Morgunblaðið - 09.06.1984, Síða 8

Morgunblaðið - 09.06.1984, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNl 1984 jMmgOsö œdÉ3 Umsjónarmaður Gísli Jónsson 246. þáttur Jón Á. Gissurarson í Reykjavík skrifar mér og stað- festir seinni gerð vísunnar í síðasta þætti, þá gerð sem Baldur Steingrímsson kunni. Jón tilgreinir einnig sama höf- und og og segir: „Sumarið 1928 kenndi Þor- valdur Þórarinsson, síðar lög- maður í Reykjavík, mér hana, (þ.e. vísuna) en þá unnum við að vegagerð uppi í Norðurár- dal. Þorvaldur taldi höfund vera séra Þorleif Jónsson á Skinnastað ... Aðra vísu kunni Þorvaldur eftir séra Þorleif. 1 öxarfirði hafði ríkt rosi langa tíð, svo að hey lágu undir skemmdum og til vandræða horfði. Sóknar- börn komu að máli við klerk, að hann bæði af stólnum fyrir betri tíð. Og hér kemur bæn hans: Mörg á dynur mæðan ströng, minn Guð, þú hjálpa hlýtur, því erfiði vort og aflalong ætlar að verða skítur. Ekki vill Jón að ég birt meira úr bréfi hans. Hlýði ég því og kveð hann með virktum. ★ Enn hef ég, l.s.g., fengið Pálsbréf, og byggist það, sem eftir er þessa þáttar, á því. Páll hefur bréf sitt á vísu þess- ari: Þó um snápa og sóða sið, » séum við að fjasa, sömu hejgarðsbornin við handvammirnar blasa. Því miður eru mörg þau dæmi, sem hann tínir til úr blöðum og tímaritum, þessu til staðfestingar. Langflest dæm- in eru um staglstíl, hversu sem við höfum reynt að útrýma honum. Ég læt þessi dæmi flakka athugasemdalítið, en með leturbreytingum: 1. „í tryggingalögunum eru þó heimildarákvæði um að heimild sé til að kosta fylgd- armenn ..." 2. „... og sagði meðal ann- ars að Eimskip vildi fjármagna undirbúning Einars fyrir ólympíuleikana, leggja fram það fé, sem Einar næði ekki að fjármagna með öðrum hætti ..." Ofan á staglið er hér talað um að fjármagna fé, svo smekklegt sem það tal er. 3. „Lærðir alþingismenn eru vel undirbúnir undir þetta á bændaskólunum.“ 4. „Ákvörðun hefur ekki ver- ið tekin varðandi tillöguflutn- ing varðandi framkvæmdir við verksmiðjubygginguna." 5. „... er einnig mikilsvert að konur gái einnig að sér ..." 6. „ólafur sagði að fyrir fundinum í gær hefði legið fyrir skýrsla vísindamanna ... “ . Þarna hefur sem sagt skýrsla lagst fyrir. 7. „... að það hefur dregið alveg stórkostlega úr tann- skemmdura hjá íbúum fylkis- ins, að því er varðar tann- skemmdir. Þetta fer ekki milli mála. 8. „Einnig tekur vinnustofa hans að sér að taka að sér að gera venjulegan fatnað skot- heldan." 9. „Fjármagnskostnaðurinn einn kostar ca. 2000 dollara á flugtíma." Þessa setningu þyrfti reyndar að umskrifa frá grunni. Umsjónarmanni skilst að kostnaðurinn sé um það bil 2000 dollarar á hvern flugtíma. Með því að gaumgæfa letur- breytingarnar í þessum dæm- um ættu menn auðveldlega að átta sig á þeim varnaðarvítum sem þarna er að finna. Leið- réttingar eru yfirleitt auðveld- ar, ef menn vanda sig pínulít- ið. ★ Óþarfi er að taka það fram að gæði séu góð. Gæðin geta hins vegar verið mismikil. „Þau (gæðin) hafa ekki verið nógu góð hjá okkur hingað til“, segir í einni klausu úr Páls- bréfi. Gæðin þarna hafa ekki verið nógu mikil. Enn minnir Páll Helgason okkur á ruglinginn á notkun sagnanna að sigra og vinna. Helgi ólafsson sigraði ekki jólaskákmót Otvegsbankans. Hann vann það. Hins vegar sigraði hann keppinauta sína á þessu móti. Ástæða er til að minna um leið á rangnotkun sagnarinnar að vinna í öðru sambandi. Þessi sögn er nú stundum notuð að enskum hætti, þegar sagt er frá úrslitum kosninga. Nýlegt dæmi er frá Egyptalandi, þeg- ar í blöðum og útvarpi kom að flokkur í Egyptalandi hefði unnið þrjú hundruð áttatíu og eitthvað þingsæti af 400. Flokkurinn fékk þessi sæti. Ef flokkur eða frambjóðandi vinn- ur þingsæti, tekur hann það af einhverjum sem hafði það áð- ur og tapar því nú. ★ Það er aldeilis ekki sama að bera fyrir brjósti og berja fyrir brjósti. Páll Helgason hefur úr blaði: „ ... það væri mikil þörf fyrir að greiða því fólki hærra kaup, sem Aðalheiður Bjarn- freðsdóttir og Bjarni Jakobs- son berðu (auðkennt hér) fyrir brjósti." Nú er bágt, þegar þessi verkalýðsleiðtogar eru farnir að berja umbjóðendur sína fyrir brjósti sér. Barsmíðin gæti þó verið á verri stað, en þetta minnir umsjónarmann á gamalt rímnaerindi: „Ekki sér hann sína menn, svo hann ber þá líka.“ Rétt mál væri að verkalýðs- leiðtogarnir bæru hag fólks fyrir brjósti. P.s. Auk þess legg ég til að við munum að boðháttur af setjast og leggjast er sestu og leggstu, ekki settust og legðust, eins og stundum heyrist. Sem sagt. sestu niður og leggstu útaf. P.p.s. Heimasími umsjónarmanns er (96)-22515 og heimilisfang Skarðshlíð 26g, Akureyri. usava FLÓKAGÖTU 1 SÍMI24647 Opið 1—4 Einbýlishús vlö Bergstaöastrætl (tlmburhús) sem er tvær hæöir og kjallari I góöu standi, 6—7 herb. Bílskúr. Verö 4 millj. Einbýlishús i Garöabæ á Flötunum, 6 herb. 143 fm. Laus fljótlega. Einbýlishús í austurbænum í Kópavogi, 5 herb. Stórt vinnurými. 40 fm bílskúr. Verö 4,5 millj. Parhús viö Heiöargerði, 7 herb. 2 eld- hús. Tvíbýlisaöstaöa. Bílskúr. Nýteg eign. Verö 4,8 millj. Jörö — Félagasamtök Hef í einkasölu jörö í Ölfusi sem er ca. 50 ha. Tún 24 ha. Á jörö- inni er íbúöarhús 7 herb., fjós fyrir 35 fjárhús fyrir 100 kindur, hesthús fyrir 20 hesta, hlööur og verkfærageymsla. Jöröin hentar vel fyrir félaga- samtök. Hatgi Ólaftuon, (öggíltur fatttignauali, kvökfaími: 21155. 29555 Símatími í dag 13—15 Lokað á morgun 2ja herbergja íbúðir: Seljaland. 30 fm einstakl.íbúö á jaröhæö. Verö 850 þús. Krummahólar. Mjög falleg 65 fm ibúö á 3. hæö. Suöursvalir. Verö 1250 þús. Þangbakki. Góö 65 fm íbúö á 7. hæö. Þvottahús á hæöinni. Verð 1400 þús. 3ja herbergja íbúöir: Hjallavegur. Góö 75 fm íbúö í risi. Laus strax. Verö 1400—1450 þús. Kleifarvegur. 110 fm ibúö á jaröhæö. Sérinng. Sérhiti. Verö 1900 þús. Furugrund. Mjög góö 90 fm íbúö á 3. hæö. Suöursvalir Verö 1650 þús. 4—5 herbergja íbúöir: Rauöalækur. Góö 130 fm sér- hæð. Réttur fyrir 60 fm bílskúr. Verö 2800 þús. Frakkastígur. Mjög góö 100 fm hæö í nýlegu húsi. Bílskýli. Verö 2 millj. Kríuhólar. Glæsileg 127 fm íbúö á 6. hæö í lyftublokk. Verö 1950 þús. Gnoðarvogur. Góö 110 fm íbúö á 3. hæö í fjórbýli. Verö 2,3 millj. Kaplaskjólavegur. Stórglæsi- leg 115 fm fbúð á 6. hæð. Tvennar svalir. Einbýlishús og raöhús: Kópavogur. Mjög gott 200 fm einbýli á einni hæö. Stór falleg lóö. Grettisgata. 3x45 fm einbýll. Hús sem gefur mikla mögu- leika. Verö 1800 þús. fcjf >yaisl>n EIGNANAUSTe^ Skipnoni 5—103 Hmykiavm Símar 29555 — 29558 Hróllur H/altavon, viOak.fr. m (itfrift s 2 Metsö/ub/aó á kverjum degi! 43307 Opið laugardag kl. 1—4 Hraunbær 2ja herb. íbúö á 2. hæö. Verö 1250 þús. Hamraborg Mjög góö 3ja herb. íbúö. Bíl- skýli. Verö 1650 þús. Engihjalli Mjög góð ca. 96 fm 3ja herb. íbúö. Laus í ágúst. Verö 1670 þús. Ásbraut Mjög góö 4ra herb. íbúö ásamt bílskúr. Verö 2100 þús. Furugrund 4ra herb. ca. 100 fm íbúö ásamt herb. i kjallara. Verö 2050 þús. Fellsmúli Mjög góö 4ra—5 herb. 125 fm íbúö. Verö 2,3 millj. Kársnesbraut Góö efri sérhæö ca. 110 fm ásamt 30 fm bílskúr. Gott út- sýni. Goöheimar 155 fm 6 herb. haaö ásamt 30 fm bílskúr. Verö tilboö. Hlíöarvegur Mjög góö 120 fm efri sér- hæö ásamt 30 fm bílskúr. Gott útsýni. Verö 2,9 millj. KIÖRBYLI FASTEIG N ASALA Nýbýlavegi22 III hæð (Dalbrekkumegin) Sími 43307 Sötum.: Svuinbjðrn Guömund«on. Rafn H. Skúlavon, löfltr. HRAUNHAMAR FASTEIGNASALA 54511 HAFNARFIRÐI Opið kl. Einbýlishús Erluhraun Gott 190 fm einbýlishús. Bíl- skúr. Nánari uppl. á skrifstof- unni. Arnarhraun Rúmlega 200 fm einbýlishús á tveimur hæöum. Ræktaöur garöur. Bílskúrsréttur. Noröurbraut Mjög glæsil. nýtt einbýlishús, 300 fm. 4 svefnherb., stórar stofur meö arni, stórt sjón- varpshol. Grænakinn 6 herb. einbýlishús á tveim hæöum. Bílskúr. Verð 3,5 millj. Raðhús Yrsufell Rvk. 145 fm raðhús á einni hæö. Bílskúr. Verö 3,2 millj. Noröurbær 138 fm endaraöhús meö bíl- skúr. Verö 3,5 millj. Óskast í skiptum f. endaíbúö f blokk, ásamt bílskúr. Hvammar Glæsilegt 240 fm raöhús, sjö herb. Bílskúr. Verö 4,5 millj. Sérhæöir Sunnuvegur 4ra herb. efri sérhæö í tvíbýlis- húsi. Verö 1950—2000 þús. Ásbúöartröö 167 fm sérhæö í tvíbýlishúsi, 4 svefnherb. Bílskúr. Verö 3,5 millj. Kvíholt Góö efri hæö í tvíbýlishúsi, 5 herb. Sér inng. Bílskúr. Verö 3,2 millj. Ölduslóö Glæsileg 145 fm neöri hæö í tvíbýli. 4 svefnherb. Sér inng. 30 fm bflskúr. 4ra—5 herbergja íbúðir Hjallabraut 115 fm íbúö á 4. hæö. 3 svefn- herb. Verö 2 millj. 1—3 Breiövangur 5 herb. endaíbúö í fjölbýlishúsi á 4. hæö. Suöursvalir. Bílskúr. Verö 2,3—2.4 mlllj. Breíövangur 116 fm íbúö á 4. hæö. 4 svefn- herb. Verö 1850—1900 þús. Álfaskeiö 105 fm íbúö á 2. hæð. Bílskúr. Verö 2 millj. 2ja—3ja herb. Suöurgata 2ja herb. fokhelt ibúö á jarö- hæö. Verö 600 þús. Sléttahraun 2ja herb. góö íbúö í fjölbýlis- húsi. Laus strax. Verö 1400 þús. Njálsgata Rvík 3ja herb. íbúö í fjölbýlishúsi. Verö 1600 þús. Miövangur 45 fm einstaklingsíbúö á 2. hæð í fjölbýlishúsi. Verö 1050— 1100 þús. Kaldakinn 2ja herb. íbúö í tvíbýlishúsi. Bflskúr. Verö 1500 þús. Sléttahraun Góð 100 fm íbúö á 2. hæð. Þvottahús innaf eldhúsi. Btl- skúr. Verö 1850 þús. Vitastígur 3ja herb. mjög góö íbúð í þrí- býlishúsi. Ósamþ. Laus strax. Verö 1300 þús. Ölduslóð 85 fm jaröhæð. Sérinng. Bíl- skúr. Verö 1750 þús. Hólabraut 3ja herb. íbúö á 2. hæð í fjölbýl- ishúsi. Suöursvalir. Verö 1550 þús. Álfaskeiö 92 fm íbúö á 3. haBÖ. Bílskúr. Verö 1650—1700 þús. Holtsgata 95 fm íb. á 2. hæö. Bílskúr. Verö 2 millj. Holtsgata 85 fm íb. á jaröhæö. Sér inng. Verö 1400 þús. Erum meö kaupanda aö sérhæö í tví- eöa þríbýli í Hafnarfiröi. VJÐ ERUMÁ REYKJAVÍKURVEGI72, HAFNARFTRÐI, Bergur A HÆÐINNl FYRIR OFAN KOSTAKAUP éé RH HRAUNHAMAR fl fl FASTEIGNASALA unnamar n' Reykiíiv «u,rveqi Hatnar1>rd' S S4í>11 | Magnút S. Fjeldsfed. Hs. 74807.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.