Morgunblaðið - 09.06.1984, Side 37

Morgunblaðið - 09.06.1984, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNl 1984 37 Minning: Jón Edwald Kristjónsson Fæddur 9. Júní 1917 Diinn 10. janúar 1984 Jón Edwald Kristjónsson var fæddur 9. júní 1917 á Blönduósi. Foreldrar hans voru Kristjón Jónsson trésmiður og kona hans, Guðrún Jónsdóttir. Kristjón var fæddur 24. júní 1891, sonur Jóns bónda á Skarði í Haukadal í Dala- sýslu, f. 1856, d. 1931 Guðmunds- sonar og konu hans, Kristínar Ólafsdóttur bónda á Stóra- Vatnshorni í Haukadal Hallsson- ar (Dalamenn I 299—300). Kona Kristjóns var Guðrún, fædd 27. maí 1882, Jónsdóttir Sigurðssonar bónda á Reykjanesi í Víkursveit, Strandasýslu, f. 1860, er drukkn- aði haustið 1882 með Þorsteini frá Kjörvogi (Strandamenn 480). Kristjón og Guðrún fluttust með Jón ársgamlan frá Blönduósi til Reykjavíkur, og þar ólst Jón upp, hið eina af fimm börnum þeirra hjóna er lifði. Kristjón fað- ir hans var vel greindur maður og skáldmæltur, en heilsuveill. Krist- jón dó 1941, tæplega fimmtugur. Eftir hann komu út ljóðabækurn- ar Aringlæður, 1924, og Sindur, 1937, ásamt fleiru. Þessa stöku orti hann til Jóns í æsku: Hjartans æðsta ósk er mín öll þó veröld banni, að góður drottinn gæti þín og gjöri að nýtum manni. Jón byrjaði ungur að vinna fyrir sér. Hann var um árabil sendill hjá Landssímanum. Síðan lærði hann símvirkjun og vann að þeim störfum um stutt árabil, en ekki varð símvirkjastarfið hans fram- tíðaratvinna. Hann sneri sér að verslunarstörfum og þau urðu síð- an hans ævistarf. Jón giftist ungur Ágústínu Ág- ústsdóttur, en leiðir þeirra skildi eftir nokkur ár. Þau áttu þrjú börn; Gísla, Kristrúnu og Ágústu. Seinni kona Jóns var Alda Kristjánsdóttir frá Vestmanna- eyjum. Eins og áður sagði varð verslun og kaupmennska ævistarf Jóns. Ekki er það tilgangurinn með þessum fáu minningarorðum að rekja ítarlega kaupmannsferil hans eða ævisögu. — Jón í Eyja- búð, eins og hann var jafnan nefndur af þeim er þekktu til hans, var fyrst með litla matvöru- búð með þessu nafni á Bergstaða- stræti. Þaðan fluttist hann í lítið hús er hann fékk að setja niður við Bústaðaveg, fyrir nýbyggðina við Bústaðaveg, Hæðargarð og Hólm- garð upp úr 1950. Var það fyrsta búðin í því hverfi. Þó að búðin væri iítil, bætti þetta úr aðalþörf- um fólksins. Þá voru ekki sam- göngur og bílaeign almennings eins og nú, og þarna var leyst úr ýmiskonar þörfum við takmark- aðar kringumstæður. Eftir nokkur ár setti Jón sig niður með búð í Múlakampi sem kallaður var. Flutti hann húsið þangað og stækkaði það mikið. Þarna var um skeið rekin kaffi- stofa af öldu konu hans, Háaleit- is-Kaffi, en verslunin var við Háa- leitisveg 108a. En svo kom skipu- lagið til og göturnar Ármúli og Síðumúli voru lagðar og þá var Eyjabúð fyrir. Þá byggðu þau hjónin verslunarhúsið Dalmúla sem er nr. 8 við Síðumúla, og í það var flutt 1974. Hin síðari ár fór heilsu Jóns hnignandi og það urðu því ekki mörg árin sem hann gat notið þeirrar bættu aðstöðu sem hið nýja húsnæði veitti honum. Hin síðari ár var heilsu hans þannig farið að hann varð að lokum að hætta, og lét búðina á leigu. Hon- um hefði þó ekki tekist að halda svo lengi í horfinu, ef ekki hefði komið til mikil dagleg hjálp öldu konu hans er var honum ómetan- leg aðstoð við störfin og allar út- réttingar, og umhyggju og að- hlynningu á heimilinu að ioknu dagsverki. Jón minntist þess oft við konu sína, að hann vonaði að hann fengi að kveðja á undan henni og honum varð að þeirri ósk sinni. Jón var orðheldinn og ábyggi- legur í viðskiptum. Hann var hlé- drægur í eðli sínu og kunni vel að meta ef góðu var að honum snúið, einlægur og hlýr í viðmóti. Með ástundun og heiðarleika tókst honum að verða efnahags- lega sjálfbjarga. Þess vegna gat hann horft áhyggjulaus fram til efri ára, ef heilsan héldist og með góðri aðhlynningu konu sinnar. En við þekkjum ekki stundina eða daginn. í fyrstu viku þessa árs veiktist hann óvænt og hastarlega og 10. janúar lést hann á Borg- arspítalanum í Reykjavík, aðeins sextíu og sex ára að aldri. í dag, 9. júní, er afmælisdagur Jóns. Þá hefði hann orðið sextíu og sjö ára. Kynning min, sem þessar línur rita, af Jóni í Eyja- búð, í áratugi, er öll á einn veg. Hann var góður drengur. Þess vegna vil ég nú á þessum degi þakka fyrir liðna tíð í þeirri nýju tilveru, og ég veit að Guðs blessun fylgir honum. Indriði Indriðason Asaprestakall: Sigurður Árni Þórð- arson kosinn prestur SÉRA Sigurður Árni Þórðarson hefur verið kosinn prestur í Ása- prestakalli í Skaftafellsprófasts- dæmi, en hann var áður settur prestur þar. Kosið var 31. maí sl. Á kjörskrá voru 163 og greiddu 99 manns at- kvæði. Séra Sigurður Árni var eini umsækjandinn og hlaut hann 90 atkvæði, en 9 seðlar voru auðir. Kosningin var því lögmæt. Séra Sigurður Árni er eiginmaður séra Hönnu Maríu Pétursdóttur og tók hann við prestakallinu af henni í vetur. Hópferð til Finnlands og Sovétríkjanna Ef næg þátttaka fæst ráögerir Norræna félagiö hópferö til Finnlands og Sovét- ríkjanna dagana 27. júní til 9. júlí í sumar. Dvaliö verður í Helsinki fyrstu tvo dagana og m.a. fariö í skoöunarferö um borgina, en þann 30. júní verður lagt upp í skoöunarferö um Miö- og Suður-Finnland, landsvæöi hinna þúsund vatna. Verður m.a. fariö um Tampere, Jyváskylá, Kouvola, Mikkela og Lappenranta og gist á þessum stööum á fyrsta flokks hótelum viö glæsilegan aöbúnað. Til Sovétríkjanna Þann 5. júlí gefst svo þátttakendum kostur á aö fara landleiöina til Leningrad og dvelja þar á Hotel Pulkovskaja til 8. júlí. í Leningrad veröur fariö í skoðunarferö- ir um borgina og nágrenni. 8. júlí veröur svo snúiö aftur til Finnlands til móts við flugvélina, sem heldur til íslands þann 9. júlí. Fargjald fyrir Finnlandsferöina er 28 þús. kr. og er þá innifaliö flugfar heiman og heim, hótelgisting í Finnlandi á 1. flokks hótelum, morgunveröur í Helsinki en hálft fæöi á öllum öörum gististööum í Finnlandi, akstur um Finnland, farar- stjórn o.fl. Feröin til Leningrad kostar 5.200 krónur aukalega og er þar innifalinn akstur, gisting, hálft fæöi og skoöunarferöir. Þeir sem áhuga hafa á þátttöku, eru beönir aö hafa samband viö skrifstofu Norræna félagsins eigi síöar en miövikudaginn 13. júní. Þetta ferðalag er ein sérstæöasta og óvenjulegast ferð, sem í boöi er í sumar á vegum félagsins. VERKTAKAR VÖRUBIFREIÐAEIGENDUR BIFREIÐAEIGENDUR Hjólbarðatilboð okkar í júní er: 6 stk. 1000x20 — 14 pl. í pakka á kr. 42.000,- 4 stk. 1100x20 — 14 pl. í pakka á kr. 41.000,- 4 stk. 520x12 — í pakka á kr. 4.500,- 4 stk. 560x12 — í pakka á kr. 6.500,- 4 stk. 600x13 — í pakka á kr. 7.700,- 4 stk. 650x13 — ípakkaákr. 8.200,- Allt verö miðast viö staðgreiðslu. BEIN LÍNA HJÓLBARÐAR ER SÍMI 83490. BíLVANGUR Sf= HÖFÐABAKKA 9 • I24 RÉYKJAVÍK 5ÍMI 687300

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.