Morgunblaðið - 09.06.1984, Qupperneq 27
M0RGUNBLAÐIÐ,'LAUGARÐAGl>R9. JpNl 1984
27
Akureyri:
Nýr forseti bæjarstjórnar
Akureyri, 6. júní.
FORSETASKIPTI urðu í bæjarstjórn Akureyrar á fundi í gær, en um
þessar mundir er kjörtímabil núverandi bæjarstjórnar hálfnað. Valgerð-
ur Bjarnadóttir, sem verið hefur forseti bæjarstjórnarinnar undanfarin
tvö ár, lét nú af því embætti að eigin ósk, en við tók Sigfríður Þorsteins-
dóttir. Þær eru báðar fulltrúar Kvennaframboðsins, sem myndar meiri-
hluta bæjarstjórnar ásamt fulltrúum Framsóknarflokks og
Alþýðubandalags. Við kjör forseta í gær hlaut Sigfríður Þorsteinsdóttir
6 atkvæði, Gunnar Ragnars (S) 4 og Valgerður Bjarnadóttir 1 atkvæði.
Varaforsetar voru kjörnir
Helgi Guðmundssoft (Abl.) og
Freyr ófeigsson (A), báðir með 6
atkvæðum, en fimm seðlar voru
auðir.
Á fundi bæjarstjórnarinnar í
gær voru einnig eftirtalin kosin í
bæjarráð: Sigurður Jóhannes-
son, Valgerður Bjarnadóttir,
Helgi Guðmundsson, Gunnar
Ragnars og Sigurður J. Sigurðs-
son. Varamenn í bæjarráð: Úlf-
hildur Rögnvaldsdóttir, Sigfríð-
ur Þorsteinsdóttir, Sigríður
Stefánsdóttir, Jón G. Sólnes og
Margrét Kristinsdóttir.
f hafnarstjórn voru kosin:
Stefán Reykjalín, Gunnlaugur
Guðmundsson, Elín Stephensen,
Jón G. Sólnes og Vilhelm Þor-
steinsson. Varamenn: Bjarni Jó-
hannsson, Hilmir Helgason,
Þorgerður Hauksdóttir, Herbert
Jónsson og Jónas Þorsteinsson.
í rafveitustjórn voru kosin:
Sigurður Jóhannesson, Ragn-
hildur Bragadóttir, Hilmir
Helgason, Gunnlaugur Fr.
Jóhannsson og Sigtryggur
Þorbjörnsson. Varamenn: Ingvi
R. Jóhannsson, Svava Aradóttir,
Jósef Sigurjónsson, Einar
Bjarnason og Jóhann Krist-
jánsson.
í kjörstjórn voru kosin: Hallur
Sigurbjörnsson, Ásgeir Pétur
Ásgeirsson og Sigurður Ring-
sted, og til vara: Sólveig Gunn-
arsdóttir, Bjarni Kristjánsson
og Haraldur Sigurðsson. GBerg.
Punktar frá bæjarstjórn Akureyrar
Akureyri, 6. júní.
Hár reikningur
Orkustofnunar
í fundargerð vatnsveitustjórn-
ar frá 24. maí kemur fram að
lagðir hafi verið fram reikningar
frá Orkustofnun vegna borholu á
Vaglaeyrum. Við samanburð á
reikningum á milli ára og verk-
efna telur stjórnin að fram
komi, að hækkun á bortaxta
nemi allt að 100%. Þótti stjórn-
inni þetta mikil hækkun og hef-
ur óskað eftir nákvæmum skýr-
ingum frá verktaka, Orkustofn-
un.
Húsvarðarstaða
við Síðuskóla
Skólanefnd Akureyrar aug-
lýsti nýlega lausa stöðu húsvarð-
ar við hinn nýja Síðuskóla og er
gert ráð fyrir 50% stöðuhlut-
falli. Sjö umsóknir bárust um
stöðu þessa og hafði skólanefnd
samþykkt fyrir sitt leyti að ráða
Rúnar S. Arason, Arnarsíðu 4a, í
stöðuna. Ekki voru bæjarfulltrú-
ar sammála um þessa niðurstöðu
nefndarinnar og farið var fram á
að greitt yrði atkvæði um það
hver stöðuna skyldi hljóta. Var
það gert og hlaut þá Magnús
Jónatansson, Beykilundi 8, sam-
tals 9 atkvæði en Rúnar 2.
Nýr yfirkennari við GA
Magnús Aðalbjörnsson, yfir-
kennari við Gagnfræðaskóla Ak-
ureyrar, mun verða f leyfi frá
störfum næsta skólaár, og var
því auglýst eftir umsóknum um
starf hans þann tíma. Tvær um-
sóknir bárust, frá Birni Sverris-
syni og Guðmundi Lárusi Helga-
syni. Skólanefnd mælti með, að
Guðmundur Lárus yrði ráðinn í
stöðuna til næsta árs, og sam-
þykkti bæjarstjórn það á fundi
sínum í gær.
Stuttorðar fundargerðir
Fundargerð skólanefndar
Verkmenntaskólans frá 18. maí
sl. er svohljóðandi: „1. Tekin var
afstaða til símskeytis frá
menntamálaráðuneytinu og var
samþykkt að fela formanni
nefndarinnar afgreiðslu þess. 2.
Samþykkt var að auglýsa
opinberlega eftir hugmyndum
um húsgögn fyrir skólann. —
Fleira ekki.“
Jón Sigurðsson (F) gerði þessa
bókun skólanefndarinnar að um-
ræðuefni á bæjarstjórnarfundi í
gær, taldi fráleitt að bæjar-
stjórn ætti að láta bjóða sér að
greiða atkvæði eða álykta um
slíkar fundargerðir frá nefnd á
vegum bæjarfélagsins, sem
segðu bókstaflega ekki neitt um
hvað rætt hefði verið og kvaðst
ekki geta tekið þátt í afgreiðslu á
slíkum fundargerðum.
Menningarsjóður
veitir styrki
Stjórn Menningarsjóðs ákvað
á fundi sínum 16. maí sl. að veita
eftirtalda styrki: Guðrún Pálína
Guðmundsdóttir, mynd-
listarkona, Enchede, Hollandi,
kr. 30 þús. vegna kostnaðar við
sumarnám við listaakademíu;
Sólveig Jónsdóttir, píanóleikari,
hlaut 30 þús. kr., en hún hyggst
stunda framhaldsnám í píanó-
leik í Bandaríkjunum; Signý
Pálsdóttir, leikhússtjóri, og
Theodór Júlíusson, leikari, hlutu
kr. 10 þús. hvort til að sækja
Norrænu leiklistarhátíðina í
Osló; Kristján Jóhannsson,
myndlistarkennari, kr. 10 þús. til
þess að sækja Norræna mynd-
listarkennaraþingið í Lofoten í
sumar. Loks var, samkvæmt er-
indi frá Tónlistarháskólanum,
tveimur nemendum skólans,
Ragnhildi Pétursdóttur, fiðlu-
nema, og Hönnu Margréti Sverr-
isdóttur, lágfiðlunema, veitt
samtals kr. 20 þús. til þess að
sækja námskeið í hljóðfæraleik í
Bandaríkjunum.
GBerg
Seglbrettamót á Skerjafirði
FYRSTA seglbrettamót sumarsins verður haldið laug-
ardaginn 9. júní kl. 13.00 á Skerjafirði. Mótið er
haldið á vegum siglingafélagsins Ýmis í Kópavogi.
í fréttatilkynningu þess segir að keppt verði í
þríhyrningskeppni og langsiglingu ef veður leyfi,
og reynt mun verða að keppa í svigi. Ennfremur
segir að enginn fái að taka þátt í keppninni án
björgunarvestis.
Nýr framkvæmda-
stjóri Sölustofn-
unar lagmetis
STJÓRN Sölustofnunar lagmetis
hefur ráðið Theódór S. Halldórsson í
starf framkvæmdastjóra Sölustofn-
unarinnar í stað Heimis Hannesson-
ar sem lætur nú af störfum að eigin
ósk eftir fjögurra ára starf.
Theódór hefur undanfarin ár
verið skrifstofustjóri Sölustofnun-
arinnar og einnig starfað þar að
ýmsum markaðsmálum. Hann er
32 ára að aldri, kvæntur Ólöfu
Helgu Pálmadóttur og eiga þau
tvö börn.
Theódór S. Halldórsson nýráðinn
framkvæmdastjóri Sölustofnunar
lagmetis.
Leiðrétting
í BLAÐINU í gær slæddist sú
meinlega villa í fyrirsögn að
Kristján Nikulásson, vistmaður á
Hrafnistu í Reykjavík, sem varð
100 ára í gær, var sagður vera frá
Vestmannaeyjum. Hið rétta er að
Kristján er frá Kringlu, Miðdölum
í Dalasýslu, og fluttist síðan til
Reykjavíkur árið 1923 eins og kom
fram í fréttinni.
INNLENT
Afmælishappdrætti
Sjálfstæðisflokksins
26 glæsilegir ferðavinningar
að verðmæti um 1.000.000 kr.
Dregið í dag
Vinsamlega gerið skil á heimsendum miðum
í Reykjavík er afgreiðsla happdrættisins í Valhöll Háaleitisbraut 1
Sími 82900 opið 8.00 - 22.00
Sækjum — Sendum Sjálfstæðisflokkurinn