Morgunblaðið - 09.02.1984, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1984
Guðrún Thoraren
sen — Kveðjuorð
Fædd 10. desember 1921
Dáin 31. janúar 1984
Foreldrar Guðrúnar, Þorsteinn
Jónsson og kona hans, Sigríður
Sigurjónsdóttir voru Skagfirð-
ingar. Þau bjuggu á Stórubrekku á
Höfðaströnd og þar fæddist Guð-
rún. Þorsteinn Jónsson flutti bú-
ferlum með fjölskyldu sína til
Hofsóss og þar ólst Guðrún upp
ásamt systkinum sínum, Sigur-
jónu, gift Ólafi Magnússyni, bú-
sett í Reykjavík, og óla, kaupfé-
lagsstjóra á Hofsósi, kvæntur
Guðrúnu Kristjánsdóttur.
Ég sá Guðrúnu í fyrsta skifti á
heimili Guðrúnar Björnsdóttur og
Þormóðs Eyjólfssonar konsúls á
Sigiufirði. Hún var þá ung stúlka
um tvítugt og frú Svanlaug, móðir
Odds Thorarensen, var að kynna
konuefni sonar síns fyrir vinafólki
sínu.
Oddur og Guðrún giftu sig í júlí-
mánuði árið 1942. Þau bjuggu í
Reykjavík á meðan Oddur lauk
þar námi í lögfræði, en stofnuðu
síðan heimili á Siglufirði og hafa
búið þar síðan.
Þann 12. febrúar 1948 ríkti mik-
il hamingja á heimili þeirra, en þá
fæddist sonur þeirra, Hinrik, sem
hlaut nafn föðurafa síns.
Heimili Odds og Guðrúnar var
glæsilegt og bæði voru þau gest-
risin. Guðrún Thorarensen var
einstök húsmóðir og tók hlýlega á
móti öllum sem til hennar komu.
Búrið inn af eldhúsinu var stórt og
ávallt fullt af hinum vildustu
krásum og henni var það einstak-
lega eiginlegt að framreiða veislu-
mat án sýnilegrar fyrirhafnar.
Á heimilið komu til dvalar um
lengri og skemmri tíma ættingjar
og vinir þeirra hjóna, unglingar úr
sveit, sem sóttu skóla á vetrum og
ungir frændur, sem komu til þess
að vinna sér inn peninga í síldinni
á sumrin.
Oddur Thorarensen rak um-
fangsmikla verslun með ólafi
bróður sínum. Þeir áttu einnig
kvikmyndahús bæjarins, Siglu-
fjarðarbíó.
Á þessum árum var mikið líf og
fjör á Siglufirði. Aðkomufólk
streymdi til bæjarins, skipin
sigldu inn fjörðinn, drekkhlaðin af
síld, fólk vann mikið og margir
höfðu góð fjárráð.
Á haustin þegar aðkomufólkið
tíndist í burtu og ró færðist yfir
bæinn, urðu samskipti bæjarbúa
meiri og það lifnaði yfir félagslíf-
inu. Við Sigurður vorum í kunn-
ingjahópi Odds og Guðrúnar. Fólk
spilaði bridge, hélt matarveislur
og sótti árshátíðir. Siglfirðingar
skemmtu sér með glæsibrag, ekki
síst þegar Guðrún og Oddur voru
gestgjafar.
Guðrún Thorarensen var fljót
að bregða við, ef einhver lenti í
erfiðleikum og þurfti á hjálp að
halda. Hún þótti vera stórtæk og
rausnarleg þegar svo stóð á. Þegar
hún gaf vinum sínum gjafir voru
þær veglegar og ekki mun Guðrún
hafa þurft að óttast, að maður
hennar teldi það eftir. Hún starf-
aði nokkuð að félagsmálum á
Siglufirði, sérstaklega hin síðari
ár, var í stjórn systrafélagsins
sem vinnur að málefnum kirkj-
unnar og í stjórn kvenfélags
sjúkrahússins. Mörg ár starfaði
hún í kvenfélaginu Von, sem með-
al annars kom upp Leikskálum,
dagheimili fyrir börn, á fögrum
stað syðst í kaupstaðnum.
Móðir Guðrúnar Thorarensen
dvaldi í sjúkrahúsi Siglufjarðar
síðustu tvö árin sem hún lifði.
Þann tíma kom Guðrún í heim-
sókn til hennar flesta daga og las
fyrir hana og stofufélaga hennar.
Aðstæður á Siglufirði breyttut
þegar síldin hvarf af miðunum,
eins og alþjóð er kunnugt, og
margir fluttu þá úr bænum. Menn
urðu að draga saman seglin og
fyrirtæki einstaklinga á Siglufirði
börðust í bökkum.
Guðrún Thorarensen hóf þá að
starfa með manni sínum við fyrir-
tæki þeirra, og gekk að því með
sömu einbeitni og öðru sem hún
tók sér fyrir hendur.
Guðrún og Oddur urðu fyrir
þeirri þungbæru reynslu að missa
einkasoninn Hinrik, aðeins 25 ára
að aldri. Hinrik var heitbundinn
ungri stúlku, Þórunni Ástþórs-
dóttur, og eignaðist með henni
dóttur, sem var skírð Guðrún Jóna
í höfuðið á ömmu sinni á Siglu-
firði. Guðrún Thorarensen batt
vináttubönd við Þórunni, móður
sonardóttur sinnar, sem giftist
síðar mætum manni, Þorsteini
Guðmundssyni. Þau eru búsett í
Reykjavík og eiga saman tvö börn.
Guðrún og Oddur litu á þessa fjöl-
skyldu sem sína eigin. Hálfsystk-
ini litlu Guðrúnar Jónu kölluðu
þau afa og ömmu og þegar Guðrún
Jóna kom einu sinni sem oftar í
heimsókn til Siglufjarðar kom
systir hennar með henni, af því að
hana langaði líka til þess að koma
til ömmu á Sigló.
Guðrún og Oddur áttu litla íbúð
í Reykjavík, sem þau dvöldu í þeg-
ar þau gátu komið þvi við og nutu
þess að geta verið tíma og tíma í
nálægð við sonardóttur sína, ætt-
ingja og vini.
Guðrún Thorarensen var stödd í
Reykjavík, þegar hún veiktist
skyndilega af þeim sjúkdómi sem
varð henni að aldurtila.
Ég held að Guðrúnu hafi ekki
verið neitt að vanbúnaði þó að hún
hafi svo óvænt verið kvödd til
ferðalags á ókunna strönd. Hún
var mjög trúhneigð og tók því sem
að höndum bar með æðruleysi.
Ég vil þakka henni fyrir ein-
læga vináttu við mig, Ástrúnu
systur mína og fjölskyldur okkar.
Við sendum Oddi, Guðrúnu Jónu
og öðrum aðstandendum innilegar
samúðarkveðj ur.
Útför Guðrúnar Thorarensen
hefir farið fram í kyrrþey, að ósk
hennar.
Gyða Jóhannsdóttir
Það kom mér mjög á óvart þeg-
ar mér voru sögð þau tíðindi að
mágkona mín, Guðrún Thorarens-
en, hefði verið flutt fársjúk á
Landspítalann. Örfáum dögum
síðar var hún látin. Það sannaðist
nú, sem svo oft áður, hið forn-
kveðna, að enginn má sköpum
renna.
Guðrún var fædd hinn 10. des-
ember 1921 dóttir hjónanna Sig-
ríðar Sigurjónsdóttur og Þorsteins
Jónssonar, bónda á Stórubrekku á
Höfðaströnd. Hún ólst upp í föð-
urhúsum til tvítugsaldurs, en
réðst þá í kaupavinnu að Sléttu í
Fljótum. Þar kynntist hún eftirlif-
andi manni sínum, Oddi Thorar-
ensen. Þau giftust síðan í júlí 1942.
í fyrstu bjuggu þau í Reykjavík en
fluttu síðan til Siglufjarðar þar
sem þau reistu sér heimili og
bjuggu þar ávallt síðan. Oddur rak
þar kvikmyndahús um áratuga-
skeið og veitti Guðrún honum
ómetanlega aðstoð við þann rekst-
ur. Guðrún og Oddur eignuðust
son, Hinrik Ólaf, en hann iést árið
1975 og var það þeim hjónum mik-
ið áfall. Guðrún lét hverskonar
menningar- og framfaramál á
Siglufirði mjög til sín taka, og var
virkur félagi í Kvenfélaginu Von,
Systrafélagi Siglufjarðarkirkju og
Kvenfélagi sjúkrahússins. Guðrún
átti ekki kost á langskólanámi en
var víðlesin kona og unni íslensk-
um bókmenntum. Hverja frístund
sem hún átti notaði hún til lestrar
góðra bóka og hygg ég að fáir hafi
verið fróðari en hún um íslensk
fræði. En lestur góðra bóka var
henni ekki nóg. Hugur hennar
stóð til að kynnast framandi lönd-
um og þjóðlífi þeirra. Ferðuðust
þau hjón vítt og breitt um Evrópu
og víðar. Ekki vil ég láta hjá líða
að minnast á þá miklu gestrisni og
rausn sem Guðrúnu var eðlileg. Ég
minnist þess þegar ég og kona mín
heimsóttum Siglufjörð, hvað
heimili þeirra Guðrúnar og Odds
stóð ævinlega opið fyrir gestum og
hvað Guðrúnu var það lagið að
gera svo vel við gesti sína að þeim
fannst því líkast að þeir væru
+
Sonur okkar,
HAROLD PERKINS SNEAD,
lést af slysförum í Bandaríkjunum 6. febrúar sl.
Ninna Guömundsdóttir Snead,
Edvard Colman Snead,
Newport News, Virginia.
Eiginmaöur minn, fósturfaðir, tengdafaöir og afi,
DANIEL Ó. EGGERTSSON
frá Hvallátrum, Rauðasandshreppi,
lést í Landspítalanum aðfaranótt 7. febrúar.
Anna Jónsdóttir,
Gyöa Guömundsdóttir,
Marías Sveinsson,
Anna Guórún Maríasdóttir,
Svanhildur Ó. Maríasdóttir.
+ Hjartkær eiginmaöur minn,
KRISTJÁN SCHRAM,
fyrrum skipstjóri,
Vesturgötu 36 B,
andaöist 8. febrúar.
Fyrir hönd aöstandenda, Lára Schram.
+
Faöir okkar, tengdafaöir og afi,
KJARTANPÉTURSSON,
andaöist í Landspítalanum 29. janúar.
Útförin hefur fariö fram aö ósk hins látna. Þökkum auösýnda
samúö. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 12-a Landspítalan-
um fyrir góöa umönnun.
Fyrir hönd aöstandenda.
Sólveig Kjartansdóttir,
Unnur Kjartansdóttir,
Kristjana Kjartansdóttir,
Rut Kjartansdóttir.
+
Faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi,
HALLDÓR GUNNARSSON,
skipstjóri,
Austurvegi 13, ísafiröi,
veröur jarösunginn frá ísafjaröarkirkju laugardaginn 11. febrúar kl.
14.00.
Sigrún Haildórsdóttir,
Guðfinna Halldórsdóttir,
Ragna Halldórsdóttir,
Báröur G. Halldórsson,
Guörún Halldórsdóttir,
Ásgeröur Halldórsdóttír,
Kolbrún Halldórsdóttir,
Hringur Hjörleifsson,
Árni Ragnarsson,
Elvar Ingason,
Álfhildur Pálsdóttir,
Árni Sígurösson,
Jóhann Alexandersson,
Pátur Jónasson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Konan mín,
JÓNÍNA GUÐRÚN THORARENSEN,
Aöalgötu 34,
Siglufiröi,
andaöist i Landspitalanum 31. janúar.
Jaröarförin hefur fariö fram frá Fossvogskapellu í kyrrþey aö ósk
hinnar látnu.
Fyrlr hönd vandamanna,
Oddur Thorarensen.
+
Útför móöur okkar og tengdamóöur,
RAGNHEIÐAR JÓNASDÓTTUR
frá Vestra-Miðfelli,
er lést í Dvalarheimllinu Höföa, Akranesi, þann 31. janúar fer fram
frá Akraneskirkju föstudaginn 10. febrúar kl. 14.30.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Dvalarheimilið Höföa,
Akranesi.
Börn og tengdabörn.
+
Móöursystir min,
SESSELJA KATRÍN HALLDÓRSDÓTTIR
frá Sauöholti,
verður jarösungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 10. febrúar kl.
13.30.
Fyrir hönd vandamanna,
Þórir Þóröarson.
+
Eiginmaöur minn og faöir okkar,
GUÐVARÐUR VILMUNDARSON,
skipstjóri,
Stóragerói 21, Reykjavík,
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 10. febrúar kl. 15 e.h.
Gyöa Oddsdóttir,
Gunnar Guóvaröarson,
Hafsteinn Guövaröarson,
Anna Guövaröardóttir,
Ólafur Guövaröarson.
+
Eiginmaöur minn og faöir okkar,
JÓN G. BENEDIKTSSON,
fyrrverandi framkvœmdastjóri,
veröur jarösunginn frá Kálfatjarnarkirkju laugardaginn 11. febrúar
kl. 14.00.
Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á orgelsjóö Kálfa-
tjarnarkirkju.
Helga Þorvaldsdóttir,
Sigríöur S. Jónsdóttir,
Ólafur Þór Jónsson,
Sssrún Jónsdóttir.