Morgunblaðið - 30.12.1983, Síða 3

Morgunblaðið - 30.12.1983, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1983 35 kaupa tvenna skó á ári og láta hækka annan skóinn og greiöir Tryggingastofnunin 70% af þeim kostnaði. Þann mánuö sem hun þarf aö kaupa skóna veröur hún aö fá aö fresta aö greiöa leiguna og skipta henni á tvo næstu mán- uöi, þannig aö hún hafi örugglega fyrir mat og lyfjum. Þar eö dóttir konunnar býr hjá henni fær hún ekki niöurfellingu á afnotagjöldum síma, útvarps og sjónvarps sem hún annars fengi. Dóttirin borgar 2.000.- krónur heim til sín mánaö- arlega. Hún annast öll erfiöari verk heimilisins og kaupir oftast inn. Dóttirin á bifreiö og ekur hún móö- ur sinni þegar meö þarf. Er dóttirin henni ómetanleg hjálp eins og konan orðaöi þaö. Dóttirin matast á vinnustaö á daginn en boröar heima á kvöldin og um helgar. Konan er vön því aö hafa lítil fjárráö. Maöur hennar varö fyrir slysi á vinnustaö fyrir 17 árum og áttu þau 3 börn. Maðurinn fékk engar skaöabætur og þurfti fjöl- skyldan aö lifa af litlum mánaöar- legum bótum og barnalífeyri. Þau tóku aö sór ýmiss konar heima- vinnu til aö drýgja tekjurnar. Maö- urinn dó svo eftir þrjú ár og stóö konan þá ein uppi meö börnin. Þrátt fyrir aö oft hafi veriö þröngt í búi, þá hefur fjárhagurinn sjaldan veriö eins bágborinn og nú aö hennar sögn. Getur hún sama og ekkert leyft sér. Hún hefur mikið yndi af aö fara á tónleika og lista- sýningar svo og í leikhús og kvik- myndahús, en þetta er munaöur, sem hún veröur aö vera án. Stund- um bjóöa börnin henni í kvik- myndahús og ef hana vantar til dæmis dýrari flíkur eins og kápu þá hafa þau siegiö saman í hana. En þau eru aö byggja sér þak yfir höfuöiö þannig aö þau hafa alveg nóg meö sig segir konan: „Ég passa mig á því aö láta ekki í Ijós aö mig langi til aö fara eitt eöa annað, því ég vil ekki vera byröi á börnunum mínum," segir hún. Hvaö gerir hún sér þá til dægrastyttingar? Segist hún gera mikla handavinnu. Megniö af henni fari til Sjálfsbjargar og er selt á bösurum. Stundum hefur hún saumaö fyrir fólk, „en þaö er ekki hægt aö taka mikiö fyrir þaö, svo þetta veröur eins og hálfgerö dægrastytting líka,“ segir hún. Hún er bókaormur og á ágætt plötu- safn sem hún hlustar oft á. Ég hef alltaf nóg aö fást viö og mér leiöist aldrei," segir hún. Hún segist líka reyna aö bægja frá sór öllum áhyggjum. „Ég er léttlynd aö eöl- isfari og læt hverjum degi nægja sína þjáningu, þaö þýöir ekkert annað t þessari aöstööu." En ætli henni finnist ekki felast mikiö óör- yggi í því aö geta ekki safnaö svo- litlum peningum til aö eiga ef eitthvað óvænt kemur upp á? „Auðvitaö finnst mér þaö slæmt. En þaö felst mikiö öryggi í því aö vita aö mér veröur ekki sagt upp húsnæöinu, því ef ég stend skil á leigunni þá veröur mér ekki sagt upp. En ég verö bara aö vona aö þetta bjargist allt saman eins og þaö hefur gert hingaö tll,“ var svariö viö þessari lokaspurningu. Hart að geta ekki aukið við tekjurnar ■ ■ Oryrkjar eru sa hópur, sem hvaö lægstu launin hafa í þjóöfélaginu og þó þeir hafi mögu- leika á aö vinna úti og ættu þannig aö geta aukiö viö tekjur sínar, þá batnar fjárhagsstaöa þeirra flestra lítiö viö þaö vegna kerfisreglna eins og eftirfarandi saga ungrar konu ber meö sér. „Ég er 75% öryrki eins og þaö kallast og fékk tækifæri til aö vinna úti hálfan daginn. Viö fyrstu sýn virtist sem fjárhagsstaða mín skánaöi nokkuö viö þetta, því ég hélt helmingi tryggingabóta minna. En vonglaöur öryrki, sem heldur út í hiö vinnandi þjóöfélag og trúir aö hann sé aö gera sjálfum sér og þjóöfélaginu gagn rekur sig brátt á vart yfirstíganlega þröskulda kerf- isins. Honum fara aö berast alls konar bréf frá hinu opinbera. Ýmis réttindi, sem hann hefur haft sem 75% óvinnufær örorkustyrkþegi, eru tekin af honum og skatturinn heimtar sitt af hýrunni. Viö nánari athugun kemur í Ijós, aö upphæö sú, sem hann hefur til ráðstöfunar eftir útborgun, er nær sú sama og þær tryggingabætur er hann haföi. Fjárhagsstaöa hans hefur semsagt ekkert batnaö. Ekki á hann hægt meö aö fá sér bara aöra betur borgaöa vinnu, eins og margir full- frískir einstaklingar. Því ef til vill hefur hann meö ærnu erfiöi og hjálp góöra manna einmitt komist í þessa vinnu, sem hentar honum vel og hann finnur aö hann ræöur viö. Efasemdir og öryggisleysi sækja aö viö svona aöstæöur og hann spyr sjálfan sig ef til vill: „Hvaö hef ég veriö aö flana út í.“ En þó aö einstaklingur, sem var svo bjartsýnn í byrjun frumraunar sinnar sem útivinnandi maöur, segi upp vinnu sinni, til aö öölast aftur þau réttindi og öryggi, sem fylgja föstum greiöslum Tryggingastofn- unar ríkisins, þá er ekki svo létt fyrir hann aö komast aftur inn í kerfi þeirrar ágætu stofnunar. En þaö er önnur saga. Auðvitaö er aöstaöa þeirra ein- staklinga, sem njóta skertra bóta vegna vinnulauna, æriö misjöfn. Þeir sem leigja á hinum almenna leigumarkaöi eöa búa í eigin hús- næöi hafa úr litlu aö moöa er öll gjöld og skattar hafa veriö greidd. Hin góöa regla aö leggja fyrir kem- ur þar aö litlu haldi. Hjá þeim, sem búa í leiguíbúöum Sjálfsbjargar- hússins, hafa vinnu og njóta því skertra bóta eins og ég geri, kem- ur dæmiö aðeins betur út, því veldur hin lága húsaleiga ásamt niöurgreiddum hádegisveröi. Ef ég tek saman í krónutölum þaö sem 75% örorkulífeyrisþegi, sem nýtur engra lífeyrisréttinda, fær mánaöarlega aö meöaltali frá Tryggingastofnun ríkisins lítur dæmið svona út: Örorkulífeyrir kr. 3.157.- Tekjutrygging 3.861.- Uppbót 316.- Heimilisuppbót 1.293.- Alls 8.627,- Tveir síöasttöldu liöirnir geta þó veriö breytilegir eftir aöstööu hvers einstaklings fyrir sig. Eftir aö íbúi í leiguíbúöum i Sjálfsbjargarhúsinu er búinn aö greiöa húsaleigu og kaupa mat- armiöa fyrir mánuöinn hefur hann rúmar 4.000.- krónur til ráöstöfun- ar. Fáir veröa víst til aö andmæla því aö þessi upphæö dugar skammt, ef einhver óhjákvæmileg aukaútgjöld veröa, hvaö þá ef eitthvaö á aö veita sór. En ýmis réttindi öðlast þó 75% öryrki, sem hefur aðeins tryggingabæturnar til aö lifa af. Mætti telja þaö helsta upp hér: Frítt sjónvarp, sem þó aö- eins nýtist þeim, sem hafa svokali- aöa meöalauppbót. 75% endur- greiösla tannlækniskostnaöar. Styrkur og lán til bilakaupa. Frítt afnotagjald af síma. Ég haföi til skamms tíma fram- færslu af þessum fullu bótum Tryggingastofnunar ríkisins sem íbúi i leiguíbúö í Sjálfsbjargarhús- inu þá eins og nú. Fyrir fjórum ár- um bauöst mér vinna gegnum endurhæfingarráö. i heilan vetur rak ég mig ekki á kerfið. öll þau réttindi, sem ég haföi notiö, stóöu eins og stafur á bók, en um voriö geröist þaö. Ég var ekki lengur á skrá hjá Tryggingastofnun ríkisins. hvaö kom til? Jú, gleymst haföi aö taka þaö fram í vinnusamningi milli endurhæfingarráös og Trygg- ingastofnunar ríkisins, aö ég ynni aöeins í 4 tíma. Eftir löng símtöl, feröir og annars konar óþægindi, sem stóöu samfleytt í 2 mánuöi, tókst aö skrá mig niður á hálfar bætur. En dýröin stóö ekki lengi. Eftir áramótin kom skattseöillinn og upphæöin, sem ég átti aö greiöa, var ævintýralega há miöaö viö þær fáu þúsundir, þ.e. í göml- um krónum, sem ég haföi fram yfir þaö, sem ég haföi haft, þegar ég var á fullum bótum hjá Trygg- ingastofnuninni. Viö svona uppá- komu voru góö ráð dýr. Ég ákvaö aö halda áfram aö vinna og hef unniö æ síöan. En þar sem ég vinn 50% vinnu eöa í 4 tíma, þá eru bætur mínar skertar eins og áður segir og fæ ég eftirfarandi bætur nú frá Tryggingastofnuninni: Örorkulífeyrir kr. 1.579,- Tekjutrygging 1.931,- Uppbót og heimilisuppbót 18.- Samtals 4.228.- Kaup mitt er nú 5.922,- krónur. Þegar þetta er lagt saman gerir þetta 10.150.- krónur. Svo ágóö- inn viö aö vinna er 1.523.- krónur. Eins og ég sagöi áöan er húsa- leigan ekki há á einstaklings- íbúöum í Sjálfsbjargarhúsinu, eöa 1.448.- krónur nú. Matarmiðar, sem hægt er aö kaupa í hádeginu, kosta 55.- og 65.- krónur, sem gerir á mánuöi 1.700.- krónur. Ég hef því 7.000.- krónur til aö borga skatta, afborganir og annaö sem eg þarf, eins og fatnaö og vasa- peninga. En þaö er ekki raunhæft aö láta sig dreyma um aö geta keypt dýra hluti svo sem bíl af þessari upp- hæö. Þrátt fyrir allar niöurfellingar, veröur maður aö eiga eitthvaö í bakhöndinni. Þetta þýöir líka aö nær ógerlegt er aö leigja á frjáls- um markaöi, því fyrirframgreiösla á húsaleigu er venjulega svo há. Þannig aö öryrkjar, sem ekki kom- ast inn t húsnæöi Sjálfsbjargar, veröa aö búa í foreldrahúsum og vera upp á foreldra og ættingja komnir, en geta ekki lifaö sjálf- stæöu lífi, þó þeir séu orönir fullorönar manneskjur. En sagan er ekki öll sögö. Á dögunum barst mér bréf frá Póst- og símamálastjórn, þar sem mér var tilkynnt, aö vegna þess aö tekjutrygging mín væri skert, yröi ég aö greiöa afnotagjald af síma mínum. Einhvern veginn haföi til- kynning um þetta týnst á leiöinni frá Tryggingastofnuninni til Póst- og símamálastjórnar eftir aö ég byrjaöi aö vinna. Mismunur hjá mér á því aö vera á fullum bótum eöa aö fá laun og vera á hálfum bótum er eins og áöur segir 1.523.-. Afnotagjaldiö af símanum mun vera nú um 750.- krónur og bætast hér viö umframskref. Þau geta verið misjöfn eftir aöstæöum, en þegar síminn er kannski helsta tækiö til aö hafa samband viö fólk, þá getur kostnaöur viö um- framskrefin oröiö umtalsverðar, eöa 600.- krónur eöa hærri upp- hæö. Þá verður símareikningurinn ef til vill 1.523,- krónur. Ef þessi tala er dregin frá mismuninum af tekjunum viö aö vinna úti og bót- unum kemur út talan 173.- krónur. Þetta dæmi sýnir því svo ekki veröur um villst, aö vinna borgar sig engan veginn, aö minnsta kosti ekki þegar litiö er á peningahliö- ina. En óg gæti samt ekki hugsað mér aö vinna ekki úti, því ég hef ánægju af vinnunni og félags- skapnum, sem ég hef á vinnu- staðnum. En mér finnst þaö fjandi hart aö eiga aöeins fyrir því allra nauösynlegasta og hafa ekki möguleika á aö auka viö tekjur mínar.“ 75 ára í kaldri, rakri og lekri íbúð Viö heimsóttum 75 ára gamlan mann upp í ris nokkurt í þrí- býlishúsi. Hann komst ekki niður þröngan stigann þar sem hann var tiltölulega nýkominn heim af sjúkrahúsi vegna heilablóöfalls og gekk viö göngugrind. Hann bauö okkur upp á nýlagaö kaffi. Viö settumst í lítinn sófa und- ir súö og sáum bletti eftir leka í loftinu. Taliö barst aö lekanum, hann sagöi sínar farir ekki sléttar. „Ég var oröinn þreyttur á því aö hrekjast úr einni íbúö í aöra á al- mennum leigumarkaöi, svo aö ég ákvaö aö reyna aö setja eilítiö til hliðar af laununum mínum um 10 ára skeiö. Fyrir 2 árum síöan átti ég fyrir útborgun í þessari íbúð. Hitt allt fékk ég lánaö." Hann sötraöi heitt kaffiö úr boll- anum sínum og hélt svo áfram: „Ég ætla ekki aö tefja viö lýsingarnar á því hve erfitt er aö spara ef maöur vill leigja sómasamlega íbúö. Ég er nær viss um, aö margir aldraöir búa t lélegum íbúðum hér í bæ, jafnvel óíbúöarhæfum eöa íbúöum sem enginn annar vill leigja, þvi aldraöir hafa ekki efni á aö borga miklar fyrirframgreiöslur eöa háa húsaleigu. Mér fannst ég hafa himin hönd- um tekiö er ég gat fest kaup á þessari íbúö. Ég vann hálfan dag- inn og sýndist ég geta klofiö þetta allt. Svo veiktist ég, missti vinnuna og hef nú engar tekjur nema elli- launin mín og rúmar 2.000 krónur í eftirlaun á mánuöi. Þegar ég var nýfluttur inn komu svo gallar í Ijós, sem mér haföi ekki verið sagt frá. Ibúöin var köld og rök og lak á mörgum stööum. í fyrra var gert viö glugga, þéttaö kringum rennur og á þaki og varö minn hlutur 55.000 krónur. Þaö sem verra er aö ekki viröist hafa tekist aö komast fyrir lekann og fyrri eigandi neitar algjörlega aö taka þátt í kostnaöi. Nú er salerniö stíflaö svo aö ekki er unnt aö nota þaö,“ svo leit hann glettnislega á okkur og bætti viö „þiö fyrirgefiö þó aö ég geti ekki boðið ykkur á WC þó ykkur veröi brátt! Ég greiöi tæpar 2.000 krónur á mánuöi aö jafnaöi í afborganir og vexti af lánum og um 1.000 krónur í rafmagn og hita fyrir utan ýmis- legt annað. Ég varö aö taka lán fyrir viögeröunum í fyrra. Ég flýtti mér aö láta skrá mig á biölista hjá Reykjavíkurborg þegar óg sá hvernig komiö var meö íbúðina, en ég fæ alltaf sömu svörin þar: Því miður, engin lausn. Viö erum meö yfir 1.000 manns á biðlista. Nei, þaö er löngu kominn tími til aö ellilífeyrisþegar taki höndum sam- an og geri eitthvaö í málum sínum. Þetta viröist óþolandi ástand.“ Maöurinn er oröinn þreyttur á aö tala því hann er ennþá talsvert stiröur í tali eftir heilablóöfalliö. Hann bar sjúkrahúsinu mjög vel söguna og sagöist hafa náö ótrú- legum framförum. „Ég hélt á tímabili að allt væri búiö,“ sagöi hann. „En meö hjálp lækna og starfsfólksins sem sífellt hvatti mig og æföi, náöi ég undra- verðum bata. Og þegar ég fékk góöa konu til þess aö koma hingaö tvisvar í viku frá heimilishjálpinni lyftist aftur á mér brúnin og ég lít nú björtum augum á framtíöina. Þiö megiö til meö aö skrifa þaö líka. Þaö þykir víst ekki hár aldur á isiandi aö vera 75 ára!“ Hefur 7 þúsund krónur í tekjur en verður að greiða 6 þús- und krónur í barnagæslu Viö heimsóttum fjögurra manna fjölskyldu, sem býr í tveggja herbergja íbúö, sem er um 50 fermetrar. Heimilisfaöirinn hef- ur unniö viö sjómennsku en haft stoþula vinnu aö undanförnu og er nú atvinnulaus og býöur eftir sjúkrahúsvist og má gera ráö fyrir aö hann veröi frá vinnu þess vegna í aö minnsta kosti 3 mánuöi. Sjúk- dómurinn hefur valdiö honum nokkrum þjáningum á undan- gengnum árum og hefur hann orö- iö aö vera á sterkum verkjalyfjum alltaf ööru hvoru, til aö geta þrauk- aö í vinnunni. Eiginkonan vinnur úti frá 2—7 á daginn og er eina fyrirvinna heimilisins eins og er og hefur hún milli 7 og 8 þúsund krón- ur í mánaöarlaun. Börnin tvö, sem eru á aldrinum 2 og 5 ára, eru í gæslu á þessum tíma og kostar barnagæslan tæpar 6.000 krónur á mánuöi. Mest allt kaup konunnar fer því í barnagæslu. Hafa þau orö- iö aö sækja um fjárhagsaöstoö til Félagsmálastofnunar og hafa fengið rúmlega 2.000 krónur á viku í tvo mánuöi. Barnabæturnar hafa fariö í aö greiöa opinber gjöld. „Ég hef verið aö hugsa um, hvort ég ætti ekki bara aö hætta aö vinna úti, launin mín fara hvort sem er mest öll í barnagæslu,“ segir konan. „Manni finnst því hálf tilgangslaust aö vinna úti frá börn- unum.“ Hvaö gerist þá? „Þaö er ekki gott aö segja, þaö er svo margt sem þarf aö borga. Núna skuldum viö afborganir af lánum á íbúðinni og síma og raf- magnsreikning og viö bíöum bara eftir því aö það veröi lokað á okkur," segir konan. Fjölskyldan festi kaup á íbúö sinni sem er í Framkvæmdanefnd- arblokk fyrir sex árum. Eru' þau ennþá aö borga af henni, bæöi húsnæöismálalán og lífeyrissjóös- lán. Hafa þau sótt um lán, sem Félagsmálastofnun getur útvegaö þeim, en þeim hefur veriö neitaö einu sinni um þaö og eru aö sækja um aftur. Aö sögn konunnar hafa nokkrar skuldir hlaöist upp á und- anförnum árum vegna ibúöar- kaupanna og vegna lágra launa eiginmanns hennar og stopullar vinnu. Hafa þau oröiö aö taka bankalán til aö fleyta sér áfram. Þau eignuöust annað barn sitt fyrir tæpum tveim árum og tók konan sér þá frí frá vinnu um tíma, en byrjaöi aö vinna aftur fyrir tæpu . ári. „Ég fór í banka um daginn og sótti um lán en var hafnaö á þeirri forsendu, aö veltan á reikningi mínum væri ekki nógu mikil,“ segir konan. „Svo var okkur neitaö um lán hjá Félagsmálastofnuninni, nú horfum viö fram á aö missa ef til vill íbúöina. Skapar þetta óvissu- ástand bæöi streitu og óöryggi. Viö höfum einu sinni áöur þurft aö leita til Félagsmálastofnunar um fjárhagsaöstoö í tvo mánuöi. Viö tókum þaö nærri okkur aö þurfa aö þiggja aðstoð, þó einkum eiginmaöurinn, sem fannst hann hafa brugöist sem fyrirvinna og heimilisfaðir. Peningaleysiö hefur líka valdiö ósamkomulagi á heimil- inu og erum viö bæöi niöurdregin og slæm á taugum og hefur þetta haft áhrif á börnin. Elsta barnið spuröi mig um daginn hvers vegna ég væri alltaf svona döpur. Þau finna aö eitthvaö er aö. Þetta ástand kemur líka niöur á vinnunni. Ég hef veriö annars hug- ar og starfsvilja hefur vantað. Kom vinnuveitandi minn aö máll viö mig og spuröi, hvort eitthvaö amaöi aö. Ég veit eiginlega ekki hvaö viö getum gert. Þaö tekur því ekki fyrir manninn minn aö fá sór vinnu meöan hann bíöur eftir spítalavist. Þaö er því spurning, hvernig viö kljúfum þetta fjárhagslega þangaö til hann getur fariö aö vinna líka. Því þegar viö höfum unniö bæöi hefur þetta bjargast. Maðurinn minn hefur lág- marksmenntun en hann tók tvo bekki í gagnfræöaskóla, þaö er þvi ekki um margt aö velja fyrir hann. Þaö er annað hvort láglaunavinna eöa vinna á sjónum og hann vill helst vinna viö þaö síöarnefnda, því þar eru meiri tekjumöguleikar." Eins og áöur segir, býr fjölskyld- an í lítilli tveggja herbergja íbúö, stofan gegnir því margþættu hlut- verki. Hún er boröstofa, leikher- bergi fyrir börnin, sjónvarpsher- bergi, dagstofa og stássstofa. Inn í svefnherberginu er hjónarúmiö og tvö barnarúm. Þaö er því óneitan- lega nokkuö þröngt um fjölskyld- una. Þau eyöa miklum tíma heima hjá sér, því ekki eru til fjármunir til aö fara neitt annaö. „Viö förum kannski einu sinni á ári í bíó, aldrei í leikhús eöa út á skemmtistaöina og viö höfum ekki fariö út aö boröa t 6 ár eöa síöan viö keyptum íbúöina. Viö eigum heldur engin föt til aö fara út á þessa staöi, hvorki við eöa börnin. Núna vantar börnin til- finnanlega föt, því þau eiga varla til skiptanna, en ég þvæ bara oftar. Fjármunirnir fara aöeins í nauö- þurftir og greiöslu reikninga.“ Frá því aö ég ræddi fyrst viö konuna, hefur heimilisfaöirinn fariö á spítala og líöur nú betur. Hjónin hafa fengiö lán frá Félagsmála- stofnun, svo þau þurfa ekki lengur aö vera hrædd um aö missa íbúö- ina. „Vonandi veröur þess ekki langt aö bíða, aö eiginmaöurinn fari út aö vinna aftur og þá lagast þetta allt,“ sagði konan aö lokum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.