Morgunblaðið - 09.02.1984, Síða 20

Morgunblaðið - 09.02.1984, Síða 20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1984 (gk w AF ERLENDUM VETTVANGI eftir GUÐMUND HALLDÓRSSON Argentínumenn vilja viðræður við Breta séu nauðsynlegar og hafi ekki verið ákveðnar. Alfonsin hefur sagt að hann muni taka kjarnorkuáætlun Argentínu úr höndum sjóhersins og fá stjórn hennar í hendur þinginu til að koma í veg fyrir að hún verði notuð í hernaðarskyni. Uggur út af kjarnorkuáætlunum Argentínumanna hefur aukizt síðan tilkynnt var að reist hefði verið verksmiðja, sem tekur við úraníum er hefur verið notað í kjarnorkuveri og endurvinnur það þannig að hægt er að smíða kjarnorkusprengjur. Alfonsin kvaðst ábyrgjast að Argentínu- menn mundu hagnýta kjarnorku í friðsamlegum tilgangi ein- göngu. Stjórn Alfonsins býr sig einn- ig undir uppgjör við heraflann og telur sig vel í stakk búna til þess vegna vinsælda sinna og klofnings í heraflanum í kjölfar stríðsins. Búizt er við að felld verði úr gildi náðunarlög, sem STJÓRN Raul Alfonsins ArgentínuforseU vill viðræður við Breta um Falklandseyjar, þótt Margaret Thatcher forsætisráðherra útiloki samn- inga um framtíð eyjanna. Alfonsin gerði nýlega grein fyrir áætlun í sex liðum um lausn deilunn- ar, en Sir Geoffrey Howe, utanríkisráðherra Breta, flýtti sér að hafna henni. Alfonsin gerir ráð fyrir að friðargæzlulið á vegum SÞ verði sent til Falklandseyja og hafi eftirlit með brottflutningi fjölmenns herliðs Breta og að Bretar hætti að víggirða eyjarnar. Hann leggur til að 150 mflna verndarsvæði brezkra herskipa og flugvéla umhverfls eyjarnar verði lagt niður. Argentínumenn segja að þeir vilji færa ástandið í sama horf og fyrir innrásina 1982. Jafnframt skuli viðræður teknar upp að nýju á vettvangi SÞ. Al- fonsin segir að með slíkum breytingum verði endi bundinn á styrjaldarástandið milli þjóð- anna og það muni hafa jákvæð áhrif á sambúð og viðskipti land- anna. Howe sagði í svari sínu að það væri ekki hlutverk SÞ að vernda eyjarnar og vænlegasta leiðin til að bæta sambúðina væri að reyna að koma á eðlilegum viðskiptum. Hann sagði að Bret- ar væru staðráðnir í að standa við skuldbindingar sínar við Falklendinga, en reyna um leið að bæta sambúðina við Argent- ínu. Viðurkennt hefði verið á vettvangi SÞ um árabil að Bret- ar gegndu því hlutverki að stjórna eyjunum og verja þær. Landstjóri Falklandseyja, Sir Rex Hunt, sagði að gæzlusveitir SÞ væru sendar til staða, þar sem friður ríkti ekki og friður ríkti á eyjunum og mundi ríkja þar áfram ef Argentínumenn gerðu ekki innrás. Argentínskir embættismenn hafa sagt í einkasamtölum að Alfonsin forseti sé fús til við- ræðna um að yfirráð Argentínu- manna verði viðurkennd gegn því að Bretar fái að fara áfram með stjórn eyjanna í ótiltekinn tíma. Síðan stjórn Alfonsins kom til valda í desember hefur hún lagt áherzlu á að hún sé lýðræðisleg til að reyna að fá Falklendinga til að sætta sig við argentínska stjórn. Argentínskir embætt- ismenn viðurkenna þó að það sé óraunsæi að búast við því í kjöl- far stríðsins við Breta að eyja- skeggjar sætti sig við að taka upp argentínskt þjóðerni. Þess vegna leggja þeir áherzlu á að þeir séu því hlynntir að Falk- lendingar fái að halda brezku þjóðerni sínu og auk þess lög- reglu sinni og skólakerfi. Stjórn Alfonsins hefur heitið að minnka herútgjöld úr 5% þjóðartekna í 2%. Alfonsin sagði eftir valdatökuna að til að ná þessu marki yrði að draga úr spennunni vegna deilunnar við Chilemenn um Beagle-sund og Falklandseyjadeilunnar, sem talið er að argentínskir herfor- ingjar hafi notað fyrir átyllu til að kaupa hergögn fyrir 10 millj- arða dala. Nýlega undirrituðu utanrík- isráðherrar Argentínu og Chile friðar- og vináttuyfirlýsingu, sem er liður í tilraunum Páfa- garðs til að leysa deiluna um Beagle-sund. Páfi lýsti þá þeirri von sinni að geta heimsótt bæði löndin þegar þau hefðu undirrit- að endanlegan samning um lausn. Bjartsýni ríkir um lausn, þótt bent sé á að nýjar viðræður aukið þrýstinginn á Breta. Bret- ar vilja að sem minnst sé um málið fjallað opinberlega. Þótt þeir hafi sýnt áhuga á bættri sambúð við Argentínumenn og hafi áhuga á auknum viðskiptum vilja þeir halda þessu tvennu að- skildu. Argentínumenn telja þetta sama málið. Bretar hafa aflétt fjárhagsleg- um hömlum gegn Argentínu- mönnum til að greiða fyrir við- ræðum þeirra og erlendra banka. Þeir hafa einnig minnkað vernd- arsvæðið umhverfis Falklands- eyjar, sem var áður 200 mílur, og boðizt til að leyfa heimflutning líka argentínskra hermanna og heimsóknir ættingja argent- ínskra hermanna til Falklands- eyja. Lengra hafa þeir ekki gengið og það mundi vekja deilur í Bretlandi. Opinberlega heldur frú Thatcher fast við það að gera Falklandseyjar að „virki" og seg- ir að Bretar megi ekki fórna við samningaborð því sem hermenn þeirra unnu á vígvellinum. Hún sagði í þingræðu að Bretar væru fúsir að íhuga bætt efnahags- samskipti og aukin viðskipti, en Falklandseyjar væru brezkar og þingheimur hefði talið að vilji íbúanna ætti að ráða. Virða yrði sjálfsákvörðunarrétt ibúanna. Brezkur hermálasérfræðingur sagði nýlega að kostnaðurinn við Raul Alfonsin Argentínuforseti og Isabel Peron fyrrverandi forseti á sáttafundi. Alfonsin er leiötogi Róttæka flokksins. Sá flokkur og flokkur peronista hafa löngum eldað grátt silfur saman. náðu til foringja sem voru við- riðnir pyntingar, dauða og hvarf 15.000 Argentínumanna. Alfons- in getur þá fyrirskipað herrétt- arhöld gegn háttsettum foringj- um, sem eru sakaðir um mann- réttindabrot. Þótt það sé opinber afstaða Argentínustjórnar að nýjar við- ræður um Falklandseyjar skuli fara fram á vegum SÞ í sam- ræmi við samþykkt Allsherjar- þings SÞ hafa þeir kannað möguleika á milligöngu ítala eða annarra til að flýta fyrir því að viðræður geti hafizt. Þetta bar á góma nýlega á fundi utanríkis- ráðherra Argentínu, Dante Cap- uto, og Bettino Craxi, forsætis- ráðherra Ítalíu. Argentínumenn telja að Bandaríkjamenn komi einnig til greina, þrátt fyrir slæma reynslu af sáttatilraunum Alex- anders Haig fv. utanríkisráð- herra. Perú er og nefnt. Argentínumenn vona að með auknum stuðningi Bandaríkj- anna, aðildarlanda EBE og ríkja Rómönsku Ameríku geti þeir varnir eyjanna mundi nema rúmum átta milljörðum dala í árslok 1987, en talsmaður eyja- skeggja sagði það ýkjur. Skv. opinberum tölum mun kostnað- urinn nema 880 milljónum dala á þessu ári, þ.e. tæpum 500.000 dölum á hvern hvern Falklend- ing, sem eru 1.800. í fyrra vörðu Brelar um 65 milljónum dala til efnahags- og þróunarmála, 20 millj. til viðgerða og 45 millj. dala til sex ára efnahagsáætlun- ar. Haft er eftir samstarfs- mönnum frú Thatchers að bezt sé að reyna að bæta sambúðina við Argentínu skref fyrir skref, fyrst á viðskiptasviðinu og síðan með fullu stjórnmálasambandi. Howe utanríkisráðherra hefur talað um aukinn áhuga beggja aðila á slíkum ráðstöfunum. Að- stoðarmenn frú Thatchers segja að hún geri sér grein fyrir að bætt samskipti muni draga úr nokkurri spennu, sem gætir í sambúð Breta og Bandarikjanna, og stuðla að auknum útflutningi Breta til Rómönsku Ameríku. Límtré FURA — BEYKI — EIK í plötum Eigum fyrirliggjandi úrval af límtrésplötum til innrétt- inga, fyrir iönaö og húsgagnasmíöi. Þykktir: 25, 30, 40 mm. Breiddir: 200, 300 420, 600, 640, 760, 900 mm og fjöldi lengda. c®3 Nýborg? O Ármúla 23, sími 86755. Hinar þekktu snyrtivörur veröa kynntar í Nes-Apóteki í dag, fimmtudag milli kl. 3—6. Sérhannaðar fyrir norræna veöráttu. Snyrti- sérfræðingur veröur á staðn- um og leiðbeinir. VIDSKIPTAENSKA FYRIR STJÓRNENDUR Námskcidið er ætlað öllum þeim sem samskipti eiga vid enskumælandi vidskipta- og/eða samstarfsaðila og þar sem mikilvægt er að tungu- málamisskilningur sé ekki hindrun í samstarfi manna. Námskeiðið fer- fram á ensku. Tilgangur námskeiðsins er að gera þátttakendur hæfari í að beita ensku sem viðskiptamál og ná þannig betri árangri í samskiptum sínum við útlendinga. Efni: Þjálfun í ensku talmáli. Orðaforði í ensku viðskiptamáli og fram- burðarreglur. Markmið viðskiptabréfa. Efni viðskiptabréfa. Raun- hæfar æfingar. Mismunur breskra og bandarískra viðskiptabréfa. l eiðbeinandi. Dr. Terry Lacy. DoktöT í félagsfræði frá Colorado State University. Kenndi viðskiptaensku við Department of Technical Journalism í Colorado State University. Starfar nú sem stundakennari í ensku við heimspekideild Háskóla íslands og er annar höfundur ensk- íslenskrar viðskiptaorðabókar. Tími: 13.-15. febrúar kl. 9-12. Starfsmenntunarsjódur Starfsmannafélags Ríkisstofnana greidir þátttökugjald fyrir félagsmenn sína á þetta námskeid. TILKYNNIÐ PÁTTTÖKU ÍSÍMA 82930 STJÓRNUNARFÉIAG ISLANDS I!»23

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.