Morgunblaðið - 27.07.1984, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 27.07.1984, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1984 41 Persónu- lega kom mér þaö ekki við — segir Paul W. Tibbits sem varpaöi sprengjunni á Hiroshima Arið 1945 gekk maöurinn inn í at- ómöld og um leið lauk síöari heimsstyrjöldinni. Sá sem varp- aöi sprengjunni á Hiroshima var Paul W. Tibbets en eftirfarandi viötal Horst Wackerbarth viö hann birtist nýlega í tíma- ritinu Manipulator: — Tibbets, þú áttir ríkan þátt í þeaaum sögulegu umakiptum. Þú verst viö stjórn- völinn í B-29-fiugváiinni sem kölluö ver Enoie-Gay og kaataöi fyratu kjarnorku- sprengjunni. Geturöu aegt frá tildrögum þessa atburöar? — Já, með ánægju geri óg þaö. Þetta veitir mér tækifæri til aö útskýra aö ákvöröun um þessa aögerö var ekki tekin í skyndingu. Áform um hana voru mér kynnt í september 1944. Þá tjáöu yfirmenn mínir mér aö ég ætti aö mynda hóp sem gæti farið meö svona vopn en þaö væri nú á undirbúningsstigi. Nú, á þeim tíma geröi ég mér auðvitað enga grein fyrir öllu því sem þurftí aö koma í verk næstu tíu mánuöi en ég var fljótur aö koma mér inní máliö og starfaöi þá náiö með vísindamönnum sem unnu aö Man- hattan-verkefninu. Þaö var í því fólgiö aö koma vopni sem enn var aöeins til í rann- sóknarstofu í þaö ástand aö unnt væri að beita því á vígvellinum. Þessir menn höföu þá þegar tök á því aö framkvæma kjarn- orkusprengingu eöa jafnvel keöju slíkra sprenginga. Vandamáliö var í því fólgiö aö gera þaö mögulegt að varþa vopninu úr flugvél í 30 þúsund feta hæö með svo mik- illi nákvæmni aö hægt væri aö miöa á ákveðinn staö eöa ákveöiö skotmark. Til aö ná þessu markmiöi þurfti gífurlega und- irbúningsvinnu. Stærö flugvélanna setti okkur skoröur. Þaö var ekki haagt aö flytja neltt sem var mjög mikiö fyrirferðár í sprengjuhólfunum. Því þurfti aö gera alla hluti eins fyrirferðar- litla og kostur var. Starf okkar miðaöi aö því aö vopnið gæti sprungiö yfir ofan yfir- borö jaröar í í því sambandi varð aö taka tillit til loftþrýstings. Mælingar vegna þessa atriöis kröföust útbúnaöar sem var allmikill fyrirferöar og hönnun hans kostaöi mikla tilraunastarfsemi. Ég varpaöi 30 slíkum vopnum til aö afla nauösynlegra upplýs- inga um þetta efni. — Hvar var þeim varpaö? Yfir ajó7 — Nel, þaö var yfir Salt Lake-sléttunum í Utah. Af öryggisástæöum vorum við í ein- angrun. Aö loknum öllum þessum undir- búningi vorum viö komnir í þá aöstööu í maímánuði 1945 að viö töldum okkur geta hæft skotmark úr 30 þúsund feta hæö svo ekki skeikaöi nema nokkrum fetum. Vís- indamennirnir sögöu mér að möguleikinn á mistökum væri ekki nema einn á móti tíu þúsund. Mér þótti þaö hlutfall alveg nógu hagstætt. Þegar hér var komiö sögu fluttum við okkur í áttina aö eyjunum og þar beiö okkar áframhaldandi undirbúningur. í fyrsta lagi þurftum viö aö koma okkur upp aöstööu til aö setja vopniö saman. Þaö var nefnilega ekki hægt — jú, þaö heföi auðvit- aö veriö hægt en þeir vildu þaö ekki — aö flytja það í einu lagi vegna hættu á því aö þaö eyöilegöist í styrjaldaraögeröum. Þess vegna skiptum viö því í marga hluta sem voru fluttir flugleiöis og sjóleiöis og þegar allt var komiö til Tinian-eyjar þurftum við aö geta sett þaö saman. Allt kraföist þetta mikillar samræmingar og áætlanageröar. Eitt vandamáliö varö- andi áætlanagerö var þaö aö villa um fyrir Japönum í sambandi viö loftvarnir. Viö fengum beztu mennina ú 20. flugherdeild- inni til að hjálpa okkur við þaö starf. Þar sem nauösynlegt var aö varpa sprengjunni úr einni flugvél var ákveðið að engar aðrar flugvólar yröu í nánd. Viö ákváöum aö beita aðferö sem ég haföi fundiö upp — aö kasta sprengjunni og snúa flugvélinni síöan viö á sama andartaki. Meö öörum oröum, halla vélinni 60°, en í slíkri stööu koma upp viss tæknileg vandamál sem nauösynlegt var aö leysa. Og þaö tókst aö gera. Ég náöi frábærum árangri í því aö fullkomna þenn- an snúning meö þeirri afleiðingu aö óg lét sprengjuna falla á Hiroshima og þegar hún sprakk 51 sekúndu síöar var óg kominn í ellefu mílna fjarlægö frá staönum. — Hversu oft æföiröu þetta? — Þaö er mór ómögulegt aö muna. Stundum tvisvar og þrisvar á dag. Maöur notaöi alltaf tækifæriö þegar flugvélin var í mikilli hæö af því að ætlunin var aö snúa vélinni um 150° á eins skömmum tíma og möguiegt var. — Hversu margir menn unnu að þessu verkefni? — Ég veit þaö ekki því að hópurinn sem vann aö Manhattan-verkefninu var skipu- iagöur sem ein heild. — Var þetta Oppenheimer-hópurinn? — Já, þetta var Oppenheimer-hópurinn og fyrirliðinn var Lester Groves. Hann haföi hershöföingjatign og stjórnaöi verkfræö- ingum meö hermál sem sérsviö. Hann var afar fær maður. Heföi hann hug á því að taka í sína þjónustu vísindamenn, hernað- arsérfræðinga, borgaralega embættis- menn eöa einhverja aöra — nú, þá geröi hann þaö. Ætli þaö hljóti ekki aö hafa veriö upp undir tíu þúsund manns sem þarna komu viö sögu. Viö höfðum á aö skipa 1400 mönnum úr flughernum og 16 flugvél- um. — Tiihvera? — Til aö inna af hendi þetta starf. Þegar við tókum þaö aö okkur þá vorum viö sannfæröir um aö Jaþanir gætu ekki varizt slíku vopni nema skamma hríð. Viö vissum ekki hvort eitt, tvö eöa þrjú slík vopn þyrfti til aö binda enda á stríöiö. Viö vissum þaö ekki, skiluröu, en viö vorum hins vegar vissir um aö á þennan hátt gætum viö bundiö enda á stríöiö. Þetta hefur vitaskuld gert þaö aö verkum aö ég var sáttur viö þaö sem ég var aö gera og einnig sú vitn- eskja sem Japanir sjálfir hafa staöfest, s.s. aö viö höfum bjargaö langtum fleiri manns- lífum en þeim sem grandaö var. — Af hverju? Af því að Japanir heföu ekki gefizt upp tyrir neinu ööru? — Þaö held ég varla. Ég fókk einstakt tækifæri til aö ræöa viö Fustiada, sem stjórnaöi árásinni á Pearl Harbour, þegar hann var gestur minn í Tampa á Flórída áriö 1959. Hann hafði lokið prófi frá Har- vard og haföi fullkomið vald á enskri tungu. Hann sagöi nokkuð sem óg festi mér í minni. Hann sagði: .Þiö geröuö það sem varð aö gera. Á þessum tíma voru Japanir svo öfgafullir og þeir heföu barizt til síöasta manns, konu og barns með prikum og grjóti ef því heföi verið aö skipta." Hann bætti því viö aö „það hefði orðiö gífurlegt mannfall á báöa bóga“. Þessu hef ég aldrei gleymt. Hann sagöi líka aö þetta skildi jap- anska þjóðin betur en Ameríkanar gætu nokkurn tíma gert sér grein fyrir. — Hvernig stóö á þessu nafni, Enola- Gay? — Ég var sannfæröur um að þetta yröi sögulegur viðburöur. Þaö voru óskráö lög aö áhafnir máttu nefna flugvélar sínar í höf- uöiö á kærustunni, konunni, mömmu sinni, einhverju fylki, borg eða einhverju sem skipti þær máli. Ég vildi vera viss í minni sök og ég ætlaði aö sjá til þess aö þessari flugvél yrði ekki ruglaö saman viö einhverja aöra. Og ég vildi gefa henni nafn sem haföi þýöingu fyrir mig. Móðir mín hét Enola- Gay. SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.