Morgunblaðið - 09.06.1984, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 09.06.1984, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1984 11 Samband íslenskra rafveitna: Áhersla lögð á að færa niður verð á raforku AÐALFUNDUR Sambands ísl. raf- veitna var haldinn í Reykjavík fyrir skömmu. í setningarrædu sinni ræddi Aðal- steinn Guðjohnsen, formaður SÍR, m.a. um skattlagningu raforku og skatt á efni til rafveituframkvæmda. Lagði hann áherslu á, að allt verði gert til að færa niður verð á raforku með minnkaðri skattlagningu, bættu skipulagi og hagkvæmni í rekstri, gjaldskrám, sem hvetji til góðrar nýtingar á afli, orkusparnaði og eðli- legri verðlagingu. í svipaðan streng tók Sverrir Hermannsson, iðnaðar- ráðherra, sem ávarpaði fundinn, og sagði iðnaðarráðherra ennfremur, að vanræktir hefðu verið ýmsir þættir, Ld. í fræðslu fyrir almenning um rafmagn. Á fundinum fluttu erindi þeir Þorkell Jónsson, deildarstjóri Tækniskóla íslands, sem skýrði frá rannsóknum skólans og Raf- magnsveitu Reykjavíkur á mæl- ingum á dreifikerfi í íbúðarhúsa- hverfi, og Jón Vilhjálmsson, deild- arstjóri hjá Orkustofnun, um dreifingu á raforkunotkun á árs- grundvelli. Eggert Ásgeirsson ræddi um almannatengsl raforku- fyrirtækja og nauðsyn þess að fyrirtækin eigi traust almennings. Stefán Arngrímsson flutti er- indi um samskipti rafveitna á Norðurlöndum við viðskiptavini sína. Um það efni tóku einnig til máls þeir Árni Sigurbjörnsson og Magnús Oddsson, sem höfðu ásamt Stefáni sótt norræna sér- fræðingaráðstefnu, þar sem fjall- að var um almannatengsl raforku- fyrirtækja. Edvard G. Guðnason ræddi um samskipti Landsvirkjunar og orkukaupenda, sem eru margbrot- in í orkusölukerfinu, bæði í dag- legum rekstri og þegar bilanir verða. Stjórn SÍR tilkynnti á fundinum, að hún hefði ákveðið að setja á fót nefnd til að endurskoða lög félagsins. Þá tilkynnti hún einnig, að Guðjón Guðmundsson, fyrrum fjármálastjóri Rafmagns- veitna ríkisins, hefði verið kjörinn heiðursfélagi sambandsins. í stjórn SÍR eru: Aðaisteinn Guðjohnsen, formaður, Halldór Jónatansson, varaformaður, Garð- ar Sigurjónsson, ritari, Kristján Jónsson, gjaldkeri, auk meðstjórn- endanna Jónasar Guðlaugssonar, Kristján Haraldssonar og Sverris Sveinssonar. Varastjórn skipa: Guðjón Guðmundsson, Sigurður Ágústsson og Sigfús Guðlaugsson. NÝTT LEIÐAKERFI STRÆTISVAGNA KÓPAVOGS Sælukot, nýr leikskóli Dagvistunarfélagið Sælutröð, samtök áhugafólks um dagvistun barna, hóf starfsemi sína fyrir tveimur árum. Síðan þá hefur fé- lagið starfrækt leikskólann Sælu- kot að beiðni foreldra, sem ekki fengu dagvistunarpláss fyrir börn sín á dagvistarstofnunum borgar- innar. Leikskólinn hefur verið rekinn í bráðabirgðahúsnæði sem for- eldrar hafa lagt til og þar hafa dvalist að jafnaði 10 börn. I millitíðinni hefur verið unnið að því jöfnum höndum að útvega leikskólanum öruggt og ódýrt húsnæði og hefur sú leið verið valin að festa kaup á einingahúsi til að reisa á lóð sem borgaryf- irvöld hafa látið í té, við Reykja- víkurveg í Skerjafirði. Heimilið mun rúma 44 börn. „Við höfum í hyggju að leiða inní leikskólastarfið markviss- ara kennslu- og uppeldisstarf og sækjum hugmyndir okkar að nokkru í uppeldiskenningar Maríu Montessori," sagði Ingi- björg Karlsdóttir, sem er í stjórn Sælutraðar. „Þær miðast við að örva vitsmunaþroska barnsins. Hún hefur hánnað sérstök þroskaleikföng og leikkerfi sem börnin fylgja. Einnig munum við nota rjómann af kenningum Rudel Steiners. Hann vill þroska sköpunargáfu barnsins og vinn- ur aðeins með náttúruleg efni. Nú þegar erum við komin með helming þess fjármagns, sem við þurfum, en til þess að við getum hafið starfsemina í haust þurf- um við að afla nokkurs fjár, og 7.-9. júní verðum við með merkjasölu." A VJterkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamióill!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.