Morgunblaðið - 09.02.1984, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1984
23
Flóð í suðurhluta Hollands:
Bæir og þorp
einangrast
Maastricht, Hollandi, 8. feb. AP.
MIKIL flóð hafa orðið í Limburg-
héraði í suðurhluta Hollands í kjöl-
far mestu rigninga sem þar hafa
komið í 58 ár. Þorp og sveitabæir
hafa einangrast og vegir í héraðinu
farið úr skorðum.
Á föstudag var vatnsborðið í
ánni Maas og þverám hennar
þremur metrum hærra en venju-
lega, en búist er við að það lækki
aftur um helgina.
Flóðin hafa valdið margvísleg-
um erfiðleikum, og m.a. hefur orð-
ið að flytja fjölskyldur frá heimil-
um sínum, en ekkert manntjón
hefur orðið. Beðið hefur verið um
aðstoð hersins við að styrkja flóð-
garða á nokkrum stöðum.
Þorbjörn sendur
í Grænlandsísinn
Kaupmannahöfn, 8. febrúar. Frá Ib Björnbak fréttaritara Mbl.
HAFlS er nú það mikill við Græn-
land, að Tom Hoyem Græn-
landsmálaráðherra leitar nú að fs-
brjóti til að senda þangað. ísinn er
óvenjumikill og raskar verulega
sjósókn og skipaferðum.
Meðal þeirra ráða sem Hoyem
hyggst grípa til er að senda einn
stóru ísbrjóta danska ríkisins,
Þorbjörn, til Grænlands, en sá
böggull fylgir skammrifi að
samkvæmt haffærisskírteini
dönsku ísbrjótanna mega þeir
ekki sigla á alþjóðlegum sigi-
ingaleiðum.
Af þessum sökum er nú unnið
að því að fá haffærisskírteini
Þorbjörns breytt þannig að hann
geti siglt yfir Atlantshafið til
Grænlands. Vetur hefur verið
mildur í Danmörku og því ekki
hlotizt af vandræði vegna íss á
dönsku sundunum.
Frá Norinform.
f VOR verður byrjað að grafa eftir
ævagömlu skipsflaki við strönd Vest-
ur-Agða, nálægt Kristjánssandi f Nor-
egi. Ef sú trú manna, að þar sé hulið
vel varðveitt skip frá miðöldum eða
víkingaöld, reynist rétt, mun uppgröft-
urinn verða meiriháttar viðburður fyrir
fornleifafræði og siglingasögu. Ekkert
skip frá tímaskeiði vfkinga hefur enn
fundist við strendur Noregs.
Skipið uppgötvaðist þegar Norð-
menn og Þjóðverjar voru að vinna að
hafnargerð á árum síðari heims-
styrjaldarinnar. Einn Norðmann-
anna tók viðarbút úr skipinu, og lét
síðar rannsaka hann og kom þá í ljós
að hann var frá miðöldum eða lokum
víkingaaldar. Ekki voru á þessum
árum gerðar ráðstafanir til að ná
skipinu upp, enda höfðu menn margt
annað að hugsa um á stríðstfma. Nú
fyrst hefur áhugi á skipinu vaknað á
ný.
Hróðugur lýsir Engelbert Humperdinck kjöri Debi Brett frá Sussex í Englandi sem fegurstu stúlku heims i
keppni í Honolulu í vikunni.
Geimskot Sovétmanna:
Þrír geimfarar á
leið í geimstöð
Finnst víkingaskip
við Vestur-Agðir?
Moskvu, 8. feb. AP.
SOVÉTMENN sendu í dag á loft
þriggja manna geimfar, Soyuz T-10, og
er því ætlað að flytja geimfarana í
geimstöðina Salyut-7, sem er á ferð
umhverfis jörðu. Þetta er í annað sinn
á sex og hálfum mánuði að Sovétmenn
skjóta á loft mönnuðu geimfari.
Geimfarið fór á loft um hádegis-
bil að íslenskum tima, og að sögn
TASS-fréttastofunnar líður geim-
förunum vel og farartæki þeirra
starfar eðlilega.
Tveir geimfarar dvöldu í fyrra í
150 daga í Salyut-7-geimstöðinni, en
urðu að snúa til jarðar vegna bilun-
ar. Ekki er vitað hve lengi geimfar-
arnir þrír eiga að dvelja í stöðinni,
en af fyrri fréttum TÁSS má ráða
að það verði í a.m.k. tvo mánuði.
Fréttastofan hafði sagt að þegar
mannað geimfar Indverja og Sovét-
manna kæmi til stöðvarinnar í
miðjum apríl á þessu ári yrðu sov-
éskir geimfarar þar fyrir og tækju á
móti því.
Geimferðaáætlun Sovétmanna
hefur á undanförnum árum miðað
að því að kanna hvert úthald manna
er í geimnum með það í huga að
reka þar geimstöðvar sem mannað-
ar yrðu allan ársins hring. Hafa
Sovétmenn lagt á það áherslu að
slíkar stöðvar verði ekki notaðar í
hernaðarskyni.
Bíræfið rán í miðborg Lissabon:
Ræningjar lokkuðu bflstjóra út
og óku burt með 24 milljónir
Lissabon, 8. feb. AP.
ÞAULSKIPULAGT rán var framið
í miðborg Lissabon í dag, og höfðu
ræningjarnir upp úr krafsinu 108
milljónir escudos, sem jafngildir
um 24 milljónum íslenskra króna.
Ræningjarnir stöðvuðu bryn-
varðan flutningabíl fáeina metra
frá aðalútibúi Banco Fonsecas E
Burnay á mesta annatímanum i
morgun, lokkuðu bílstjórann og
sessunaut hans til að fara út, og
tóku síðan bifreiðina trausta-
taki. Peningarnir áttu að fara í
bankann.
Sjónarvottar segja að ræn-
ingjarnir hafi notað tvær bif-
reiðir við ránið, ekið annarri
fyrir framan flutningabílinn og
hinni aftan á hann. Þegar bif-
reiðastjórinn og sessunautur
hans fóru út til að kanna
skemmdir settust ræningjarnir
undir stýri og óku á brott.
Óeirðir
í Punjab
Amritsar, S. febrúar. AP.
SPRENGJA sprakk á járnbrautarstöð í
Patiala í Punjab-héraði í dag raeð þeim
afleiðingum að þrír menn slösuðust.
Voru þar að verki síkar, sem krefjast
aukins pólitísks frelsis og trúfrelsis.
Óeirðir urðu víða í héraðinu er síkar
minntu á kröfur sínar um aukið for-
ræði.
Lögregla beitti táragasi til að
tvístra hópi síka í Jalandhar, sem
sveifluðu sverðum og lögðu til atlögu
gegn fólki, sem ekki tók þátt í að-
gerðunum.
Síkar lögðu niður vinnu í Punjab í
dag til að leggja áherzlu á kröfur
sínar um sjálfsforræði og frelsi til
að iðka trú sína. Samgöngur voru að
mestu lamaðar vegna verkfallsins og
flestar skrifstofur voru lokaðar, eða
umsetnar.
Indira Gandhi, forsætisráðherra,
hefur boðist til að hefja að nýju við-
ræður við leiðtoga síka, en jafnframt
hafa umsvif hersins verið aukin i
Punjab síðustu daga.
Veður
víða um heim
Akureyri
Amtterdam
Aþena
Barcelona
Berlín
Brtlaael
Buenos Aires
Chicago
Dublin
Feneyjar
Frankfurt
Gent
Helsinki
Hong Kong
Jerúsalem
Jóhannesarborg
Kairó
Kaupmannahöfn
Las Palmas
Lissabon
London
Loa Angeles
Majorka
Mexikóborg
Miami
Montreal
Moskva
New York
Osló
Parls
Peking
Perth
Reykjavik
Ríó de Janeiró
Róm
San Francisco
Seaul
Stokkhólmur
Sydney
Tókýó
Vancouver
Vlnarborg
Varsjá
Þórshöln
+4 úrk. i grennd
5 skýjaó
13skýjað
19léttskýjaö
8 skýjaö
7 rigning
28heióskírt
+5 heíöskírt
8 rigning
4 þokumóöa
Srigning
8 rignlng
0 snjókoma
14 heiöskírt
9 skýjaö
28 heiðskírt
18 heiðskirt
3rigning
19 léttskýjaö
14 heiöskfrt
8 skýjaö
29 heiöskút
19 skýjaö
20 Mttskýjaö
20heióskírt
18 heiöskfrt
12skýjaö
+10 skýjaö
0 heióskirt
-8 skýjaó
11 rigning
3 heióskírt
34 heiöskirt
+8 skýjaö
33 heiðskfrt
14 heiöskfrt
16 skýjaö
-4heióskirt
2 skýjaö
23 rigning
5 heiöskírt
10 skýjað
16 skýjaö
5 rigning
3 Mttskýja-