Morgunblaðið - 09.06.1984, Side 7

Morgunblaðið - 09.06.1984, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1984 ^ ----------------------------- 7 Vídóleigan Þór auglýsir Fullt af nýjum myndum til leigu. Leigjum einnig út VHS-tæki. Fullt af nýju efni í hverjum mánuöi. Opiö virka daga frá kl. 16.30—23.30 — helgar frá kl. 14.00—23.30. Afh.: ef þér takiö þrjár spólum fáiö þér fjóröu spóluna frítt. Myndbandaleigan Þór, Laufásvegi 58, sími 12631. Kramhúsið dans- og leiksmiðja Kennum: Leikfimi — Jazzdans — Fimleika — Breakdans — Dansspuna 3ja vikna námskeiö hefjast 12. júní fyrir konur og karla, byrjendur og lengra komna. Morgun-, dag- og kvöldtímar. Sérstakir unglingatímar Innritun alla helgina í síma 15103. Umsvif Sovétmanna á íslandi Framferöi sovéskra sendimanna sl. þriöju- dag er þeir lokuöu á fulltrúa átta þúsund íslendinga hefur vakiö undrun og hneyksl- un margra. Um þá ókurteisi er starfsmenn sendiráösins sýndu er fjallaö í Staksteinum í dag. Einnig er vakiö máls á því hvaö raunverulega gerist bak viö læstar dyr sendiráösins og hvernig starfsmenn reyna aö hafa áhrif á ómótaöa æskumenn meö veisluboöum og ööru er henta þykir. Of lítið sendiráð? í sendiráði Sovétríkj- anna í Reykjavík eru 30—40 starfsmenn. Ekkert sendiráö á íslandi er eins fjölmennL Hins vegar virð- ist svo vera að mannekla standi sendiráðinu fyrir þrifum og því nær ókleift að sinna þeim verkefnum er inna þarf af hendi. Þetta kom berlega í Ijós þegar afhenda átti sendiherra Sovétríkjanna á fslandi undirskriftir átta þúsund íslendinga til stuðnings Sakharov-hjónunum. Þá var komið aö lokuðum dyr- um. „Við höfðum mikið að gera," var sú skýring sem blaðafulltrúi sovéska sendiráðsins gaf er Morg- unblaðið spurðist fyrir hvers vegna íistunum hefði ekki verið veitt móttaka. Hver trúir því að þetta fjöl- menna starfslið hafi það mikið að gera að enginn hafi tíma til að sýna þá lág- markskurteisi að taka við skilaboðum átta þúsund fs- lendinga til sovéskra stjómvalda? Framferði fulltrúa þeirra á íslandi vekur undran og reiði. Ókurteisi og bamaskapur f Alþýðublaðinu í gær gerir Guömundur Arni Stefánsson þessa ókurteisi og barnaskap Sovétmanna að umtalsefni, og segir meðal annars: „Halda Sov- étmenn að þar með hafi þeir drepið niður alla um- ræðu um þetta mál með því einu að vera ekki til við- tals? Nei, varla, þvf þessi afstaða sendiráðsins er sem olía á eld fólks hér á landi. Sýnir enn betur stirfni og stífni hins sov- éska kerfis, þegar almenn- ingur vill láta skoðanir sín- ar í Ijós. I»á hrekkur kerfið í baklás. Það er ekki vant því að fólk, almenningur, eigi að hafa skoðanir, sem það vill koma á framfæri. Uppákoman við sovéska sendiráðið í vikunni hefur ekki aðeins vakið undrun meðal fólks, heldur einnig kallað fram bros, því felu- leikur scndiráðsstarfs- manna er hlægilegur barnaleikur. Alvarlegri hlið þessa máls er þó sá dónaskapur sem „diplómatar" sýna ís- lenskum almenningi með þessum viðbrögðum. Yfir- leitt hefur það verið hald manna að erlendir sendi- menn væru ekkert annað en kurteisin uppmáluð, enda hafi þeir slík fyrir- mæli að heiman. Eitthvað hefur „diplómatían" rugl- ast hjá Sovétmönnum á Is- landi sl. þriðjudag." Aö baki luktum dyrum í kjölfar umra-ddra at- burða hefur sú spurning vaknað í hugum margra hvað raunverulega gerist bak við læstar dyr sendi- ráðsins sem hefur á að skipa þessu fjölmenna starfsliði, — það veit eng- inn. Þaö kann þó aö vera I að sérstaklega illa hafi staðið á sl. þriöjudag klukkan 15.30. Kannski þeir hafi verið að horfa á sovéska sjónvarpið? Ef til vill hefur þar verið fræðslu- þáttur um „góðverkin" í Afganistan. Móttaka sjón- varpssendinga frá heima- landinu er sendiráðsmönn- unum möguleg vegna þess að þeir hafa ekki hirt um að fara eftir samþykkt byggingarnefndar Reykja- víkur um að taka niður sjónvarpsskerminn fræga á svölum sendiráðsins. Hversu lengi ætla ís- lensk yfirvöld að líða sendimönnum erlends ríkis að fara sínu fram í bága við tilskipanir? Hér skiptir engu hver á í hlut, en það skal dregið stórlega í efa að önnur sendiráð leyfðu sér slíka hegðun. Fyrr í þessari viku var á það bent hér í Staksteinum að sérstök áróðursmiðstöð Sovétríkjanna, APN-frétta- stofan, væri rekin hér í Keykjavík. með leyfi ís- lenskra stjórnvalda. Henn- ar hlutverk er að læða inn og koma á framfæri við fjölmiðla sjónarmiðum og áróðri Kremlverja. En þó það skipti miklu máli fyrir sovésk stjórnvöld að geta lætt inn föLskum upplýsing- um í vestræna fjölmiðla er annað mikilvægara — samskipti við ungmenni og samtök þeirra. Veisluboð í mörg ár hefur sendiráð Sovétrikjanna í Reykjavík lagt mikla rækt við tengsl við /Eskulýðssamband Is- lands. Árlega boðið félög- um þess til veLslu þar sem hvorki skortir mat né drykk. Og á hverju ári fara fulltrúar /Eskulýðssam- bandsins til Sovétríkjanna á vegum sendiráösins hér. I*essar aðferðir hafa gef- ið góða raun erlendis og því skyldu þær ekki gagn- ast á íslandi? Með per- sónulegum tengslum er hægt að hafa áhrif á ómót- aöan æskumann. Frásagnir margra Norðmanna vegna handtöku Arne Treholts í vetur sýna best hvað hér getur verið í húfi. á bverjit degi Snpa dagsins. IVýrsoðinn lax m/kartöflum og gúrkusalaái. Kaffí. Hið íslenska kennarafélag: Hópuppsagnir í haust líklegar - stofnun Bandalags kennara samþykkt Á AÐALFUNDI Hins íslenska kennarafélags var samþykkt áskorun til stjórnar félagsins að veita viðtöku uppsagnarbréfum frá kennurum, er liggi fyrir í upphafi næsta skólaárs ef ekki næst fram leiðrétting á kjörum þeirra. Að sögn Kristjáns Thorlacius, formanns HÍK, er líklegt að verulegur fjöldi kennara grípi til þess ráðs að segja upp störfum, að óbreyttu. Umræður um kjara- og launa- mál settu mikinn svip á störf að- alfundarins, en mikil óánægja ríkir meðal kennara með þau og er ljóst að ráðningar nýrra kenn- ara ganga víða illa. Ákveðið var að koma á fót að- gerðanefnd og mun hún stýra og samhæfa þær aðgerðir sem rétt þykir að grípa til. Hins vegar voru engar ákvarð- anir teknar um úrsögn úr BHM, en stjórn HÍK var falið að efna til umræðna meðal félagsmanna um málið. Þá var samþykkt til- laga stjórnar um að HlK og Kennarafélag Islands stofni Bandalag kennara er verði sam- eiginlegur vettvangur í kjarabar- áttunni. Aðalfundurinn lýsti og stuðningi við hugmyndum um Friðarfræðslu og friðaruppeld með meginþorra atkvæða. Stjórn Hins íslenska kennara félags skipa: Kristján Thor lacius, formaður, ómar Árnason Gunnlaugur Ástgeirsson, Dan fríður Skarphéðinsdóttir, Kristír Jónsdóttir, Kristján Bers Ólafsson, Þorkell Steinar Ell ertsson, Þóra Kristín Jónsdóttir Ingveldur Sveinbjörnsdóttir Gerður Guðmundsdóttir, og Þor steinn Gunnarsson. Hugheilar þakkir til allra þeirra ættingja og vina sem minntust mín á áttrœðisafmœli mínu 8. maí si með gjöfum, skeytum og símtölum, og gerðu mér daginn ógleymanlegan. Guð blessi ykkur öll. Ólöf Jónsdóttir frá Kirkjubæ.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.