Morgunblaðið - 09.02.1984, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1984
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MANUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
MUJAtntx-aha'tí ir
Frétt í norska blaðinu VG:
Vakti umtal
H.A.J. skrifar frá Noregi:
„Ég er íslenskur námsmaður í
Noregi og ástæðan fyrir því að ég
sest við skriftir nú er grein í blað-
inu VH (Verdensgang) sem birtist
30. janúar síðastliðinn.
Greinin var um hundahald í
Reykjavík og með henni fylgdi
mynd af þremur lögreglumönnum
með labradorhundinn „Snorra"
særðan og blæðandi eftir „feil-
skot“ lögreglunnar.
Mynd þessi hefur vakið umtal
hérna og ekki að ástæðulausu. Ef
yfirvöld borgarinnar geta ekki
haft mannúðlegri lög um hunda-
Nýja menn
til sjón-
varpsins
Ása hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja:
— Ég vil, fyrir mína hönd og
nokkurra samstarfsfélaga,
koma þeirri fyrirspurn á fram-
færi til sjónvarpsins, hvort
verið sé að hegna fólki sem sit-
ur heima og horfir á sjónvarp-
ið.
Ég spyr að þessu, vegna þess
efnis sem sjónvarpið hefur
boðið uppá núna undanfarið.
Ég get nefnt sem dæmi þessa
ítölsku bíómynd sem sýnd var
núna um helgina, „Hnefafylli
af dínamíti", ég gæti nefnt
marga dagskrárliði sem eru
mjög lélegir og áreiðanlega
ekki uppbyggjandi fyrir nokk-
urn mann.
Mér fyndist rétt að þeir
menn, sem nú ráða sjónvarps-
dagskránni, væru látnir fara í
frí og menn með einhverja
ábyrgðartilfinningu væru sett-
ir í þeirra störf.
Það væri réttara að reyna að
lyfta fólki svolítið upp í
skammdeginu og þeirri veðr-
áttu sem hér er á veturna, í
stað þess að sýna svona niður-
drepandi efni.
hald er að minnsta kosti hægt að
svæfa dýrin, það er ekki eins
kvalafullt.
Ég vil vekja athygli á því að þó
margir hundaeigendur láti hunda
sína ganga lausa og hirði lítið um
þá, samfélaginu til óþæginda, eru
þeir margir sem hugsa vel um
hunda sína og hafa af þeim
ánægju og félagsskap, án þess að
valda öðrum óþægindum.
Væri ekki réttlátt að leyfa þessu
fólki og hundunum að vera sam-
an?
Það er ég viss um að þetta fólk
vill með glöðu geði beygja sig und-
ir lög um hundaskatt og skrán-
ingu, sem myndi einnig auðvelda
eftirlit. Og hundahald væri ekki
stórt vandamál ef slikum reglum
væri framfylgt af yfirvöldum og
hundaeigendum.
Sýnum samúð!
Með þökk.“
Tommi og Jenni
tvisvar á kvöldin
Soffía Felixdóttir hringdi og
hafði eftirfarandi að segja:
„í Velvakanda í dag (föstudag
3. febrúar) biðja „nokkrir strák-
ar“ forráðamenn sjónvarpsins að
færa Tomma og Jenna aftur á
sinn stað í dagskránni, en mér
var nú að detta í hug hvort ekki
væri hægt að sýna þá bara tvisv-
ar á mánudagskvöidum, fyrst
fyrir börnin og svo seinna sama
kvöld, til dæmis á undan fréttum
í dagskrárlok, fyrir fullorðna
fólkið. Ég vil alls ekki missa af
þessum teiknimyndum, en þessi
tími hentar mér og örugglega
fleiri konum, sem þurfa að
standa í uppþvotti eftir matinn,
mjög illa. Maður verður að rjúka
fram í stofu frá miðju uppvask-
inu, til að missa ekki af þeim.
Mér finnst Tommi og Jenni
besta efnið í sjónvarpinu og mér
finnst endilega að það ætti að
sýna þá seinna á kvöldin til að
sem flestir geti séð þá.“
Velvakandi hafði samband við
Ellert Sigurbjörnsson, dagskrár-
ritstjóra sjónvarpsins, og innti
hann eftir hvort þetta væri
möguleiki.
„Tommi og Jenni, Bogi og Logi
og annað barnaefni sem til fellur
á mánudögum og þriðjudögum,
var flutt fram fyrir fréttir, sam-
kvæmt tillögum sjónvarpsins
sem útvarpsráð samþykkti,"
sagði Ellert. „Þetta var gert
vegna margítrekaðra óska frá
foreldrum ungra barna undan-
farin ár, sem að gaumgæfilega
athuguðu máli þóttu réttmætar.
Sjónvarpið telur að með því að
sýna barnaefni virka daga fyrst
á dagskránni hafi verið komið til
móts við þann áhorfendahóp,
sem sýningartíminn skiptir
mestu máli.
Það hefur ekki tíðkast hingað
til að endursýna efni sama
kvöldið og hefur heldur ekki ver-
ið til umræðu innan sjónvarps-
ins. Ég tel að alvarleg umræða
um þetta verði ekki tekin upp
hjá sjónvarpinu, að minnsta
kosti ekki í nánustu framtíð.”
Fundur íslendinga og Arne Treholt 1971:
Fulltrúi Alþýðuflokks-
ins kom hvergi nærri
Sigurður Einarsson skrifar:
„Velvakandi.
I hinni miklu umræðu, sem orð-
ið hefur um fund fulltrúa Alþýðu-
bandalas, Samtaka frjálslyndra
og vinstri manna, Framsóknar og
Arne Treholts og félaga árið 1971,
finnst mér eitt atriði hafa
gleymst.
í þessari umræðu er löngum tal-
að um að þarna hafi verið á ferð
fulltrúar vinstri flokkanna héðan,
en athygli vekur að fulltrúi Al-
þýðuflokksins kom hvergi nærri
þessu slagtogi þeirra Stefáns
Jónssonar, Braga Jósepssonar og
Hannesar Pálssonar.
Rétt finnst mér og sjálfsagt, að
fram komi hver var fulltrúi jafn-
aðarmanna á þessu umrædda alls-
herjarþingi í New York (og hefur
sennilega ekki litist mjög vel á áð-
urnefndan félagsskap). Það var
Birgir Finnsson, fyrrverandi al-
þingismaður og forseti sameinaðs
þings.
Sá, sem hér situr við ritvél, hef-
ur ekki verið og er ekki Alþýðu-
flokksmaður, en mér fannst rétt
að athuga í gömlum blöðum, hver
þarna átti í hlut og láta það koma
fram.
Virðingarfyllst, þökk fyrir birt-
ingu.“
Hvað viltu vita
um Amnesty?
Mannréttindasamtökin Amnesty International halda
kynningarfund í kvöld, fimmtudaginn 9. febrúar kl.
20.30 í stofu 103 í Lögbergi, húsi Lagadeildar Há-
skólans. Allt áhugafólk um mannréttindamál er hvatt
til þess aö koma.
Stjórn íslandsdeildarinnar
Fisktæknir
óskar eftir góöu starfi. Reynsla af verkstjórn og víö-
tækum eftirlitsstörfum. Vel launaö starf úti á landi
kemur til greina.
Tilboö merkt: „Dugnaöur — 0616“ sendist augld.
Mbl. fyrir 15. febrúar nk.
S^5 SIG&A V/GGA É uLVEkAKl
l”1 V
•%*»*&****
- -
flpTO EREINH^ mh>m 6ILDIR i ÞLSBUM ~1BVbrrnsr,6vendur