Tíminn - 22.08.1965, Qupperneq 8

Tíminn - 22.08.1965, Qupperneq 8
/ I 8 TfMgNN SUNNUDAGUR 22. ágúst -965 l>ær þjóðir, sem lengst eru komnar í umhyggju og forsjá yiðvíkjandi æskulýðsmálum telja nú félagslegan þroska og hoílt tómstundastarf ekki síð- ur þýðingarmikinn þátt upp- eldis en skólagöngu og bók- nám. Þær koma því gjarnan upp nokkurs konar félagslegum mið stöðvum æskulýðsins, þar sem haldin eru fjölbreytt námskeið og margháttuð fræðsla veitt þeim, sem gjörast vilja leið- beinendur og leiðtogar ungs fólks á hinum ýmsu sviðum félagsstarfsemi. Slíkir staðir eru gjarnan vald ir utan við sjálfar borgirnar í kyrrð og næði sveitalífs og náttúrufegurðar, en þó í nánd við fjölmennið svo að flestum verði sem auðveldast að koma og njóta fræðslu og uppörvun- ar án þess að leggja á sig dýr ferðalög eða langar ferðir. Sem betur fer eigum við nú hér í Reykjavík eitt slíkt hús, æskulýðsheimilið við Fríkirkju- veg 11 og er það engum betur ljóst en þeim, sem að þessum málefnum starfa, hve geysileg þörf var orðin fyrir þess háttar stofnun og erum, innilega þakk lát Æskulýðsráði Reykjavíkur og borgarstjórn fyrir alla þá aðstoð, sem sá staður veitir. En sá staður hér, sem einna bezt mundi fallinn til hlið- stæðra starfsemi hinna útlendu æskulýðsheimila er Skálholt og skal litið með fögnuði og eftir- væntingu til þess, sem þar verð ur hægt að vinna til uppbygg • ingar hollri og margþættri æskulýðsstarfsemi í framtíð- inni. En hér í nánd borgar- innar væri Viðey tilvalinn stað ur fyrir slíka æskulýðsstarf semi. Þær þjóðir, sem hæst gnæfa nú á þessu sviði í Evrópu munu vera Svíar og Vestur- Þjóðverjar. Og gafst mér kost- ur á að kynnast nokkuð starf semi þeirra einkum fyrir bind indisstörf æskulýðsins á þingi og í Lund og leiðtoganámskeiði í Norður-Þýzkalandi í sumar. Margt gætum við lært af þessum þjóðum báðum og mun hér lýst í sem stytztu máli hinu fagra og merkilega æsku- lýðsheimili í Reinbek í grennd við Hamborg í Norður-Þýzka landi. En það mun vera eitt hið fullkomnasta slíkra heimila eða stofnana í Evrópu og er þó nýlega tekið til starfa. Og mun öll starfsemin þar ríflega styrkt bæði af borgarstjórn, og Vest ur-þýzka rikinu. Reinbeck er í rauninni smáborg og þótt hún teljist í nánd Hamborgar, þá er hún ekki í sjálfu landi borgar- innar, heldur í Saxaskógi — Sachsenwald í Hoktein. Það er því um hálfrar stundar akstur frá aðalbrautanstöð Hamborg- ar til æskulýðsheimilisins í Reinbek- Umhverfið er yndislega fag- urt, vaxið hávöxnum, kjarn- miklum skógi, en sums staðar glitrar á spegilskyggð vötn milli trjánna. En á vötnunum synda og syngja hvítir svanir og fuglalíf er þar fjölbreytt og blómlegt, og hið sama má segja um allan jtirtagróður. Og þarna er því hinn ákjósan- legasti staður fyrir skólafólk til verklegs náms í náttúru- fræði. Báruhjal vatnanna og ilmur grænna grunda í skógarrjóðr- um vekja unað og veita frið og kyrrð. Þarna mun þó hafa verið enn þá unaðslegra og rómantiskara áður fyrr meðan vindmyllur suðuðu yfir hæðun- um en lindir hjöluðu í brekk- um og lægðum. Ein slíkra linda hefur lík- lega verið nefnd Reinbek, sem menn þýða Hreinilækur og má rekja það til norrænu, sem einn ig þama er hið upphaflega tungumál. Nafnið kemur þó ekki fyrir fyrri en um 1260 í rituðu máli og þá í sambandi við nunnu- klaustur, sem nefndist Maríu- Magdalenu-klaustrið. Eign klaustursins var um 1528 seld Danakonungi. Síðar eyðilögðu Lubeckmenn þetta forna helga setur, en þó var þar síðar amt bústaður dönsku stjómarinn ar og vinsæll gististaður. Það má segja, að í hjarta þessa fagra og sögulega héraðs standi höll sú, sem nú er not- uð sem æskulýðsheimili. Og þetta hús ber nú nafn Rein- beks sérstaklega um heiminn, þar eð oft er nú stofnað til alþjóðlegra móta á þessum heppilega stað. Æskulýðsheimilið er í stíl- hreinni höll með fallegum boga gluggum. En hún stendur nú sem næst þeim stað þar sem nunnuklaustrið var forðum. Þessi höll er hvít að lit með grábrúnum þökum og má telj- ast að mestu hulin í risavöxn- um trjám og sést ekki fyrri en alveg er komið í hlaðið. En umhverfis hana er fallega skipu lagður trjágarður með limgerð- um, blómabeðum, grasflötum og löngum laufskálagöngum og er öllu komið fyrir á meistara- legan hátt til að skapa frið- sæld og samræmi I smáu og stóru. Sagt er að hús þetta hafi verið reist af vellauðugum Hamborgarkaupmanni fyrir eða um aldamótin. En þar bjó hann einn með, eða kannski öllu fremur átti þar ástkonu sína og eina dóttur og voru þau bara þrjú í þessu stóra húsi. En fundir eru nú haldnir með 50 manns í leikstofu litlu dótturinnar. í húsinu eru nú auk 50 gisti- rúma, músiksalur, bókasafn, skrifstofa, móttökusalur, þrjú stór fundarherbergi og mörg hliðarherbergi fyrir minni starfshópa. Umhverfis húsið er 25Jþús. fermetra garður. í húsinu starfar umsjónar- maður og þar er einnig fast- ráðinn garðyrkjumaður og ráðs kona. Fastákveðin starfsáætlun er gjörð minnst til hálfs árs í senn og hefur heimilið nú starf- að í 60 ár síðastliðin og má segja, að starfið hafi eignazt ákveðinn farveg og fasta skipu- lagningu. Er starfsáætlunin samin af sérstakri nefnd. En í henni eiga sæti æskulýðsráð eða fulltrúar Hamborgar í sam- starfi við ýmiss konar opinbera æskulýðstarfsemi ungmenna- ráð og bandalög um mestallt Norður-Þýzkaland. En eins og áður er sagt styður hið opin- bera alla slíka starfsemi með ríflegum fjárframlögum ríkis og borgar og er þetta heimili átt af mörgum slíkum þótt það sé einna þekktast í bili. Með hverju ári vaxa þær kröfur og beiðnir sem æsku- lýðshöllinni berast víðsvegar að og umsóknir um námskeið og fjölbreytta fræðslu sem þarna er unnt að starfrækja verða stöðugt fleiri og fleiri. Og þarna er reynt að veita bæði leiðbeiningar og æfingar í öllu, sem að gagni gæti orð- ið fyrir hina ýmsu þætti fjöl- breyttrar æskulýðsstarfsemi. Allt er unnið á skipulegan hátt og eftir föstum ákveðnum reglum um dagskipan og vinnu brögð, sem Þjóðverjum er svo eiginlegt með dugnaði og fram- sýni og formföstu skipulagi. Dagskrár móta og námskeiða eru yfirleitt mjög strangar og naumast heiglum hent að fylgj- ast með í öllu, sem ætlazt er til að fólk tileinki sér á skömm- um tíma. Mest er um viku- námskeið, en fæst eru lengur en tíu daga, ennfremur eru bæði helgarnámskeið, þrjú kvöld og tvo daga og svo jafn- vel dagnámskeið, sem er'u þá aðallega fyrirlestrar. Reynt er að skipuleggja þannig fræðsluna að hún sé jöfnum höndum grundvallar- atriði og til uppbygginga, bæði til gleðí og gagns, en þó sam- kvæmt vissum uppeldiskerfum og sálfræðilegum rannsóknum og í hæsta máta vísindalegri skipulagningu. Ennfremur er lögð áherzla á, að fá sem allra fjölþættasta hópa til þátttöku: Fagfélög, músiksambönd, söng- félög, hjúkrunarstarfsemi, fóstrusambönd, barnagarða starf, leikvallastarfsemi, stjórn málaæsku, bindindisfélög, fé- lagsmálaráðgjafa, kennara, hús freyjur, æskulýðsleiðtoga, heim ilisráðunauta, uppeldisfræð- inga, tómstundaráðunauta o. fl. Öllu slíku er þarna leiðbeint eftir föngum árlega. Aðaláherzla er lögð á sið- fágun, mótun persónuleikans og virðulega fastmótaða fram- komu, sem hafi áhrif á aðra til aga og hlýðni án átaka og fyrirgangs. Öll glaumhyggja og yfirborðsmenning virðist útilok uð af fremsta megni og útvarp og sjónvarp virtist ekki notað í þessari æskulýðshöll, en hins vegar mikið af söng léttum lög- um og vísum, dansi með þjóð- legum blæ og alls konar létt- um leikjum, sem hópar eiga auðvelt með að tileinka sér i sameiningu. í nokkurs konar allsherjar starfsyfirlýsingu æskulýðsheim- ilins eru þessi niðurlagsorð: Æskulýðshöllin i Reinbek á að vera til eflingar og stuðn- ings fyrir fólk, sem hefur gert sér grein fyrir félagslegri ábyrgð sinni og samstarfi við aðra og vill beita skynsemi sinni og kröftum til að styrkja

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.