Morgunblaðið - 09.02.1984, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1984
5
Akureyri:
Áhugi á að leigja togar-
ann Sölva Bjarnason
Akureyri, 7. febrúar.
EINS OG FRAM hefur komið í fréttum á útgerð togarans Sölva Bjarnasonar
BA 65 í miklum rekstrarerfiðleikum. Meðal annars komið fram að skuldir
Tálkna hf. við Fiskveiðisjóð einan nema 115 milljónum króna. Sölvi Bjarna-
son var byggður á Akranesi 1981 og er ca. 400 tonn að stærð.
Fiskvinnslan hf. á Bildudal hef-
ur haft togarann á leigu undan-
farið og mun hafa leigusamning
til 6 ára fyrir skipið, en fyrirtækið
hefur ekki treyst sér til að gera
skipið út síðan í nóvember og hef-
ur það legið bundið við bryggju.
Mbl. hefur eftir áreiðanlegum
heimildum að eigendur togarans
hafi boðið Útgerðarfélagi Akur-
eyringa skipið á leigu til eins árs
til að byrja með. Undanfarna daga
hafa staðið yfir kannanir á hvort
og þá hvernig væri hægt að koma
slíku við, þar sem samkvæmt regl-
um er ekki heimilt að flytja fisk-
veiðikvóta milli landshluta. Meðal
annars mun hafa verið kannað
hvort unnt væri að veita togaran-
um sóknarmark í stað aflamarks.
Áhugi forráðamanna ÚA er mikill
á því að afla fyrirtækinu mikils
hráefnis. Ljóst er að fyrirtækið
fær aðeins úthlutað kvóta til fjög-
urra togara þar sem Sólbakur,
sem legið hefur bundinn við
bryggju á Akureyri á annað ár,
fær ekki neinn kvóta. Ljóst er því
að þeir 4 togarar sem ÚA á nú
nægja ekki til að sinna hráefnis-
þörf fyrirtækisins.
Búast má við að nú allra næstu
daga liggi fyrir hvort af þessari
leigu verði, en eins og er mun
stranda á því að Fiskvinnslan hf. á
Bíldudal fáist til að gefa eftir
leigusamning þann sem hún nú
hefur.
GBerg.
Kristján Schram
skipstjóri látinn
í GÆR lést hér í Reykjavík, Kristján
Schram, skipstjóri, Vesturgötu 36B,
88 ára að aldri.
Hann var borinn og barnfæddur
Reykvíkingur í Vesturbænum og
þar átti hann heima alla sína ævi.
Lengst af langrar starfsævi var
Kristján togarasjómaður. Hann
byrjaði barnungur á sjónum með
föður sínum, Ellert Schram skútu-
skipstjóra, á kútternum Björgvin.
Sama árið og hann lauk Stýri-
mannaskólanum, árið 1918, fór
hann á seglskipinu Huginn í ferð
suður til Italíu með saltfiskfarm.
Jafnframt stýrimannsprófi lauk
Kristján einnig prófi í gufuvéla-
fræði. Hann var á sínum yngri ár-
um á ýmsum togurum erlendum
og innlendum. Lengst af var hann
skipstjóri á togaranum Tryggvi
gamli, sem var eign Alliance-fé-
lagsins hér í Reykjavík. Eftir að
hann hætti skipstjórn og fór í land
gerðist hann starfsmaður hjá
tryggingafélaginu Almennar
tryggingar og var þar skoðunar-
maður sjótjóna um árabil.
Kona Kristjáns, Lára Jónsdóttir
Schram, lifir mann sinn ásamt
dóttur þeirra, en þau eignuðust
tvær dætur. Lést hin fyrir all-
mörgum árum.
Kristján hafði verið við sæmi-
legustu heilsu og hafði ekki legið
lengi er yfir lauk.
Mannréttindasamtök
E1 Salvador stofnuð
MESA (Mannréttindasamtök El
Salvador) nefnist deild sem stofnuð
hefur verið innan Mannréttinda-
nefndar El Salvador á íslandi. Er
Fundur FEF í kvöld:
„Réttur barna
til að eiga
tvo foreldra“
FÉLAG einstæðra foreldra efnir i
kvöld til fundar um „rétt barna til að
eiga tvo foreldra". Málshefjendur eru
Ólöf Pétursdóttir, deildarstjóri í
dómsmálaráðuneyti, Sigrún Karls-
dóttir, starfsmaður barnaverndar-
nefndar og Helga Hannesdóttir,
barnageðla-knir. Einnig verður Dögg
Pálsdóttir, formaður barnaverndar-
nefndar Reykjavíkur, gestur á fundin-
um.
Að loknum erindum verða um-
ræður og málshefjendur svara
fyrirspurnum fundargesta.
Fundurinn verður í Skeljahelli,
Skeljanesi 6, og hefst kl. 21. Tekið
er fram i fundarboði að ófélags-
bundið fólk sé velkomið.
markmiðið með stofnun deildarinn-
ar að efla allt mannréttindastarf
fyrir Mið-Ameríku, sérstaklega El
Salvador. í deildinni eru Alfrún
Gunnlaugsdóttir, Hólmfríður Garð-
arsdóttir, Ingibjörg Kristjánsdóttir,
Steinar Árnason og Þráinn Hall-
grímsson, en hann hefur um þriggja
ára skeið verið fulltrúi Mannrétt-
indanefndar El Salvador hér á landi.
MESA-samtökin munu á næst-
unni efna til fjársöfnunar til
mannúðarverkefna í E1 Salvador
og verður í því skyni lögð sérstök
áhersla á barnahjálp, en fjöldi
barna deyr í flóttamannabúðum
þar vegna sjúkdóma og vannær-
ingar, áður en þau ná fimm ára
aldri. Hafa samtökin opnað
bankareikning í Landsbankanum
vegna söfnunarinnar.
Úr rrétutilkynningn.
Höföar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
Tæplega fjögur þúsund nemendur í grunnskólum landsins þreyta nú samræmd próf og var þessi
nemendur Hagaskóla sátu yfir prófi í stærðfræði í gærmorgun.
mynd tekin þegar
Morgunblaftiö/KÖE.
3.800 taka samræmd próf
SAMRÆMD próf 9. bekkja grunn-
skóla standa yfir þessa dagana.
Fyrsta prófið, í íslensku, var í gær-
morgun. í dag verður prófað í stærð-
fræði, á morgun í ensku og á föstudag
í Norðurlandamálunum.
Alls taka 3.876 nemendur sam-
ræmd próf í ár, en þó má reikna
með að talan verði eitthvað lægri
þegar upp er staðið, því alltaf fellur
eitthvað úr, að sögn Ingunnar
Tryggvadóttur hjá prófanefnd
menntamálaráðuneytisins.
Ekkert af samræmdu prófunum
fer nú fram með aðstoð útvarpsins,
eins og var með munnleg próf í
ensku og dönsku fram á síðasta ár.
Nú fá kennarar prófin á tónsnæld-
um, sem er leikið af fyrir nemend-
urna. 1 stað dönsku geta nemendur
fengið að taka próf í sænsku eða
norsku. Ingunn sagðist reikna með
að próf í þeim málum tækju nú alls
um 40 nemendur, flestir er hefðu
verið búsettir í viðkomandi löndum,
enda væri danska og norska óvíða
kennd í grunnskólum landsins.
Reiknað er með að um 7% nem-
enda standist ekki prófin.
\ w
fef /
-x OQ hWö'ð
K0Taa^n SÖ09
Björn R. Einarsson
veröur heiðursgestur
kvöldsins.
Skemmtilegir tónleikar meö 27 frábærum lista-
mönnum, sem munu rifja upp öll vinsælustu lög
síöustu áratuga.
Hljómsveit GUNNARS ÞÓRÐARSONAR
annast undirleik.
SÖNGVARAR ERU:
O Ragnar Bjarnason,
□ Erla Traustadóttir,
□ Þuríður Sigurðardóttir,
□ Einar Júlíusson,
□ Björgvin Halldórsson,
□ Guöbergur Auöunsson, □ Pálmi Gunnarsson.
□ Sigurður Ólafsson,
□ Þorgeir Ástvaldsson,
□ Siguröur Johnnie,
□ Ómar Ragnarsson,
□ Harald G. Haralds,
□ Sverrir Guðjónsson og
ÞAÐ BYRJAR I