Morgunblaðið - 08.12.1983, Side 7

Morgunblaðið - 08.12.1983, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1983 Varstu að fá hann?! Viðtalsbók við 17 laxveiðimenn Út er komin bókin Varstu að fá hann? eftir Guðmund Guð- jónsson blaðamann, en í bókinni eru viðtöl við 17 kunna laxveiði- menn og rifja þeir upp eftir- minnilegar veiðiferðir og segja veiðisögur, eins og þær gerast bestar. Formála að bókinni ritar Steinar J. Lúðvíksson. Á bókarkápu segir meðal ann- ars: Varstu að fá hann? er spurning sem hljómar títt þegar laxveiðimenn hittast, enda eru menn alltaf forvitnir að vita hvernig náunganum hefur geng- ið í þeim heillandi veiðiskap sem laxveiðarnar eru. Sjaldnast liggja menn á svarinu, sem vit- anlega er á ýmsa lund og ef vel hefur gengið fylgir stundum góð veiðisaga svarinu. Þótt sumir segi að laxveiðimönnum hætti til að ýkja, er það ómælanlegt að mörg ævintýri hafa gerst i lax- veiðum á Islandi og það sem hljómar sem lygasaga er heilag- ur sannleikur. Þá segir: Varstu að fá hann? spurningunni geta þeir sem þessi bók fjallar um svarað játandi. Guðmundur Guðjónsson Hér segja sautján kunnir veiði- menn frá ævintýrum sínum í laxveiði og hafa af mörgu að taka. Glímurnar við stórlaxana hafa oft verið strangar og ævin- 39 týralegar og þeim hefur líka lok- ið á ýmsan hátt. En allir þeir sem ánægju hafa af laxveiðum munu njóta þess að fylgja köpp- unum um bakka veiðiánna og taka þátt í frásögnum þeirra af lífi og sál. í bókinni eru viðtöl við eftir- talda veiðimenn: Eyþór Sig- mundsson, Engilbert Guðjóns- son, Kristján Benediktsson, Þór- arin Sigþórsson, Snorra Jónsson, Sverri Hermannsson, Analíus Hagvaag, Birgi Steingrímsson, Sigurð Örn Einarsson, Helga Jónasson, Garðar H. Svavarsson, Þórð Pétursson, Ragnar Péturs- son og Jónu Ingimundardóttur, Jóhannes Kristjánsson, Kristján Jóhannesson og Hans Kristjáns- son. Bókaforlagið Örn og Örlygur gefur bókina út. Bókin er 138 blaðsíður að stærð. Hún er prýdd fjölda ljósmynda, sem margar eru teknar af Rafni Hafnfjörð. Eftir sjö áia undiibúning ftamleiðslunnar áVolvo360, em mistökin í ruslafötu okkar en ekki í bílskúmum þínum! Kaupendur látnir gjalda Það gerist stundum að bílar eru hannaðir í miklu tímahraki, þar sem allt kapp er lagt á að koma framleiðslunni á markað. Þegar þessi háttur er hafður á, eru það kaupendurnir sem gjalda fyrir mistökin. í bílskúrnum þeirra er þá illa hannaður bíll, sem ein- göngu veldur ama og leiðindum. Hönnun og prófanir Starfsmenn VOLVO gáfu sér næg- an tíma við hönnun og prófanir á 360 gerðinni. Þeir hafa alltaf haft þennan háttinn á við undir- búning framleiðslu nýrrar gerðar. í sjö ára undirbúningsvinnu hefur nægur tími gefist til að sannreyna hugmyndir, gera mistök og leið- rétta þau. Umfram allt, þá hefur rúmur tími verið til prófana, endurbóta og fleiri prófana. VOLVO gefur sér tíma Vönduð vinnubrögð og þolin- mæði í sjö ár hafa skilað frábær- um árangri. VOLVO 360 hefur uppfyllt allar ströngustu kröfur. Hann er rúmgóður fjölskyldubíll, kraftmikill og lipur í akstri, örugg- ur og traustur: Sannur VOLVO! VOLVO 360 - Enn eitt skref nær fullkomnun MICROMA V--SWISS QUARTZ-- | er framtíðarúrið þitt g | - því getur þú treyst. | | Þetta er aöeins hluti | af úrvalinu. VISA EUROCARD 1 FRANCH MICHELSEN I ÚRSMIÐAMEISTARI LAUGAVEGI39 SÍMI 28355

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.