Morgunblaðið - 09.02.1984, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 09.02.1984, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1984 YFIRNEFND Verdlagsráds sjávarútvegsins er nú komin nálægt niðurstöðu í Tiskverðsákvörðun og mun nýtt fiskverð væntanlega verða ákveðið í dag, fimmtudag. Flest bendir til þess, að verðið verði ákveðið með atkvæðum fulltrúa fiskvinnslunnar og oddamanns og almenn hækkun fiskverðs verði lág eða nálægt fjórum af hundraði. Þá náðist samkomulag um verðhlutföll á tegundum og gæðafiokkum á fundi yfirnefndar í gær. Samkvæmt samkomulaginu verður aukinn verðmunur á bezta fiskinum og þeim lakari og ein- hverjar breytingar á verðhlutföll- um milli fisktegunda. Ýsa mun til dæmis verða hlutfallslega verð- meiri en áður. Rætt hefur verið um breytingar á verðuppbótum á ufsa, karfa og annan fisk, ekki á þann veg að þær yrðu teknar af sjómönnum, heldur að þær skipt- ust öðru vísi en nú er á milli teg- unda. Uppbætur yrðu þá lækkaðar á ufsa og karfa og ef til vill ein- hverjar uppbætur greiddar á allan botnfisk. Þá er við því búizt að sjávarút- vegsráðherra muni beita sér fyrir ýmsum ráðstöfunum til þess að bæta fjárhag útvegsins og tryggja sæmilega sanngjarna og skynsam- lega tekjuskiptingu í sjávarútvegi að því leyti sem hún ekki ræðst af fiskverðsákvörðun einni saman. Það er í fyrsta lagi skuldbreyting útgerðarskulda eftir almennum reglum. í öðru lagi er rætt um að breyta ákvæðum um hve mikið af kostnaðarhlutdeildinni, sem ákveðin var í vor, skuli koma til skipta. í þriðja lagi, vegna fyrir- sjáanlegs almenns aflabrests, að almennar bætur úr Aflatrygg- ingarsjóði kunni að verða greiddar með öðrum hætti en verið hefur, en til þess þarf lagabreytingu. í fjórða lagi að fjárhagur áhafna- deildar Aflatryggingarsjóðs, sem greiðir sjómönnum fæðispeninga, verði efldur eitthvað og til greina kemur að henni verði ætlað að leysa úr fjárhagsörðugleikum sjó- manna, sem upp kynnu að koma vegna þess, að útgerðum skipa verði hætt vegna breyttra að- stæðna, en það krefst einnig laga- setningar. Þá er einnig rætt um það, að vegna þess hve saltfisk- vinnslan stendur illa, kunni að verða lítillega dregið úr útflutn- ingsgjaldi á saltfiski. Krapa- og snjóflóð hugsanleg í hlákunni?: Hætta í 8—10 stiga hita — og mikilli úrkomu TALIN er hætta á snjó- og krapa- flóóum í hlákunni sem spáð hefur verið á morgun, föstudag, einkum ef hitastig fer upp í 8—10 gráður og mikil úrkoma verður, 30 til 40 milli- metrar. Þessar upplýsingar fékk Mbl. hjá Hafliða Jónssyni, veður- fræðingi. Ef úrkoman yrði minni en ofangreint dæmi, eða hitastig INNLENT lægra, þá minnkar hættan á flóð- um af þessu tagi strax, að sögn Hafliða. Ef hitastig og úrkoma verða yfir hættumörkum, þá er Vesturlandi og vestanverðum Vestfjörðum hættast, að sögn Hafliða, en einnig væri hætta á Snæfellsnesi. Einnig væru mögu- leikar á flóðum á skíðasvæðum í nágrenni borgarinnar. Guðmundur Hafsteinsson veð- urfræðingur, sagði í gær, að á föstudag væri spáð að hitastig gæti orðið á bilinu 6—8 stig ein- hvers staðar á landinu, þá sér- staklega á Norðurlandi. Ekki bjóst hann við að verulega hlýnaði í dag, fimmtudag, en þó yrði senni- lega frostlaust. Föstudagur yrði væntanlega hlýjasti dagurinn, en síðan færi aftur kólnandi á laug- ardag og sunnudag. 4% fiskverðshækkun ákveðin í dag?: Samkomulag um verðhlutföll Rætt um breyttar verðbætur á karfa og ufsa Hreyfing á málum NOKKUR von var til þess að ein- hver hreyfing væri að komast á við- ræður um fyrirkomulag framleiðslu- hvetjandi kerfis í álverinu í Straumsvík, en að undanförnu hafa viðræður staðið um það án árangurs. Samningafundur hófst í gær hjá ríkissáttasemjara kl.14.00, og var haldið áfram að loknu matarhléi, kl.’21.00, og stóð fundur ennþá er Mbl. fór í prentun. Útlit var fyrir að fundur stæði eitthvað fram eft- ir nóttu. Eitthvað mun launapró- sentan hafa borið á góma óform- lega í tengslum við umræðuna um hið framleiðsluhvetjandi kerfi, en annars er ekkert farið að ræða þá hlið samningamálana. Á föstudag verður byrjað að minnka straum á kerjunum í Straumsvík í samræmi við áætlun sem um það hefur verið gerð. 23. febrúar á að vera búið að minnka framleiðsluna um 20% og er þá ekkert því til fyrirstöðu að slökkva undir kerjunum með minnstu mögulegu tjóni á framleiðslutækj- um. Verðlaunasjóður iðnaðarins: Pólnum hf. veitt heiðursverðlaun HEIDIJRSVERÐLAUN Verðlauna-sjóðs iðnaðarins voru veitt 1 sjötta skipti í gær. Komu verðlaunin, sem eru að upphæð kr. 100.000, að þessu sinni í hlut rafeinda- og tölvufyrirtækisins Pólsins hf. á ísafirði. Tilgangur verðlaunaveitingar- innar er að efla fyrirtæki til dáða á sviði iðnaðarmála og vekja athygli á starfi þeirra. Sagði Karl Friðrik Kristjánsson, formaður verðlaunasjóðsins, í ræðu sinni við afhendinguna að aðstandendur Pólsins hf. væru vel að viðurkenningunni komnir. Fyrirtækið hefði nú smíðað og framleitt um 500 tölvuvogir fyrir um 50 frystihús víðs vegar um landið, auk samvalsvéla og flokkunarvéla og ætti sá tækni- búnaður sinn þátt í aukinni nýt- ingu fiskafla. Viðstaddir afhend- inguna voru forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir og heið- ursgestirnir Örn Ingólfsson, óskar Eggertsson og Ásgeir Erl- ing Gunnarsson frá Pólnum hf. sem veittu verðlaununum við- töku, auk annarra gesta. Hlutafélagið Póllinn var stofnað árið 1966 og voru helstu verkefni þess í upphafi unnin á rafmagnsverkstæði og við út- varpsviðgerðir. Árið 1977 urðu breytingar á starfssviði fyrir- tækisins þegar hafist var handa við að smíða og þróa tölvuvogir fyrir frystihús. Tveimur árum síðar var undirritaður samning- ur við Hagræðingarfélag frysti- húsa við ísafjarðardjúp um framleiðslu slíkra voga, en eins og áður segir hafa um 500 slíkar vogir nú verið smíðaðar. í stjórn Verðlaunasjóðs iðnað- arins eiga sæti þeir Karl Friðrik Kristjánsson, f.h. Últímu hf., Víglundur Þorsteinsson, f.h. Fé- lags íslenskra iðnrekenda, Hauk- ur Eggertsson, f.h. Iðnaðar- banka tslands og Sigurður Krist- insson frá Landssambandi iðn- aðarmanna. Frá afhendingu heiðursverðlaunanna. Frá vinstri Óskar Eggertsson, tæknilegur framkvæmdastjóri Pólsins, Örn Ingólfsson, tæknimaður, og Ásgeir Erling Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármála Pólsins. Við hlið hans stendur Karl Friðrik Kristjánsson sem afhenti verðlaunin fyrir hönd Verðlaunasjóðs iðnaðarins. Frá fundi stjórnar Stofnlánadeildar Búnaðarbankans í gær en að honum loknum fundaði bankaráðið. Bankaráðs- menn sitja við innri enda borðsins. Ljosm. Mbi. Frí«þj«rur. Afgreiðslu bankastjóramálsins enn frestað í gær: Tveir studdu Lárus en þrír Jón Adolf Leifur K. Jóhannesson ráðinn forstöðumaður Stofnlánadeildar BANKARÁÐSFUNDI Búnaðar bankans var frestað í gærkvöldi að beiðni Friðjóns Þórðarsonar fulltrúa Sjálfstæðisflokksins eftir að Ijóst var að Lárus Jónsson alþingismaður, einn af þremur umsækjendum um bankastjórastöðu í Búnaðarbankan- um, hafði ekki meirihlutafylgi f bankaráðinu. Fundinum verður framhaldið kl. 10 árdegis. Á fundi stjórnar Stofnalánadeildar landbún- aðarins sem haldinn var á undan bankaráðsfundinum var Leifur K. Jóhannesson ráðunautur á Snæfells- nesi ráðinn forstöðumaður Stofn- lánadcildarinnar. Kosið var tvisvar í stöðuna, þrátt fyrir að Leifur fengi flest atkvæði í fyrri kosningunni, þ.e. þrjú atkvæði á meðan tveir aðrir umsækjendur fengu tvö atkvæði hvor. Leifur hlaut síðan fjögur at- kvæði af sjö í seinni kosningunni. í könnun á afstöðu manna til ráðningar nýs bankastjóra í upp- hafi bankaráðsfundarins kom í ljós samkvæmt heimildum Mbl., að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, þeir Friðjón Þórðarson og séra Gunnar Gíslason, styðja Lárus Jónsson alþingismann. Fulltrúar hinna flokkanna þriggja upplýstu þá að þeir myndu kjósa Jón Adolf Guðjónsson aðstoðarbankastjóra og bað Friðjón Þórðarson þá um frestun á fundinum þar til árdeg- is. Eins og fyrr greinir var kosið tvisvar á fundi stjórnar Stofn- lánadeildarinnar, þrátt fyrir að Leifur fengi flest atkvæði í fyrri umferðinni. Þá hlutu tveir aðrir umsækjendur tvö atkvæði hvor, þ.e. þeir Þórólfur Gíslason kaupfé- SKILAFRESTUR skattframtala rennur út klukkan 24.00 á fóstu- dagskvöld, en eftir lokun á skatt- stofunni verður að venju hægt að koma framtölum í póstkassa þar. Á Alþingi í gær kom það fram hjá Albert Guðmundssyni, fjár- málaráðherra, að hugsanlegt væri að framlengja framtalsfrest ein- staklinga, ef dragast myndi að af- greiða breytingar á skattalögum, lagsstjóri og annar umsækjandi sem æskt hefur nafnleyndar. I síð- ari umferðinni hlaut Leifur síðan fjögur atkvæði á móti tveimur og einu atkvæði hinna tveggja. Síðari kosningin fór fram að tilhlutan formanns bankaráðsins, Stefáns Valgeirssonar, og sagði hann til- ganginn að freista þess að nýr for- stöðumaður yrði ráðinn með meirihluta atkvæða. en frá þessu er greint á þingsíðu blaðsins í dag. Þættinum „Spurt og svarað um skattamáU í Morgunblaðinu fer nú senn að ljúka, en í dag eru birt svör ríkisskattstjóra við spurning- um lesenda blaðsins um skatta- mál. Síðustu svörin birtast síðan í blaðinu á morgun. Sjá bls. 26 og 27. Kjaradeilan í Straumsvík: Skilafrestur skattframtala: Rennur út klukk- an 24 annað kvöld

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.