Morgunblaðið - 27.07.1984, Side 10

Morgunblaðið - 27.07.1984, Side 10
42 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1984 Uppeldisskilyrði geta haft áhrif á heilsu barna Heilsa Olafur Ólafsson Asíöustu áratugum hafa oröiö miklar breytingar á þjóöfélagsháttum og um- hverfi barna og unglinga sem ann- arra hér á landi. Efnahagslegur aöbúnaöur og heilsufar þeirra hef- ur breyst í flestum tilfellum til batn- aöar en ekki aö öllu leyti. í þessari grein veröa nokkur atriöi þessara breytinga rædd og áhrif þeirra á lífsvenjur og heilsufar athuguö. Á Vesturlöndum hefur hjóna- skílnuðum fjölgaö mjög ört á síö- ustu árum. Taliö er aö í sumum löndum endi nú þriöja hvert hjóna- band meö skilnaöi, og í sumum stórborgum endar annað hvert hjónaband meö skilnaöi. Bent hef- ur veriö á aö góö fylgni sé milli vaxandi framlaga til félagsmála og fjölgunar hjónaskilnaöa. Hjónaskilnuðum hefur fjölgaö á íslandi eins og á hinum Noröur- löndunum (úr 4,3 á þúsund konur á ári 1951—60 og í 9,1 árin 1976—80). Fjöldi hjónaskilnaða er hlutfallslega meiri á íslandi en í Noregi, svipaöur og í Finnlandi og Svíþjóö. Taliö er aö allt aö sex hundruó börn veröi aö þola skiln- aö foreldra sinna á hverju ári hér á landi. Mikiö hefur veriö rætt og ritaö um áhrif hjónaskilnaöa á börn. Flestir eru sammála um aö áhrifin séu oft slæm. Algengustu kvartan- ir meöal þessara barna eru skortur á öryggistilfinningu, kvíöi og sjálfs- ásökun. Fram aö þessu hefur verið taiiö aö hér væri um skammtíma- áhrif aö ræöa en niöurstööur rann- sókna síöari ára benda eindregiö til aö áhrifin séu oft langvarandi og alvarleg. Hér veröur vitnaö í niöur- stööur nokkurra vísindamanna sem fengist hafa viö slíkar rann- sóknir. Börn foreldra sem skilja hætta yfirleitt fyrr en önnur í skóla, þ.á m. háskóla, og þeim farnast verr í hjónabandi þegar þar aö kemur. Þau telja sig mörg eiga í erfiðleik- um meö aö mynda varanlegt til- finningasamband viö hitt kyniö. Yf- irleitt telja þau aö skilnaöur for- eldra þeirra hafi veriö alvarlegasta áfall æskunnar. Víöa kemur fram aö skilnaöur snertir yngstu börnin mest. Ein rannsóknin benti til aö um þriöj- ungur barnanna teldi sig vera óhamingjusöm allt aö fimm árum eftir hjónaskilnaöinn. í breskri rannsókn kom í Ijós aö veikindi og sjálfsmorö voru tíöari meöal barna er oröiö höföu fyrir skilnaöi for- eldra en jafnaldra þeirra. Jafn- framt var menntun þeirra lélegri og meöalævi styttri. Margir hafa bent á aö hjóna- skilnaöur sé alls ekki alltaf besta lausnin í stormasömu hjónabandi. Hjónabandiö þurfi aö vera mjög slæmt til þess aö unnt sé aö rétt- læta skilnaö meö hliösjón af vel- ferö barnanna. Börn túlki þaö oft sem umhyggju ef hjón halda sam- an þrátt fyrir deilur. Rétt er aö hafa í huga aö hjónaskilnaóur hefur yflr- leitt í för með sér versnandi efna- hagsástand á heimili barnsins. Níu af hverjum tíu íslenskum konum hafa einhvern tímann á lífsleiöinni gengiö í hjónaband, en nú viröist þaö fariö aö breytast. Áriö 1972 voru 51% kvenna á aldr- inum 20—24 ára komnar í hjóna- band en einungis 27% kvenna á þessum aldri áriö 1982 (Hagtíö- indi, 1983, bls. 229.) Hlutfall giftra meöal 20—24 ára karla hefur á sama tíma lækkaö úr 31% ( 14%. Þess má geta aö dánartíöni fólks utan hjónabands er hærri en fólks í hjónabandi. Athyglisvert er aö börnum sem alin eru upp af einstæöum masör- um farnast oft betur en hjóna- skilnaöarbörnum. Astæöan gæti verið sú, og ekki síst á islandi, aö ógiftar mæöur njóta stundum meiri aöstoöar foreldra en frá- skildar mæöur. Yfirleitt njóta ógift- ar mæöur betri fjölskylduaöstoöar á islandi en þekkist i nálægum löndum, þó aó félagsleg aöstoö og tryggingar séu viöa betri en hér. Mun fleiri börn fæöast nú utan hjónabands en fyrir tuttugu árum (25,3% árin 1956—60, 36,8% árin 1976—80 og 44,6% áriö 1982). Hlutfali barna fæddra utan hjóna- bands á íslandi er nú hæst á Norö- urlöndum, aö Grænlandi undan- skildu. Um 83% þessara barna búa þó meö báöum foreldrum fimm ár- um eftir fæöingu (samkvæmt rann- sókn Guöna Baldurssonar), en 17% óskilgetnu barnanna, eöa um þrjú hundruö úr hverjum árgangi, búa aöeins skamma stund meö báóum foreldrum eöa þá eingöngu með ööru foreldri, venjulega meö móóurinni. f hverjum árgangi eru þannig a.m.k. 900 börn, eöa fimmta hvert barn, sem alast ekki upp hjá báö- um foreldrum. Af framangreindu er Ijóst aö þessum börnum hefur far- iö hlutfallslega fjölgandi á síöustu áratugum. í íslenskri rannsókn (Guórún Briem) kom í Ijós aö unglingar er ekki voru aldir upp meö báöum foreldrum neyttu tíöar áfengis en hinir er höföu alist upp hjá báöum kynforeldrum. Ennfremur kom ( Ijós aö marktæk fylgni er á milli áfengis- og kannabisneyslu. Prófessor Sigurjón Björnsson, sem gert hefur viðamikla feril- rannsókn á högum 1.100 barna og unglinga i Reykjavík, komst að svipaöri niöurstööu um áhrif af uppeldishögum barna og unglinga. Börn sem alast upp á „tvístruöum Persónu- lega kom mér það ekki við — írskt? — Já, þegar ég var strákur hóf ég læknanám af því aö fjölskyldan vildi aö ég yröi læknir. En þegar kom aö því aö óg varö aö taka lokaákvöröun í málinu sagöi ég: „Ég ætla aö veröa flugmaöur.* Fööur mínum stóö stuggur af flugvélum og svo var um aöra ( fjölskyldunni og ýmsa vini okkar. Hann var vanur aö segja: „Þaö end- ar meö þvi aö þú drepur þig i einni af þessum maskínum.* Móöir mín var ekki vön aö fara geyst. Hún var hæglát kona. Þegar fjaörafokiö var afstaöiö sagöi hún: „Paul, faröu bara í flugiö. Þaö veröur allt í lagi.* Þessu hef ég aldrei gleymt. — Þannig stáð hún meó þér? — Hún var bakhjarl minn og hún trúöi þvi statt og stööugt aó flugvél yröi mér ekki aö grandi. — Hvernig fórstu eð því að velja Enola-Gay úr þessum 16 ttugvúlum? — f upphafi vorum viö meö nokkrar B-29-vélar af eldri geröinni og þaö var ekki hægt aö breyta þelm þannig aö þær gætu flutt þessi vopn. Ég bar fram þá kröfu viö rétta aöila innan hersins aö viö fengjum til umráöa nýrri gerö af vélinni. Flugvélarnar voru smíöaöar í Marton-verksmiöjunn! i Omaha í Nebraska. Þelr sem ráku þá verk- smiöju vissu aö hér var eitthvaö alveg sér- stakt á ferö, m.a. af því aö úr verksmiöj- unni var fariö meö þessar vélar belnt út á þann enda flugvallarins sem var lengst í burtu frá verksmiöjunni. Þar voru þær sett- ar í skýli sem enginn haföi aögang aö. Þaö var á leynilegu svæöi þar sem skipt var um vélar áöur en áhafnir okkar tóku viö þeim og flugu þeim út í buskann. — Og það var 509. deild sem tók við þessum vélum 7 — Já, 509. deild fékk þessar vélar. Dag nokkurn fór ég í verksmiöjuna til aö athuga hvernig gengi meö vélarnar. Einn verkstjór- inn sagöi viö mig, — hann sagöi sisona, ég veit aö þiö eruö aö fást viö eitthvaö mjög sérstakt. Mig lengar til aö sýna þér þessa vél: Númeriö er 4486292. Hún er tllbúin. Hún er búin aö fara ( gegnum öll stig til- rauna og árangurinn hefur aö öllu leyti ver- iö fullkominn. Þetta veröur fín flugvél. Ég sagöi: Þetta skal veröa mín flugvél. Þannig valdi ég Enola-Gay. — En áhöfnin? Var þetta áhöfn sem þegar var búið að fullskipa eða var hún sérstaklega valin til að vinna þetta verk? í venjulegri B-29-áhöfn eru níu menns. — Já, viö vorum niu. Ég get sagt þaö hér og nú aö þegar ég var valinn til starfans árlö 1944 þá var ég ekki meö neinn mannskap aö sjálfum mér frátöldum. En þeir sögöu aö þetta væri svo mikilvægt aö ég fengi allt sem ég vildi um leiö og ég sagöi lykiloröiö: Silver Plate. Þú veröur ekki spuröur eins eöa neins, sögöu þeir, þú færö allt sem þú vllt. Flott, sagöi ég. Maöurinn sem settl mig inn í máliö sagöi: „Paul, eitt verö ég aö segja þér. Vertu varkár. Notaöu þaö ekki nema þú megir til. En vertu ekkl hræddur vlö aö gera þaö þegar á þarf aö halda." Þessi maöur var Ant hershöfölngi. Og ég sagöi viö hann: „Hershöfölngi, ég ætla aö nota þaö hér og nú. Til aö byrja á þessu verkefni verö ég aö hafa færustu mönnum á aó skipa. Ég veit aö til þess aö varpa þessari sprengju vantar mig góöan flugvél- stjóra, góöan loftskeytamann og góöan sprengjuforingja." Hann sagöist skilja þaó. Og ég sagöi honum aö beztu mennirnir væru þeir sem ég heföi flogiö meö í Evrópu en nú væru þeir dreiföir um allar jaröir. Þaö fyrsta sem ég gerði var aö safna þeim saman. Og síðan — maöur þekkti mann sem þekkti mann og þannig náöum viö saman þeim mannskap sem ómissandl var til aö Ijúka jæssu verkl. Þegar viö vor- um búnir aö finna þessa menn fórum við mjög varlega í þaö sem á vantaði. Viö spuröumst fyrir ( hinum ýmsu deildum flughersins meö þaö fyrir augum aö fá þrautþjálfaöa menn meö óaöfinnanlegan feril og svo framvegis. Og þannig komum viö þessu í höfn. En mikill hluti starfsins var unninn af þeim mönnum sem voru í svo- kallaöri dagskipunarsveit. Þeir sáu um aö allt væri til taks hvenær sem á þurfti aö halda og þeir settu saman vopn og tóku þau í sundur þannig aö viö gátum æft okkur endalaust og þannig búiö okkur undir alvöruna. f dagskipunarsveitinni voru eiginlega menn sem valdlr voru af enn meiri kostgæfni en nokkrir aörir sem komu viö sögu þessa máls. — Svo þarna hefur einstakiingurinn skipt miklu máli? — Það er nú líkast tll. Þaö var farlö ofan i saumana á öllu sem þessir menn höföu komiö nálægt um dagana og aö því búnu var fariö meö þá til Wendover f Utah þar sem þeir voru skólaöir til og þjálfaöir al- gjörlega upp á nýtt. Þeim var innprentaö aö gæta yröi fyllstu leyndar í sambandi viö verkefniö sem viö værum sannfæröir um

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.