Morgunblaðið - 09.06.1984, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 09.06.1984, Qupperneq 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK STOFNAÐ 1913 130. tbl. 71. árg. LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins Fundi olíumála- ráðherra frestað Manama, Bahrain, 8. júní. AP. OLÍUMÁLARÁÐHERRAR sex Arabaríkja við Persaflóa koraa saman til virtraðna á sunnudag vegna styrjaldarátakanna milli írana og íraka og hugsanlegra áhrifa þeirra á olíuflutninga. Áætlað hafði verið að fundur þeirra hæfist í kvöld, en honum hefur nú verið frestað til sunnudags, að því er segir í tilkynningu hinnar opinberu fréttastofu í Saudi-Arabíu. Frestun þessi var ekki útskýrð nánar. Arababandalagið hefur lýst yfir fullum stuðningi við Saudi-Araba og þá ákvörðun þeirra að skjóta niður íranska flugvél, sem rauf lofthelgi þeirra. Alþjóðaorkumálastofnunin telur litlar líkur á olíukreppu af völdum Persaflóastríðsins. Haft er eftir heimildum, að olíu- málaráðherrarnir muni fyrst og fremst ræða á fundi sínum hvern- ig unnt sé að tryggja siglingar olíuskipa um Persaflóa. Líklegast er talið, að það verði ofan á, að skipin verði látin sigla sem næst ströndum Arabaríkjanna þannig, að þau geti notið verndar virkja í landi og herskipa. Starfsmenn Alþjóðaorkumála- stofnunarinnar sögðu í dag, að Persafióastríðið hefði ekki haft nein áhrif á fyrirliggjandi olíu- birgðir og olíuframboð og væri ekki líklegt til að hafa það í bráð. Olíubirgðir OECD-ríkjanna 24 eru nú 414 milljónir tonna og svarar það til 97 daga notkunar. íranir héldu í dag uppi fall- byssuskothríð á fjórar íraskar landamæraborgir og eru fréttir um nokkurt mannfall. fbúar í ír- ösku borginni Basra segja, að skothríðin hafi staðið linnulítið allt frá þriðjudagskvöldi og falli sprengjurnar hvarvetna í borg- inni. Irakar segjast hafa ráðist á stöðvar írana og liðssafnað þeirra og unnið þeim mikið tjón. Símamynd AP. Mynd þessi sýnir hvernig umhorfs var í bænum Baneh í héraðinu Kurdestan í nordvesturhluta íran eftir loftárásir ísraela í gær. Talið er að meira en 32S manns hafi látist og 300 særst alvarlega. Leiðtogayfirlýsing um vestræna lýðræðishefð London, 8. júní. AP. LEIÐTOGAR sjö helstu iðn- ríkja hins frjálsa heims segja í yfirlýsingu, sem þeir létu frá sér fara í dag, að staðinn verði vörður um vestrænar lýðræð- ishefðir og er þetta í fyrsta sinn, sem því er lýst formlega yfir á leiðtogafundi um efna- hagsmál. Samkomulag hefur einnig náðst um það í megin- atriðum hvernig halda skuli á skuldakreppu þriðja heimsins. í yfirlýsingu leiðtoganna um vestrænar lýðræðishefðir segir, að þjóðir þeirra eigi það sameiginlegt að aðhyllast lög og rétt, frjálsar kosningar, frelsi og þjóðfélagslegt réttlæti. Þeir hafna því, að málum skuli ráðið til lykta með valdbeit- ingu og segjast trúa þvi, að alvar- legar deilur megi setja niður með viðræðum og samningum. Sir Geoffrey Howe, utanríkisráðherra Breta, sagði þegar hann kynnti yf- irlýsinguna, að margt hefði stuðl- að að henni, t.d. D-dagurinn, sem var í fyrradag. „Þeir, sem þá bár- ust á banaspjót, standa nú saman vörð um þær hugsjónir, sem hér er getið," sagði Howe. Samkomulag er með leiðtogun- um um málefni þriðja heimsins og hvernig bregðast skuli við þeim erfiðleikum, sem skuidabyrðin veldur þeim. Er þar í raun um að ræða sömu aðferð og hefur verið viðhöfð síðustu tvö árin en húi er í því fólgin að reyna að finna lausn á vandamálum hvers ríkis fyrir sig. Leiðtogarnir ræddu einnig í dag skýrslu, sem unnið hefur verið að í tvö ár og fjallar um samband- ið milli tæknibreytinga og atvinnu eða atvinnuleysis. Er þar hvatt til framleiðslu nýrra vörutegunda og aukinnar framleiðni i gömlum iðngreinum. Leiðtogar helstu iðnríkja heims áður en fundur þeirra hófst í dag. Fremsta röð, talið frá vinstri: Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, Yasuhiro Nakasone, forsætisráðherra Japans, Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti, Mar- garet Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, Francois Mitterrand, Frakklandsforseti, Pierre Trudeau, forsætisráð- herra Kanada, og Gaston Thorn, fulltrúi í stjórnarnefnd EBE. Sfmamynd ap Berlinguer er þungt haldinn Enrico Berlinguer Padua, fulfu, 8. júni. AP. LÍÐAN Enrico Berlinguer, leiðtoga ítalska kommúnistaflokksins, sem er 62 ára að aldri, var sögð alvarleg en óbreytt í kvöld. Hann fékk heila- blóðfall á fimmtudagskvöld. Berlinguer hefur í tólf ár verið leiðtogi ítalska kommúnista- flokksins, sem er sá stærsti á Vesturlöndum. f ítölskum fjöl- miðlum hafa Alfredo Reichlin, Ugo Pecchioli og Aldo Tortorella úr forystu flokksins verið nefndir sem hugsanlegir eftirmenn hans. Berlinguer fékk heilablóðfall þar sem hann var í ræðustóli á kosningafundi vegna kosninga til Evrópuþingsins sem fram eiga að fara 17. júní næstkomandi. Sjá „Stjórnarkreppa á Ítalíu f kjöl- far Evrópukosninga?" á bls. 22. Rússar segja Sakharov á lífi London, 8. júní. AP. SOVÉSK stjórnvöld hafa tilkynnt Bandaríkjastjórn að Nóbelsverð- launahafinn Andrei Sakharov sé „á lífi og á batavegi", að því er talsmaður Ronald Reagans til- kynnti í gær. Larry Speakes, blaðafulltrúi stjórnarinnar, lagði áherslu á að Bandaríkjastjórn biði enn eftir áreiðanlegum sönnunum þess eðlis að Sakharov væri á lífi og við góða heilsu. Georg P. Shultz, utanríkisráðherra, sagði að sov- ésk stjórnvöld ættu að leyfa óháðum aðilum að heimsækja Sakharov-hjónin og að sjálf- sögðu ætti þeim að vera heimilt að flytja úr landi æski þau þess. Bandaríska vísindaakademían hefur lýst yfir áhyggjum sínum vegna heilsufars Sakharov og tilkynnti í dag að hún hefði hætt viðræðum við sovésku vísinda- akademíuna um tæknisamvinnu milli ríkjanna. Karólína ól dreng Monte Carlo, Mónakó, 8. jónf. AP. KAROLÍNA, prinsessa af Mónakó, ól í kvöld rúmlega þrettán marka dreng að því er talsmaður í fursta- höllinni í Mónakó tilkynnti. Tals- maðurinn sagði að þeim mæðgin- um heilsaðist vel og að drengurinn myndi hljóta nafnið Andrea Albert. Karólína, sem er 27 ára gömul, giftist 29. desember síðastliðinn auðugum ítölskum viðskiptajöfri, Stefano Casiraghi að nafni. Karólína var flutt í sjúkrahús í Monte Carlo um klukkan 17 síð- degis í dag og drengurinn fædd- ist þremur klukkustundum síðar, að því er talsmaður hallarinnar tilkynnti í kvöld. Síkhar enn við Gullna musterið Nýju Delhí, 8. júní. AP. SJÖ stjórnarhermenn særðust er þeir urðu fyrir skotum leyniskytta við Gullna musterið í Amritsar í dag. Einnig fundust lík fleiri herskárra síkha, sem létu lífid í bardögum við musterið í gær, að því er segir í til- kynningu yfirvalda í kvöld. „Svo virðist sem hryðjuverka- menn haldi enn til á svæðinu við Gullna musterið," sagði M.K. Wali, innanríkisráðherra, á fundi með fréttamönnum í dag. Meira en 250 síkhar og 59 stjórnarhermenn létu lífið í bardögum er hermenn réðust inn í musterið aðfaranótt miðviku- dags. Mikil ólga er víða á Indlandi eftir bardagana í gær, og einnig hafa síkhar víða um heim mótmælt inn- rás stjórnarhermanna í helgasta musteri þeirra í Amritsar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.