Morgunblaðið - 09.06.1984, Side 23

Morgunblaðið - 09.06.1984, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1984 23 La Cambe í Frakklandi: Þjóðverjar minnast fallinna frá D-degi i ■ r.miu a ap **■—^ La Cambe, 8. júní. AP. UM TVÖ hundruð manns komu saman í þýska hermannagrafreitn- um í La Cambe í Normandí í gær til aö minnast þeirra hermanna, sem féllu þegar þeir reyndu að verjast hinu sigursæla innrásarliði banda- manna á svonefndum „D-degi“ fyrir fjörutíu árum. Meðal viðstaddra voru Franz Jochen Schoeller, sendiherra Vestur-Þýskalands í Frakklandi, og Jean Laurain, sem er ráðherra í ríkisstjórn Frakklands og fer með mál fyrrverandi hermanna. Þjóðverjum var ekki boðið að taka þátt í hátíðarhöldunum 6. maí þegar tugþúsundir manna, þ.á m. margir þjóðarleiðtogar vestrænna ríkja, héldu upp á D- dag í Normandí. Sendiherra Vestur-Þjóðverja sagði í ávarpi, sem hann flutti í grafreitnum þar sem 21.160 sam- landar hans eru grafnir, að Frakk- ar og Þjóðverjar væru nú full- komlega sáttir og gerðu sér grein fyrir hve fráleitt væri að útkljá deilumál með stríðsrekstri. Richard Burton Burton hættur drykkju- skap Malmesburv, Englandi, 8. júní. AP. LEIKARINN Richard Burton sagði fréttamönnum í gær að þeir dagar væru liðnir, að hann drykki áfengi. Burton, sem nú er 56 ára að aldri, sagði: „í gamla daga slappaði ég af eftir kvikmynda- töku með því að hella mig full- an. Ég get ekki staðið í því lengur. Eg get ekki unnið og drukkið samtímis. Nú nota ég frístundir á meðan á kvik- myndatöku stendur til að lesa bækur eða líta yfir handrit myndarinnar." Richard Burton leikur nú hlutverk O’Brien í kvikmynd sem verið er að gera eftir hinni kunnu skáldsögu George Orwell 1984. Fimmta kona hans, Sally, fylgist með myndatökunni. Slökkviliðsmenn urðu frá að hverfa Slökkviliðsmenn urðu að láta í minni pokann fyrir náttúruöflunum í síðastliðinni viku í Tulsa í OkJa- homa, þar sem sökum flóða reyndist ógerlegt að nálgast þetta brennandi heimili. AP Áskorun öldungadeildar Bandaríkjaþings: Evrópuríki í NATO auki útgjöld til varnarmála Washington, 8. júní, AP. ÖLDUNGARDEILD Bandaríkja- aðilar að Atlantshafsbandalag- varnarmála um þrjú prósent. þings vill að Evrópuríki, sem eru inu, auki fjárveitingar sínar til Áskorun þessa efnis var sam- þykkt á fundi deildarinnar í gær með 91 atkvæði gegn 3. Er Ron- ald Reagan forseta falið að koma sjónarmiðum þingraanna á fram- færi við viðkomandi stjórnvöld. Jafnframt samþykkti öld- ungardeildin að skora á Japani að auka varnarmálaútgjöld sín verulega, en stjórnvöld í Tókýó hafa þegar ákveðið að auka þau um 4,8 prósent á þessu ári. Aftur á móti var felld tillaga sem fól í sér að fjárveiting til bandaríska varnarmálaráðun- eytins yrði miðuð við útgjalda- aukningu til varnarmála í Evr- ópu. Flutningsmaður tillög- unnar, Larry Pressler, sagði að skattborgarar í Bandaríkjun- um væru orðnir leiðir á því að heyra stöðugar fréttir um hækkun bandarískra framlaga til varnarmála á sama tíma og bandamenn þeirra í Evrópu héldu að sér höndum. Laxinn bar veiði- menn ofurliði Osló, 7. júní. Frá Jan Erik Laure, fréttaritara ALGENGT er að laxveiðimenn segi hetjusögur úr veiðiferðum en stundum er ekki tilefni til sagna af því tagi og hetjurnar koma sneypt- ar heim, eins og við á um tvo lax- veiðimenn í Norður-Noregi. Mennirnir tveir voru að veið- um í ánni Tana í Finnmörk fyrir skömmu og kræktu í 25 kílóa lax. En kálið er ekki sopið þótt í aus- una sé komið, og á sama hátt var viðureigninni við þann væna ekki lokið þótt þeim tækist að innbyrða hann. Vart höfðu þeir fyrr komið laxinum inn yfir borðstokkinn Mbl. en hann kastaði sporðinum til og frá. Sló hann í gogg, sem annar veiðimannanna hélt i hend i, með þeim afleiðingum að hann stakkst á kaf í handlegg hans. En sagan var samt ekki öll sögð, því laxinn endasentist fram eftir bátnum til þess, sem enn var ómeiddur og linnti ekki sporðaköstum fyrr en sá lá rotaður. Tók laxinn enn að ólmast og áður en varði hafði hann stokkið upp yfir borðstokk- inn og út í sjó og hvarf. Eftir sátu veiðimennirnir með sárt ennið, annar rotaður og hinn stórslasaður. Svíþjóð: Engar undirtektir undir launatillögur Stokkhólmi, 8. júní. Frá Erik Liden fréttaritara Mbl. SÆNSKA stjórnin boðaði fulltrúa aðila vinnumarkaðarins til fundar á þjóðhátíðardaginn og reifaði þar væntanlega samningagerð án árang- urs. Olof Palme forsætisráðherra reyndi að fá aðila til að fallast á það sjónarmið að launahækkanir yrðu ekki umfram 5% árið 1985, en fékk engar undirtektir. Ákveð- inn var annar fundur 26. júní nk. Bæði Palme og Kjell-Olof Feldt fjármálaráðherra gerðu tilraunir á fundinum til að fá fram skoðanir aðila vinnumarkaðarins á því hvernig þeir teldu að ná mætti samkomulagi er raskaði ekki áformum stjórnarinnar að halda verðbólgu innan við 4%. ttrekað var beðið um hugmyndir eða til- lögur frá fulltrúnum en án árang- urs. Denis Thatcher ekki boðið í kvöldverðinn London, 8. júní. AP. DENIS Thatcher, eiginmaður Margaret Thatcher forsætisráð- herra Bretlands, var ekki boðinn í kvöldverðarhóf sem hún hélt sjö karlmönnum í gær í íbúð þeirra hjóna í Downing Street 10 í Lon- don. Karlmennirnir sjö voru leið- togar sjö helstu iðnríkja hins frjálsa heims, en þeir sitja nú á rökstólum í London. Fréttamenn, sem fylgdust með komu leiðtoganna á fund Thatch- ■ ■■ ERLENT í fjóra mánuði úti í geimnum Moskvu, 8. júní. AP. ÞRÍR sovézkir geimfarar luku fjórða mánuðinum í geimnum í dag, en með öllu er óljóst hversu löng geimdvöl þeirra um borð í Salyut 7. verður. Geimförunum var skotið á loft 8. febrúar og komu þeir um borð í geimstöðina sól- arhring síðar. í millitíðinni hafa þeir framkvæmt vísinda- legar athuganir, farið fimm sinnum úr verustað sínum, og leikið hlutverk gestgjafans er tveir sovéskir geimfarar og einn indverskur dvöldu þar vikutíma í apríl. Geimförunum þremur var skotið á loft í Soyuz 10. en sovésk-indverska áhöfnin fór til baka á því fari. Tilgangur Sovétmanna með þessari löngu dvöl 1 geimnum er að kanna áhrif langdvalar í geimnum á menn. Markmið þeirra er að reisa rannsókna- stöðvar í geimnum. Lengst hafa sovéskir geim- farar verið 211 daga utan gufuhvolfs jarðar, en það var árið 1982 er tveir sovéskir geimfarar dvöldu um borð í Soyuz 7. ers, urðu varir við að eiginmaður hennar hélt á brott í samkvæm- isklæðnaði. Þeir kölluðu til hans og spurðu hvert förinni væri heitið. „Út að borða, liggur það ekki í augum uppi?" svaraði hann að bragði. A næsta blaðsölustað Stjömu- blaðið ^ w Stjörnublaðið Blað með frábærum persónulýsingum öll stjörnumerkin f einu blaði á aðeins 79 krónur DREPIÐ FYRIR DOLLARA | Drepið fyrir dollara Góður efnismikill 56 síðna spennureyfari Heil bók í blaðaformi á aðeins 97 krónur. Þér ætti ekki að leiðast um helgina Akurutgafan k 1 : ■ Opiö í dag kl: ÍO Vörumarkaöurinn hf. Ármúla 1A Eiöistorgi 11

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.