta mán- aðar. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins fór skipið til Þýskalands með um 200 lestir af karfa úr skipunum Jóni Kjartanssyni og Hólmanesi frá Eskinrði. Erlendis voru rúmar 80 lest- ir aflans dæmdar í gúanó, en 40 lestir seldar á lágu verði. Hélt skipið síðan heim aftur með um 80 lestir, sem fóru í gúanó þar. Morgunblaðið bar þetta undir framkvæmdastjóra Hólmaborgar á Eskifirði, Magnús Bjarnason, sem gerir skipið út. Staðfesti hann, að yfir 100 lestir af karfa hefðu skemmst og skipið hefði komið með hluta aflans heim, sem fyrirséð hefði verið að dæmdur yrði f gúanó. Eitthvað hefði einnig farið í gúanó í Þýskalandi. Sagði hann Guðrúnu hafa tekið afla af þessum tveimur skipum og eitthvert slys hefði átt sér stað er aflanum var umskipað og hann endurísaður. Þetta væri vissu- lega áfall og væri ekki á stöðuna bætandi. Lítið væri að gera við þessu annað en að læra af reynslunni og gæta þess, að svona færi ekki aftur. Þá gat hann þess, að þó að 200 lestir hefðu verið vegnar um borð í skipið heima, hefðu ekki nema 160 til 170 lestir skilað sér upp, enda reiknuðu menn með um 10% afföll- um afla við siglingu. gegn vissum skilyrðura látið f Ijós vilja til að gefa eftir um fimmtung af 2,5 millj. kr. skuld fyrirtækisins við sveit- arfélagið upp í hlutabréf og einkaaðili á Patreksfirði hefur boðist til að taka að sér rekstur fyrirtækisins. Á borgarafundi á Patreksfirði í gærkvöld, þar sem voru um 230 manns, lá fyrir tillaga frá Alþýðu- flokksmönnum í hreppsnefnd um 500 þús. kr. eftirgjöf á skuldum fyrir- tækisins upp í hlutabréf. Þessi hugmynd, sem afgreidd verður af hreppsnefndinni, þar sem Alþýðu- flokkur og Framsóknarflokkur eru með fjóra fulltrúa af sjö, er skilyrt af hálfu flutningsmanna tillögunn- ar. í fyrsta lagi er gert ráð fyrir að hreppsfélagið fái fulltrúa f stjórn fyrirtækisins; í öðru lagi verði staðið við áform um uppbyggingu; í þriðja lagi er sett sem skilyrði að gerð verði hlutlaus úttekt á fjárhagsstöðu fyrirtækisins og kannað hvort mögu- leikar séu á áframhaldandi rekstri og þá hvernig, og loks er gert að skilyrði fyrir þátttöku hreppsins, að samkomulag náist við helstu lána- stofnanir um breytingu á lánskjör- um svo greiðslubyrði fyrirtækisins verði viðráðanlegri en nú er. Sjálf- stæðismenn í hreppsnefnd, sem beittu sér fyrir borgarafundinum, eru andvígir þessari hugmynd að sögn fréttaritara Morgunblaðsins sem sat fundinn í gærkvöld. Skömmu áður en fundinum lauk um kl. 23 í gærkvöld fór fram skoðana- könnun meðal fundarmanna um áð- urnefnda tillögu. Handaupprétt- ingar leiddu í ljós, að 96 voru fylgj- andi tillögunni, 40 voru andvígir henni en um 70 fundarmenn tóku ekki afstöðu. Hundur beit 12 ára gaml- an dreng TÓLF ára gamall drengur var bitinn af hundi í Breiðholti um hádegisbilið í gær. Hann var einn á ferð þegar hundur kom aðvífandi og glefs- aði fyrirvaralaust í hönd hans. Farið var með drenginn á slysadeild og gert að sárum hans og hann sprautaður, en meiðsli hans eru ekki alvarleg. Hundurinn fannst síðar og hef- ur honum verið lógað. Sjá „Málshöfðun gegn hunda- eigendum sem sætt hafa dómi“ á bls 2.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.