Morgunblaðið - 09.02.1984, Síða 22

Morgunblaðið - 09.02.1984, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1984 Lögreglumenn dæmd- ir fyrir líkamsárás Stokkhólmi, 8. febrúar. Frá Olle K. Kk.ström, frétUriUra Mbl. TVEIR lögrcgluþjónar, sem höfðaö var mál gegn vegna meintrar líkams- árásar, voru í dag dæmdir í þunga refsingu fyrir ofbeldi. Þeir reyndust sekir að því að hafa handtekið mann með ólöglegum hætti, sett hann í handjárn og ekið honum á afvikinn stað á Skepps- holmen, þar sem þeir skildu hann eftir. Þar fannst maðurinn síðan slasaður. Annar lögregluþjónanna, sem dæmdir voru, er kona. Málið á hendur lögregluþjónun- um hefur vakið mikla athygli og umræður. Málshöfðun af þessu tagi er afar sjaldgæf í Svíþjóð og sjaldnar að lögreglumenn séu dæmdir til refsingar. Minnkandi samskipti Norðurlandaþjóða Kaupmannahofn, 8. febrúar. Frá Ib Björnbak, frétUriUra Mbl. SAMSKIPTI Norðurlandanna eru hlutfallslega minni nú en fyrir ára- tug, að því er Ib Stetter iðnaðarráð- herra segir í viðtali við Börsen. Náði 113 ára aldri Fort Lauderdale, Flórída, 8. febrúar. AP. LÁTIN er Julia „Pinkey“ Jones, 113 ára að aldri. Sjúkrahússyfirvöld hafa ekki skýrt frá hvað dró hana til dauða. Stetter hefur í 13 ár tekið þátt í störfum Norðurlandaráðs. Leggur hann áherslu á að reynt verði að halda í það, sem þegar hefur áunnist í norrænum samskiptum. Hann býst ekki við neinum afger- andi nýjungum í norrænu efna- hagssamstarfi. Ib Stetter varar raunar við því að reynt verði að gera mikið úr smámálum á 32. þingi Norður- landaráðs, sem hefst í Stokkhólmi 27. febrúar, þótt menn finni hjá sér þörf til að finna upp á nýjung- um. Slíkt hafi aðeins í för með sér óþarfa skriffinnsku og skrifstofu- bákn. Tveir bandarískir friðargæslumenn eru hér að flytja gám á brott, og eru þær tilfæringar liður í brottflutn- ingi gæslusveita Bandaríkjamanna frá Beirút. Reagan forseti fvrirskipaði brottflutninginn eftir að vinstri Símamynd AP. sinnar tóku völdin í vesturhluta borgarinnar. 1 gámn- um er búnaður sem Bandaríkjamenn hafa notað á alþjóðaflugvellinum í Beirút. Ósætti um aukafjár- veitingu til varnarmála Julia vann fulla vinnu fram á eitthundraðasta afmælisdag sinn, og var m.a. kunn fyrir að virða að vettugi tilmæli lækna um að láta af pípureykingum. Julia kvaðst hafa byrjað pípu- reykingar við þriggja ára aldur og undir það síðasta forðaðist hún lækna af ótta við að þeir héldu uppteknum hætti og leggðu að henni að hætta reykingunum. Stokkhólmi, 8. febrúar. Frá Olle Ekström, fréttaritara Mbl. Um það bil fimmtungur danskra utanríkisviðskipta er við önnur Norðurlönd. í Finnlandi er hlutfallið svipað, en 14,5% norsks útflutnings er til annarra Norður- landa og 25% sænsks útflutnings. Svíar eru eina Norðurlandaþjóðin sem tekist hefur að auka útflutn- ing til Norðurlandanna í seinni tíð. VIÐRÆÐUR stjórnarinnar og borgaraflokkanna þriggja um aukafjárveitingu til varnarmála fóru út um þúfur eftir aðeins klukkustundar fund. Það sem skilur í milli er að leiðtogar borgaralegu flokk- anna vildu með engum hætti spyrða saman útgjöld til varn- armála og til þróunaraðstoðar, Fleiri „Dynasty“-þættir að kröfu áhorfenda OhIó, 8. febrúar. Frá Jan Erik Lauré, frétlaritara Mbl. MIKIÐ fjaðrafok hefur orðið út af bandarísku sjónvarpsþáttunum „Dynasty“ og sér ekki fyrir end- ann á því. Stjórnendur sjónvarps- ins telja þættina það lélega að rétt- ast sé að hætta útsendingum við fyrsta hentugleika, en sjónvarps- áhorfendur hafa með dyggri aðstoð blaðanna knúið stjórnendur sjón- varpsins til að halda sýningum áfram. Eftir langar og strangar deil- ur í fyrra ákváðu stjórnendur sjónvarpsins að kaupa 29 þætti í myndaflokknum um Carring- ton-fjölskylduna í Denver í Col- orado. Þættirnir hlutu ágætar viðtökur áhorfenda, en yfir- mönnum sjónvarpsins þótti þeir heldur þunnir og ætluðu ekki að kaupa fleiri. Blöð og vikurit skrifuðu mikið um málið og skoðanakannanir sýndu að mik- ill meirihluti sjónvarpsáhorf- enda vildi sjá fleiri þætti. Af þeim sökum beygðu stjórnendur sjónvarpsins sig um síðir og keyptu fleiri þætti. Hermt var að keyptir hefðu verið 49 þættir til viðbótar, en í fyrradag upplýsti blaðið Verd- ens Gang, að í pakkanum hefðu verið 59 þættir og að yfirmenn sjónvarpsins höfðu ákveðið að stinga 10 þeirra undir stól. Við þessa uppljóstrun hófst ný og kröftug mótmælaalda, og var það til þess að sjónvarpsleiðtog- arnir lýstu því yfir í dag að þættirnir 10 yrðu líka sýndir. eins og stjórn Jafnaðarmanna- flokksins gerir að skilyrði. Leiðtogar borgaralegu flokk- anna þriggja lögðu fram mála- miðlunartillögu um 2,5 millj- arða sænskra króna fjárveit- ingu til varnarmála er dreifðist á þrjú ár. Hvergi var minnst á útgjöld til þróunarmála í til- lögunni og það sætti stjórnin sig ekki við. Stjórnin hefur nýlega tekið þá ákvörðun að tengja auka- útgjöld til varnarmála auknum útgjöldum til þróunarhjálpar, en fjármagna átti hvoru tveggja með hækkun skatta á bílabensíni. Ríkisstjórn jafnaðarmanna mun úr þessu treysta á stuðn- ing kommúnista er hún leggur fram tillögu um aukaútgjöld til hermála í þinginu. Borgara- flokkarnir munu leggja fram breytingartillögu með enn hærri upphæð. Rúmlega 160 manns fórust í sprengingu: Ráðherra settur af í Rúmeníu Búkarest, 8. febrúar. AP. Gheorghe Caranfil ráðherra, sem fór með málefni efnaiðnaðar, og ýmsir háttsettir embættismenn hafa verið settir af í framhaldi af meiriháttar sprengingu í olíuhreinsistöð í desem- ber sl. þar sem yfir 160 manns týndu lífi, að sögn flokksmálgagnsins Seint- 1 sprengingunni gjöreyðilagðist Teleajan-hreinsistöðin norður af Búkarest, og segir í niðurstöðum rannsóknarnefndar að ein skýringin á óhappinu séu alvarleg mistök við smíði stöðvarinnar og agaleysi þar eftir að hún tók til starfa. Straumnes Vesturbergi I Kjöt og fiskur Seljabraut I Valgarður Leirubakka i Bætt þjónusta í Breiðholti Nú höfum viö breytt opnunartíma verslana okkar sem hér segir: virka daga kl. 9 19 föstudaga kl. 9—“19-30 laugardaga kl. 9—16 Verið ávallt velkomin í verslanir okkar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.