Morgunblaðið - 27.07.1984, Side 15

Morgunblaðið - 27.07.1984, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1984 47 HVAD ER AÐ GERAST UM HELGINA? Ólafsson, sem kom meö málverk frá Kaupmannahöfn, Steinunn Bjarnadóttir, sem kom meö myndbönd frá Mexíkó, og fjór- menningarnir Hreinn Friöfinnsson, Amsterdam, Þóröur Ben Sveins- son, Dusseldorf, Siguröur Guö- mundsson, Amsterdam, og Krist- ján Guömundsson, Amsterdam, en verk þeirra fylla vestursal húss- ins. Sýningin er opin daglega frá kl. 14—22. Henni lýkur á sunnudag. Gallerí Djúpið: „Snúningur“ Ólafs Sveinssonar Myndlistarmaöurinn Ólafur Sveinsson heldur nú sýningu, sem ber heitiö „Snúningur“, í Galleri Djúpinu í Hafnarstræti. Þar sýnir Ólafur 15 vatnslita- og pastel- myndir og er þetta þriöja einka- sýning Ólafs á árinu, en hann held- ur á næstunni til Flórens á Ítalíu til listnáms. Sýningin í Djúpinu veröur opin til 5. ágúst. Þrastalundur: Árni Garöar Árni Garöar Kristinsson, mynd- listarmaöur, heldur nú sýningu í veitingastofunni Þrastalundi viö Sog. Á sýningunni eru olíumyndir, ásamt pastel- og vatnslitamyndum og er hún opin á venjulegum opnunartíma Þrastalundar. Sýn- ingu Árna Garöars lýkur á sunnu- dag. Akureyri: EGG-ieikhúsið með Knall EGG-LEIKHÚSIÐ hefur í dag leikferð um Norðurland með verk Jökuls Jakobssonar, Knall. Fyrsta sýning leikhússins, aem Viðar Eggertsson leikari stendur að og er jafnframt eini leikari í, er í Samkomuhúsinu á Akureyri á morgun kl. 22. Viðar sýnir aftur á sama stað og tíma á sunnudag, en á mánudag er sýning í Hrísey. Sýningarnar á Akureyri eru í tengslum við „Karnival“ sem haldið er þar í bæ um helgina. dala, sú þriöja í Þórsmörkina, og er þaðan dagsferö upp meö Skógá, og fjóröa feröin er til Land- mannalauga. Frá Landmannalaug- um er fariö í dagsferð í Eldgjá. Lagt veröur af staö í feröir þessar kl. 20. Á morgun kl. 13 er Viöeyjar- ferö og veröur fariö frá Sundahöfn. Á sunnudag kl. 10 er gönguferö og er þá gengiö á Móskaröshnjúka og Trönu og niöur í Kjós. Sama dag kl. 13 er gengiö á irafell og um Svínadal í Kjós. Útivist: Eldgjá og Þórsmörk Ferðafélagið Útivist fer í tvær helgarferðir í kvöld kl. 20. önnur veröur ferö í Eldgjá og Land- mannalaugar, en hin er Þórsmerk- urferö. Á morgun er tveggja daga ferð og veröur gengiö yfir Fimm- vörðuháls frá Skógum í Þórsmörk og hefst feröin kl. 8.30. Á sunnu- dag kl. 8 er einsdagsferð í Þórs- mörk og kl. 13 sama dag er fariö í tvær feröir á Esjusvæöiö. Sú fyrri er ganga á Skálafell, en hin síöari er ganga frá Stardal aö Fellsenda. NVSV: Ferö um Miöneshrepp Náttúruverndarfélag Suövest- urlands fer á morgun í náttúru- skoöunar- og söguferö um Miö- neshrepp. Veröur fyrst ekiö í Bæj- Gallerí Borg: Ingibjörg Eggerz INGIBJÖRG Eggerz hefur nú opnað málverkasýningu í Gallerí Borg við Austurvöll. Á sýningunni, sem er fyrsta einkasýning Ingibjargar hár á landi, eru um 20 olíumálverk, sem flest eru unnin á árunum 1955—1970. Ingibjörg stundaöi listnám í Wash- ington og Bonn og hefur haldið einkasýningar í Vín og Bonn, auk þess sem hún hefur átt verk á fjölda samsýninga. Sýningin í Gallerí Borg stendur til 8. ágúst og er opin frá kl. 10—18 virka daga og kl. 14—18 um helgar. Norræna húsið: HEXAGON NORRÆNA húsiö hefur á morgun kl. 15 sýningu á verkum 6 norrænna textfllistamanna. Hópurinn kallar sig Hexagon og í hon- um eru Inger-Johanne Brautaset og Wenche Kvalstad Eckhoff frá Noregi, Maj-Britt Engström og Eva Stephenson-Möller frá Sví- þjóð og íslendingarnir Þorbjörg Þórðardóttir og Guðrún Gunn- arsdóttir. Sýning þessi er farandsýning og hefur áður verið í Sviþjóð og Noregi. A henni eru um 55 verk og stendur hún til 12. ágúst. I anddyri Norræna hússins er sýning á íslenskum skordýrum, sem sett var upp í samvinnu við Náttúrufræðistofnun fslands og í bókasafni er sýning á hefðbundnu íslensku prjóni. Akureyri: Verk Örlygs Kristfinnssonar Örlygur Kristfinnsson kynnir nú verk sín í Alþýðubankanum á Ak- ureyri. Örlygur hefur haldiö fjórar einkasýningar áöur, en aö sýning- unni í Alþýöubankanum standa, auk bankans, Menningarsamtök Norölendinga. Mosfellssveit: Grafík Lísu K. Guðjónsdóttur Lísa K. Guöjónsdóttir, myndlist- armaöur, sýnir nú í bókasafni Mosfellshrepps i Markholti. Á sýn- ingunni eru 20 grafíkverk og 9 smámyndir og er hún opin alla virka daga kl. 13-20. Henni lýkur 10. ágúst. Nýlistasafnið: Grafík I Nýlistasafninu viö Vatnsstíg stendur nú yfir sýning á grafík- myndum. Meöal listamanna, sem eiga myndir á sýningunni, eru Kees Visser, Tumi Magnússon, Kristján Steingrímur, Haraldur Ingi Har- aldsson, Pétur Magnússon, Ingólf- ur Arnarson, Helgi Þorgils Friö- jónsson, Sólveig Aöalsteinsdóttir og Árni Ingólfsson. Sýningin er opin frá kl. 16—20 virka daga og frá kl. 14—20 um helgar. Henni lýkur á sunnudag. SAMKOMUR Árbæjarsafn: Fiskafólk og Gullbor Árbæjarsafn er nú opiö alla daga nema mánudaga kl. 13.30—18. Þar stendur nú yfir sýning frá Færeyjum, sem nefnist „Fiskafólk" og fjallar hún um líf og störf fólks í Færeyjum á árunum 1920—1940. „Gullborinn", sem notaöur var á árum áöur viö guilleit í Vatnsmýr- inni, veröur til sýnis og kaffiveit- ingar veröa í Dillonshúsi. FERÐIR Þingvellir: Gönguferðir í sumar eru skipulagöar göngu- feröir um Þingvelli. Föstudaga til þriöjudaga gengur starfsmaöur þjóögarösins meö gestum frá hringsjá á brún Almannagjár til Lögbergs, „Kastala“ og á Þing- vallastaö. Ferðin hefst kl. 8.45. A föstudögum og laugardögum kl. 14 er gengiö frá „Köstulum" aö Skógarkoti og Leirum. Sömu daga kl. 16 er gengiö frá Vellandkötlu aö Klukkustíg. i öllum þessum feröum njóta þátttakendur leiósagnar. Ferðafélag íslands: Hvítárnes og Þjófadalir Feröafélag islands fer í kvöld í fjórar helgarferöir. Hin fyrsta er í Hvítárnes, en þaöan er fariö á bát um Hvitárvatn í Karlsdrátt. Önnur ferðin er til Hveravalla og Þjófa- arskershverfi og síöan komiö víöa viö, m.a. í fjöru viö Lindarsand, í Hvalneskirkju, vió Kettlingatjörn og á Kirkjubóli. Leiösögumenn í feröinni veröa jaröfræöingur, líf- fræðingur, vatnalíffræöingur og áhugamaöur um fugla. Fariö verö- ur frá Norræna húsinu kl. 13.30 og frá sundiauginni í Sandgeröi kl. 14.30. Mokka: Guðmundur Hinriksson Guðmundur Hinriksson, myndlistarmaöur, sýnir nú vatns-vaxlitamyndir á Mokka við Skólavöröustíg, en hann hefur áöur haldið sýningar hér og erlendis. Myndirnar eru um 20 talsins og eru unnar þannig að vaxið er brætt yfir vatnslitinn og síðan skafið af þegar myndinni er lokið. Sýn- ingu Guðmundar á Mokka lýk- ur um miöjan ágúst.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.