Morgunblaðið - 09.06.1984, Page 19

Morgunblaðið - 09.06.1984, Page 19
þá er full ástæða til að fara að með gát og gæta þess að spilla hvergi fyrir sér. Gæði og verð Víkjum þá nánar að mörkuðun- um aftur. Miklar hræringar hafa verið í innanríkismálum í Grikk- landi síðustu mánuðina. Þarlend stjórnvöld hafa hert mjög tökin á gjaldeyris- og viðskiptamálum yf- irleitt og sett mjög strangar regl- ur um útsöluverð og fyrirkomulag innanlandsviðskipta. Mun strang- ara eftirlit verður nú með verð- hækkunum á innfluttum matvæl- um og er þess þegar farið að gæta í viðskiptunum við okkur og óvíst er hvaða stefnu það mál kann að taka. Sú hækkun, sem við náðum í samningum við þá nú nýverið, hef- ur þó fengist staðfest i Grikklandi, og innflytjendur eru bjartsýnir á að þeim takist að vinna á þeirri línu. Neyslan í Grikklandi virðist annars vera stöðug og viðskiptin að öðru leyti snurðulítil. Svo virðist sem innflytjendur á saltfiski til ítaliu hafi allir líkar áhyggjur af þróuninni þar, en saltfiskneysla virðist dragast saman. Sá samdráttur er að vísu hægur en ýmis hættumerki eru á lofti og erfitt virðist að henda reiður á, hvernig best sé að bregð- ast við því. Ítalía er eini markað- urinn af þeim fjórum hefðbundnu mörkuðum okkar fyrir blautfisk, þar sem þessa samdráttar gætir að einhverju marki. Þrátt fyrir nokkuð ítarlegar athuganir inn- flytjenda og saltfiskkaupmanna á Ítalíu af hverju samdrátturinn stafar hefur engin einhlít skýring á því fengist né heldur fundist með hvaða hætti væri best að bregðast við. Vafalaust kemur margt til. Þó er talið að aðal- ástæðan sé sú, að neytendur á ít- alíu hafi hvekkst töluvert vegna lélegra gæða og ennfremur vegna þess, að aðrir seljendur hafa leyft sér að selja til neytenda fisk, sem merktur hefur verið þorskur en hefur verið keila eða langa eða af öðrum tegundum mun lakari að gæðum en þorskur og þannig smátt og smátt hrætt fólk frá því að kaupa saltaðan þorsk. Sem bet- ur fer virðist þessu vera að linna og að flestir útflytjendur til Ítalíu telji sér skylt að reyna að vanda vel til vörunnar, sem þangað fer, til þess að reyna að ná neyslunni upp á nýjan leik. Norðmenn hafa töluvert auglýst í itölskum fjöl- miðlum en telja árangur lítinn. Að því er að okkur snýr teljum við fullvíst að besta leiðin til að við- halda stöðu okkar á italska mark- aðnum séu óaðfinnanleg gæði og samkeppnisfært verð, en það síð- arnefnda hefur okkur reynst erf- iðara en það fyrra. í athugun er að láta framkvæma nokkuð ftarlega markaðskönnun ef leiða mætti þannig í ljós hvað til úrbóta gæti verið. Hins vegar eru sveiflur í neyslu af því tagi eins og á Ítalíu koma fram nú ekki óþekktar og ekki ástæða til að örvænta en víst er rétt að hafa af þessu hæfilegar áhyggjur. Saltfiskur er dýr á Spáni Okkur varð svo tíðrætt um tandurfiskinn á Spáni hér áðan að hægt er að stikla á stóru um Spán. Verðhækkun dollarans virðist hafa komið hvað verst við Spán- verja af öllum mörkuðum okkar, þar sem þeir, ofan á allt annað, þurfa að borga um það bil 20% toll og hafa þurft að gera árum sam- an. Markaðs- og dreifingarkerfi þeirra er sömuleiðis dýrt og hafa allar tilraunir til að breyta þvi reynst árangurslausar. Þessvegna er saltfiskur mjög dýr í sam- keppni við aðra matvöru á Spáni og allar hækkanir koma þess vegna verr við kaupendur á Spáni en annars staðar. Svo var komið á 9einni hluta síðasta árs að í óefni virtist stefna og því var brugðið á það ráð eins og áður hefur komið fram að reyna að senda á markað- inn vöru, sem innihéldi meira vatn og væri ódýrari í framleiðslu, pökkun og flutningi heldur en venjulega framleiddur saltfiskur og væri þessvegna líka hægt að selja á lægra verði heldur en ella. Ekki aðeins tók markaðurinn vel þessari hlutfallslegu verðlækkun, sem breytt vara hafði í för með sér, heldur hefur tandurfiskurinn likað einkar vel og ástæða til að ætla að eftirspurn fari vaxandi. Eftir því sem best er vitað hefur neyslan á Spáni ekki dregist sam- an neitt sem heitið getur enda þótt of snemmt sé að spá fyrir um hvað tandurfiskurinn á eftir að verða lífseigur. Stærsti markaðurinn Portúgalski markaðurinn er eins og áður okkar langstærsti markaður. Ekki er ástæða til að tíunda sérstaklega magntölur i sölu undanfarinna ára, það er ykk- ur öllum kunnugt. (Sjá mynd.) Á þessu ári höfum við þegar selt 1.000 tonn til Grikklands, 1.500 tonn til Ítalíu, 4.500 tonn til Spán- ar og 12.000 tonn til Portúgal og áttum þó óafgreidd upp í samning frá síðasta ári tæp 8.000 tonn. Ef til vill áttum við ekki von á því að geta afgreitt til þeirra öll þessi 20.000 tonn á yfirstandandi ári, en vð samningagerðina í vor var Portúgölum mikið í mun að við reyndum að tryggja þeim allt það magn, sem við mögulega gætum, og því varð að ráði, að við freistuð- um þess að setja saman samning um 12.000 tonn með nokkurri verðhækkun til þess að reyna að verða við óskum þeirra. Við erum skuldbundnir að afhenda þeim um 15.000 tonn á þessu ári og helst upp í 20.000 tonn, ef við mögulega getum en erum þó ekki skuld- bundnir til þess. Það verð sem Portúgalir greiða í ár er gott og ef það er reiknað út á grundvelli há- gengis dollarans þá er það hátt og því teljum við það vera siðferði- lega skyldu fiskframleiðenda að reyna að sjá svo um, að við getum staðið við loforð okkar og afhend- um þeim það, sem um er samið. Það er ekki endilega víst, að doll- arinn verði alltaf svo hár sem hann er nú og þá kann að vera auðveldara um vik að gera mörk- uðum okkar til hæfis en verið hef- ur síðustu misserin. 12% tollur Sú meginbreyting varð á við- skiptunum í Portúgal seint á árinu 1982, að nokkrir einkaaðilar tóku við stærstum hluta samningsins, sem gerður var við Reguladora, og sáu um móttöku og verkun fisks- ins og sölu hans innanland9. í samningunum nú í vor varð sú raunin á, að við sömdum beint við 6 einkaaðila enda þótt það væri gert undir handarjaðri Regula- dora, sem enn hefur yfirumsjón með saltfiskinnflutningnum. Mönnum hefur að sjálfsögðu orðið mjög tíðrætt um þær fréttir að setja ætti 12% toll á innfluttan saltfisk frá íslandi til Portúgal. Við eyddum löngum tíma í að ræða um viðskipti við Portúgal á síðasta aðalfundi og þið hafið fyrir framan ykkur í prentuðu 9kýrslunni. Allt frá árinu 1975 hafa verið uppi um það hugmyndir í Portúgal að setja einhvers konar innflutningstoll á saltfisk. Sjávar- útvegurinn í Portúgal hefur átt við mikla erfiðleika að stríða og hvort tveggja hefur verið talið nauðsynlegt að veita honum ein- hvers konar tollvernd og auk þess væri æskilegt að geta safnað ein- hverjum peningum í ríkiskassann af tolltekjum til að styðja við bak- ið á honum með einum eða öðrum hætti. Þrátt fyrir að mikið hafi verið um þetta talað á undanförn- um árum hefur ekkert ennþá verið í því gert fyrr en nú, að ríkis- stjórnin tók ákvörðun sem þó ligg- ur ekki enn fyrir, hvort formlega hefur verið birt. Almenna reglan mun vera sú, að settur er 12% toll- ur á innfluttan óverkaðan saltfisk. Undanþága er þó frá þessu gerð þannig, að á fisk, sem kemur frá löndum sem veita fiskveiðirétt- indi, þarf aðeins að greiða 3% toll. Af þurrfiski þarf sennilega að greiða 6% toll. Hvað býr að baki þessari ákvörðun? Erfitt er að segja um það með nokkurri vissu, en út á við virðist hún beinast gegn okkur. Hins veg- ar er vitað, að útvegsmenn í Portúgal hafa lengi lagt ofur- áherslu á tollvernd fyrir starfsemi sína og loks hefur þeim orðið ágengt. Portúgölskum stjórnvöldum hefur fundist við íslendingar hafa of frítt spil í viðskiptum okkar við Portúgal. Við höfum að vísu verið þeim afskaplega mikilvægir; selt þeim mikið magn af góðum fiski en oftast á verði, sem hefur verið að þeirra mati nokkuð hátt og auk þess hafa viðskipti landanna verið mjög einhliða okkur í hag þar til nú alveg nýverið. Allar aðrar þjóð- ir, sem selja Portúgölum saltfisk, hafa annaðhvort veitt þeim fisk- veiðiréttindi beinlínis eða í það minnsta fallist á að selja útvegs- mönnum fiskinn hálfunninn beint um borð í fiskiskip í höfnum, en við höfum ekki viljað fallast á þessar aðferðir. Vel má spyrja hvers vegna við reynum ekki að nýta okkur þá kosti, sem því gætu fylgt að selja útvegsmönnum beint og leyfa þeim að setja fiskinn í portúgölsk fiskiskip í íslenskum höfnum. Auðvitað er þetta hægt, þar sem um tiltölulega lítið magn er að ræða, en líklegt er, að erfitt yrði að koma því fyrir að fá þá til að sækja fiskinn inn á allar hafnir og auk þess myndum við verða al- gjörlega háðir því, hvenær kaup- andanum hentaði að taka við fiskinum og hvenær ekki. Við hljótum því að reyna að keppa að því áfram að stunda þessi við- skipti á eins eðlilegan hátt og hægt er; gera samninga um kaup og sölu og sjá um flutninginn á fiskinum sjálfir. Við eigum að sjálfsögðu að nýta okkur landhelgina, en megum samt ekki gleyma því, að fiskimið- in í kringum landið eru auðlind, sem við eigum að nýta á þann hátt, sem við teljum skynsamleg- astan og hagkvæmastan og úti- loka enga möguleika í þvi efni enda þótt við verðum að forðast þau fordæmisáhrif, sem hljótast kynnu af ákvörðunum þar að lút- andi. Það er ósköp eðlilegt að mönnum verði hverft við þegar þær fréttir berast, að mikilvæg- asti markaður okkar fyrir saltfisk setji 12% toll á allan innfluttan fisk. Margir hafa og spurt, hver borgi þennan toll. Þýðir þetta beinlínis 12% lækkun á fiskinum okkar? Það benda allar líkur til þess, að sá sem endanlega borgar þennan toll sé neytandinn í Portú- gal. Á hinn bóginn er það víst, að samkeppnisaðstaða okkar íslend- inga mun versna til muna á mark- aðnum við það að kaupendur okkar þurfa að borga hærri toll heldur en aðrir. Ef við berum toll- inn á Spáni saman við tollinn i Portúgal er auðsýnt að 20% tollur á innfluttan saltfisk til Spánar gerir saltfiskinnflytjendum mjög erfitt um vik að keppa við aðrar matvörur á spánska markaðnum. í Portúgal er málið að því leyti flóknara að okkar kaupendur þurfa að greiða 9% hærri toll en saltfiskinnflytjendur frá öðrum þjóðum og þessvegna keppa kaupendur að okkar fiski ekki á jafnréttisgrundvelli við innfluttan fisk annarra. Þessu hefur þegar verið harðlega mótmælt bæði í Portúgal og utan sem mismunun af versta tagi og við skulum svo sannarlega vona að þetta mál fáist leiðrétt áður en meiri skaði verður af því. Hér er þó ekki um heims- endi að ræða og við skulum halda ró okkar og reyna að vinna málið 19 eftir skynsamlegum leiðum þar til viðunandi lausn fæst. Viðskipti Það verður ekki skilið við þetta mál án þess að nefna viðskipta- jöfnuð landanna. Viðskiptin voru okkur íslendingum mjög í hag en nú hefur orðið á því mikil breyt- ing. Mikill fjöldi innflytjenda hef- ur brugðist vel við óskum okkar og tilmælum opinberra aðila hér- lendis að reyna að stuðla að inn- flutningi frá Portúgal og fullyrða má að í fjöldamörgum tilfellum er það íslenskum neytendum líka mjög í hag. Margvíslegar portú- galskar iðnaðarvörur hafa streymt inn í landið og fle9tar hverjar ágætar og á góðu verði. Sömuleiðis hafa íslensk stjórnvöld mjög lagt sitt af mörkum og hefur Viðskiptaráðuneytið með ráðu- neytisstjórann í fararbroddi að öðrum ólöstuðum svo sannarlega lagt sitt af mörkum. Svo mikil breyting hefur orðið á þessu á undanförnum árum, að ekki er ýkja langt síðan að við keyptum innan við 10% af því verðmæti, sem við seldum til Portúgal, en allt stefnir í það að við munum jafnvel jafna viðskiptin á þessu ári þó að sjálfsögðu sé ekki líku saman að jafna þegar við erum að tala um að flytja til þeirra 15.000 tonn á móti allt að 38.000 tonnum fyrir fáum árum. Engu að síður er þetta góður árangur og við skulum vona að portúgalskir stjórnmála- menn meti þennan árangur nokk- urs. Portúgölum er mikið í mun að fá að vinna hluta af Blönduvirkj- un eða einhverjar þær stór- framkvæmdir sem hér standa fyrir dyrum og við skulum vona að sú ósk þeirra rætist. Það væri þeim mjög mikils virði og okkur mikill raunverulegur styrkur. Loks er ekki hægt að láta hjá líða að lýsa furðu yfir því fálæti, sem íslenskir útvegsmenn hafa sýnt í þessu efni. Við höfum margítrekað bent þeim á, að þeir væru að styrkja sjálfa sig fyrst og fremst með því að kaupa portúgölsk net. Viðbrögðin hafa verið grátlega lít- il og því 9kylt að beina því til allra þeirra sem hér inni eru og á ein- hvern hátt eru tengdir netakaup- um, að láta einskis ófreistað að kaupa portúgölsk net sem ku vera jafngóð og net annarra þjóða og fyllilega samkeppnisfær í verði. Um aðra blautfiskmarkaði má segja að eins og framleiðslumálum er komið hjá okkur nú verður lítið aflögu handa þeim þó að við reyn- um að veita þeim einhverja úr- lausn svo ekki sé hægt að segja um okkur að við gleymum alveg smá- fuglunum þegar illa árar. Siðari hluti ræöu Friðriks Pálssonar veröur í blaö- inu á miövikudag. Nóbelsskáldið og listakonan SÝNING Louisu Matthíasdóttur á Kjarvalsstöðum hefur vakið óskipta athygli. Louisa hefur búið í Bandaríkjunum frá árinu 1942 og það hefur ekki verið fyrr en á síðari árum, að athygli hefur beinst að henni i listaheimi New York-borgar. Á meðfylgjandi mynd má sjá hvar Nób- elsskáldið Halldór Laxness og kona hans, Auður, ræða við listakonuna, sem er lengst t.h. á myndinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.