Morgunblaðið - 09.06.1984, Síða 2

Morgunblaðið - 09.06.1984, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ1984 Ófaglærðir á sjúkrahúsum á Norðurlandi: Sömdu í gær SÍÐDEGIS í gær, eða laust fyrir kl. 17, náðist samkomulag í kjaradeilu ófaglærðs starfsfólks á fjórum sjúkrahúsum á Norðurlandi og sjúkrahúsanna, þannig að verkfalli því sem skall á hjá starfsfólkinu á miðnætti í fyrrakvöld hefur verið frestað fram yfir félagsfundi, þar sem samningarnir verða kynntir og bornir undir atkvæði. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins fóru aðilar bil beggja, og sömdu um kjör mitt á milli þess sem tekist höfðu samningar við starfsfólk sjúkrahúsanna á Húsa- vík og Akureyri, en Húsavíkur- samningarnir munu vera nokkuð betri en þeir sem gerðir voru á Akureyri. Aðilar vildu ekki upp- lýsa um innihald samningsins, fyrr en afstaða hefði verið tekin til hans af félagsfundum og stjórnum sjúkrahúsanna. Lítið þokast í samkomulagsátt í virkjanadeilunni hjá ríkissátta- semjara. Síðasti fundur stóð til kl. að ganga 4 í fyrrinótt, og hefur nýr fundur ekki verið boðaður. Ekki hefur verið boðaður nýr fundur í kjaradeilu línumanna í Dagsbrún gegn Reykjavíkurborg, og eins eru engar fregnir af kjara- deilu hárgreiðslu- og hárskurð- arsveina gegn meisturum. Lundúnafílharmóní- an með tvenna tónleika FÍLHARMÓNÍUSVEIT Lundúna er væntanleg til Keflavíkur laust fyrir kl. 15 í dag eftir um þriggja stunda flug frá París, þar sem hljómsveitin lék á tónleikum í gærkvöldi. Hljómsveitin, sem telur rúmlega 100 manns, heldur tvenna tónleika hér á landi. Verða þeir fyrri í kvöld undir stjórn Vladimirs Ashkenazy, sem Afmælishappdrætti Sjálfstæðisflokksins: Dregið í kvöld f kvöld verður dregið í afmælis- happdrætti Sjálfstæðisflokksins, en vinningar eru 2G ferðir um víða ver- öld. í dag eru því síðustu forvöð að tfyggja sér miða, og eru þeir, sem ekki hafa enn gert skil á heim- sendum miðum, hvattir til að taka þátt í endasprettinum. Andvirði á greiðslu miða er sótt heim ef óskað er. Afgreiðsla happdrættisins er í Valhöll, Háaleitisbraut 1. jafnframt leikur einleik á píanó, en þeir síðari annað kvöld. Vladimir verður þá einnig við stjórnvölinn, en sonur hans, Stefán, leikur einleik á píanó. Báðir tónleikarnir verða f Laugardalshöll. Mikil fyrirhöfn er að koma Lundúnafílharmóníunni til og frá landi. Þarf heila þotu af gerðinni Boeing 727-200 til flutninganna og svo mikill er farangurinn að um- fangi, að taka verður átta sæta- raðir úr vélinni til að koma honum fyrir. Hljómsveitin heldur út til Parísar að nýju að morgni mánu- dags en hún er nú á tónleikaferða- lagi um Evrópu. Ber gagnrýnend- um saman um, að hún sé einhver allra fremsta hljómsveit á sínu sviði í heiminum um þessar mund- Sigurgeir Sigurðsson um borö í trillu sinni, Sigurbjörgu. Ljósm. Mbl. KEE Rammvilltur íþokunni f FYRRAKVÖLD lentu smábátar í erfiðleikum í þokunni, sem skyndilega lagðist yfir Faxaflóann og stóran hluta Suðvestur- lands. 2ja tonna trilla, Sigurbjörg frá Reykjavík var þeirra á meðal. Um borð var einn maður, Sig- urgeir Sigurðsson. Sigurgeiri sagðist svo frá, í samtali við Mbl., að hann hefði lagt af stað frá Keflavík kl. 21 og siglt með landi í átt að Reykjavík. Þegar hann átti ófarna um 15 mínútna siglingu að Gróttu, skall þokan á og sá Sigurgeir þann kost vænstan að fara lengra frá landi til að forðast að sigla upp á land. Hann villtist af leið og er menn úr Björgun- arsveitinni Albert á Seltjarnarnesi fundu hann var hann kominn langleiðina til Akraness. Sigurgeir, sem er 67 ára gamall, kvaðst van- ur sjómaður og hefði hann verið alls óhrædd- ur, þó svo niðdimm þoka væri alltaf varasöm. Hagsveifluvog iðnaðarins 1984: Iðnaðarframleiðsla óx um 10% á fyrsta ársfjórðungi £> INNLENT Iðnaðarfraraleiðsla óx hér á landi um 10% á 1. ársfjórðungi þessa árs miöað við sama árstíma í fyrra, en um 6% ef frá er talin mik- il aukning í ál- og kísiljárnfram- leiðslu. Þetta kom m.a. fram í árs- fjórðungslegri könnun Landssam- bands iðnaðarmanna og Félags ís- lenzkra iðnrekenda á ástandi og horfum í íslenzkum iðnaði sem náði til 91 fyrirtækis í 24 iöngrein- um. Aðrar helztu niðurstöður hag- sveifluvogar iðnaðarins eru þær, að við samanburð á iðnaðarfram- leiðslunni á I. ársfjórðingi þess árs miðað við næstu þrjá mánuði á undan (þ.e. 4, ársfjórðung 1983) kemur í Ijós 5% heildaraukning í iðnaði, en um 7%, ef frá er talinn samdráttur, sem varð í álfram- leiðslu. Einnig var sala iðnaðarvöru á 1. ársfjórðungi meiri í almennum iðnaði en á sama tíma í fyrra, en vegna minni sölu á áli, stóð sala á iðnaðarvöru nokkurn veginn í stað. Hins vegar voru fyrirliggjandi framleiðslupantanir í iðnaði meiri en um sl. áramót. Þá höfðu birgðir fullunninna vara vaxið, en birgða- aukningin stafaði aðallega af aukn- um álbirgðum. Ennfremur gekk innbeimta söluandvirðis ámóta vei á 1. ársfjórðungi og á næstu þrem- ur mánuðum á undan. „Varla lengur um það deilt að bankarn- ir hafa ekki veð fyrir rekstrarlánum“ — segir Eyjólfur Konráð Jónsson „Ljóst er af ummælum Stefáns að það er deilt um það hvort laga- greinar stangist á og jafnframt auðvitað um það hvort bankarnir hafi þau veð, sem þeir telja. A.m.k. virðast þeir ekki hafa veð í rekstrarlánunum," sagði Eyjólfur Konráð Jónsson, alþingismaður, er blm. Morgunblaðsins leitaði álits hans á ummælum Stefáns Péturs- sonar, lögfræðings Landsbankans, í Morgunblaðinu í gær þess efnis að þeim sem hafa afurðir til sölu, sé heimilt að veðsetja þær. Ennfremur sagöi Eyjólfur Kon- ráð: „Svar Stefáns Péturssonar, iögfræðings Landsbankans, er auðvitað fullkomlega heiðarlegt, en því miður síðbúið, þótt það sé ekki hans sök. Hann víkur að lög- um nr. 87 frá 1960 um breytingu á veðlögunum frá 1887. Um þau lög var rætt á Alþingi áður en þings- ályktunin frá 22. maí 1979 var samþykkt og á henni og veðlögun- um í heild byggi ég þá skoðun mína að vafi leiki á um veðsetn- ingar, enda segir Stefán: „Rétt er að taka fram að það reynir á báða þætti lagagreinar- innar því sumir sláturleyfishaf- ar eignast kjötið við slátrun en aðrir taka það í umboðssölu. Þegar þeir eignast kjötið er þetta óumdeilt en í hinu tilvik- inu hefur verið deilt um hvort orðalag lagagreinarinnar geti stangast á.“ Þar með er umræðan nú kom- in á það heilbrigða stig, sem ég hef verið að reyna að knýja fram í sjö ár. Stefán bendir einnig á að allt annar háttur sé hafður á um veðsetningar landbúnaðar- vara en afurða sjávarútvegsins. Hann bendir og á að í veðlögum séu ákvæði þar sem bændum er heimilað að veðsetja ákveðna flokka búfjár síns til tryggingar rekstarlánum og bætir við: „Ég tel að sú grein hafi verið sett inn í lögin til að gera bænd- um kleift að taka rekstrarlánin beint til sín, en sú lagaheimild hefur aldrei verið notuð svo ég viti.“ Á öðrum stað segir Stefán Pétursson um landbúnaðarlánin að gerður sé afurðalánasamn- ingur við lántakandann, þar sem hann lýsi því yfir að hann veð- setji bankanum tilteknar afurðir sem hann á eða eignast kann á framleiðsluárinu með fyrsta veð- rétti og sjálfsvörsluveði og hann bætir við: „Út á þessa veðsetningu lánum við til landbúnaðarins og hefur það verið föst venja að veita slátursleyfishöfum og öðrum þeim sem annast vinnslu land- búnaðarafurða lánin." Allt er þetta rétt. Deilt er um það hvort lagagreinar stangist á og þar með um það hvort bank- arnir hafi tryggingar í þeim „veðum“ sem þeir hafa áreiðan- lega í góðri trú talið sig hafa. Eftir þessar upplýsingar sýnist mér að varla verði um það deilt að bankarnir hafi a.m.k. ekki veð fyrir rekstralánunum svonefndu, sem tekin eru löngu áður en vör- urnar berast afurðasölufélögun- um. Hygg ég að leikmenn jafnt og lögfræðingar geti lesið það út úr svari Stefáns í Morgunblað- inu í gær, sem þeir væntanlega hafa enn undir höndum. Annars er þessi lagaþræta ekkert meginmál fyrir mér held- ur að ályktun Alþingis sé fram- fylgt. Og svo langar mig auðvit- að eins og aðra að fá upplýsingar frá viðskiptabönkunum, ekki bara Landsbanka, um veð eða aðrar tryggingar, sem SÍS og kaupfélögin setja fyrir öðrum lánum. En Landsbankanum þakka ég svörin svo langt sem þau ná og heiðarlega umræðu. Annars er löggjöfin um landbún- aðarmál yfirleitt með þeim end- emum að engu er líkara en hún hafi oft á tíðum verið sett saman í þeim tilgangi að lögin væri hægt að sniðganga, svo að sá sterki gæti ráðið,“ sagði Eyjólfur Konráð. „Annars sé ég það í leiðara NT í dag að sala á landbúnaðarvör- um bafi reynst „þungur baggi á mörgum þessara fyrirtækja ... Gott dæmi um þetta er vel rekið fyrirtæki á Hornafirði, Kaupfé- lag A-Skaftfellinga. Meðan hagnaður fyrirtækisins á síðasta ári var 900 þúsund krónur reyndist tap fyrirtækisins á viðskiptum þess með landbúnað- arafurðir vera 867 þúsund krón- ur. Þetta dæmi ætti að gefa landsmönnum nægilega góða mynd af ástandinu og gildi orða Eyjólfs Konráðs Jónssonar." Svo mörg voru þau orð. Mig langar að biðja Morgunblaðið að flytja NT tilboð mitt til að ég þurfi ekki að fara að skrifa þeim í svona góðu veðri: Sameinumst um að losa um þennan bagga á lúnu baki kerfisins og leyfa bændum og neytendum að axla hann. Þá léttist hann og enginn kiknar," sagði Eyjólfur Konráð Jónsson, alþingismaður að lok- um. Samkvæmt könnuninni leiðir frekari samanburður á iðnaðar- framleiðslunni á 1. ársfjórðungi þess árs og á sama tíma í fyrra í ljós, að þróunin hefur verið hag- stæð í flestum iðngreinum. Þá eru þær iðngreinar færri þar sem framleiðsla dróst saman. Þannig jókst t.d. verulega ál- og kísil- járnframleiðsla. Einnig var framleiðsluaukning í sumum greinum matvælaiðnaðar, ullar- prjónavöru- og skinnframleiðslu, pappírsvöruframleiðslu, máln- ingagerð, gleriðnaði og sápu- og þvottaefnagerð. Loks óx fram- leiðsla lítilsháttar í tréiðnaði og málmsmíði og vélaviðgerðum. Aftur á móti dróst framleiðsla saman í veiðarfæraiðnaði, stein- efnagerð og skipasmíði. (Fréttatilkynning.) Kjaramálanefnd ASÍ: „Griðrof á ábyrgð ríkis- stjórnar“ MORGUNBLAÐINU hefur borist eft- irfarandi ályktun fri kjaramálanefnd ASÍ, sem samþykkt var einróma á fundi nefndarinnar í gær: „Með kjarasamningunum sem gerðir voru 21. febrúar sl. var við það miðað að á samningstímanum yrði kaupmáttur launa ekki lakari en sá kaupmáttur, sem launafólk bjó við á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Grundvallarforsenda samning- anna er sú að stjórnvöld hagi stjórnarstefnu sinni í samræmi við þau markmið, sem sett voru við samningsgerðina. Þrátt fyrir góða stöðu verslunar- innar og sjálfvirkar fjármagnstil- færslur til landbúnaðar heldur vöruverð áfram að hækka og kaup- máttur launa að minnka. Ríkis- stjórnin hefur því ekki staðið við þau fyrirheit, sem hún gaf launa- fólki þegar samningarnir voru gerðir. Snúi ríkisstjórnin ekki af þeirri braut, sem hún er á, er augljóst að forsendur samninganna eru brostn- ar og þau griðrof á ábyrgð stjórn- valda.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.