Morgunblaðið - 09.02.1984, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1984
15
og fullnægir framleiðslan engan
veginn eftirspurn. Ferskur sænsk-
ur vatnahumar seldist á 150 skr.
kílóið árið 1981, en alls fluttu Sví-
ar þá inn 2076 tonn af frystum
vatnahumri, en verð á frystum
humri er mun minna en á fersk-
um.
Þau lönd, sem hafa mikla vatna-
humarsneyslu á hvern íbúa eru
Frakkland, Spánn, Þýskaland,
Finnland og Sovétríkin. Sum þess-
ara landa verða æ háðari innflutn-
ingi, þar sem mengun eyðileggur
náttúrulegu vatnahumarsstofn-
ana í löndunum. Útflutningslönd
vatnahumars eru Sovétríkin, Pól-
iand, Bandaríkin og Tyrkland. Um
90% af öllum vatnahumri, sem
fluttur er til Svíþjóðar, koma frá
Tyrklandi, en vatnahumarsstofn-
ar í fjallavötnum Tyrklands eru að
deyja út vegna skefjalausra og
skipulagsláusra veiða.
Humar og heitt vatn
Fyrir nokkrum árum kynntu
sænskir aðilar sér aðstæður á ís-
landi, með tilliti til vatnahum-
arsræktar og töldu engum vafa
undirorpið, að vatnahumarsrækt á
fslandi gæti orðið sérlega hag-
kvæm, jafnvel svo að það myndi
borga sig að fljúga með humarinn
ferskan á markaði í Evrópu. f því
reikningsdæmi koma til greina
allir þeir staðir og sveitabýli víða
um land, sem hafa aðgang að
jarðhita og eru í nálægð flugvalla.
Öllum áhugamönnum um fiski-
rækt, framsýnum bændum og öðr-
um framsýnum mönnum er hér
með bent á að setja sig í samband við
fiskiræktarstöðina Simontorp á
Skáne, sem er sá aðili á Norður-
löndum, sem mesta þekkingu og
reynslu hefur á ræktun vatna-
humars og risarækju, í lokuðum
ferskvatnskerfum. Stöðin flytur
út rækju- og humarseiði til yfir 30
landa og hefur nú látið prenta
upplýsingabæklinga um ræktun
risarækju og vatnahumars og þar
er hægt að fá allar upplýsingar
um ræktun þessara arðbæru
vatnadýra. Talsmaður stöðvarinn-
ar, Stellan Karlsson, hefur að-
spurður látið í ljósi mikinn áhuga
á að aðstoða alla íslenska aðila,
sem áhuga hafa á þessu máli og
mönnum er velkomið að skoða
ræktunarstöðina og kynna sér all-
ar aðstæður.
Um ál og álaseiði
f merkri grein, sem Björn Frið-
finnsson lögfræðingur skrifaði í
Morgunblaðið sl. haust, er rætt
um möguleika álaræktunar á fs-
landi, sem arðbærrar búgreinar.
Enginn vafi er á því að álarækt
getur átt mikla framtíð fyrir sér á
Islandi, á sama hátt og ræktun
risarækju, vatnahumars og ann-
arra verðmætra vatnadýra.
Ræktunarstöðin í Simontorp er
nú að hefja álarækt í stórum stíl,
en mikill skortur er nú á álaseið-
um, þar sem álastofnar í Frakk-
landi og Belgíu eru sjúkir vegna
mengunar, en þaðan hafa álaseiði
verið keypt hingað til. Gott tæki-
færi er fyrir íslendinga að kynna
sér álarækt í Simontorp, en á með-
an íslensk álaræktun er ekki kom-
in í gagnið, þá er mikili markaður
fyrir álaseiði frá íslandi í Evrópu
og hafa m.a. aðilar frá ræktun-
arstöðinni í Simontorp lýst yfir
áhuga sínum að kaupa álaseiði frá
íslandi í miklu magni.
í grein um risarækju í Morgun-
blaðinu 16. nóv. 1983 vantaði hluta
af heimilisfangi ræktunarstöðvar-
innar í Simontorp, en hér fylgir
rétt heimilisfang:
Simontorps Akvatiska
Avelslaboratoriet
27035 Blentart
Skáne, Sverige, sími: 0416/13080
Best er að hafa samband við
Stellan Karlsson, sem vinnur í
fiskiræktarstöðinni.
P.S.!
Hér hefur verið notast við nafn-
ið vatnahumar á þau dýr, sem hér
eru til umræðu, sömu dýr nefnast
á ensku „crayfish", en á sænsku
„kráfta". Humar og vatnahumar
tilheyra sömu undirætt krabba-
dýra, Astracidae, en krabbar til-
heyra annarri undirætt. Humar
tilheyrir síðan ættkvíslinn Hom-
aridae, en vatnahumar hins vegar
ættkvíslinni Astracidae. Því er
vatnahumar ekki humar í orðsins
ströngustu merkingu.
Þar sem ekkert gott nafn er til
yfir þessa dýrategund á íslensku,
hefur hér verið notast við nafnið
vatnahumar, en nafnið vatna-
krabbi mun eitthvað hafa verið
notað, en sú nafngift er mun vand-
ræðalegri, en vatnahumar. En
vonandi er að finnist gott íslenskt
nafn á þetta nytjadýr framtíðar-
innar.
Þorvaldur Friðriksson er fornleifa-
fræðingur að mennt og starfar í
Gautaborg.
PHNKHURIK
HVRÐ FEN61 É& MIKINN PBftW?RTr* SKRTTSÚÓRt, EF Éó VÆRi EINSTÆ9 MÓ&IR'?"
aliíþols-
prófun
áklæða
Það er ekki aö eyðaííeignast-
og allra síst ef þú kaupir þér falleg vönduö húsgögn á miklu lægra
veröi en þau fást á annars staðar
Þá ert þú í rauninni að spara þér stórfé.
, Hérna séröu Kalmar-hornsófann
okkar, smíöaöan úr valinni fallegri
furu meö mjúkum þægilegum púöum.
Sófi tii aö sitja í og liggja í.
Kr. 26.480.
Veggsettin sem eru allt í senn: sófi,
rúm hillur, hirslur og klæðaskápar.
Renna út eins og heitar lummur. L-274
X H-167 X B-75.
í stíl við þessa samstæðu eigum við að
sjálfsögðu skrifborð o.fl. o.fl.
Kr. 14.960.-
Séi iiiDoð aðeins 2.500 kr. út og
kr. 1.500 pr. mán.
í§S
Viö eigum þaö
besta sem hægt er
aö kaupa í beyki.
þetta massíva borö
kostar 12.620 og
stóllinn kr. 3.240.-
Rúm
T>
Það er engin tilviljun aö rúmasalan
okkar hefur 5-faldast i janúar frá því í
fyrra. Ef þú vilt sjá raunverulegt úrval
ættir þú aö koma til okkar.
Rúm kr. 14.570 meö dýnum.
Náttborö kr. 2.460,-
HAGSYNN VELUR ÞAÐ BESTA
HUSCA6NAH0LLIN
BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK ® 91-81199 og 81410