Morgunblaðið - 09.06.1984, Síða 39

Morgunblaðið - 09.06.1984, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JUNÍ 1984 Sr. Garðar Svavars- son - Minningarorð Sr. Garðar Svavarsson andaðist 9. maí hér í bæ. Hann fæddist 8. september 1906 að Búðum í Fá- skrúðsfirði. Voru foreldrar hans Svavar Sigurbjörnsson Svavars kaupmanns frá Reykhúsum í Eyjafirði, og konu hans, Jónu Bjarnadóttur, kaupmanns á Seyð- isfirði. Að henni stóðu miklar ætt- ir á Austurlandi. Bjarni, faðir Jónu, var bróðir Stefaniu, konu sr. Sæmundar Jónssonar í Hraungerði, er voru foreldrar Geirs Sæmundssonar, vígslubiskups. Þau Bjami og Stef- anía voru börn sr. Sigurgeirs Pálssonar prests á Skeggjastöðum á Bakkafirði og konu hans, Önnu, dóttur sr. Ólafs Indriðasonar, prests á Kolfreyjustað. Sr. Sigur- geir Pálsson var sonur Páls Guð- mundssonar, sýslumanns frá Krossavík og konu hans, Malenu dóttur Jens Örum verslunar- manns og konu hans Sigríðar syst- ur Geirs Vídalíns biskups. Var þetta stórbrotið hæfileika- fólk. Sr. Sigurgeir Pálsson var söngmaður með afbrigðum, skáld- mæltur, góður kennari, barngóður og hraustmenni mikið. Garðar Svavarsson var snemma hneigður til náms, hann lauk stúd- entsprófi 1927 og hóf nám í lækn- isfræði, en hvarf frá því eftir eins vetrar nám og tók að lesa guð- fræði. Hann lauk prófi í febrúar 1933 með fyrstu einkunn og stund- aði síðan framhaldsnám í trúfræði í Svíþjóð einn vetur. Hann kvænt- ist Hönnu Brynjólfsdóttur, 16. september 1933. Hún var frá Ak- ureyri og átti einnig ættir að telja úr Húnaþingi. Hún var vel gefin kona og ljósmyndari að iðn. Þau eignuðust þrjú börn, Örn verk- fræðing, Jónu hjúkrunarkonu og Gylfa lyfsala á Hvolsvelli. Garðar vígðist til Hofsprestakalls í Álfta- firði með búsetu á Djúpavogi 1933. Er ekki ólíklegt að hann hafi haft í huga ættartengsl við Austur- land. Hann undi þar vel hag sínum og var fljótur að samlagast fólk- inu. Er Sigurður P. Sivertsen há- skólakennari í guðfræði fékk lausn frá embætti 1936 sóttu fjór- ir um stöðuna. Sr. Garðar Svav- arsson var einn þeirra og skyldi nú fara fram samkeppnispróf. Mátti ætla að himneskur friður ríkti um stöðuveitingu þessa, um val á manni til að rækja hið göf- uga starf að uppfræða prestsefnin í siðfræði og trúfræði er áttu að starfa í helgidómum þjóðar vorr- ar. En bráðlega varð séð, að menn myndu skipa sér í fylkingar um þetta mál. Um þessar mundir var vaknað- ur áhugi á að fjölga prestum í Reykjavík og skipta Dómkirkju- brauðinu í sóknir. Var þá falast eftir sr. Garðari að hefja starf í Laugarneshverfi í Reykjavík, en þar var fólksfjöldi í örum vexti. Tók hann því feginsamlega er hann sá hvað fara vildi um kenn- araembættið. Er ráðamenn fundu dugnað hans við þetta starf, var hann kallaður til aukaprests í Dómkirkjusöfnuðinum í Reykja- vík 1938. Er Laugamesprestakall hafði verið stofnað var hann skipaður þar 1941 eftir lögmæta kosningu. Sr. Garðars beið mikið starf og er skemmst frá að segja að hann vann þar brautryðjandastarf að grundvalla nýja sókn í Reykjavík. Hann gekk að þessu með dugnaði og viturleik í umgengni við fólkið við að safna því saman til guðs- þjónustuhalds. Var hann ótrauður að húsvitja. Eftir 13 ára starf hans og bestu manna reis í Laug- arnesi mikið og fullkomið guðs- hús, Laugarneskirkja. Sr. Garðar starfaði í söfnuði sínum í 40 ár, jafnan við mikið gengi. Hann var alþýðlegur í viðmóti, ræðinn með fastmótaða lífs og trúarskoðanir, þá var hann barnafræðari velmet- inn og einkar barngóður. Hann var snyrtimenni, fyrirmannlegur í framkomu og kurteis og traustur vinum sínum. Má þar til nefna að eftir fjög- urra ára starf í Reykjavík fékk hann sumarfrí og notaði hann það til að kveðja söfnuði sína í Hofs- prestakalli. Honum hafði eigi ver- ið það auðið er hann óvænt ílentist í Reykjavík. Samband hafði hann við sóknarbörn sín á Austfjörðum er þau voru á ferð hér í Reykjavík og kvaddi þau stundum við skips- hliðs er þeir héldu til síns heima. Sr. Garðari var vel fagnað af sínum gömlu sóknarbörnum og hefur sjálfsagt messað á öllum kirkjunum, þar á meðal á Djúpa- vogi. Hann færði kirkjunni að gjöf frá þeim hjónum altarisdúk, góð- an grip, er kona hans hafði saum- að. Var honum þessi ferð ógleym- anleg og fygldi söfnuðurinn hon- um til skips er hann lagði frá landi. Það mun hafa valdið nokkru um, að sr. Garðar flutti til Reykja- víkur að kona hans undi sér eigi á Djúpavogi. Þar kom að þau skildu en alla tíð hafði sr. Garðar mikil kynni og gott samband við börn sín, er voru hans yndi. Sr. Garðar kvæntist síðar sænskri konu, Vívan Holm, er var kennari í leikfimi og sjúkraþjálf- un, 19. júlí 1952. Hafði hún verið búsett hér um árabil. Hún hafði mikinn áhuga fyrir kirkjulegu starfi og starfaði því mikið með Minning: Valdimar Stefáns- son bóndi, Þverá Fæddur 22. september 1906 Dáinn 24. aprfl 1984 „Minir vinir fara fjöld feigðin þessa heimtar köld.“ Mér duttu þessar ljóðlínur Bólu-Hjálmars í hug, er ég heyrði lát vinar míns, Valdimars Stef- ánssonar. Valdimar var fæddur 22. sept- ember 1906, sonur hjónanna Stef- áns Sigurðssonar bónda á Þverá í Blönduhlíð og konu hans Hjörtínu Hannesdóttur. Valdimar ólst upp á Þverá og gerðist svo bóndi þar um tíma, eða þar til að honum fannst hann vera orðinn fyrir Steinþóri bróður sín- um, en þeir bjuggu á sínum fjórða partinum hver. Valdimar seldi bróður sínum þá sinn hlut og yfir- gaf þar með það lífsstarf, sem hann hafði kosið sér og var honum kærast alla tíð. Valdimar var í orðsins fyllstu merkingu maður lífsins og mold- arinnar. Hann var skepnuhirðir með þeim ágætum að fátítt er. Þegar hann hætti búskap gerð- ist hann verkamaður. Marga vetur fór hann til Vestmannaeyja og vann þar við fiskverkun og stund- aði svo vegavinnu á sumrin. Hvort tveggja lfkaði honum vel og held ég reyndar að Valdimar hafi í reynd líkað öll vinna, sem hann vann, því hann var maður, sem vann vegna vinnunnar sjálfrar og hugsaði um það fyrst og fremst, að vinna verk sín vel. Mig furðaði oft á því, hvílíkum afköstum Valdi- mar náði við vinnu. Hann fór aldr- ei hart, en hélt jafnri ferð og stoppaði aldrei og vandaði sig allt- af við alla vinnu. Ég held því og er reyndar viss um, að það var gott að hafa Valdimar í vinnu, því hann var listamaður í höndunum. Hann var t.d. ágætur hleðslumað- ur á torf og grjót og veit ég um tvo bæi, sem hann byggði upp. Eru það gamli bærinn á Hólum í Hjaltadal og bærinn á Tyrfings- stöðum á Kjálka. Verklagni hans og vandvirkni í öllu iýsti hann ef til vill best sjálfur, þegar hann var eitthvert sinn að segja mér hvern- ig ætti að girða svo vel færi: Ef þú stendur við endann á 1000 metra langri girðingu og kíkir eft- ir og sérð aðeins einn staur, þykir mér líklegt að hún sé sæmileg. Valdimar var annálað prúð- menni í allri umgengni og snyrti- menni svo af bar. Ég undraðist það oft, hversu snyrtilegur hann var alla tíð og þá skipti það engu máli við hvað hann var að vinna. Það virtust bara ekki tolla við hann nein óhreinindi. Eftir að Valdimar hætti vega- og vertíðarvinnu, fluttist hann úr Blönduhlíðinni út í Viðvíkursveit. Hann setti sig niður á Narfastöð- um, en þar bjuggu gömul hjón, Elías Þórðarson og Oddný Jóns- dóttir. Þeim hjálpaði hann við búskapinn á meðan þess þurfti og þegar Ólöf Þórhallsdóttir, dótt- urdóttir gömlu hjónanna, tók við búsforráðum var hann henni inn- an handar við ýmislegt og veit ég að hún og afi hennar voru honum afar þakklát fyrir. Valdimar var afar barngóður maður og hændust öll börn fljótt að honum. Hann var svo blíður. Því kom það stundum í hans hlut að vera barnfóstra fyrir ólöfu og fór það sem annað vel úr hendi. Hann minntist þeirra stunda ætíð með gleði. Ég minnist þess líka hversu glaður hann varð, þegar Ólöf kom í heimsókn til hans í Varmahlíð og var með litlu kon- urnar með sér. Þann 18. nóvember 1983 flutti Valdimar yfir í Varmahlíð og tók hús af undirrituðum. Þar flutti hann inn í bráðabirgðaíbúð, sem Niels Kristinn Lúð- víksson — Fæddur 10. desember 1900 Dáinn 22. apríl 1984 Þann 30. apríl sl. var borinn til grafar tengdafaðir minn Níels Kristinn Lúðvíksson, Melgerði, Fáskrúðsfirði, en hann lést 22. apríl sl. eftir stutta sjúkdómslegu í Borgarsjúkrahúsinu í Reykjavík. Níels var fæddur í Gvendarnesi, Fáskrúðsfjarðarhreppi 10. des- ember 1900, sonur hjónanna Lúð- víks Guðmundssonar og Halldóru Baldvinsdóttur. Eignuðust þau hjónin átta börn, fjögur þeirra komust til fullorðinsára, en nú er aðeins eitt þeirra á lífi. Um fermingaraldur fór Níels að stunda sjó með föður sínum á opnum vélbátum. Árið 1927 keypti Níels sér vélbát og reri hann frá Hafnarnesi fyrstu árin en síðan frá Búðum eftir að hann flutti Minning þangað, þaðan stundaði hann sjó- inn þar til 1977 að hann hætti fyrir aldurssakir. í þau 60 ár sem Níels stundaði sjóinn, flest árin sem formaður á opnum vélbátum, henti hann engin óhöpp, og ætíð skilaði hann sér og sínu fleyi í land. Hann var góður aflamaður og fór sérlega vel með. Eftir að Níels hætti sjóróðrum fór hann að vinna í landi í saltfiskverkun HFF, þar sem hann vann þar til heilsan brást honum í nóvember sl. Árið 1936 á útmánuðum voru gefin saman í hjónaband þau Ní- els og Petra Þórðardóttir frá Vík- urgerði í Fáskrúðsfirði, dóttir hjónanna Þórðar Gunnarssonar og Guðrúnar Jónsdóttur. Þau Ní- els og Petra bjuggu allan sinn búskap í húsinu Melgerði, Búðum. Eignuðust þau 6 börn. Þau eru: Reynir sem býr í foreldrahúsum, Sigurveig, gift Vigni Jóhannes- syni, Búðum, Svavar, búsettur í Reykjavík, Aðalbjörg, gift Georg Einarssyni, Akranesi, Sævar, býr í foreldrahúsum, og Guðrún, gift undirrituðum, Búðum. Einnig átti Níels son frá fyrra hjónabandi, Ottó, sem býr með Ingibjörgu Jó- hannsdóttur, Reykjavík. Stjúp- dóttir Níelsar er Soffía Alfreðs- dóttir, gift Skúla Þórðarsyni, Akranesi. Einnig ólu þau Níels og Petra upp dótturson sinn, Níels Pétur. Níels var ekki hávaxinn maður en stór var hann. Mikill elju- og dugnaðarmaður til allrar vinnu og má segja að honum hafi aldrei fallið verk úr hendi. Níels heitinn var mikill og góð- ur heimilisfaðir og ekki var hann síðri afi. Tel ég það mikið lán fyrir börnin okkar hvað þau fengu þó að njóta hans lengi. ófáa sunnu- dagsmorgna lagðist hann inn á dí- van með þau og sagði þeim sögur, en frásagnargleði hans var ein- stök. Að lokum viljum við þakka fyrir þær góðu stundir sem við fengum að njóta með okkar kæra föður, tengdaföður og afa. Blessuð sé minning hans og við felum hann góðum Guði á vald. Eiríkur Ólafsson ____________________________39_ manni sínum innan kirkjunnar. Þau hjón voru mjög samhent alla tíð. Eftir að sr. Garðar lét af prest- skap flutti hann nokkur útvarps- erindi fróðleg og skemmtileg. Má þar til nefna frá Djúpavogi, er hann gekk með ungu fólki á þeirra helga fjall, Búlandstind, og leit af gnípu þess yfir hauður og haf, lendur og byggðir, þar er hann hóf prestsstarfið, er hann óx með alla tíð. Sr. Garðar Svavarsson var í Fé- lagi fyrrverandi presta, sótti fundi og messaði. Honum fylgdi glað- værð, góð ára hins trúaða manns. Með okkur bast vinátta frá skóla- árunum er við unnum saman í símavinnu er ég var í Menntaskól- anum, en hann í Guðfræðideild- inni. Þann 17. maí var sr. Garðar Svavarsson kvaddur í Laugarnes- kirkju, er var fullsetin af safnað- arfólki, kennimönnum og vinum hans, er minntust hans með þakk- læti og virðingu eftir 40 ára starf, eins og söfnuðirnir gerðu fyrir austan eftir 4 ára starf. Pétur Þ. Ingjaldsson. hann dvaldi í í vetur, en í vor ætl- aði hann að flytja í framtíðar- húsnæði og sú var ætlunin, að við myndum deila með okkur þeirri íbúð. En kallið var komið. Ög þó við mennirnir gerum okkar áætl- anir, mættum við minnast þess, að enginn ræður sínum næturstað. Valdimar hafði tekið sjúkdóm þann, er leiddi hann til dauða. Hann var því oft sjúkur og þurfti hjálpar við, þennan síðasta vetur. En þar sem ég var á vertíð, kom það alfarið í hlut systur minnar að hjúkra honum og hjálpa þessa síð- ustu mánuði, sem hún gerði af ein- stakri natni. Enda hafði Valdimar orð á því nokkru áður en hann dó, að þarna hefði hann ekki getað verið án hjálpar Sillu sinnar, sem honum þótti afar vænt um og var henni mikið þakklátur. Valdimar Stefánsson var ein- stakt prúðmenni í hvívetna. Jó- hann Weihe, gamall samverka- maður hans, lýsti honum þannig: Valdimar var blíðasti maður, sem ég hefi kynnst, það var alltaf logn í kringum hann. Ég, sem skrifa þessi fátæklegu minningabrot um vin minn, er þakklátur almættinu fyrir þá náð að hafa fengið að kynnast Valdi- mar Stefánssyni. Því það er hverj- um manni mikil blessun og auður, sem aldrei verður mældur í gulli og glingri heimsins, að fá að kynn- ast og eiga að vin göfugmenni eins og Valdimar Stefánsson réttilega var. Með þessum fátæklegu orðum vil ég kveðja vin minn, um leið og ég óska honum velfarnaðar í nýj- um heimkynnum með þökk fyrir samfylgdina. „Göfugmennis svo grætur sæti guð veit, hver aftur fyllir það “ (Bólu-Hjálmar) Gísli Víðir Björnsson, Framnesi. Birting afmælis- og minningar- greina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á f miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrír hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrít þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.