Morgunblaðið - 09.06.1984, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNl 1984
5
Adalfundur Almenna bókafélagsins:
Bóksala í land-
inu dróst sam-
an um 30% 1983
AÐALFUNDUR Almenna bókafélagsins var haldinn 7. júní sl. f skýrslu for-
manns, Baldvins Tryggvasonar, og framkvæmdastjóra, Kristjáns Jóhannssonar,
kom fram að nokkur samdráttur varð í útgáfu og bóksölu félagsins á sl. ári
miðað við árið 1982 — um 18%. Er það í samræmi við skýrslur bóksala sem segja
að bóksala í landinu hafi 1983 drgist saman um 30% Af þessum ástæðum var
nokkurt tap á rekstri félagsins, kr. 482 þús. Aftur á móti skiiaði Bókaverslun
Sigfúsar Ejmundssonar, sem er (eigu AB, nokkrum hagnaði.
Almenna bókafélagið gaf út árið
1983 alls 54 bækur og er þá allt með-
talið — barnabækur, kennslubækur
og endurprentanir. Af þessum bók-
um komu 15 út í Bókaklúbbi AB og
eru þær ekki til sölu á almennum
markaði.
Framkvæmdastjóraskipti urðu í
félaginu við síðustu áramót. Brynj-
ólfur Bjarnason lét af störfum eftir
8 ára farsælt starf fyrir félagið, til
að taka við forstjórastarfi fyrir
Bæjarútgerð Reykjavíkur. Við
framkvæmdastjórastarfinu tók
Kristján Jóhannsson cand. merc.
Af viðburðum ársins 1983 nefndi
formaður meðal annars það að
bókafélagið hefði gerst eignaraðili
að Isfilm. Sömuleiðis að félagið
hefði dregið sig út úr útgáfu tíma-
ritsins Storðar, sem það hafði gefið
út í samvinnu við Iceland Review.
Tók formaður fram að þau sam-
vinnuslit hefðu hvorki stafað af
ósamkomulagi við samstarfsaðilann
né af fjárhagsástæðum, heldur ein-
göngu af því að óheppilegt sé að
tveir aðilar standi að slíkri tíma-
ritsútgáfu.
Stjórn félagsins var endurkjörin,
en hana skipa: Baldvin Tryggvason,
sparisjóðsstjóri, formaður, og með-
stjórnendur þeir Davíð Oddsson,
borgarstjóri, Davíð Olafsson, seðla-
bankastjóri, Erlendur Einarsson,
forstjóri, Gylfi Þ. Gíslason, prófess-
or, Halldór Halldórsson, prófessor,
og Jón Skaftason, yfirborgarfógeti.
Varastjórn skipa þau Eyjólfur
Konráð Jónsson, alþingismaður,
Sólrún B. Jensdóttir, skrifstofu-
stjóri, og Þráinn Eggertsson, pró-
fessor.
Allmiklar umræður urðu á fund-
inum um stöðu bókarinnar í ís-
lensku þjóðfélagi nú. Töldu ýmsir
mikla nauðsyn á einhverjum að-
gerðum til að auka gengi hennar
sem virtist vera hnignandi. Væri
slíkt hættulegt, ekki aðeins fyrir
bókaútgáfuna i landinu, heldur
einnig fyrir menningu þjóðarinnar.
Matthías Johannessen, skáld, flutti
í þessu sambandi skelegga hugvekju
þar sem hann lagði ljóslega niður
fyrir fundarmönnum hve illa væri
hér að bókum og höfundum þeirra
búið og bar það saman við hliðstæð-
ur í nágrannalöndunum. Sýndi hann
fram á að hvergi á nálægum slóðum
— líklega hvergi í heiminum — tek-
ur ríkið til sín eins stóran hluta af
andvirði hverrar bókar og hér á ís-
landi.
(Frétt frá Almenna bókafélaginu)
Hvítasunnukappreiðar Fáks
HINAR árlegu hvítasunnukappreiðar Fáks verða með nokkuð nýstárlegum
hætti að þessu sinni. Lögð verður áhersla á að dagskráin verði hröð, fjöl-
breytt og standi aðeins yfir i tæpar tvær klukkustundir. Verður þetta svoköll-
uð „hátíðardagskrá" þar sem úrvalssýningum og keppnisatriðum verður
komið fyrir í mun styttri dagskrá en áður hefur þekkst. Með þessu móti
vænta Fáksmenn þess að dagskráin höfði meir til almennings, sem ekki
hefur úthald í að fylgjast með langri dagskrá. Þá verður lífgað upp á hátfðina
með lúðrasveit og sérstaklega valinni hljómsveit.
Dagskráin hefst á annan í hvíta- Víðivöllum eða, ef svo vill til, Is-
sunnu kl. 14, með því að sýndir landsmetið. Sérstök metverðlaun
verða fimm efstu hestar í A- og yrðu þá veitt. Þá verða úrslit í öll-
B-flokki gæðinga, unglingaflokk- um hlaupagreinum. Glæsilegir
um og töltkeppni þeirri sem nú tölthestar verða sýndir og hópur
verður í fyrsta sinn keppt í fyrir fljótustu skeiðhesta sýnir listir
hinn almenna félagsmann. Þá sínar í óformlegri hópsýningu
verður svokallað „stjörnuskeið", skeiðhesta. Áhorfendur velja
þar sem átta fljótustu skeiðhestar glæsilegasta gæðing mótsins og
í hvorum flokki (150 og 250 m knapar velja besta knapa keppn-
skeiði), reyna að slá vallarmet á innar.
Adda Bára hættir í borgar-
stjórn eftir þetta kjörtímabil
ADDA Bára Sigfúsdóttir, borgar-
fulltrúi, Alþýðubandalagsins hefur
ákveðið að gefa ekki kost á sér til
setu í borgarstjórn að loknu þessu
kjörtímabili, en Adda Bára hefur á
undanfornum 24 árum setið 20 ár í
borgarstjórn.
Adda Bára skýrði borgarmála-
ráði Alþýðubandalagsins frá
þessari ákvörðun sinni fyrir
nokkru, en nú hefur hún staðfest
þessa ákvörðun sína opinberlega.
Áður en Adda Bára tók sæti í
borgarstjórn, var hún varamaður
í borgarstjórn í tvö kjörtímabil.
Einstakur
tónlistar-
viðburður!
Philharmoniusveitin frá Lundúnum
heldur tvenna tónleika í Laugardalshöll
laugardaginn 9. og sunnudaginn 10. þ.m.
Efnisskrá Efnisskrá
laugardaginn 9. júní kl. 20.30: sunnudaginn 10. júní kl. 20.30:
Ravel: Gæsamömmusvíta Delíus: Við að heyra í fyrsta vor-
Mozart: Píanókonsert K. 456 gauknum
Einleikari: Vladimir Ashkenazy Tchaikowsky: Píanókonsert no. 1
Hlé Hlé
Síbelíus: Fimmta sinfónían Tchaikowsky: Fjórða sinfónían.
LISTAHÁTÍÐ í REYKJAVÍK
«1-17 }ÚNl
MIÐASALA:
Gimli v/Lœkjargötu: Opiö frá kl. 14.00—19.30.
Slmi 621155. Vörumarkaöurinn Seltjarnarnesi og
Mikligaröur v/Sund:
Laugardag kl. 10.00—16.00
Einleikarar:
Vladimir Ashkenazy
og Stefán (Vovka)
Ashkenazy
Stjórnandi:
Vladimir
Ashkenazy