Morgunblaðið - 30.12.1983, Blaðsíða 1
tfgtniftlftfrife
Föstudagur 30. desember
Víða þröngt í búi
um þessi áramót
Síöastliðið ár hefur verið mörgum erfitt fjárhagslega.
Hefur beiðnum um fjárhagsaöstoð til stofnana eins og
Félagsmálastofnunarinnar, Hjálparstofnunar kirkj-
unnar og ýmissa góðgerðarstofnana fjölgað töluvert.
Viö ræddum viö einstaklinga og fjölskyldur, sem
þurfa aö lifa af lágmarkstekjum mánaðarlega, hvernig
fólkið plumaði sig í lífsbaráttunni.
Hvaö ætlar þú
aö gera á gaml-
árskvöldi?
Þetta er stóra spurningin um hver áramót.
En henni svarar fólk sem viö hittum á förn-
um vegi, bæði ungir og gamlir og eru svör-
in með ýmsum hætti. Sumir ætla að fara í
samkvæmi, ein í afmælisveislu, flestir
borða góöan mat og horfa á skaupið í
sjónvarpinu, einn þeirra sem svaraöi ætlar
bara að leggjast tímanlega á sitt græna eyra og fara að
sofa og láta sig dreyma.
Aramótabrennur
fyrr og nú
Hátíðahöld á áramótum hafa breytt mikiö
um svip frá því sem áður var. Siðir, venjur
og þjóðtrú, sem tengdust þessum tíma-
mótum eru okkur aö mestu framandi. Það
sem hefur þó sett einna mestan svip á
áramótin hér á landi um langa hríð eru
áramótabrennur.
í bókinni Saga daganna, sem Árni Björnsson þjóðhátta-
fræðingur hefur tekið saman, rifjar hann upp sögu ára-
mótabrenna hér á landi og fylgjum viö honum í þeirri
upprifjun. Þá ræöum við viö Pétur Hannesson, sem verið
hefur eins konar brennukóngur Reykjavíkur undanfarin 20
ár. Pétur er yfirmaöur hreinsunardeildar Reykjavíkurborgar.
Heimílíshorn 36/37 Hvað er að gerast? 43 Myndasögur og fólk 48/49
íslenzk list 40 Sjónvarp 44/45 Dans/bíó/leikhús 50/53
Erlendar bækur 41 Utvarp 46 Velvakandi 54/55