Morgunblaðið - 09.06.1984, Síða 14

Morgunblaðið - 09.06.1984, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1984 Stór stund í Kristkirkju Lístahátíð Jón Ásgeirsson Efnisskrá: Johann Sebastian Bach: Prelúdía og fúga í B-dúr (BWV 866). Frönsk svíta nr. IV (BWV 815) Konsert í ítölskum stfl (BWV 971) Forleikur að frönskum hætti (BWV 831) Helga Ingólfsdóttir hóf tón- leikana með B-dúr-prelúdíunni úr fyrsta hefti „Veltempraða pí- anósins", frá 1722, sem er númer 866 í tónverkaskrá Bach. Verkið er einstaklega skemmtilegt og voru bæði prelúdían og fúgan vel leikin. Hér mætti stinga því að, að flutningur allra verkanna úr „Veltempraða píanóinu" væri verðugt viðfangsefni fyrir næstu listahátið og Helga Ingólfsdóttir sjálfkjörin fyrir það verkefni. Franska svítan nr. IV, BWV 815, var vel leikin. Helga lék verkið með menúett, sem ekki er tekinn með í öllum útgáfum af frönsku svítunum. Þriðja verkefnið var svo ítalski konsertinn og lauk tónleikunum með því stóra verki Frönsku óvertúrunni BWV 831. Forleikurinn er mikil tónsmíð, veigamesti kafli verksins, og náði leikur Helgu þar mestri reisn þó verkið í heild væri glæsilega leikið. I útfærslu verkanna fer Helga eftir þeim leikvenjum sem vitað er að franskir tónlistarmenn lögðu áherslu á og gerir það á mjög sannfærandi máta, án þess þó að yfirdrífa í skreytingum og trill- um. Fyrir þá sem hafa hlýtt á verk Bach leikin á píanó kunna þau að hljóma einkennilega á Sembal. Þetta á ef til vill sér- staklega við um ítalska konsert- inn og er t.d. nauðsynlegt að leika hæga þáttinn með öðrum hraða á sembaló en mögulegt er á „syngjandi" píanó. Síðasta verkið, sem er stórkostleg tónsmíð, lék Helga meistaralega vel. Það er sérkennilegt hversu þetta hljómlitla hljóðfæri sem sembaló er, varð sterkt talandi í höndum Helgu. Það er ekki hljómstyrkurinn sem hér ræður, heldur sp spenna og krafttök er búa í leik Helgu, sem fær hann til að skynja þá baráttu elds og stáls er Bach mótaði á steðja sínum í alls konar sindrandi myndir. í heild voru þetta glæsilegir tónleikar og eins og fyrr segir er Helga Ingólfsdóttir listamaður sem Listahátíð ætti að tryggja sér til stórra verka í framtíðinni. Áhrifaríkur Ákerström Tónlist Sigurður Sverrisson SVO mikið er víst, að Fred Ákerström hlýtur að hafa verið ís- lenskum unnendum vísnatónlistar hreinasti hvalreki. Uppselt var enda á báða tónleika hans í Nor- ræna húsinu og bæta varð þeim þriðju við. Á þá var víst einnig upp- selL Aðsóknina er ekki að undra. Ákerström hefur einstakt vald yfir viðfangsefni sínu og það fékk und- irritaður að heyra í Norræna hús- inu á fimmtudagskvöld. Reyndar flutti Svíinn ekki ein- vörðungu ljóð Bellmans eins og skýrt hafði verið frá, heldur blandaða sænska efnisskrá. Ekki var að sjá eða heyra að hinir 130 gestir (fleiri komast vart fyrir i salnum) væru að sýta það, en vissulega var túlkun hans á Fredmans Epistlunum frábær. Þeir eru skrifaðir af Bellman og skipta visnabálkarnir tugum. Ef mér skjátlast ekki söng Áker- ström þá númer 23, 41 og 22 í þessari röð. Áður hafði hann m.a. sungið eftir Reuben Nilsson og skilað því af prýði eins og öðru í efnisskránni. Ákerström hefur óvenjusterka og hljómmikla rödd af vísna- söngvara að vera. Hún er að auki mjög dimm og það notaði hann sér til hins ýtrasta f siðasta Fredmans Epistlinum sem hann flutti. Sá var fullur trega, and- stætt innihaldi hinna beggja. Gítar hafði Ákerström með sér en svo sterk var rödd hans, að maður tók nánast ekki eftir hljóðfærinu fyrr en i lokalaginu. Hafði hann þá sungið, grínast, já, og rætt við konu á fremsta bekk, í 75 mínútur. Áheyrendur vildu meira og klöppuðu hann upp. Mörg laganna, sem Áker- ström, voru hreinustu gersemar. Öll framsetning hans var á þann veg, að textinn, sem skiptir svo miklu meira máli í þessari tón- list en flestri annarri, komst fullkomlega til skila, jafnvel hjá fólki eins og undirrituðum sem vart hefur talið sænskuna sína sterku hlið. Fáeinum sinnum varð söngvaranum aðeins á í messunni, þ.e. fingurnir skrik- uðu á strengjum gítarsins, en það setti hann ekki hið minnsta út af laginu. Slíkt var sviðsör- yggið. Það er erfitt að tina út ein- staka hápunkta kvöldsins, þeir voru eiginlega ein samfella. Eftirminnilegust eru þó lögin i gamansama kantinum, ekki sist fyrir þá sök, að Ákerström er í lófa lagið að flytja þannig texta á ógleymanlegan hátt. Undir- tektir áheyrenda eru annars besta gagnrýnin á þennan sænska vísnasöngvara. Þeir vildu helst ekki sleppa honum úr salnum. Þeir sem aldrei hafa lent í neinu sérstöku Leiklist Jóhann Hjálmarsson Kíkisútvarpið, leiklistardeild: NÓTT Á NÍUNDU HÆÐ eftir Agnar Þórðarson. Leikstjóri: Brynja Benediktsdóttir. Leikendur: Róbert Arnfinnsson, Jóhann Sigurðarson, Auður Guð- mundsdóttir, Saga Jónsdóttir og Þórir Steingrímsson. Tæknimenn: Þorbjöm Sigurðsson og Áslaug Sturlaugsdóttir. Maðurinn sem býr á níundu hæð ásamt hundtikinni sinni, henni Títu, segir við unga blaða- manninn sem af tilviljun verður gestur hans: „Þið fjölmiðlamennirnir eruð alltaf að eltast við fólk sem hef- ur gaman af að láta bera á sér og þykist hafa lifað eitthvað merki- legra lífi en sauðsvartur almúg- inn en oft þegar ég les þetta þá undra ég mig hvað það hefur lít- ið að segja um mannlífið sem eitthvað vit eða hugsun er í, þó það hafi kannski lent í lífsháska eða slæmu hjónabandi. Þið gáið nefnilega ekki að því að það eru kannski þeir sem aldrei hafa lent í neinu sérstöku sem mestur ávinningur getur verið að tala við og kynnast nánar." Unga manninum hefur verið fleygt út úr partíi og þannig hef- ur hann orðið viðskila við vin- konu sína. Hann fær að hringja hjá þeim sem kallaöur er mið- aldra í leikritinu. Sá miðaldra á á hættu að vera talinn öfug- snúinn fyrir það að bjóða unga manninum inn til sín, auk þess er hann litinn hornauga vegna tíkarhaldsins. Það hleypur held- ur betur á snærið hjá kjaftakerl- ingu blokkarinnar þegar hún mætir unga manninum blóðug- um í lyftunni. Ástæðan er að vísu gáleysi manns á óupplýstum svölum, en hvað getur ekki gerst í borginni. Þótt þráður leikrits Agnars Þórðarsonar geti varla talist ýkja merkilegur, er verkið á margan hátt hnyttin mynd úr hversdagslífinu og umfram allt trúverðug. Samtöl eru eðlileg, óþvinguð. Svona er lífið oft í blokkum. Meira er þó um vert að orðræða mannsins gefur ýmis- legt í skyn, lætur áheyrandann gruna stærri sögu að baki orð- anna. Hún fjallar meðal annars Agnar Þórðarson um ástina og hjónabandið, ein- staklinginn og frelsið ímyndaða. Róbert Arnfinnsson túlkaði miðaldra manninn í tóntegund sem gerði hann eldri en mið- aldra, en var ísmeygileg og á margan hátt afhjúpandi. Jóhann Sigurðarson var ungi maðurinn, fremur einföld mann- gerð sem hann átti ekki í neinum vanda með að koma til skila. Konan, hin alræmda kjafta- kerling í blokkinni, var leikin af Auði Guðmundsdóttur. Auður túlkaði hana afbragðsvel. Túlk- un hennar leiddi í ljós þessa ákveðnu manngerð, en gerði meira því að hin mannlega hlið braust líka fram. Saga Jónsdóttir og Þórir Steingrímsson fóru prýðilega með sín hlutverk, en þau voru smávægileg. Ekki hefur verið talin ástæða í þessum þáttum um útvarpsleik- rit að kvarta yfir tæknimönnum. Þeir vilja greinilega gera vel og gera oft vel. Svo var einnig að þessu sinni. Aftur á móti er hér smáábending til þeirra og leik- stjóra: óhressilegri tík hefur ekki heyrst gelta í útvarpi lengi. Hefði ekki mátt ganga á fund lífvænlegri tíkar?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.