Morgunblaðið - 09.02.1984, Side 16

Morgunblaðið - 09.02.1984, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1984 Orkuráð- herrar Norð- urlanda á fundi í Osló NORRÆNA ráðherranefnd- in (orkuráðherrar Norður- landa) kom saman til fundar í Osló fimmtudaginn 2. febrúar sl. Fundinn sátu Káre Kristiansen, olíu- og orkuráðherra Noregs, Birgitta Dahl, orkuráðherra Sví- þjóðar, Knud Enggaard, orkuráð- herra Danmerkur, og Sverrir Her- mannsson, iðnaðar- og orkuráð- herra íslands. Auk þess sótti fundinn Erkki Vaara, deildar- stjóri f.h. Seppo Lindblom, við- skipta- og iðnaðarráðherra Finn- lands. Ráðherrarnir ræddu þróun orkumála á Norðurlöndum, greindu frá stöðu orkumála hver í sínu landi og skýrðu frá ýmsum markmiðum sem náðst hefðu í norrænni samvinnu á sviði orkumála. Eitt af aðalmálunum sem til umræðu voru á fundinum var norræn samvinna innan NORDEL á sviði raforkumála. Ráðherrarnir voru sammála um nauðsyn þess að NORDEL ynni áfram að þróun og uppbyggingu raforkusamvinnu, sem væri væn- leg til að hafa í för með sér um- talsverðan sparnað fyrir Norður- löndin, þó fyrst og fremst fyrir Noreg, Danmörku, Svíþjóð og Finnland. NORDEL og orkuyfir- völd munu sameiginlega meta for- sendur fyrir enn frekari norrænni samvinnu á sviði raforkumála þegar til lengri tíma er litið. Þá ræddu ráðherrarnir það starf sem unnið hefur verið og framundan er hjá NKA (Nordisk kontaktorgan for Atomenergi) og norræna samvinnu á sviði olíu og gass. FrétUtilkynning Hekla hf.: Caterpillar-vara- hlutir afgreidd- ir á styttri tíma í VÉLADEILD Heklu hf. hefur nú verið tekið upp það fyrirkomulag, að fjarriti fyrirtækisins „talar“ við tölvu í aðalbirgöastöð Caterpillar- fyrirtækisins í Belgíu og getur fengið ýmsar upplýsingar á nokkrum sek- úndum. Fyrirkomulag þetta gerir af- greiðslutíma varahluta mun styttri en áður. Hr. Francis Van Erps, fulltrúi Caterpillar í Beigíu, kom nýlega hingað til lands og kynnti hann starfsmönnum Heklu hf. hið nýja fyrirkomulag. Samskonar kerfi hefur verið komið á hjá flestum umboðsmönnum Caterpillar í Evr- ópu, Mið-Austurlöndum og Afr- íku. Úr rrétUtilkynningu. Nemendur í verklegri eðlisfræði í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti eru þarna að kanna leyndardóma sveiflusjárinnar. Fyrir miðri mynd eru Kristján Oddsson, Viðar Ágústsson eðlisfræðikennari og Fjóla Sigurðardóttir. Ljósmynd: KÖE. Eðlisfræðikeppni framhaldsskólanema: Hinir þrú* efstu Mjóta vegleg peningaverðlaun — og möguleika á þátttöku í Ólympíuleikunum í eðlisfræði FYRRI HLUTI eðlisfræðikeppni framhaldsskólanema fer fram næstkom- andi laugardag, hinn 11. febrúar. Félag raungreinakennara í framhalds- skólum og Eðlisfræðifélag íslands standa fyrir keppninni með tilstyrk Morgunblaðsins. 11 framhaldsskólar víðsvegar um landið hafa tilkynnt um þátttöku og um 60 nemendur skráð sig til keppninnar. Keppnin verður skrifleg og verða lagðar fyrir keppendur spurningar sem reyna á kunnáttu í eðlisfræði og innsýn í hvernig hagnýta megi eðlisfræðilögmál við ýmsar aðstæður í daglegu lífi. Fer keppnin fram kl. 10 á laugardags- morgun en ætlunin er að birta spurningarnar hér í Morgunblaðinu á sunnudag svo lesendur geti spreytt sig á að leysa úr þeim. Svörin verða svo birt í blaðinu við fyrstu hentugleika. Þar sem nú styttist óðum til keppninnar eru framhaldsskóla- nemendur sumir hverjir farnir að búa sig undir keppnina með kennurum sínum. Blaðamaður og ljósmyndari Mbl. litu inn í tvo framhaldsskóla í Reykjavík. — í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti hittum við fyrstan að máli Viðar Ágústsson, eðlisfræðikennara, en hann er gjaldkeri í fram- kvæmdanefnd eðlisfræðikeppn- innar. „Ég er mjög ánægður með það að alvara var gerð úr þessari keppni og þakklátur að Morgun- blaðið hefur styrkt keppnina með veglegri fjárupphæð, sem hefur gert okkur kleift að standa straum af kostnaði við verð- launaveitingar og ferðir," sagði Viðar. Hversu margir af þínum nem- endum taka þátt í eðlisfræði- keppninni? „Þeir eru fimm eða sex strák- ar og ein stelpa. Ekkert þeirra hefur lokið öllum áföngunum í eðlisfræði hér, þannig að við ger- um okkur ekki miklar vonir um efstu sætin, heldur vakir það fyrir þeim fyrst og fremst að taka þátt í keppninni sér til gagns og gamans. Það sem ég tel hvað jákvæðast við keppni sem þessa er að í henni fá nemendur spurningar sem koma utanað — þ.e. spurn- ingar sem ekki eru samdar af kennurum þeirra. Þá lífgar þetta upp á eðlisfræðinámið, en eðlis- fræðin er víst talin fremur þurrt fag af flestum. Ég held að þessi keppni eigi eftir að örva áhuga nemenda almennt á eðlisfræð- inni, og þar með er okkar til- gangi náð sem að þessu stóðum. Síðast en ekki síst gefst almenn- ingi kostur á að kynnast við- fangsefnum í eðlisfræðikennslu framhaldsskólanna þegar spurn- ingarnar úr keppninni birtast í Morgunblaðinu," sagði Viðar. Samanburður við aðra skóla Fjóla Sigurðardóttir og Kristján Oddsson, nemendur í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti eru meðal þátttakenda í eðlis- fræðikeppninni. „Mér líst ágætlega á þetta," sagði Fjóla. „Með því að taka þátt í þessari keppni fær maður tækifæri til að sjá hvernig mað- ur stendur miðað við aðra skóla, t.d. í sambandi við framhalds- nám.“ „Já, við höfum reynt að undir- búa okkur undir keppnina eftir föngum og vorum m.a. í einum aukatíma á laugardag," sagði Kristján. „Það verður áreiðan- lega spennandi að taka þátt í þessari keppni, hvað sem ár- angrinum líður." Þrenn peningaverðlaun „Kosntaðurinn er að vfsu ekki teljandi við fyrri hluta keppn- innar sem fer fram núna á laug- ardaginn, en um 60 nemendur frá 11 skólum um allt land hafa tilkynnt um þátttöku í henni. Þeir munu allir fá áritað viður- kenningarskjal þar sem stig þeirra í keppninni verða til- greind. Hinir 5 efstu munu svo þreyta seinni hluta keppninnar sem fram fer í Háskóla íslands fyrstu helgina í marz. Þeim þrem sem standa sig bezt þar verða veitt peningaverðlaun sem skiptast þannig: 1. verðlaun 8000 kr., 2. verðlaun 4000 kr. og 3. verðlaun 2000 kr. Þessir þrír munu svo að sjálfsögðu koma sterklega til álita þegar valinn verður keppandi héðan á ólymp- íuleikana sem fara fram í Sví- þjóð í sumar." Þórarinn Guðmundsson leiðbeinir í verklegri eðlisfræði — þarna er verið að finna eðlisvarma vatns. I Menntaskólanum í Reykja- vík litum við inn þar sem Þórar- inn Guðmundsson eðlisfræði- kennari var að leiðbeina við verklega æfingu. „Satt að segja gekk mér illa að fella mig við keppni í námsgreinum, og þegar ég frétti fyrst af eðlisfræði- keppninni varð ég ekkert yfir mig hrifinn," sagði Þórarinn Guðmundsson, eðlisfræðikenn- ari hjá Menntaskólanum í Reykjavík. „Samt sem áður hvatti ég nemendur mína til að taka þátt í eðlisfræðikeppninni. Þetta voru mín fyrstu viðbrögð en ef til vill á ég eftir að endur- skoða þessa afstöðu að keppn- inni lokinni. Hér eru 12 nemendur skráðir til keppni og er það víst einhver stærsti hópurinn frá einum skóla. Mér líst vel á þessa hug- mynd hjá ykkur að birta spurn- ingarnar úr keppninni í blaðinu — fólk hefur áreiðanlega gaman af því að velta þeim fyrir sér. Hvernig getið þið fengið sama cosínus úr sitthvoru horninu?" Þetta er ekki sagt við blm. Mbl. heldur hefur Þórarinn snúið sér að tveim nemendum sínum, ung- um stúlkum, sem eru að ljúka við eðlisfræðiskýrslu. Aðalatriðið að vera meö Einn nemandi Þórarins, Ragnar Guðmundsson, sem ætlar að taka þátt í eðlisfræðikeppninni, er þarna staddur og tek ég hann tali., „Ég geri mér nú litlar vonir um vinning í þessari keppni," sagði Ragnar, „maður fer út í þetta af gamni sínu og kannski af forvitni. Nei, það eru ekkert fremur dúxarnir en hinir sem taka þátt í keppninni — þátttakan fer, held ég, fyrst og fremst eftir þvf hvort menn hafa tíraa eða áhuga. Ég hef ekkert undirbúið mig fyrir keppnina og ég held að hinir hafi ekki gert það heldur — mér finnst það ekki skipta neinu höfuðmáli hvaða árangri maður nær í svona keppni, aðal- atriðið er að vera með.“ — bó.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.