Morgunblaðið - 09.06.1984, Síða 45

Morgunblaðið - 09.06.1984, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1984 45 mp ~ VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS u^ui um-u\X Misheppnað lagaval Guðrún Einarsdóttir skrifar: Ágæti Velvakandi. Við erum hér tvær vinkonur, sem höfum haldið uppi þeirri venju um áraraðir, að taka okkur ferð á hendur til Hafnarfjarðar á vordögum ár hvert, og hlýða þar á samsöng karlakórsins „Þrasta". Sjálf tel ég að þessi venja mín hafi greinilega tengst fortíð minni, því þegar ég var telpu- krakki vildi svo til að móðurbróðir minn bjó í „Firðinum", og hann bauð einatt foreldrum mínum á vorkonsert kórsins. Hefi ég einatt haft mikla ánægju af að hlýða á þennan annars ágæta kór. Nú varð ég hins vegar í fyrsta skipti eftir öll þessi ár, fyrir nokkrum vonbrigðum. Lagavalið fannst okkur í ýmsu misheppnað. Mörg lögin þung- lamaleg eins og t.d. Hermanna- kórinn úr II Travatore eftir G. Verdi, sem var víst stæsta verkið sem þarna var flutt. Svoleiðis stríðssöngvar eru að margra dómi í dag, ekki vel fallnir til að vekja ánægju í hjörtum fólksins, enda virtist sem söngmennirnir flyttu það með takmarkaðri tilfinningu, eins og raunar fleiri lög þarna. Okkur fannst það einnig setja nokkuð óvenjulegan og neikvæðan svip á þennan ágæta söngmanna- hóp, þegar mitt í fyrri og síðari hluta söngskrárinnar eru sem næst þrír fjórðu hlutar kóra- mannanna látnir ganga af sviðinu, en eftir standa tíu eða ellefu menn (um það bil einn fjórði hluti kórs- ins) og byrja að kyrja marg jask- aða söngva eftir S.C. Foster o.fl. og alla náttúrlega á ensku, enda þótt til séu við þá flesta ágætar íslenskar þýðingar. Mun láta nærri að um þriðjungur af söng- prógrami hafi verið af þessu tagi, ef frá eru skilin þrjú aukalög sem að sjálfsögðu voru ekki á söng- skránni. Fannst okkur sannast sagna nokkuð óvenjulegt, að nöfn þess- ara „litlakórsmanna" voru ekki kynnt sérstaklega á söngskránni, enda þótt sérstakur kynnir kæmi þarna fram og kynnti lögin sem kórinn söng. Þessi samsöngur karlakórsins „Þrasta" sem hér um ræðir, fór fram 26. maí síðastl., og var vandalítið að heyra á ýmsum sem þarna voru, að þeir voru ekki sem ánægðastir með þennan „nýstíl" sem þarna virtist eiga að koma á framfæri. Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 11 og 12, mánudaga til fostudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilislong verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar óski nafnleyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. Stjórnstöðin og Svavar mi Tnm • mrmmm á I KrfU.fkur er á dagnkrá," mtgir Sravar (kdm í nmnHtófTÍ fonrfðufrétt ( Þjoðviljanum á þnðjmUg iaa Tttefni þom að Þjðð- var iivarað kafl Svavar i ið eMtkvert mririkáttar frtðara/rek. Þvf er .jmein að að ofaa að ( ÞjéðvMjaui káaall. jaaiar IM4 var DJOÐVHIINN ólafur G. Einarsson viðurkennir áhuga Bandaríkjahers vtrdé rnsl é Stjórnstöð í stríði Keflaviku flugvelli Á ad standast sjð daga kfam- orkusiyrföld Gömul uppgötvun Athygli hefur vaklö hve Svavar Gestsson hefur gert mlkiö veöur út af því aö hann hafl „fundlö” hogmyndir um nýja stjórnstöö fyrir vamarllöiö nú i mai. Þessi bœgslagangur sannar þaö þó helst aö Svavar er haattur aö lesa Þjóövilj- ann elns og Guömundur J. og Ásmundur Stefánsson — likiega les hann englnn lengur nema Ólafur R. Grímsson af þeém sem berjast um völdln í Alþýöubandalaginu. Um þetta er rœtt í Staksteinum í dag og einnlg misnotkun Fylkingarfélaga á leikregium fýöraöisins á síöum Morgun- blaösins. anna til þess að upplýsa um efna- hags- og stjórnmálaástand í land- inu. Nefndin hélt yfir 30 blaða- mannafundi þar sem fjöldi blaða- manna mætti. Ekki eitt einasta þessara blaða greindi frá einum einasta þessara funda. Þær fréttir sem bandarískir þegnar sitja að um Mið-Ameríku eru matreiddar út frá hagsmunasjónarmiðum yf- irvalda." (Var einhver að tala um skoðanakúgun í Sovétríkjunum?) Þessi upplýsing gerði mér ann- an sannleik ljósan. Þann 12. nóv- ember sl. var ég viðstödd risa- vaxnar mótmælaaðgerðir í Wash- ington gegn íhlutun Bandaríkj- anna í Mið-Ameríku. Þar töluðu fulltrúar frá Nicaragua og FMLN í E1 Salvador. Mikil stemmning ríkti þegar þeir töluðu. Daginn eftir leitaði ég að fréttum um fundinn í New York Times og Washington Post. Þessir tveir voru ekki nefndir, en sagt var frá fundinum og nokkrir ræðumenn nefndir. Ég vissi ekki þá að þetta mundu vera samantekin ráð. Nú talar ritari Staksteina um að öðru vísi greinarskrif en af því tagi sem ég var að geta um, séu skipulögð af heimskommúnisman- um. Nú er ekki um að ræða slíka skipulagningu hvað Morgunblaðið snertir, enda er hér um að ræða greinahöfunda með ólíkar póli- tískar skoðanir, eins og ritara Staksteina er fullkunnugt um. Aftur á móti hefur Fylkingin skipulagt skrif upp á sitt eins- dæmi: um málefni Mið-Ameríku, um styrjaldir og hervæðingu, um málefni íslenskrar og evrópskrar verkalýðsstéttar, um pólitík ríkis- stjórnarinnar og afleiðingarnar fyrir almenning í landinu, og margt fleira. Þessi skipulögðu skrif fara fram í ritinu Neista, sem hægt er að fá áskrift að og einnig aftur í tímann. Þetta rit er mikilvægt mótvægi í þeirri frétta- einokun sem við búum við, og nauðsynlegt öllum þeim sem vilja skyggnast bak við hagsmuni hinna voldugu fjölmiðla. Aths. ritstj. Þar sem Sigurlaug S. Gunn- laugsdóttir veit hve margar grein- ar Fylkingarfélagar hafa birt í Morgunblaðinu síðustu mánuði um málefni Mið-Ameríku er henni einnig kunnugt um að tilvitnana- flóðið í þessum greinum er með þeim hætti að augsýnilega er um alþjóðlega samvinnu að ræða. Til- vist Fylkingarinnar má einmitt rekja til þarfar félaganna til að vera í alþjóðlegri byltingarhreyf- ingu heimskommúnismans, hvers vegna skyldu þeir ekki þora að kannast við það? Hvers vegna skyldu þeir ekki nýta sér hin al- þjóðlegu sambönd til að fá efni í áróðursgreinar? Hvers vegna skyldu þeir ekki nota hvert tæki- færi sem gefst til að koma þessu efni á framfæri í víðlesnasta blaði landsins? Verst er þessum aðilum eins og Fylkingunni þó við það að vakin sé athygli á þessari skipu- lögðu áróðursstarfsemi, en það var gert í Staksteinum 25. maí 1984 — viðbrögðin láta ekki held- ur á sér standa eins og sést af bréfi Sigurlaugar S. Gunnlaugs- dóttur, þar er lagt út af þeim gam- alkunna texta kommúnista, að öll fjölmiðlun í heiminum sé samsæri auðvaldsins. Skyldi fólkið trúa þessu? OSKUM EFTIR hárgreiðslusveini og -nema sem bú in n er með 9 mánuði í Iðnskólanum hjd Dúdclcl Og Mdttd Hótel Esju Suöurlandsbraut 2 simi 83055 LAUSNIN ER FUNDIN SEX FÁGÆTAR Það er stundum erfitt að finna tœkifœrisgjafir handa lax- og silungsveiðimönnum, sem eiga öll tæki og tól til að stunda íþrótt sína. Nú hefur Bókaútgáfan Þjóðsaga á- kveðið, að leysa þessa þraut. Hún hefur safnað saman í einn bókaflokk sex bókum um lax- og si/ungsveiðar. Sumar þessara bóka eru fá- gætar, og er þessi bókaflokk- ur kjörin gjöf við margvísleg tækifæri. Og auðvitað geta menn einfaldlega keypt þær handa sjálfum sér. — I þessum bókaflokki eru eftirtaldar bækur: 1. Elliðaárnar, paradís Reykjavíkur, eftir Guðmund Daníels- son. Bókinni fylgja vönduð veiðikort, gömul og ný. 2. Norðurá, fegurst áa, eftir Björn J. Blöndai Þessari bók fylgja einnig skýr og góð veiðikort og fjöldi mynda. 3. Dunar á eyrum, Ölfusá og Sogið, eftir Guðmund Daníels- son. Þessi bók er mikið og merkiíegt heimildarit. 4. Roðskinna, bók um galdurinn að fiska ástöng og mennina sem kunna það, eftir Stefán Jónsson. Þetta er lífleg og skemmtileg bók, prýdd fjölda teikninga. 5. Vötn og veiðimenn, uppár Árnessýslu, eftir Guðmund. Daníelsson. Eins og Dunar á eyrum, er þessi bók mikið heimildarit um hið mikla vatnasvæði Árnessýslu. 6. Meðflugu I höfðinu, eftir Stefán Jónsson, sem hann nefnir bókarkorn um tæki til fluguveiða og notkun þeirra. Þetta er bæði skemmtileg og gagnleg handbók fyrir þá, sem stunda fluguveiði. Hér er á ferðinni einstakt tækifæri til að eignast nokkrar helstu lax- og silungsveiðibækur, sem gefnar hafa verið út á Islandi. Hafsjór af fróðleik og heimildum. — Upplagið er takmarkað. $ókaútgáfan|Djótisaga

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.