Morgunblaðið - 09.02.1984, Síða 24

Morgunblaðið - 09.02.1984, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1984 JMtoguttliljifrUÞ Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 20 kr. eintakiö. Friðarfræðsla ingmenn úr öllum flokk- um hafa lagt fram til- lögu um að alþingi álykti að fela menntamálaráðherra að hefja undirbúning að frekari fræðslu um friðarmál á dag- vistarstofnunum, í grunn- skólum og framhaldsskólum landsins. I tillögunni segir að markmið fræðslunnar skuli vera „að glæða skilning á þýðingu og hlutverki friðar og rækta hæfileika til þess að leysa vandamál án ofbeldis og leita friðar í samskiptum einstaklinga, hópa og þjóða". í greinargerð tillögunnar seg- ir: „Friðarfræðsla leitast við að dýpka vitund, vitneskju og skilning á deilum milli ein- staklinga, innan þjóðfélaga og milli þjóða. Hún rannsak- ar orsakir deilna og átaka sem má finna samofnar skynjunum, verðmætamati og viðhorfum einstaklinga. Ennfremur má finna orsakir þeirra í félagslegri, stjórn- málalegri og efnahagslegri gerð þjóðfélagsins. Friðar- fræðsla hvetur til þess að leita annarra leiða sem fela í sér lausnir á deilum án ofbeldis og hvetur jafnframt til þróunar þeirra hæfileika sem nauðsynlegir eru til að beita slíkum lausnum." Vilja flutningsmenn tillögunnar að menntamálaráðherra sjái svo um að þessi fræðsla hefjist þegar á barnaheimilum hér á landi. Morgunblaðið birti í gær viðtöl við sex flutningsmenn tillögunnar úr þremur þing- flokkum. Af máli þeirra allra má ráða að þeir eru ekki að fela menntamálaráðherra auðvelt verkefni nái tillagan um friðarfræðslu fram að ganga. Viðmælendur Morg- unblaðsins eru þó sammála um að varðveisla lýðréttinda og frelsis sé hluti af því frið- arhugtaki sem um er rætt en þetta er einmitt megintil- gangur samstarfsins í Atl- antshafsbandalaginu. Þau Salome Þorkelsdóttir og Gunnar G. Schram, þing- menn Sjálfstæðisflokksins í hópi tillögumanna, sögðu að í friðarfræðslu yrði ekki unnt að ganga fram hjá því að við íslendingar tryggjum okkar frið allra helst með veru okkar í NATO. Eiður Guðna- son, formaður þingflokks Al- þýðuflokksins, sagði: „Ég er samþykkur því að vera okkar í Atlantshafsbandalaginu tryggi best öryggi íslands eins og nú háttar og ég held að þeim upplýsingum verði best komið á framfæri með því að skýra stöðu mála hér eins og hún er og eins og þróun sögunnar hefur verið síðan Atlantshafsbandalagið var stofnað." Og Kristín Kvaran í Bandalagi jafnað- armanna sagði, að hún væri sammála því að undirstaða utanríkisstefnu okkar væri vera okkar í NATO og að hún tryggði öryggi og jafnvægi friðar í. Vestur-Evrópu, „börnin verða upplýst um stöðu mála, það er að við er- um í NATO og af hverju við erum þar“, sagði Kristín Kvaran. Ástæða er til að fagna þessum skýru og undan- bragðalausu yfirlýsingum flutningsmanna tillögunnar um friðarfræðslu um for- sendur þess að friður hefur verið tryggður í okkar heims- hluta um nær fjörutíu ára skeið. En í orðum þingmann- anna hér í blaðinu í gær kem- ur einnig fram ótti um að friðarfræðslan kunni að verða misnotuð, hún kunni að verða einhliða áróður þeirra sem eru andvígir vilja meiri- hluta íslendinga og stefnu þjóðarinnar í varnar- og ör- yggismálum. Stefán Bene- diktsson í Bandalagi jafnað- armanna sagði af þessu til- efni: „Ég held nú að það sé tómt mál að maður geti tryggt eitt eða neitt í þessu tilfelli, frekar en maður getur það í dag.“ Jóhanna Sigurð- ardóttir í Alþýðuflokki sagði: „Auðvitað tel ég að kennar- arnir eigi ekki að hafa sjálf- dæmi um hvernig þetta er gert.“ Og Eiður Guðnason sagði réttilega: „Ef menn vilja misnota aðstöðu sína í skólum þá geta þeir það í flestum tilvikum og það er ákaflega erfitt að koma í veg fyrir það, en ég hef ekki þá trú að slíkt verði almennt." Æskilegt er áður en lengra er haldið í þessu máli að kynnt sé fyrir þingmönnum og landslýð öllum hvernig að friðarfræðslu er staðið í skólakerfinu nú þegar. Sam- félagsfræðin sýnist öðrum þræði byggjast á því að skólakerfið bregðist við mál- um sem eru „í umræðunni" og er ekki vafi á því að friður hefur verið kenndur á vett- vangi hennar. Hvernig væri að fela skólarannsóknadeild að rannsaka og leggja fyrir þingmenn hvað kennt er um frið á barnaheimilum, í grunnskólum og framhalds- skólum landsins? Slík úttekt er nauðsynleg forsenda fyrir málefnalegum umræðum á alþingi um þá þingsályktun- artillögu sem hér hefur verið kynnt og án hennar getur menntamálaráðherra ekki framkvæmt efni tillögunnar verði hún samþykkt. Múkkaveisla á miðunum — og skammt undan dormaði höfrungatorfa. Jú, góði minn, það alltaf peningar úr Hvað er til ráða þegar allar loðnu- þrær eru fullar frá Akranesi til Seyð- isfjarðar, miðin rétt austan við Vest- mannaeyjar, bátarnir með fullfermi í höfninni og allt að tveggja daga bið eftir löndun? „Blessaður vertu, kall- arnir eru sko ekki niðrí bát núna. I>eir eru sko heima hjá kellingunum," sagði Bogi í Sandprýði, þegar Morgun- blaðsmenn hittu hann í Fiskimjöls- verksmiðjunni í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Bogi, sem heitir Húnbogi Þorkels- son en hefur viðurnefni eins og aðr- ir sannir Eyjamenn, var á annarri vakt sinni þann sólarhringinn. í Fiskimjölsverksmiðjunni i Vest- mannaeyjum, sem er kölluð FÍVe til aðgreiningar frá FES (Fiskimjöls- verksmiðju Einars Sigurðssonar), vinna nú á loðnuvertíðinni um fjörutíu manns á tveimur þrískipt- um vöktum. Þar hefur verið tekið á móti um tólf þúsund tonnum síðan á sunnudaginn og hefst ekki undan. Fyrir hádegið í dag átti að klára úr 3.700 tonna þró og í höfninni biðu í gærkvöldi bátar með það magn ef ekki meira. Köllunum þykir gott að vinna í FÍVe, eins og sést t.d. á því, að Bald- ur Kristinsson verkstjóri er búinn að vinna þar í 35 ár og Bogi í ein tuttugu. Baldur segist raunar vera fæddur í gúanóinu, pabbi hans hafi unnið þar áður, en þá var verk- smiðjan langt frá alfaraleið í Eyj- um. í FÍVe hefur verið vel búið að starfsfólki og þegar allt gengur að óskum getur verksmiðjan afkastað liðlega þúsund tonnum af loðnu á sólarhring. Endalaus sunnudagur Þeim tonnum og margfalt fleiri var um kaffileytið í gær dælt upp úr spegilsléttum haffletinum aðeins nokkur hundruð metra frá landi skammt austan við Hjörleifshöfða. Þar töldum við úr flugvélinni tíu eða tólf báta við veiðar, aðrir voru að koma og enn aðrir að sigla með fullfermi austur eða vestur með landinu. Ekki voru nema nokkrir tugir metra á milli sumra bátanna og eftir skipverja á ísleifi, sem lá í Friðarhöfninni, heyrðum við sagt að Ingi Júlíusson, verkstjóri í Vinnslustöðinni: Frystum 75 tonn á dag þegar ævintýrið stóð sem hæst. mtfh s Bogi í Sandprýöi (t.v.) og Baldur verkstjóri í gúanóinu: Kallarnir eru sko ekki í bátunum núna ...

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.