Morgunblaðið - 09.02.1984, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 09.02.1984, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1984 17 Kaupmannahöfn: íslenzkar stúlkur sýna grafíkmyndir Jónshúsi, 28. janúar. NÝLOKIÐ er sýningu á grafík- myndum tveggja íslenzkra stúlkna í Lána- og sparisjóðnum í Rew- entslow-götu rétt við aðaljárn- brautastöðina í Kaupmannahöfn. Stúlkurnar heita Sigurborg Stef- ánsdóttir, sem er við nám í „Skol- en for brugskunst", og Anna V. Dyrest, sem er er gestanemandi við myndlistardeild kennarahá- skólans hér í borg. Sýndu þær stöllur alls 35 myndir unnar með ætingu, þurrnál og aqatintu í vistlegum húsakynnum sparisjóðsins og var þetta önnur sýning þeirra beggja. H. Chr. Höier, sem var kennari þeirra í grafík um langt skeið, segir í sýningarskrá, að verk þeirra hæfi vel saman og geri heildarmynd sýningarinnar fyllri. Hann ritar einnig, að á íslandi sé rithöfundur, skáld og listmálari í hverjum afkima, enda sé það land innblástursins. En myndir þeirra Sigurborgar og Önnu eru þó ekki séríslenzkar en mjög fjölbreyttar á hinu graf- íska myndmáli. Nokkrar mynd- anna seldust á sýningunni, enda hinar eigulegustu. G.L.Ásg. Svört skýrsla frá Danmörk: Ekki óvanalegt að 14 til 15 ára börn drekki flösku á dag VIÐ RANNSÓKN, sem Carsten Borup, geðlæknir í Slagelse, hefur nýlega staðið fyrir, kom í ljós að danskir unglingar drekka nú meira en nokkru sinni fyrr. Ekki er óvanalegt að 14—15 ára börn drekki heila brennivínsflösku á dag, og noti oft sterk taugalyf. Niðurstaðan veldur sérfræðing- um þungum áhyggjum. — Þeir gera af þessum sökum ráð fyrir að tíu prósent úr hverjum aldurs- flokki muni verða fyrir alvarleg- um heilaskemmdum. (FrétUtilkynning frá Áfengisrarnaráéi.) DANSKUR LINGAPHONE Á CMJD cmad> ŒBD‘ Áður: 3.160 Nú: Kr. 1.960 Við léttum undir með nemum á öllum aldri og bjóðum hin árangursríku Lingaphone-námskeið í dönsku á stórlækkuðu kynningarverði. Lingaphone er fullkominn málakennari fyrir fólk á öllum aldri og ómetanlegur stuðningur við þá fjölmörgu grunnskólanemendur sem þreyta sam- ræmt próf í vor einmitt með aðstoð segulbands. Kr. 1.960 fyrir danskt/íslenskt námskeið með íslenskum skýringartexta, dansk/íslenska orðabók, 4 snældur og aðra nauðsynlega fylgihluti. LINGAPHONE ER LEIÐIN TIL LÉTTARA NÁMS Hljóðfærahús Reykjavíkur Laugavegi 96 - Sími 13656 K v; BLwhwwöwww*® - : ■;;ö' i o“ é' , V i o * o* ‘ ^ ^ ^ p=ic HMwW r — N A PHIUPS SJ0NV0RPUM. 20" VERÐ ADEINS KR.25.555.-SIMX5REITT 26" VERÐ AÐEINS KR. 33.800.-SIAÐGREITT Við bjóðum tuttugu og tuttugu og sex tommu Philips litsjónvarpstæki á stórlækkuðu verði. Philips litsjónvörpin eru óumdeilanlega í fremstu röð í tækni, myndgæðum og útliti enda eru þau mest seldu sjónvarpstæki í Evrópu. Vid erum sveigjanlegir í samningum. Heimilistæki hf HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI 8- 15655 OOTT FOLK

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.