Morgunblaðið - 09.06.1984, Qupperneq 17
MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1984
" '17
Ný bók um efna-
hags- og stjórnmál
— eftir dr. Magna
Guðmundsson
„Hagfræði og stjórnmál" nefnist
ný bók sem komin er á markaöinn.
Höfundur hennar er dr. Magni Guö-
mundsson, en hann hefir áöur sent
frá sér tvær bækur: Þætti um efna-
hagsmál (1968) og Stjórn fyrirtækja
(1972).
f formála bókarinnar segir með-
al annars:
„Þessi bók, sem er frumsamin,
fjallar um hagfræði og stjórnmál,
eins og nafnið bendir til. Henni er
ætlað að bregða ljósi yfir efna-
hagsvandann og tengsl hans við lög
frá Alþingi, sem í gildi eru. Bókinni
er skipt í þrjá kafla, sem eru auk
inngangs: 1. Verðlagsþróun, 2.
Stjórn peningamála og 3. Skatt-
kerfið. Það eru helstu hagstjórnar-
tækin, sem við sögu koma í at-
vinnulífi þjóðar. Þetta er ekki
kennslubók, heldur bók fyrir allan
þorra lesenda, sem áhuga hafa á
efninu."
Dr. Magni Guðmundsson tók
stúdentspróf við Menntaskólann á
Akureyri, próf í forspjallsvísindum
við Háskóla íslands og próf í við-
skiptafræðum við verslunarskóla
París, tengdan Sorbonne. Hann
fékk BA Hons.-gráðu í hagfræði og
stjórnvísindum við McGill háskól-
ann í Montreal og Ph.D-gráðu
(doktorsgráðu) í hagfræði við
Manitoba háskóla (1977), sérgrein-
ar: Ríkisfjármál, verðlags- og
markaðsmál, banka- og peninga-
mál.
Eftir að hafa starfað um 20 ára
skeið sem framkvæmdastjóri í
ýmsum greinum atvinnulífs, réðist
dr. Magni til opinberrar þjónustu,
fyrst við hagfræðistörf við Seðla-
banka íslands og síðan hjá ýmsum
stjórnardeildum í Reykjavík,
ennfremur við hagfræðiráðgjöf við
Fylkisstjórn Manitoba í Winnipeg
og Hagráði Kanada í Ottawa.
í tilefni af útkomu bókarinnar
hafði Morgunblaðið samband við
dr. Magna og innti hann eftir því
hver tilgangur bókarinnar væri.
Dr. Magni Guómundsson
„Hann er fyrst og fremst að
fræða almenning um vandamál,
sem varða hvern einstakan þjóðfé-
lagsþegn. Bókin er sniðin fyrir all-
an þorra lesenda, enda þótt hún
eigi líka að vera gagnleg viðskipta-
og hagfræðingum. Hagfræðin er
vítt svið og skiptist í margar grein-
ar. Enginn spannar þær allar.“
— Er þá bókin kennslubók?
„Nei, kennslubók notast í mun
meira mæli við dæmi, talnatákn og
línurit, sem gera lesmálið þreyt-
andi fyrir fjölda manna. Settar eru
fram ákveðnar hugmyndir. Stund-
um bregður fyrir ádeilu, sem er
ekki venja í kennslubók. Ég lét þess
getið í inngangi, að við höfum
stjórnað vel á tímaskeiðum og illa
á öðrum. Enda þótt það sé ekki
þema bókarinnar, ættu menn að
lestri loknum að vera nokkru vísari
um það, hví svo er.“
— Hvernær er bókin skrifuð? •
„Bókin hefur verið lengi í smíð-
um, en er færð upp til dagsins í
dag. Á stöku stað er stuðst við það,
sem ég hef áður sagt í ræðu og riti,
en bókin er að öllu leyti frumsam-
in. Hún er ný, samfelld umræða um
efnahagsvandann í þessu landi
ásamt skýringum og fróðleiksþátt-
um,“ sagði dr. Magni að lokum.
Jóhann Gnómandsson viö bit sinn i Hólmavík.
rækja inni í Hnitafirði en hún
veiddist þó á mjög takmörkuðu
svæði þar.
Til að byrja með var Jóhann sá
eini sem gerði út á rækjuveiðar en
fljótlega voru allir komnir í þetta.
Þar sem afkastageta frj'stihússins
var mjög takmörkuð i þá daga þá
var sáralítið sem hver bátur gat
komið með að landi. Jóhann sagði
okkur að yfirleitt hefðu bátanir
skipt þessu nokkuð jafnt á milli
sín, þannig að hver bátur fékk
svona 4—800 kg í hverri veiðiferð
fjTstu mánuðina en síðan jókst
veiðin með hverju ári.
Það svæði þar sem náðst hefur í
rækju hefur einnig stækkað þvi
með árunum virðist sem stofninn
hafi stækkað, að sðgn Jóhanns Á
sama tíma hafa einnig orðið miklar
brej-tingar á veiðitækjum, trollin
hafa stækkað gifurlega, svo og all-
ur annar búnaður til veiðanna.
Strax og rækjuveiðarnar hófust
var farið að vinna rækjuna í frj-sti-
húsinu á Hólmavík. Hún var hand-
pilluð og fengu allir vinnu sem gátu
unnið. Nú er rækjan vélpilluð eins
og víðast hvar annars staðar og á
síðustu árum hefur öll aðstaða til
rækjuvinnslu batnað mjög mikið,
m.a. eftir að frj-stihúsið var stækk-
að.
Jóhann Guðmundsson gerir enn
út á rækjuveiðar en á sumrín fer
hann m.a. á hrefnuveiðar. Er við
spurðum hann hvað tæki við ef
hrefnan jtöí friðuð þá svaraði
hann að bragði: „Ætli maður verði
þá ekki að finna eitthvað nýtt.“
Greia og myodir Goórán
Reykdnl og Signröar Signröe-
HHL
—
Bflasýning
í dag frá kl. 1—4
Nýir og notaöir bílar til
sýnis og sölu
Tökum vel meö farna Lada upp í nýja
Verö við birtingu auglýsingar kr.
215.000
Lán 115.000
Þér greiðiö 100.000
Bifreiðar &
Sifelld þjónusta Landbúnaðarvélar hf.
SUÐURLANDSBRAUT 14, SÍMI 38600
Söludeild sími 312 36
Varölisti yfir Lada-bifr.iAir
fyrir handhafa örorkuleyfa.
Lada 1300 kr. 106.600
Lada 1200 station kr. 113.600
Lada 1500 station kr. 124.300
Lada 1500 Safir kr. 118.100
Lada 1600 Canada kr. 128.000
Lada Lux kr. 135.400
Lada Sport kr. 216.600
tttstttstuttmttt
mimmmutt
mm
iii — mmmmmmi
LADA 2107
LADA bílar hafa sannaö kosti sína hér á landi
sem sterkir, öruggir, gangvissir, ódýrir í innkaupi, meö lítiö viöhald og ódýra varahluti
og ekki síst fyrir hátt endursöluverö.
Nú hefur útliti og innréttingum veriö breytt svo um munar: mælaborð, stýri, stólar, aftursæti, grill, húdd,
stillanlegir speglar innanfrá, stuðarar o.fl. o.fl., en sífellt er unnið að endurbótum er lúta að öryggi og
endingu bílsins. 6 ára ryðvarnarábyrgð.