Morgunblaðið - 09.02.1984, Qupperneq 48
32. tbl. 71. árg.
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Týr fann brot úr
aðalspaða TF-RÁN
„Já, við fundum smábrot úr aðal-
ródor þyrlunnar,“ sagði Guðmundur
Kjærnested, skipherra á varðskipinu
Tý, aðspuröur í samtali við blm.
Morgunblaðsins, en Týr kom til
Reykjavíkur í gærmorgun eftir rúm-
lega vikuleit vestur í Jökulfjörðum
að braki úr þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar, sem fórst þar í nóvember á
síðasta ári, en tókst að ná upp af 80
metra dýpi eins og sagt hefur verið
frá í fréttum.
Guðmundur sagði að veður hefði
mjög hamlað leit og af þessum
átta dögum hefði einungis verið
hægt að vinna í 2% dag. Það
þyrfti því geysilegan tíma og þol-
inmæði til að fiska svo litla hluti
upp og óvinnandi í vondum veðr-
um.
Við leitina var notuð neðansjáv-
armyndavél og sáust fleiri hlutir
úr þyrlunni á botninum. Hægt var
að staðsetja þá, en ekki gafst
tækifæri til að ná þeim upp. Auk
þess sást dreki, sem óðinn tapaði,
þegar hann var þarna að leit.
Guðmundur sagði að þeir hefðu
fengið rækjubát til að aðstoða sig
í einn dag eftir að þeir höfðu stað-
sett þessa hluti og hefði hann gef-
ið góða raun. Þeir hefðu útbúið
sérstaka botnsköfu, ekki ósvipaða
skeljaháf, en þó nokkuð léttari og
með henni hefði þeim tekist að ná
hlutunum upp. Hann sagði
óákveðið hvort og þá hvenær farið
yrði á nýjan leik, enda Týr nýlega
kominn til lands.
Karl Eiríksson, formaður flug-
slysanefndar, vildi ekkert láta
hafa eftir sér um fund þessara
hluta að svo stöddu.
Mæiingabátur í eigu Landhelgisgæslunnar, sem var fyrir vestan um leið og
Týr. Hann reyndist full léttur til að koma að gagni við leitina. Því var fenginn
rækjubátur frá ísafirði til aðstoðar. Einnig má sjá neðansjávarmyndavélina
sem notuð var VÍð leitina. Ljósmynd: Kristján Jónsson.
Morgunblaðið/Rax.
Skipverjar á Heimaey VE kampakátir með 500 tonn af loðnu undir fótum sér í Vestmannaeyjahöfn í gær. Þar
biðu þeir löndunar eins og áhafnir nokkurra annarra báta. Allar loðnuþrær frá Akranesi austur á Seyðisfjörð
eru fullar og unnið í loðnubræðslunum dag og nótt. Frá vinstri eru Óttar Egilsson, háseti, Þorkell Guðgeirsson,
2. vélstjóri, Elías Jensson, 1. stýrimaður, og Magnús Guðmundsson, 2. stýrimaður. Sjá nánar á miðsíðu.
Stálfélagið hf.:
261 umsókn um 8 störf
Vojfum, 8. febrúar.
261 umsókn hefur borist Stálfélaginu hf. um átta stöður við stálverk-
smiðjuna sem verið er að reisa við Fögruvík á Vatnsleysuströnd.
Að sögn Leifs A. Isakssonar,
formanns stjórnar Stálfélagsins
hf., eru 10 umsóknir um starf
framkvæmdastjóra, 12 um starf
skrifstofustjóra, 13 um störf
sölumanns og innkaupastjóra, 5
um starf skrifstofumanns, 12
um rafmagnsverk- eða tækni-
fræðingsstöðu, 134 umsóknir
eru um vélvirkja og vélstjóra-
stöðu, 42 umsóknir eru um
stöðu rafvirkja og 28 umsóknir
eru um stöðu forstöðumanns
mötuneytis.
Þá bárust fimm umsóknir um
fleiri en eina stöðu frá sama
einstaklingi. Leifur kvaðst
ákaflega ánægður yfir þessum
mikla áhuga sem fyrirtækinu er
sýndur. Umsóknirnar eru til
skoðunar hjá stjórninni, en
verða væntanlega teknar fyrir á
fundi 14. febrúar næstkomandi.
— E.G.
Fjallið Aconcagua.
i r
Islenskur fjallgöngumaður í Argentínu:
Komst einn síns
liðs í 6.959 m hæð
ÍSLENSKUR fjallgöngtimaður,
Hermann Valsson frá Reykjavík,
setti nýtt íslenskt hæðarmet á
föstudaginn, þegar hann komst
einn síns liðs í 6.959 metra hæð í
fjallinu Aconcagua í Argentínu.
Hermann er nú á heimleið, skv.
upplýsingum Mbl.
Hann var í hópi íslenskra
fjallgöngumanna sem hélt ný-
lega til Argentínu til að klífa
Aconcagua. Fyrsta tilraun fé-
laganna til að komast á topp
fjallsins endaði þegar þeir voru
komnir í um 6.400 metra hæð. Þá
urðu þeir, vegna háloftaveiki, að
snúa til baka til Puncta de Vack-
as, þaðan sem lagt var upp.
Hermann Valsson ákvað þá, 2.
febrúar, að fara einn og þá aðra
leið en þá, er farin var í fyrri
tilrauninni. Hann lagði upp frá
bækistöðvum félaganna, Plaze
Mulas, sem er í 4.200 metra hæð
yfir sjávarmáli. Hann komst í
5.800 metra hæð á fyrsta degi.
Daginn eftir lagði hann upp kl.
9.30 og komst í 6.959 metra hæð
kl. liðlega 18 þann sama dag.
Hærra hefur enginn íslendingur
komist gangandi. Hann hélt
niður til bækistöðva fjallgöngu-
mannanna daginn eftir.
í skeyti, sem Mbl. fékk frá
Hækkun fram-
færsluvísitöl-
unnar um 1%
UNNIÐ er að útreikningi á vísitölu I það jafngildir um 13% hækkun á
framfærslukostnaðar, miðað við I ársgrundvelli.
verðlag í febrúarbyrjun og er búizt
við, að hækkunin verði eitthvað inn-
an við 1%, sem jafngildir því, að
verðbólguhraðinn er liðlega 12% á
ársgrundvelli.
Meginástæðan fyrir hækkun
framfærsluvísitölunnar að þessu
sinni er hækkun á gjaldskrá Hita-
veitu Reykjavíkur um 25% frá 1.
febrúar sl. Áhrif hækkunarinnar á
vísitöluna eru 0,64% hækkun.
Vísitala framfærslukostnaðar
hækkaði um 0,72%, reiknuð miðað
við verðlag í janúarbyrjun, sem
jafngilti þá um 9% verðbólgu-
hraða. Af framansögðu er því
ljóst, að hækkun vísitölunnar nú,
miðað við verðlag í febrúarbyrjun
hefði verið hverfandi, ef ekki hefði
komið til hækkun á gjaldskrá
Hitaveitu Reykjavíkur.
Meðalhækkun á matvöru á sex
mánaða tímabilinu ágúst til janú-
ar er á bilinu 6—7% samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins, en
Stór dagur
hjá Jóhanni
JÓHANN Hjartarson átti 21. árs
afmæli í gær og dagurinn varð hon-
um eftirminnilegur. Hann varð al-
þjóðlegur skákmeistari með því að
vinna biðskákir sínar gegn Jóni L.
Árnasyni og de Firmian, náði for-
ustu á skákmóti Búnaðarbankans
og á möguleika á stórmeistara-
áfanga.
Fjórir íslendingar eru nú í
fjórum efstu sætunum á skák-
mótinu. Jóhann Hjartarson hef-
ur 6 'k vinning, Helgi Ólafsson
5 Vfe og biðskák, sem hann líklega
vinnur og Margeir Pétursson og
Guðmundur Sigurjónsson eru í
3.-4. sæti með 5'A vinning.
Sjá viðtal á miðopnu
Hermann Valsson
Hermanni Valssyni, segir að
veður hafi verið mjög slæmt á
fjallinu, sem sé þekkt fyrir
organdi snjóbylji. A meðan ís-
lensku fjallgöngumennirnir voru
á Aconcagua fórst argentínsk-
ur fjallgöngumaður þar og tveir
chileanskir og einn svissneskur
fjallgöngumaður voru hætt
komnir vegna háloftaveiki. óvíst
er enn um líðan þeirra þriggja,
þar sem þeir áttu í erfiðleikum
með að komast niður í tæka tíð.