Morgunblaðið - 09.06.1984, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1984
15
María Gísladóttir og Ari Þorsteinsson.
íslensk kvikmynd
frumsýnd í Álaborg
Nýlega var frumsýnd í Álaborg (slensk kvikmynd, gerð af þeim
Maríu Gísladóttur og Ara Þorsteinssyni. Þau María og Ári eru bæði við
nám í Álaborg og samdi María handritið að myndinni en Ari framleiddi
og leikstýrði.
Mynd þessi, sem tekin er á
super 8 (mm) filmu, nefnist Lúp-
usar saga og er tiiraun hand-
ritshöfundar til að færa eina af
þjóðsögum Jóns Árnasonar í
nútíma búning. Saga þessi fjall-
ar um bræður þrjá og baráttu
þeirra um hönd kóngsdóttur
nokkurrar og meðfylgjandi ríki.
í nútímamyndinni hlýtur sá
hnossið, sem getur leyst verð-
bólguvanda ríkisins, en við lausn
þeirrar þrautar gengur á ýmsu.
Starfsmenn og leikarar voru
valdir úr hópi námsmanna hér
um slóðir og taka myndarinnar
stóð yfir frá byrjun desember og
fram í miðjan apríl.
Öll vinna við gerð myndarinn-
ar var unnin í sjálfboðavinnu en
stór hluti af kostnaði var greidd-
ur með styrk frá SIDS (Sam-
band íslendinga í Danmörk og
Svíþjóð), með þeim skilmálum
að félög íslendinga a Norður-
löndum fái að sýna myndina.
Myndinni var tekið vel af
frumsýningargestum og að-
standendur lofaðir fyrir fram-
takið.
Þorbjörn Broddason
er áhyggjufullur
vegna Karmelsystra
— eftir Sigurveigu
Guðmundsdóttur
Grein um þetta efni kom í Þjóð-
viljanum á Uppstigningardag.
Þorbjörn Broddason heldur þar að
Karmelsystur hafi ekki að öllu
leyti fullt vit í kollinum, þegar
þær ganga undir reglu í Karmel.
Því er til að svara að stúlkur fá
þar ekki inngöngu fyrr en þær eru
komnar á það sem kallast gift-
ingaraldur. Síðan eru þær í
margra ára reynslutíma áður en
þær vinna hin eilífu heit. Á
reynslutímanum bera þær hvítar
slæður en þær sem hafa unnið
æfilöng heit bera svartar slæður.
Á myndum af Karmelsystrum hér
í Hafnarfirði má sjá að mikill
hluti þeirra er ekki endanlega
genginn í klaustrið. Mætti Þor-
björn Broddason hugga sig ögn
þar við.
Engir fangar í
Karmelklaustri
Þá er því við að bæta að engin
klausturlögregla eða harður dyra-
vörður ver þeirri nunnu útgöngu
sem vill fara úr Karmel. Það getur
hver þeirra gert ef henni sýnist
svo. Undirrituð veit þess nokkur
dæmi að stúlkur hafi komið hér til
hinna fyrri Karmelsystra, verið
þar nokkurn tíma en farið heim til
sín vegna þess að þær töldu sig
ekki una í klaustri. — Ein þessara
stúlkna bjó á mínu heimili á með-
an hún var að bíða eftir hentugri
ferð til síns lands. Hún fór í full-
um friði og skildi beiskjulaust við
systurnar. Henni varð áreiðanlega
ekki eins mikið um þessa reynslu
sína og flestu því fólki sem hefir
staðið í hjónaskilnuðum. — Engin
kona er fangi í Karmel.
Um viðbrögð fjölmiðla
Þorbirni Broddasyni leiðist
hvað fjölmiðlar gerðu sér títt um
Karmel. — Ekki skil ég hvað getur
verið illt í því að skrifa og tala
vinsamlega um þessa pólsku gesti
sem langar til að búa hérna hjá
okkur. Að minnsta kosti eru allir
vinir Karmelsystra þakklátir fjöl-
miðlafólkinu fyrir þeirra þægi-
legheit við systurnar.
Heilög kirkja fær
á baukinn
Ef litið er á Evrópukortið, þá
virðist liggja ósýnileg girðing um
þvera Mið-Evrópu. Norður-Þýska-
land, England og Norðurlönd eru
fyrir norðan þessa girðingu. Góðir
Lútherstrúarmenn, eins og Þor-
björn Broddason sýnist vera, virð-
ist telja sig verða að forðast sæmi-
leg kynni við trúarlíf og kirkju-
sögu þeirra þjóða sem eru sunnan
og austan við þessa girðingu. Virð-
ist lítt skipta máli hvort slíkir Is-
lendingar hafi lært lengur eða
skemur í skólum. Fáfræðin og
hleypidómarnir um kaþólska
menningu þessara þjóðlanda er
með ólíkindum. — Hér er ekki
staður né stund til þess að rekja'
tvö þúsund ára sögu Heilagrar
kirkju, undirstöðu vestrænnar
menningar, enda aðrir til þess
færari en undirrituð.
En til eru bókasöfn og til eru
kaþólskir lærdómsmenn sem hægt
er að fá leiðbeiningu hjá um vand-
að lesmál í þessum fræðum. Von-
andi athugar Þorbjörn Broddason
sinn gang þessu viðvíkjandi.
Jafnrétti og
kvennakúgun
I nefndri grein skorar Þorbjörn
Broddason á jafnréttisfólk og þá
sem vilja ekki kúga konur, að
þessir hópar fari að rekast í
Karmelsystrum. Hann vill líka að
alþingismenn semji lög sem banni
þessum pólsku konum að lifa hér á
Islandi eins og þeim sjálfum líkar.
Uppástungur af þessu tagi sverja
sig rækilega í ætt við ójafnrétti og
kvennakúgun.
Væni Þorbjörn Broddason: Lof-
ið þér nú blessuðum nunnunum að
dýrka Guð sinn í friði. Hið góða
skaðar ekki. Heldur ekki fyrir-
bænir Karmelsystranna í Hafnar-
firði, bæði fyrir yður og öðrum.
Sigurreig Guðmundsdóttir er fyrr-
um formaður Kvenréttindafélags
tslands.
□PEL
ITILEFNI
BÍLVANGS
sýnum viö
Opel Corsa Garöhúsgögn
Viölegubúnaö Opel Ascona
Dráttarvélar Fólksbílakerrur
Goöavörur o.fl. o.fl.
í samvinnu við eftirtalda aðila:
Innflutningsdeild Sambandsins
Byggingavörudeild Sambandsins
Rafbúð Sambandsins
Dráttarvélar hf.
Gísla Jónsson hf. og
Búvörudeild Sambandsins
Opið laugardag 9. júní frá kl. 10.00 til 17.00.
GM
BÍLVANGURsfr
HOFÐABAKKA 9 5IMI 687BOO
□PEL
GM