Morgunblaðið - 09.06.1984, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNl 1984
21
Ljósm. Mbl./ KEE.
Norræni starfshópurinn. F.v. Jan Helraar Petersen, Per Egil Mjaavatn, Birgitte Jallow, Greta Bilfling, Sigríður
Ragna Sigurðardóttir, Elisabeth Edlunds, Stina Báckström, Tuula Pentti og Jens Pedersen.
„Hlustið á börn á
N orðurlöndum“
„HLUSTIÐ á börn á Norðurlönd-
um“ er yfirskrift verkefnis sem
norrænn starfshópur, skipaður
1982 af Norrænu ráðherranefnd-
inni, vinnur nú að. Fulltrúar Norð-
urlandanna í starfshópnum héldu
nýlega fund í Reykjavík, en verk-
efni þeirra er að fylgjast með
barnamenningu á Norðurlöndum
og veita upplýsingar um þau mál
sem hæst ber á þeim vettvangi á
hverjum tíma.
Eins og yfirskrift ársins 1984
gefur til kynna mun starfshóp-
urinn beita sér fyrir því að börn
fái „orðið", þ.e. aukinn tíma og
aukna athygli í dagblöðum, út-
varpi, sjónvarpi og öðrum fjöl-
miðlum. Er þá ekki einungis átt
við að aukið verði við efni sem
ætlað er börnum, heldur að börn
fái sjálf að hafa þar hönd með í
bagga.
Á blaðamannafundi sem hóp-
urinn hélt í tengslum við fund
sinn hér, kom fram að í því skyni
að ná settu marki verður sett
upp „barnafréttastofa" á skrif-
stofu starfshópsins, sem þetta
árið er staðsett í Kaupmanna-
höfn. Á fréttastofunni verður
safnað saman og dreift um
Norðurlöndin margvíslegu efni
um börn og barnamenningu, en
fréttaritarar og tengslahópar
verða á öllum löndunum. Einnig
verður sent út fréttabréf og
verður efnið í því á upprunalega
málinu, að undanskildu efni frá
íslandi og Finnlandi, sem verður
þýtt yfir á eitthvert hinna Norð-
urlandamálanna.
Þá er ráðgert að halda mál-
þing á komandi hausti, sem eins-
konar hápunkt verkefnisins.
Þangað verður boðið stjórnmála-
mönnum, fulltrúum fjölmiðla og
börnum, í því skyni að skiptast á
skoðunum um tjáningarfrelsi
barna. Verða á þinginu væntan-
lega lagðar fram tillögur til
stjórnvalda, en þess má geta að
nú eru liðin 25 ár frá því að Sam-
einuðu þjóðirnar gáfu út yfirlýs-
ingu um réttindi barna.
I starfshópnum eiga sæti, Jens
Pedersen, lektor, og Jan Helm-
er-Petersen, menningarfé'agsfr.,
frá Danmörku; Stina Báckström,
ritstjóri, og Tuula Pentti, for-
stöðumaður, frá Finnlandi; Sig-
ríður Ragna Sigurðardóttir,
kennari, frá íslandi; Katrín
Englund, fulltr., og Elísabeth
Edluns, kvikmyndaráðgjafi, frá
Svíþjóð og Per Egil Mjaavatn,
rannsóknarstj., og Gréya Billing,
ráðgjafi, frá Noregi.
Egilsstaðir:
Golfklúbbur Fljótsdalshéraðs
Kgil.sNtöðum, 3. júní. ^
I VOR boóuóu nokkrir áhugamenn
um golf til stofnfundar Golfklúbbs
Fljótsdalshéraðs og komu 23 áhuga-
menn til stofnfundarins. f stjórn
klúbbsins voru kjörnir Árni Hann-
esson, formaður; Kristinn Ást-
valdsson og Ragnar Steinarsson.
Stjórnin virðist hafa starfað af
krafti síðan, því að félagar klúbbs-
ins eru nú orðnir hartnær 40 tals-
ins — og tekið hefur verið á leigu
land til næstu fjögurra ára — sem
klúbbfélagar hafa nú snyrt og gert
að alvöru golfvelli. Land þetta er
rétt norðan við aðalbyggðina í
Fellabæ.
Að sögn formanns, Árna Helga-
sonar, eru brautir vallarins sam-
tals um 1 km að lengd — en hver
braut um 112—212 m og 6 holur
eru í hringnum. Taldi Árni þetta
bærilegan æfingavöll fyrst í stað,
en þeir félagar eru stórhuga og
hafa fullan hug á stærri golfvelli í
framtíðinni.
Um Jónsmessuna mun Golf-
klúbbur Fljótsdalshéraðs efna til
fyrsta golfmótsins og er væntan-
legum þátttakendum bent á að
skrá sig hjá einhverjum stjórn-
armanna hið fyrsta.
— Ólafur
Formaður Golfklúbbs Fljótsdalshér-
aðs, Árni Hannesson.
, Ljósm. Mbl./Ólafur.
Galvaskir kylfingar á hinum nýja golfvelli Golfklúbbs Fljótsdalshéraðs.
Bladburöarfólk
óskast!
Austurbær Bjarnarstígur
Skólavörðustígur Laugavegur 1—33
CANNON-VÖRURNAR
STUÐLA AÐ VELFERÐ
BARNSINS
* 'mmmm *
'V
Skoöiö CANNON-barnavörurnar
í næstu lyfjaverslun.