Morgunblaðið - 09.02.1984, Page 3

Morgunblaðið - 09.02.1984, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1984 3 Þorvaldur Skúlason Listmunahúsið: Sýning á verkum Þor- valdar Skúlasonar í Listmunahúsinu verður opnuð nk. iaugardag sýning á verkum Þorvaldar Skúlasonar. Á sýningunni verða rúmlega 40 myndir frá ýmsum tímum, sem Þorvaidur hefur unnið með blandaðri tækni, þekjulitum, tússi og krít. Sýningin, sem er sölusýn- ing, stendur til 26. febrúar og verður hún opin alla virka daga nema mánudaga frá kl. 10.00—18.00 og um helgar frá kl. 14.00-18.00. Ögri seldi fyrir rúmar 6 milljónir ÖGRI RE seldi afla sinn, mest karfa, í Bremerhaven í gær fyrir rúmar 6 milljónir króna. Er það með hæsta heildarverði í íslenzkum krónum, sem fengizt hefur í Þýzkalandi. Þá fékk Ársæll Sigurðsson HF þokkalegt verð fyrir afla sinn í Englandi, en mikið framboð af Fiski er nú á enska mark- aðnum. Ögri seldi alls 223,9 lestir í Brem- erhaven. Heildarverð var 6.287.500 krónur, meðalverð 28,08. Aflinn var mestmegnis karfi. Ársaæll Sigurðs- son seldi alls 109,3 lestir í Grimsby. Heildarverð var 2.665.700 krónur, meðalverð 24,39. Talsvert var af ufsa, grálúðu og karfa í aflanum og dró það verðið nokkuð niður. Fyrir stóran þorsk fengust um 30 krónur á kílóið og rúmar 33 krónur fyrir kilóið af ýsu. Þá mun Karlsefni RE selja afla sinn í Cuxhaven í dag. Fjármálaráðuneytið: Unnið að jöfnun vörugjalds á drykkjarvörum f fjármálaráðuneytinu er unnið að útreikningum á vörugjaldi af drykkj- arvörum í því skyni að jafna það, þannig að öll almenn drykkjarvara sæti sömu eða svipaðrar álagningar- prósentu. Ákvörðun hér að lútandi verður tekin bráðlega, að sögn fjár- málaráðherra, Alberts Guðmundsson- ar. Að sögn Alberts er ætlunin að jafna vörugjaldið á drykkjarvöru, en nú er vörugjaldið hærra á gos- drykkjum, en lægra á þeim sem ekki er gos í. Kaffi og te er og verð- ur að sögn Alberts undanþegið vörugjaldi. Albert sagði einnig, að breytingin hefði ekki í för með sér hækkun tekna fyrir ríkissjóð og áhrif hennar yrðu innan við 0% í vísitölu. Leiðrétting f viðtali við alþingismennina Gunn- ar G. Schram og Salome Þorkelsdótt- ur í Mbl. í gær um þingsályktunartil- lögu 13 þingmanna um friðarfræðslu í skólum og á dagvistarheimilum féll niður orðið „ekki“, þannig að merking viðkomandi setningar í svari Gunnars G. Schram breyttist. Því er viðkomandi spurning og svar endur- prentað hér og beðist er velvirðingar á þessum mistökum. En teljið þið að vera okkar í NATO og áðurnefnd túlkun á þeirri staðreynd eigi að vera liður í friðar- fræðslu í skólum? Gunnar svaraði og sagði: „Tví- mælalaust. Það er óhjákvæmilegt að ganga ekki fram hjá því. Það er hornsteinn okkar utanríkisstefnu og hlýtur að vera eitt af þeim atrið- um sem vakin er athygli á, að við tryggjum okkur frið kannski allra helst með veru okkar í NATO.“ Sal- ome tók undir orð Gunnars og sagði að auðvitað yrði ekki komist hjá því að kynna þau sannindi í skólakerf- inu. Hafskíphf. stvðuraukíð 'átaktil útflutníngs fslensKiar iðnaðaivöru Vegna aukins átaks í sölu á íslenskum iðnaðarvörum erlendis og í tilefni 25 ára afmælis Hafskips bjóðum við útflytjendum eftirfarandi aðstoð: 1 2 3 4 Aukin umsvif Hafskips erlendis skapa okkar mönnum þekkingu á erlendum stað- háttum, einkum á sviði flutninga, viðskipta og markaðsmála. Þessi þekking stendurtil boða, m.a. með ráðgjöf og milligöngu. Fimm svæðisskrifstofur Hafskips erlendis; í Kaupmannahöfn, Hamborg, Rotterdam, Ipswich og New York og eigið flutningafyrirtæki, COSMOS Shipping Co. með skrif- stofur sínar í fimm borgum Bandaríkjanna, eru tilbúnar að veita enn frekari þjónustu. T.d. við ýmiskonar upplýsingaöflun, leit að viðskiptasamböndum, lækkun erlends milliliðakostnaðar, tilboðaleit í flutninga milli svæða erlendis, aðstoð við hráefnisöfl- un og útboð. Skipaður hefur verið sérstakur milligöngumaður á aðalskrifstofu Hafskips í Reykjavík, Þorsteinn Máni Árnason, til að sinna þessum verkefnum aukframangreindra aðila. Leitið til hans með frekari fyrirspurnir. Auk annarrar þjónustu sem að gagni gæti komið nefnum við síðast en ekki síst hvetjandi flutningsskilmála á iðnaðarhráefnum til landsins og fullunninni iðnaðar- vöru héðan. Aukið átak í útflutningi er íslensku þjóðinni lífsnauðsyn. Hafskip hf. gengur heilshugar til leiks. Okkar menn-þínir menn HAFSKIP HF.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.