Morgunblaðið - 09.06.1984, Side 26
MORGUNBLA‘ÐTfl,LÁtjC,ARDAGlfK k’ J'ÚNÍ ’lð84 ’'
26
Rannsaka þarf hversu víðtækt vanda-
mál ofbeldi gagnvart börnum er
FræAslunefnd fjölskyldudeildar
Félagsmálastofnunar Reykjavík-
urborgar gekkst fyrir fræðslufundi
um ofbeldi gagnvart börnum í
Gerðubergi sl. mánudag. Starfs-
fólki hinna ýmsu stofnana í
Reykjavík, þar sem búast má við
að þetta vandamál geti komið upp,
var boðið á fundinn.
Aðalsteinn Sigfússon, deild-
arsálfræðingur hjá Félagsmála-
stofnun Reykjavíkurborgar,
tjáði blm. Morgunblaðsins að
markmið fræðslufundarins hafi
verið að vekja starfsfólk, sem
vinnur á þessum stofnunum, til
umhugsunar um ofbeldi gagn-
vart börnum, en eins og alkunna
væri, þá hefði þetta vandamál
ætíð verið vel falið.
Á fundinum fluttu erindi um
ofbeldi gagnvart börnum, þau
Pétur Lúðvíksson, barnalæknir á
Barnaspítala Hringsins, og
Hulda Guðmundsdóttir, yfirfé-
iagsráðgjafi geðdeildar sama
spítala. Blm. Mbl. hafði sam-
band við Pétur Lúðvíksson og
innti hann eftir upplýsingum um
þetta vandamál.
„Það eru ekki til neinar upp-
lýsingar um umfang þessa máls
á fslandi," sagði Pétur, „en hins
vegar skrifaði Ásgeir Karlsson
geðlæknir grein, sem birtist í
norrænu geðlæknablaði, um
rannsókn sem gerð var á árun-
um 1960 til 1969 á ofbeldi gagn-
vart börnum hér á landi. Þar
kom í ljós að við rannsóknina
fundust fjögur börn sem orðið
höfðu fyrir líkamsmeiðingum.
Ekki er til nein nýrri könnun á
þessum málum á íslandi, en
ofbeldi gagnvart börnum sem
mikið hefur verið til umfjöllunar
í öðrum löndum, bæði vestan
hafs og austan, er gjarnan dulið.
Aðalatriðið í þessu sambandi er,
að það sem um er að ræða er
ofbeldi í mjög víðum skilningi,
en það ofbeldi sem veldur bein-
línis stórfelldum áverkum er
Aðalsteinn Sigfússon, deildarsál-
fræðingur hjá Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar.
sjaldgæft og einungis lítið brot
af því sem um ræðir.
Ofbeldið sem við er átt er
ferns konar. Fyrst og fremst lík-
amlegt ofbeldi, þar sem í mikl-
um meirihluta eru minni háttar
áverkar. f öðru lagi er þetta kyn-
ferðisleg notkun á börnum á all-
an mögulegan hátt, í þriðja lagi
andleg kúgun og í fjórða lagi
vanhirða. Eg tek þetta sérstak-
lega fram, þar sem þess mis-
skilnings virðist víða gæta, að
ofbeldi gagnvart börnum sé ein-
ungis það að börn hljóti líkam-
lega áverka, en það er eins og
áður segir aðeins lítið brot
ofbeldisins.
Ofbeldi gag:nvart börnum er
víða mikið vandamál og það er
grunur margra þeirra sem fást
við börn á fslandi, að hér á landi
Pétur Lúðvíksson, barnalæknir á
Barnaspítala Hringsins.
sé þetta ekki síður vandamál en
annars staðar. Því er brýn nauð-
syn á því að hafist verði handa
við rannsóknir á því,“ sagði Pét-
ur Lúðvíksson barnalæknir að
lokum. Blm. Mbl. innti Huldu
Guðmundsdóttur, * yfirfélags-
ráðgjafa á geðdeild Barnaspítala
Hringsins, eftir upplýsingum um
ofbeldi gagnvart börnum.
„Ég vil taka það fram að
orsakir misþyrminga á börnum
eru allar mjög flóknar," sagði
Hulda, „og eru þær samofnar fé-
lagslegum og einstaklingsbundn-
um þáttum. Þetta vandamál er
ekki nýtt heldur hefur það fylgt
mannkyninu í gegnum aldirnar.
Það er því miður ástæða til að
óttast, að vandamálum sem
tengjast ofbeldi gagnvart börn-
um muni fjölga með tilliti til
Hulda Guðmundsdóttir, félags-
ráðgjafi á Barnaspítala Hringsins.
niðurstaðna rannsókna frá
Bandaríkjunum, sem segja að
1,5% bandarískra barna verði
fyrir einhverskonar valdbeitingu
árlega. Er það mun meira en al-
mennt er talið.
Fyrsta ráðstefnan um ofbeldi
gagnvart börnum var haldin í
Danmörku í ágúst sl. Voru þar
280 manns samankomin úr hin-
um ýmsu faghópum, til að skipt-
ast á skoðunum, rannsóknum og
klínískri reynslu. Áhersla var
lögð á að æ fleiri staðfestingar
hafa fengist á því, að á Norður-
löndum eiga sér stað bæði mis-
þyrmingar og kynferðislegt
ofbeldi gagnvart börnum. Því er
það mjög mikilvægt að börnum
þessum og fjölskyldum þeirra sé
veitt eins skjót aðstoð og mögu-
legt er.
Það er álit ráðstefnuþáttak-
enda, að í samfélaginu sé ekki
um að ræða nægilega innsýn og
viðurkenningu á því, hversu um-
fangsmikið þetta vandamál er,
né heldur skilningur á þeim af-
leiðingum sem niðurlægjandi
meðferð á börnum hefur í för
með sér. Af þessu leiðir að fjöl-
mörg börn fá ekki nægilega
vernd, og ef ekki er tekið í taum-
ana gagnvart slíkum misþyrm-
ingum í tæka tíð, á barnið á
hættu að þroskaferli þess geti
seinkað á ýmsum sviðum. Því er
mjög brýnt að hafa það hugfast
að foreldrar, sem verða fyrir því
að beita börn sín ofbeldi, vilja í
raun alls ekki reynast þeim illa.
Viðbrögð þeirra ber því að skoða
í ljósi örvæntingar og álags, sem
þeir fá ekki risið undir.
Ég vil leggja áherslu á mikil-
vægi þess, að foreldrar leiti sér
aðstoðar til þess að reyna að
fyrirbyggja áframhaldandi
ofbeldi gagnvart börnum sínum,
en sitji ekki einir uppi með sekt-
arkennd sína. Möguleikar eru á
því að vinna úr orsökum með að-
stoð fagfólks," sagði Hulda Guð-
mundsdóttir að lokum.
Aðalsteinn Sigfússon sagði
ennfremur að um 80 manns
hefðu setið fundinn og er erindin
höfðu verið flutt, fóru fram um-
ræður meðal fundargesta. Taldi
Aðalsteinn að markmiði fundar-
ins hafi verið sæmilega náð og
hann liti á hann sem lið í barátt-
unni gegn ofbeldi gagnvart börn-
um. Kvað hann brýna þörf á
upplýsingum varðandi þetta mál
og einnig að unnið yrði að úrbót-
um á því.
Aðalsteinn sagði að lokum að
fundargestir hefðu verið mjög
ánægðir með fræðslufundinn og
hefðu margir haft það á orði að
fundurinn hefði opnað augu
þeirra betur fyrir þessu alvar-
lega en því miður falda vanda-
máli.
Borgarstjórn:
5 menn kosnir
í útgerðarráð
BÚR í stað 7 áður
Á FUNDi borgarstjórnar á
fimmtudag voru fimm menn kosn-
ir í útgerðarráð Bæjarútgerðar
Reykjavíkur i stað sjö áður, þ.e.
Ragnar Júlíusson formaður, Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, Gústaf
B. Einarsson, Sigurjón Pétursson
Málningarverksmiðja Slippfélags-
ins í Reykjavík hf. hefur nú gefið út
leiðbeiningarbækling um meðferð
Dynasylan-efnisins, til varnar alkalí-
og steypuskemmdum.
í frétt frá Slippféiaginu segir,
að um árabil hafi staðið yfir rann-
sóknir á hæfum efnum til að
stöðva og/eða koma í veg fyrir
þessar skemmdir. Á síðasta ári
hafi komið í ljós árangur af rann-
og Kristján Benediktsson. Gústaf
B. Einarsson var áður varamaður
í útgerðarráði, en áður sátu þar
sem aðalmenn auk Ragnars, Vil-
hjálms, Sigurjóns og Kristjáns
þeir Skúli Jónsson, Björn Dag-
bjartsson og Bjarni P. Magnússon.
sóknum Rannsóknastofnunar
byggingariðnaðarins þar sem
Monosilan-efni reyndust hæf til
að hefta virkni alkalískemmda í
steypu. Samkvæmt þeirra viður-
kenningu hefur Slippfélagið í
Reykjavik hf. síðan útbúið leið-
beiningabækling sinn um notkun
efnisins og er hægt að fá hann í
flestum byggingavöruverslunum
eða sendan í pósti án kostnaðar.
Fékk styrk
úr Sonning-
sjóðnum
PÉTUR Jónasson gítarleikari hlaut
fyrir helgina styrk fri Sonning-
sjóðnum að upphæð 20.000
danskra króna. Sjóðurinn veitir
fjóra styrki ir hvert og var Pétur i
meðal hinna útvöldu að þessu
sinni. Nokkrir íslendingar hafa ið-
ur hlotið sambærilegan styrk og mi
þar nefna Manuelu Wiesler, Einar
Jóhannesson og Þorgerði Ingólfs-
dóttur.
„Ég er að sjálfsögðu geysilega
ánægður með þessa viðurkenn-
ingu,“ sagði Pétur er blm. ræddi
við hann í gær. „Styrkurinn gef-
ur mér m.a. tækifæri til þess að
víkka sjóndeildarhringinn og
kemur örugglega að góðum not-
um.“ Pétur bætti því jafnframt
við, að hann myndi halda til
Spánar til vetrardvalar í haust
og ætlaði að sækja þar einkatíma
hjá mjög færum kennara.
Heiðursverðlaun Sonning-
sjóðsins í ár fékk hinn heims-
kunni jazztónlistarmaður Miles
Davis.
Leiðbeiningabækl-
ingur um meðferð
alkalískemmda
Búnaðarbanki íslands:
Jóhannes Þór Ingva-
son ráðinn aðalbókari
Á FUNDi bankariðs Búnaðarbanka
íslands hinn 30. maí sl. var Jóhann-
es Þór Ingvarsson, fulltrúi í aðal-
bókhaldi, riðinn aðalbókari Búnað-
arbankans.
Jóhannes tekur við starfi aðal-
bókara af Guðmundi Árnasyni,
sem nýlegea var ráðinn aðstoðar-
bankastjóri.
Jóhannes er þrítugur að aldri,
fæddur 27. október 1953. Hann
lauk verslunarprófi frá Samvinnu-
skólanum 1973 og hefur starfað í
aðalbókhaldi Búnaðarbankans síð-
an. Kona Jóhannesar Þórs er
Margrét Lilja Kjartansdóttir og
eiga þau tvö börn.
Jóhannes Þór
Ingvarsson
Skólaslit Tækni-
skóla íslands
TÆKNISKÓLA íslands var slitið 30.
maí sl. og lauk þar með tuttugasta
starfsiri hans. Við upphaf skólairs, 2.
september 1983, voru nemendur skól-
ans 420, þar með taldir nemendur í
útistöðvum i Akureyri og á ísafirði.
Bjarni Kristjánsson rektor, flutti
skólaslitaræðuna, en ennfremur
fluttu eftirtaldir nemendur ávarp:
Eyjólfur Árni Rafnsson, bygginga-
tæknifræðingur, ólafur Tryggvason,
nemandi í rekstrartæknifræði, og
Áki Áskelsson, formaður nemenda-
félagsins. Byggingatæknifræðingar
brautskraðir 83/84 gáfu skólanum 17
þúsund kr. sem verja skal til að bæta
tækjakost byggingadeildar.