Morgunblaðið - 09.06.1984, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNl 1984
o r
13
Ragnhildur Helgadóttir, menntamálariðherra, afhendir Vilbergi Júlíussyni,
skólastjóra Flataskóla, líkanið af Hausastaðaskóla. Listamaðurinn, Tumi
Magnússon, stendur hjá.
Afhent líkan af
Hausastaðaskóla
Á 25 ira afmæli Flataskóla í
Garðabæ, hinn 18. október sl., ikvað
menntamilariðherra, Ragnhildur
Helgadóttir, að gert yrði likan af
Hausastaðaskóia og skyldi það varð-
veitt í Flataskóla. Líkan þetta er nú
fullgert og afhenti menntamilarið-
herra Vilbergi Júlíussyni, skóla-
stjóra Flataskóla, það hinn 4. júní sl.
Hausastaðaskóli var starfrækt-
ur í 20 ár, 1792-1812, og stóð hjá
Hausastöðum, vestan Garða-
kirkju. f skólanum, sem var einn
fyrsti barnaskóli landsins, dvöldu
börn frá 6—16 ára aldurs. Námið
var bæði bóklegt og verklegt, m.a.
voru kennd ýmis útistörf og vefn-
aður.
Líkanið gerði Tumi Magnússon,
listamaður, eftir úttektarplaggi,
sem Ólafur Þ. Kristjánsson, skóla-
stjóri, fann í bréfasafni Sjá-
landsbiskups í Kaupmannahöfn,
og teikningum Harðar Ágústsson-
ar, listamanns. Kostnaður af gerð
líkansins var greiddur úr Thork-
Fróðleikur og
skemmtun
fyrirháa sem lága!
illii-sjóði, sem kenndur er við Jón
biskup Þorláksson.
Landssamband sjálfstæðiskyenna:
Arangri ríkisstjórnarinnar
í efnahagsmálum fagnað
„LANDSSAMBAND sjálfstæð-
iskvenna fagnar þeim irangri sem
ríkisstjórnin hefur nið í efna-
hagsmálum i því iri sem hún hef-
ur starfað," segir í upphafi ilykt-
unar sem Landssamband sjilf-
stæðiskvenna hefur sent fri sér.
í ályktuninni segir ennfremur
að árangurinn beri að þakka
styrkri efnahagsstefnu ríkis-
stjórnarinnar og vilja þjóðarinn-
ar til tímabundinna fórna i þvi
skyni að koma skynsamlegri
skipan á fjármál i landinu.
„Stjórnarandstaðan hefur notað
hvert tækifæri til að valda óróa
og auka upplausn i þjóðfélaginu,
í því skyni að gera endurreisn-
arstarfið erfiðara," segir í álykt-
uninni. „Þessi vinnubrögð hefur
fólkið í landinu fordæmt og í
raun hafnað verðbólgureið
þeirra. Þessi afstaða þjóðarinn-
ar gerir þær kröfur til stjórn-
málamanna að þeir vinni af al-
efli að því að sá árangur sem
náðst hefur haldist og staðið
verði að atvinnuuppbyggingu
með markvissum hætti, til að
tryggja mannsæmandi lífskjör
þjóðarinnar í framtíðinni."
Þá segir m.a. varðandi
atvinnuuppbyggingu að hún
verði að miðast við arðsemi og
útilokað sé að halda áfram tap-
rekstri einstakra atvinnugreina,
að aukinni skattálagningu,
beinni eða óbeinni. Er bent á að
fyrirkomulag, sem heyri fortíð-
inni til, svo sem leifar hafta og
einokunar á innflutningi, út-
flutningi eða vörudreifingu,
verði að afnema. í skjóli slíkra
hafta þrífist margvísleg spilling
sem verði að uppræta. „Forsenda
heilbrigðs efnahagslífs eru vel
reknir arðgefandi atvinnuvegir
og það er skylda Sjálfstæðis-
flokksins að vinna að atvinnu-
uppbyggingu í samræmi við þá
grundvallarstefnu sem hann var
stofnaður til að fylgja," segir í
lok ályktunarinnar.
Mótmæli útgerðarmanna á Austurlandi:
Nú þegar verði gerðar ráðstafanir
til að koma í veg fyrir stöðvun
„Síðasta ríkisstjórn bjó sjivarút-
veginum verri starfsskilyrði en
nokkur önnur í langan tíma, þritt
fyrir mestan afla sem um getur og
hagstæð markaðsverð sjivaraf-
urða.“ Þetta keraur meðal annars
fram í mótmælum forriðamanna
sjivarútvegsfyrirtækja i Austur-
landi gegn sjivarútvegsstefnu
stjórnvalda sem samþykkt voru i
fundi þeirra i mánudag þegar þeir
ákviðu að hætta veiðum frá og með
24. þessa minaðar.
Segir í mótmælunum að stjórn-
völd hafi náð miklum árangri í
baráttunni við verðbólguna sem
verið hafi að sigla alla atvinnu-
starfsemina í landinu. Átök þau
sem þessu séu samfara megi þó
ekki verða til þess að sjávarútveg-
urinn, einn atvinnuvega, búi við
gjörsamlega óviðunandi rekstr-
arskilyrði. Segja þeir að nú sé
15—25% tap á útgerð og um 5%
tap á saltfiskverkun. Tap á skreið-
arbirgðum sé 200—300 milljónir
og að táknrænt sé fyrir afstöðu
stjórnvalda að ætlunin sé að taka
„gengishagnað" af skreiðarbirgð-
um þrátt fyrir tapið. Þá sé einnig
tap á rekstri frystihúsa og hafi
afkoman versnað mjög vegna
birgðasöfnunar og óhagkvæmari
samsetningar framleiðslunnar en
gert var ráð fyrir.
Telja útgerðarmennirnir nauð-
synlegt að eftirfarandi ráðstafan-
ir verði gerðar nú þegar til að
koma í veg fyrir stöðvun fyrir-
tækja í sjávarútvegi. í fyrsta lagi
að endurkaupalán Seðlabankans
hækki í 60% af afurðaverðmæti og
að viðskiptabankarnir láni síðan
24% til viðbótar þannig að heild-
arlán nemi um 84% af afurða-
verðmæti. í öðru lagi að útvegað
verði innlent lán, erlent ef ekki
fæst innlent, að upphæð 1000
milljónir kr. til greiðslu á hluta
vanskila útgerðar og fiskvinnslu
og verði greiðslubyrði vegna van-
skila dreift á 8—10 ár. f þriðja lagi
leggja þeir til að fiskverð verði
hvorki fyrr né síðar ákveðið þann-
ig að tap sé á meðalútgerðar- eða
fiskvinnslufyrirtæki. Og í fjórða
lagi leggja þeir til að vextir af af-
urðalánum verði lækkaðir.
Undir mótmælin skrifa: f.h.
Síldarvinnslunnar hf., Neskaup-
stað, ólafur Gunnarsson; f.h.
Hraðfrystihúss Fáskrúðsfjarðar
hf. Gísli Jónatansson; f.h. Hrað-
frystihúss Eskifjarðar hf. Aðal-
steinn Jónsson; f.h. Skipakletts hf.
og GSR, Reyðarfirði, Hallgrímur
Jónasson; f.h. Pólarsíldar hf., Fá-
skrúðsfirði, Bergur Hallgrímsson;
f.h. Fiskvinnslunnar hf., Seyðis-
firði, Þorbergur Þórarinsson; f.h.
Hraðfrystihúss Breiðdælinga hf,
Pétur Sigurðsson; f.h. Gullbergs
hf., Seyðisfirði, Adolf Guðmunds-
son; f.h. Hraðfrystihúss Stöðvar-
fjarðar hf. Guðjón Smári Agn-
arsson; f.h. Búlandstinds hf.,
Djúpavogi, Gunnlaugur Ingvars-
son og f.h. Tanga hf., Vopnafirði,
Pétur Olgeirsson.
Til sýnis í Skeifunni 19.
Víkingabústaðurínn er tilvalinn veiðikofi, garðhús,
búningskleji eða vinnuskúr. Þá hentar hann ekki síður
sem afdrep á barnaleikvöllum, við íþrótta- og skeiðvelli eða
eða sem lítill sumarbústaður.
Allt sem til þarj eru 66.900 krónur, 10 m2 skiki.Jáein verk-
Jærí, örlítil verklagni og svo sem háljur vinnudagur.
\ilt þtl ku^a 10 m2 timlmrhiis
Sænski víkingabústaðurínn er ^
aldeilis bráðsnjölljramleiðsla. Hann
er að mestu úr timbrí, og ajhentur
ósamsettur, nákvæmlega tiísniðinn með glugga, hurð, þaki og reyndaröllu sem til þaij, - meira að
segja gleríð, hurðarhúnninn og læsingin Jylgja.
Bústaðurínn er 10 m2 (3,00x3,33f. Veggir eru úr 34x136 mm
bjálkum, gólf og þak eru einnig úr timbrí en yst er níð-
sterkur þakpappi. Undirstöður þurfa ekki ,
að vera mikið mannvirki því heildar-
þyngd bústaðaríns er aðeins um 1200 kg
Uppsetning er sérlega einjöld og allar teikningar
TIMBUKVERZLUNIN VÖLUMDUR Hf.
KLAPPARSTlG 1, SlMI 18430 - SKEIFUNNI 19, SlMI 687999