Morgunblaðið - 30.12.1983, Side 4

Morgunblaðið - 30.12.1983, Side 4
36 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1983 Heimilishorn Bergljót Ingólfsdóttir Hvernig hægt er að samræma fatnaðinn Vantar þig smoking? f Verð 4.550 kr. 'w: Austurstnpti 10 27211 Þaö er áreiöanlega öllum þeim konum Ijóst, sem komnar eru til vits og ára, aö þaö er ekki fjöldi þeirra flíka, sem til eru í klæöa- skáþnum sem gerir út um hvort konan er vel klædd eöa ekki, held- ur val og samsetning þess sem fjárfest er í. Meö vilja er hér notaö oröiö fjár- fest, góöur fatnaður er alls staöar dýr. Þaö er því mikils viröi að vanda valið þegar nýjar flíkur eru keyptar, hugsa um þaö sem fyrir er og hvort þaö þassar vel viö annaö. Þaö eru áreiöanlega ekki margir hérlendis, sem hafa efni á aö kaupa allt þaö, sem meö þarf, þ.e. skó eða stígvél og tösku, í hvert sinn sem nýr kjóll eöa pils er keypt. Sennilegast koma konur sér upp einhverri ákveöinni línu, ef svo má aö oröi komast, og miöa viö í lit og sniöi. í stórverslunum erlendis eru víöa sérstakar deildir meö fatnaö, sem ætlað er aö setja saman, þ.e. pils, blússur, peysur, jakka o.s.frv., þær eru þá kallaöar „mix and match“-deildir í enskumælandi löndum, mætti kannski segja: velj- iö sjálf saman. Þaö er heilmikil kúnst aö velja vel, þegar keypt er eitthvaö nýtt, sérstaklega þegar hafa þarf i huga aö flíkin þarf aö endast, þ.e. fara ekki úr móö, og svo aö hægt sé aö nota hana viö ýmisleg tækifæri. Þaö er hinsvegar enginn vandi aö kaupa eitthvaö fallegt út í blá- inn, sem svo ef til vill veröur aðeins gjaldgengt í svo sem einn vetur. En hver hefur efni á sliku? Á myndunum, sem hér fylgja meö, eru hentugar flíkur af ýmsum geröum, blússur, pils, síöbuxur, peysa og jakkar, alls 10 flíkur merktar meö nr. frá 1 — 10. Síöan er sýnt hvernig nota má þessar flíkur á marga vegu, og úr geta oröiö alls 30 útgáfur. Á minni myndinni eru númer hverrar flíkur birt meö og ætti því aö vera auð- velt aö átta sig á þessu. Aö sjálfsögöu kemur enginn sér upp 10 stk. fatnaöar á einum vetri, þaö hlýtur aö taka lengri tíma. En þaö er ekki úr vegi aö hafa eitt- hvaö aö stefna aö, koma sér upp eigin „línu“, allt eftir þörfum í starfi og leik. B.J.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.