Morgunblaðið - 09.02.1984, Síða 19

Morgunblaðið - 09.02.1984, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1984 sendiherra Bandaríkjanna á Madrid-ráðstefnunni. Af íslensk- um ræðumönnum má nefna ólaf Jóhannesson, þáverandi utanríkis- ráðherra, og Magnús Torfa Ólafs- son, blaðafulltrúa ríkisstjórnar- innar, en erindi hans er birt í NATO-fréttum. Af því sem gefið hefur verið út er ástæða til að nefna erindi Kjartans Gunnarssonar, fram- kvæmdastjóra, um aukna þátt- töku íslendinga í vörnum lands- ins, og rit Benedikts Gröndal, sendiherra, um varnarliðið á ís- landi. f apríl 1982 stóðu samtökin að ráðstefnu með nemendasam- bandi varnarmálaháskólans í Nor- egi og var þá sérfróðum mönnum víðsvegar að stefnt hingað til lands. Erindi og niðurstöður ráðstefnunnar komu síðan út í bæklingnum „Security in the North". Nú er verið að dreifa sérprentun úr tímaritinu Úrvali um friðarhreyfingarnar og KGB. Næstu fundir í byrjun mars kemur hingað Bjarne Norretranders, prófessor í sögu við Kaupmannahafnarhá- skóla, og flytur fyrirlestur um stefnu Sovétríkjanna í öryggis- málum og Norðurlönd, í apríl verður efnt til ráðstefnu vegna 35 ára afmælis Atlantshafsbanda- iagsins og í maí er von á Francois de Rose, fyrrum sendiherra Frakka hjá Atlantshafsbandalag- inu, sem ætlar að ræða öryggis- mál. Slíkar heimsóknir erlendra manna verður jafnan að skipu- leggja með löngum fyrirvara og strax að loknum þessum aðalfundi þarf að leggja drög að starfinu á næsta vetri. Eins og ég orðaði það áður í þessum fáu orðum förum við ekki í launkofa með skoðanir okkar og látum ekki deigan síga þótt stormasamt verði á stundum. Mestu skiptir að málstaðurinn sé ætíð byggður á skynsamlegum rökum og þess sé gætt að undan almennum stuðningi við hann sé ekki grafið. Samtök okkar eru samnefnari fyrir stuðning þeirra flokka sem við aðhyllumst við vestræna samvinnu, með því að standa sameiginlegan vörð um þennan málstað treysta flokkarnir best forsendurnar fyrir öryggi og sjálfstæði íslensku þjóðarinnar. Björn Bjarnason er blaðamaður á Morgunblaðinu. saumað, en fyrsta árs nemendur hönnuðu föt til fjöldafram- leiðslu. Einnig sýndu nemendur nýstárlegan sport- og nærfatnað. Magnea Haraldsdóttir fær mikið lof í dönskum blöðum fyrir fatnað sinn og er m.a. sögð vera sá nemandinn sem skólinn bind- ur hvað mestar vonir við. í Ekstrablaðinu, sem er út- breiddasta blað Danmerkur, eru birtar sérstakar myndir af fatn- aði hennar, grárri og gulri slá, sem tengist undir hnén og minn- ir á afríkanska buxnadragt og um leið á kengúru, og klæðskera- saumaðar köflóttar buxur með einlitum gráum jakka, sem fór þeldökkri sýningarstúlku frá- bærlega vel. Eftir sýninguna sl. vor fékk Magnea líka mjög góða dóma fyrir verk sín og er spenn- andi að vita, hvað framtíðin ber i skauti sér fyrir hana á sviði fata- hönnunar. G.L.Ásg. Hverfisgötu 33 — Sími 20560 Pósthólf 377 Authorized IBM Dealer - IBM Personal Computer GÓÐUR ODYR SÆLL AFBRAGÐ LIPUR Opnum kl. 11.30 SÝNISHORN ÚR MATSEÐLI Flæskesteg Rifjasteik aö dönskum hætti ARNARHÓLL Hvíldarstaður í hádegi höll að kveldi Velkomin OCTAVO 06.06

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.